Morgunblaðið - 25.07.2000, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 2000 45
sambýlið ætíð gott, og þar fæddist
mín elskulega vinkona Kristín,
einkabarn þeirra hjóna. Margs er að
minnast frá þessum bernsku- og
æskudögum. Þar eiga þau Guðni og
Jóna ásamt Stínu stóran hlut að
máli.
A þessum ánjm vann Guðni í
vélsmiðjunni Kletti í Hafnarfirði.
Um 39 ára aldur lærði hann gull-
smíði og vann hjá Guðmundi And-
réssyni gullsmiði, tengdaföður sín-
um, á Laugavegi 50. Eftir fráfall
Guðmundar keypti Guðni verslunina
og stjómaði henni til hinstu stundar.
Honum var mikilvægt að hafa alltaf
nóg að starfa.
Guðni var mikið fyrir tónlist og
söng með karlakórnum Þröstum í
Hafnarfirði og seinna með Fóst-
bræðmm. Oft heyrði ég hann æfa sig
á kvöldin og hafði gaman af.
Með Guðna og fjölskyldu fór ég í
mína fyrstu tjaldútilegu, og það var
til Þingvalla. Þvílík upplifun! Eða all-
ir bíltúrarnir í Ford-bílnum sem
okkur Stínu fannst svo fínn! Það sem
er þó hvað minnistæðast, þegar litið
er til baka, er mánaðarferð, sem við
fómm saman um Evrópu. Var þetta í
fyrsta skipti sem við Stína fómm til
útlanda, þá unglingar. Þetta var frá-
bær ferð sem aldrei gleymist og
kannski einmitt fyrir það hversu vel
Guðni fræddi okkur og kenndi um
hin ýmsu lönd og borgir sem við fór-
um um. Hann var búinn að lesa sér
til og virtist jafnvel þekkja og vera
búinn að sjá margt það sem við skoð-
uðum, þó að hann hefði ekki komið
þangað fyrr. Hann var stálminnug-
ur, var það reyndar alla tíð, og hann
naut sín svo einstaklega vel við að
miðla okkur stelpunum af þekkingu
sinni.
Oft höfum við rifjað upp þessa
ferð og alltaf hlegið jafn mikið og
haft gaman af. Meðal annars þegar
Jóna hafði áhyggjur af því að við
væmm að villast og fara einhverjar
„útúrgötur". Eftir á undraðist ég
hversu vel Guðni mundi eftir öllu,
stóm sem smáu, betur en við yngra
fólkið.
Mér fannst Guðni vera myndar-
legur maður. Já, hreint og beint fal-
legur! Hann var mikið ljúfmenni,
kurteis og hafði sérlega fágaða fram-
komu. Nú er þessi góði vinur horfinn
á braut og ég veit að söknuðurinn er
mikill í fjölskyldunni. Ég er þakklát
fyrir að hafa þekkt Guðna.
Elsku Jóna mín og Stína, Einar,
Guðni og Árni. Ég votta ykkur inni-
lega samúð mína og fjölskyldu minn-
ar.
Guðrún.
Kveðja frá Félagi
íslenskra gullsmiða
í dag kveðjum við félaga okkar,
Guðna Þórðarson. Hann var í starfi
fram á síðasta dag, ötull og duglegur
gullsmiður. Guðni fæddist á Ólfus-
vatni í Grafningi 5. október 1914, ólst
upp í Hafnarfirði og í ársbyrjun 1932
hóf hann nám í járnsmíði. Guðni
stofnaði ásamt öðmm Vélsmiðjuna
Klett, en er Guðni var 39 ára hóf
hann nám í gullsmíði. Tengdafaðir
hans, Guðmundur Andrésson gull-
smíðameistari, kenndi honum iðnina,
hjá honum vann hann og síðar tók
Guðni við rekstrinum ásamt svo
Kristínu dóttur sinni.
Fyrst þegar Guðni byrjaði í iðn-
inni var aðallega unnið víravirki. Á
sjötta áratugnum fór að draga úr
vinsældum víravirkisins og aðrir
skartgripir að seljast. Smíði úr gulli
varð sífellt stærri þáttur í starfsemi
verkstæðisins við Laugaveginn, sem
er mjög lítið en alltaf var hægt að
taka á móti gestum og oft glatt á
hjalla.
Guðni hafði yndi af söng og var
virkur meðlimur í Fóstbræðram, oft
heyrði maður Guðna söngla við vinn-
una, sem gaf til kynna að hann unni
faginu. Að leiðarlokum viljum við
kveðja þennan hugljúfa mannvin um
leið og við flytjum eiginkonu hans,
Jónínu, Kristínu dóttur hans og öðr-
um ástvinum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning Guðna Þórð-
arsonar.
