Morgunblaðið - 01.08.2000, Qupperneq 1
k
A
m
Renfurm
samdi við
KR-inga
HOLLENSKI sóknarmaður-
inn Maikel Renfurm, sem
lék sinn fyrsta leik með KR
á sunnudag'inn gegn ÍA, hef-
ur gert samning við KR sem
gildir út leiktfmabilið og
verður Renfúrm leigður frá
hollenska félaginu NEC
Nymegen.. Renfurm cr ekki
löglegur með KR f Evrópu-
leiknum gegn bRÖNDBY á
morgun. Andri Sigþórsson,
sem lék ekki með KR gegn
ÍA, verður Ifklega í byijun-
arliði KR gegn Bröndby.
Sigur gegn Noregi
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum
21 árs og yngri, sigraði á sunnudag Noreg 2:1. ísland hefur f fyrri
tíð leikið fjórum sinnum gegn Noregi og tapað þrisvar og gert eitt
jafntefli.
Þetta er því fyrsti sigur íslands
gegn Noregi í þessum flokki
en þess má geta að A-landslið ís-
lands hefur aldrei
sigrað Noreg.
Hrefna Jóhannes-
dóttir skoraði fyrra
mark íslands eftir
frá Margréti
Ólafsdóttur. Rakel Ögmundsdóttir
skallaði að marki en það var varið
og Hrefna fylgdi á eftir og skoraði
af miklu harðfylgi. Rakel skoraði
síðara markið með glæsilegu skoti
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifarfrá
Þýskatandi
hornspyrnu
af 25 metra færi þar sem knöttur-
inn hafnaði efst í markhorni Þjóð-
verja. Margrét og Elín Þorsteins-
dóttir léku best íslensku
stúlknanna ásamt Þóru Helgadótt-
ur sem varði oft laglega í lokin í
marki íslands.
„Ég er mjög stoltur af stelpun-
um. Þær sýndu mikinn og góðan
„karakter" að koma svona sterkar
inn í þennan leik eftir tap gegn
Þjóðverjum sem þær voru mjög
ósáttar við. Með þessum sigri á
Norðmönnum eru stelpurnar ekki
aðeins að brjóta blað í íslenskum
fótbolta heldur eygjum við einnig
möguleika á því að verða Norður-
landameistarar," sagði Jörundur
Áki Sveinsson þjálfari liðsins.
Útlit er fyrir að Bandaríkin vinni
hinn riðilinn og Finnland hafni í
öðru sæti og Þýskaland þann er
ísland leikur í. Þar með leika ís-
land og Finnland væntanlega um
annað sæti í mótinu og þar með um
Norðurlandatitilinn.
ísland lék á föstudag gegn
Þýskalandi og tapaði 3:1 á ósann-
gjarnan máta. Þýsk blöð sögðu frá
því að Þýskaland hefði verið betra
liðið og þjálfari liðsins, Horst
Holsch, sagði að líklega hefðu þau
vanmetið ísland.
GOLF: NORÐURLANDAMÓTIÐ í EYJUM/B4, B5, B10, B12
Morgunblaðið/Hasse Sjögren
Silja Úlfarsdóttir með verðlaunapeningana.
BLAÐ
2000
m ÞRIÐJUDAGUR1. AGUST
Silja fékk
þrenn
verðlaun
SILJA tílafsrsdóttir, hlaupakona
úr FH, náði góðum árangri á
Norðurlandamóti unglinga i
frjálsiþróttum sem fram fór í Sví-
þjóð um helgina. Hún varð önnur í
200 og 400 metra hiaupi og þriðja
í 100 metra hlaupi og krækti sér
því í þrjá verðlaunapeninga. 100
metrana hljóp hún á 12,30 sek-
úndum, 200 á 24,57 og 400 á 55,17.
Vala Flosadóttir sigraði eins og
búist var við í stangarstökkinu,
stökk 4,20 metra og Einar Karl
Hjartarson hástökkvari stökk
2,20 metra og varð annar. Hann
reyndi við ólympíulágmarkið,
2,25 en felldi það.
Sveinn Margeirsson frá Sauðár-
króki varð fjórði í 3.000 metra
hindrunarhlaupi og bætti tíma
sinn verulega, hljóp á 8.51,87 og
er það 2,3 sekúndum frá Islands-
metinu.
Guðleif Harðardóttir varð
fimmta í sleggjuksti með því að
kasta 44,17 metra og í kringlu-
kastinu kastaði hún 36,46 metra
og varð sjötta.
INTER
EW "
INTER'
SPORT
INTER
SPORT
INTER'
INTER'
INTER'
Þí n frístund ~ O kk a r fag
Bíldshöföa • 110 Reykjavík
• 510 8020 • www.lntersport.is
Gylfi samdi við Fylki
KNATTSPYRNUMAÐURINN Gylfi Einarsson skifaði í gær und-
ir nýjan þriggja ára samning við Fylki. Fyrstu deildar liðið Lyn í
Noregi var á höttunum eftir Gylfa en hann kaus að vera heldur
áfram hjá Fylki. Hefði Gylfí skrifað undir samning við Lyn hefði
Fylkir ekki fengið krónu fyrir hann þar sem gamli samningur
hans við félagið hefði runnið út í haust.
„Ég var ekki sáthir við að ef ég færi til Lyn þá fengi Fylkir
ekkert fyrir mig. Ég tek ekki þátt í þeirri þróun að Norðmenn fái
leikmenn ódýrt frá Islandi. Ég gerði góðan þriggja ára samning
og er að sjálfsögðu mjög ánægður,“ sagði Gylfí í gær.