Halla Bogadóttir,
formaður FÍG.
YNGVI
KJARTANSSON
+ Yngvi Kjartans-
son fæddist á Ak-
ureyri 7. apríl 1962.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 6. júlí síð-
astliðinn og fór útför
hans fram frá Akur-
eyrarkirkju 14. júlí.
Ég var erlendis þeg-
ar útför Yngva Kjart-
anssonar blaðamanns,
góðkunningja míns, fór
fram. Ég sé eftir heim-
komu að hans hefur
verið maklega getið í
minningargreinum, og því bættur
skaðinn þó að kveðja mín sé síðbúin
og stutt.
Ég kynntist Yngva fyrst þegar ég
hóf kennslu við Menntaskólann á
Akureyri 1983 en hann var þá á
lokaári þar. Yngva þótti, ef ég man
rétt, lítið til koma þeirra fræða sem
nýi kennarinn reiddi fram enda ekki
nema þremur áram eldri en hann og
Yngvi þá þegar, að eigin dómi,
nokkuð lífsreyndur. Seinna áttum
við hins vegar eftir að verða allvel
sáttir.
Næst kynntist ég Yngva sem
deildarfulltrúa heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri en því starfi
gegndi hann um skeið þegar hann
var milli vita í blaðamennskunni.
Tókst þá með okkur góður kunn-
ingsskapur sem aldrei slitnaði.
Yngvi var afskaplega vel liðinn sem
deildarfulltrúi. Starfinu sjálfu
gegndi hann af inngróinni trú-
mennsku og ljúfleik, en undir lok
þess gmnar mig að mestur tími
Yngva hafi farið í að vera allsherjar
hjálparhella kennara í Þingvalla-
strætinu í tölvumálum - og settu
deildamúrar þar greiðasemi hans
engin mörk. Yngva var mjög saknað
hér er hann hvarf á braut og tók
upp sér skyldari sýslan, en hann
heimsótti okkur þó reglulega á
kaffistofuna og sinnti stundakennslu
hér í mörg ár: kenndi verðandi
hjúkmnarfræðingum greinaskrif og
hluta af aðferðafræðinámskeiði í
rekstrardeild. Vöndugleikur og
samviskusemi einkenndi kennslu
Yngva sem og önnur störf. Því þótti
mér ekki ónýtt að geta fengið hann
til að sjá um frágang og hönnun á
greinasafninu Tilraunin ísland í 50
ár sem við Valgarður Egilsson
læknir ritstýrðum og Listahátíð gaf
út árið 1994.
Yngvi var góður blaðamaður, öt-
ull fréttamaður og frábær þátta-
stjómandi.
Sagnaslóðar-þættir hans verða
mörgum útvarpshlustendum eftir-
minnilegir enda naut þar eðlislæg
rósemi hans, natni og Ehygli sín
best. Hann hafði ríka réttlætis-
kennd og brennandi áhuga á fjöl-
miðlun af öllu tagi, úr-
vinnslu og miðlun
upplýsinga til almenn-
ings. Honum þótti víða
pottur brotinn í að
upplýsingaskyldu
stjómvalda væri sinnt
sem skyldi og því
glöddu lög um það
efni, sett fyrir nokkr-
um ámm, hann mjög
þó að hann teldi þau
raunar ganga of
skammt í ýmsum
greinum. Almennt
hafði Yngvi ímigust á
öllu uppblásnu og loft-
bornu en laðaðist að hinu smágerva
og jarðbundna. Hann var hógvær án
þess að vera auðmjúkur, kíminn án
þess að vera rætinn, elskulegur án
þess að vera uppáþrengjandi, fylg-
inn sér án þess að vera ágengur.
Eðliskostir Yngva nutu sín í
hetjulegri baráttu hans við grimm-
an og ósigrandi óvin, baráttu sem
stóð lengur en nokkum hefði getað
órað fyrir.
Þar réð mestu að Yngvi tók sjúk-
dómi sínum ekki af því æðmleysi
sem kallað er dygð í minningar-
greinum, en oft er ekki nema rang-
hverfan á sálrænni uppgjöf, heldur
af hetjuskap og ódrepandi baráttu-
anda. Hann burstaði meira að segja
rykið af menntaskólaenskunni og
gott betur til að geta deilt reynslu
sinni með þjáningarsystkinum út
um allan heim á Netinu og talið í
þau kjark.
Yngvi var ekki trúmaður í venju-
legum skilningi en í einu síðasta
samtali mínu við hann lýsti hann þó
þeirri skoðun sinni að höfuðstef
allra bestu bókmennta heimsins (en
í þeim var hann ótrúlega vel lesinn),
sem og trúarbragða, væri friðþæg-
ingarfórnin. Hetjan fellur en ljær
um leið hinum kraft svo að þeir eigi
lífsvon: Murphy deyr í Gaukshreiðr-
inu en indíáninn brýst út, Njáll
brennur en Kári (vindurinn, tíminn,
framvindan) heldur sína leið. Yngvi
gerði sér ömgglega enga grein fyrir
því í þessu samtali okkar að hann
sjálfur væri órækastur vitnisburður
um gildi eigin kenningar: Hann var
þá að falli kominn, en fordæmi hans,
þolgæði og hetjulund, gefur okkur
sem eftir lifa kraft til að kóklast
áfram um sinn uns orka þverr og
aðrir taka við merkinu.
Yngvi Kjartansson var góður
drengur, velviljaður öllu sem lífs-
anda dregur.
Hans mun víða saknað þó að
mestur harmur sé vitaskuld kveðinn
að fjölskyldu hans sem hann talaði
jafnan um með sérstökum innileik.
Henni sendi ég persónulega og fyrir
hönd starfsfólks Háskólans á Akur-
eyri innilegustu samúðarkveðjur.
Kristján Kristjánsson.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, sonar, föður okkar, tengdaföður, afa og bróður,
KRISTJÁNS HAUKSSONAR,
BASSA,
Bassastöðum.
ísfold Aðalsteinsdóttir,
Hólmfríður Sölvadóttir,
Fanney Kristjánsdóttir, Brynjólfur Gunnarsson,
Kristín Kristjánsdóttir, Kristján Bárðarson,
Hólmfríður Kristjánsdóttir Wallace, Lee Wallace,
ísfold Kristjánsdóttir,
Guðmundur Hauksson, Nanna Ásgrímsdóttir,
Edda B. Hauksdóttir, Hartman Ásgrímsson,
barnabörn og systkinabörn.
Elskuleg systir okkar,
GRÓA MARÍA SÖRENSDÓTTIR,
Fairfield,
Kaliforníu,
lést 8. júlí sl.
Útför hennar hefur farið fram í Kaliforníu.
Guðbrandur og Sævar Sörenssynir.
+
INGIBJÖRG W. MAGNÚSDÓTTIR,
Arnarholti,
er látin.
Jarðarförin auglýst síðar.
Friðrik W. Magnússon.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir,
tengdafaðir, frændi og afi,
BIRGIR STEINÞÓRSSON,
Hvassaleiti 58,
Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum í Fossvogi
fimmtudaginn 20. júlí, verður jarðsunginn frá
Grensáskirkju fimmtudaginn 27. júlí kl. 13.30.
Kristín Ingimundardóttir,
Brynja Ríkey Birgisdóttir,
Ragnheiður Magnúsdóttir,
Birgir Aðalsteinsson,
Kristín Stefánsdóttir,
Anna Bryndís Óskarsdóttir,
Alexander Berg Garðarsson,
Ylfa Rakel Ólafsdóttir,
Garðar Berg Guðjónsson,
Steinunn Guðjónsdóttir,
Ólafur Ingþórsson,
Birgir Karl Óskarsson,
Birgitta Ríkey Garðarsdóttir,
Arna Rín Ólafsdóttir.
+
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma,
systir og frænka,
ÁSTA BJÖRNSDÓTTIR,
Stigahlíð 2,
Reykjavík,
sem lést á heimili sínu 17. júlí sl., verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
27. júlíkl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Barnaspítala Hringsins.
Gunnar Haraldsson, Ásthildur Guðjohnsen
Gunnhildur Eva og Stefanía
Kristveig Björnsdóttir,
Bjöm Jóhannsson, Guðrún R. Daníelsdóttir,
Sigríður Jóhannsdóttir, Baldvin M. Frederiksen,
Sveinn Jóhannsson, Soffía Guðmundsdóttir,
Guðrún Jóhannsdóttir, Þorvaldur Bragason.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu, sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður okkar og afa,
BJÖRNS RAGNARS ÓSKARSSONAR
bryta,
Rauðalæk 14.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks sem
annaðist hann á Landspítala, Fossvogi.
Hjördís Guðmundsdóttir,
Guðmundur Þór Bjömsson, Bima Bjömsdóttir
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og
útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
GUNNARS B. KRISTINSSONAR,
Fífumýri 3,
Garðabæ.
Ellen Þorkelsdóttir,
Kristinn Gunnarsson, Jónína Heigadóttir,
Ingvar Helgi Kristinsson, Sylvía Björg Kristinsdóttir.