Morgunblaðið - 01.08.2000, Page 7

Morgunblaðið - 01.08.2000, Page 7
6 B ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2000 B 7 r MT W FRJALSIÞROTTIR FRJÁLSÍÞRÓTTIR Mótsmet hjá Nool EISTLENDINGURINN Erki Nool setti mótsmet í 400 m hlaupi í síð- ustu keppnisgrein fyrri keppnis- dagsins í Talence. Nool hljóp á 46,95 sekúndum og bætti sex ára gamalt mótsmet Svíans Henriks Dagards, það var 47,25. Eista mótsmetið, í 110 m grindashlaupi, stóðst átökin um helgina. Það á Frakkinn Guy Druit, en hann hljóp grindahlaupið á 13,74 sek- úndum 1976 þegar fyrsta al- þjóðlega tugþrautarmótið fór fram í Talence. Tomas Dvorák varð fyrstur í grindahlaupinu að þessu sinni og var 19/100 úr sek- úndu frá mótsmetinu. Þjófstartaði og sat eftir ERKI Nool þjófstartaði í 100 m hlaupi karla, en lét það ekki á sig fá þegar hlaupið var ræst að nýju, en Jón Arnar Magnússon og Tom- as Dvorák voru m.a. með Nool í riðli. Nool var hins vegar ekki eins viðbragðsfljótur í 400 m hlaupinu. Þá heyrði hann ekki í ræsi hlaupsins er hann sagði; „viðbúnir". Nool hélt kyrru fyrir og og var ekki „viðbúinn" fyrr en hlaupið var ræst með skoti. Nool sló bara á létta strengi eftir hlaupið þrátt fyrir allt og sagði að fyrir vikið hefði hann þurft að leggja meira á sig en hann er vanur að gera á fyrstu 200 metrum hlaupsins. „Annars finnst mér alltaf skemmtilegra að horfa á 400 metra hlaup en taka þátt í þeim,“ sagði Nool. Plaziat oftast unnið FRAKKINN Christian Plaziat er sá sem oftast hefur unnið tug- þrautarmótið í Talence, fimm sinnum, fyrst 1986 og siðan frá 1988 til og með 1991. Dan O’Brien batt enda á sigurgöngu Frakkans söngglaða árið 1992 er hann mætti til leiks eftir að hafa mis- tekist að tryggja sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum um sumarið, og setti heimsmet, 8.891 stig sem stóð allt þar til í fyrrasumar að Tékkinn Tomas Dvorák gerði bet- ur. Plaziat á ennþá franska metið, 8.574 stig frá 1991, en hann hætti keppni um miðjan áratuginn. Plaziat á einnig annað met og það verður líklega ekki slegið alveg á næstunni. Það er að á ferli sínum fór hann 34 sinnum yfir 8.000 stig í tugþraut. Næstur honum af nú- verandi keppnismönnum í tug- þraut er heimsmethafinn Tomas Dvorák, hann á 28 þrautir að baki yfir 8.000 stigum. Jón Arnar Magnússon hefur fimmtán sinn- um fengið fleiri en 8.000 stig í tugþrautarkeppni. Falleg en óvönduð leikskrá LEIKSKRÁ mótshaldara í Tal- ence var glæsileg að útliti, en það sagði ekki allt því hún var full af villum. I kynningu á Jóni Arnari Magnússyni má sem dæmi nefna að mynd var birt af Rússanum Lev Lobdin, sem ekki tók þátt í mótinu. Þá var sagt að besta grein Jóns Arnars væri stangar- stökk. Þótt Jón hafí tekið fram- förum í stangarstökki þá er of djúpt í árinni tekið að það sé hans sterkasta grein. Einnig er fullyrt að hann hafi hlaupið 100 metra á 10,20 sekúndum, það er fjarri lagi því Jón hefur aldrei hlaupið þá vegalengd á 10,56 sekúndum og það er reyndar íslandsmet. Reyndar á Jón 10,2 í 100 m hlaupi með handtimatöku en það jafn- gildir aldrei 10,20 með rafmagns- timatöku. Fleiri fullyrðingar um árangur Jóns eru rangar, eða í besta falli ekki í réttu samhengi í mótsskránni. Sambærilegar upp- lýsingar um árangur fleiri kepp- enda á mótinu eru einnig rangar. Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns Arnars, sagði að ekki hefði verið leitað til sín þegar skráin var unnin. Stoðar lítlfað leggjast á grasið og „ÉG fann lítiilega fyrir eins og smáskoti í ilinni undir lok há- stökkskeppninnar og að keppni lokinni leit læknir á það og fann smábólgu, bar á hana krem og vafði um,“ sagði Jón Arnar Magn- ússon aðspurður um meiðslin sem urðu þess valdandi að hann varð að hætta keppni í Talence eftir sjö greinar. „í fyrstu grein á síðari degi var ég þokkalegur og olli þvi ef til vill að ég beitti mér að fullu í grindahlaupinu. Eg varð ekki var við neitt í kringlukast- inu sem var næst á dagskrá en þegar ég var í þriðja upphitunar- stökki fyrir stangarstökkskeppnina þá kom eins og smellur í il- inni og leiddi fram ítána. Ég reyndi að hlaupa áfram, en hætti fljótt því ég fann fyrir sársauka og fann að eitthvað hafði gefið sig. Eftir Ivar Benediktsson I Bordeaux Um leið var ég drifinn til tveggja lækna og eins sjúkraþjálfara og þeir sprautuðu og nudduðu. Nuddið var svo sársaukaíúllt að ég var nærri því farinn að skæla. Állt kom þetta fyrir ekki og ég fann það um leið og út á völl var komið að það væri ekki hægt að taka neina áhættu með að gera illt verra og reyna að stökkva. Ég fann ekki fyrir sársauka, en varð var við að eitthvað var eigi að síður að gefa sig.“ Þannig að af tveimur kostum kaustu að hætta? „Já, ég valdi það. Ef um keppni á Ól- ympíuleikum hefði verið að ræða þá hefði ég látið slag standa, en við þess- ar aðstæður þá lét ég það ógert að djöflast á þessu. Það eru tveir mán- uðir til leikanna og ég vona það besta, að þetta jafni sig sem fyrst.“ Óttast þú að meiðslin raski undir- búningi þínum fyrir leikana? „Ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Það eina sem gæti raskast eru æfmgabúðirn- ar sem til stendur að ég fari í í Ástra- líu um miðjan ágúst. Ef þetta verður ekki búið að jafna sig fyrir þann tíma þá verðum við Gísli þjálfari lengur heima á íslandi og æfum þar. Notum þá allt sem tiltækt er heima til þess að raska sem minnst æfingaáætlun- inni.“ Jón sagði reikna með því að fara strax til Ágústs Kárasonar, læknis Iþrótta- og Ólympíusam- bandsins og heim er komið frá Frakklandi og leita eftir greiningu hans á meiðslunum. „Þá kemst á hreint hvað átti sér stað.“ Eru það ekki mikil vonbrigði fyrir íþrótta- mann að þurfa að taka þá ákvörðun að hætta keppni, ekki síst þegar hann er í baráttu um verðlaun? „Það er svo sannarlega dapurt að þurfa þess og mjög erfitt, ekki síst vegna þess að maður er einn, keppninni er lokið. Maður er berskjaldaður. Vegna þessa verður allt greinilegra en ef um hópíþrótt er að ræða og fyr- ir vikið hefur gagnrýnin og umfjöll- unin á stundum verið óþægilegri. En ég valdi þessa íþrótt og verð að sætta mig við galla hennar jafnt sem kost- ina.„ Nú komstu til leiks heill en ekki eins og á stundum í fyrra þegar meiðsl hrjáðu þig og þú komst til keppni meira í von um að allt gengi að óskum þótt undir niðri vissir þú að brugðið gæti til beggja vona. Þess vegna hljóta vonbrigðin fyrir vikið að vera meiri? „Rétt er það, það kom enn verri tilfinning yfir mig nú en stundum áður. Og um leið og ég meiddist að þessu sinni grunaði mig að nú gæti keppnin verið runnin út í sandinn. Þegar þetta gerist þá er bara ekkert við því annað að gera en taka því af ró, það stoðar lítt að leggj- ast á grasið og gráta. Vonbrigðin eru mikil með þessi málalok. Ég hef lagt mikið á mig og í þessari þraut vorum við Gísli að leita að hnökrum til þess að geta bætt úr þeim áður en stóra stundin rennur upp í Sydney. í raun kom það í ljós að flestu leyti, en ekki með þessari við- bót.“ Síðan er það annað. Keppni í tugþraut er þitt lifibrauð og að þessu sinni varst þú í baráttu um efstu sæt- in og þar af leiðandi verðlaunafé, ekki satt? Það hlýtur að skipta veru- legu máli fjárhagslega hvort þú hafn- ir í verðlaunasæti eða engu sæti eins og raun varð á? „Það hefur sitt að segja því verðlaunafé eru mín laun að hluta. Auk þess þá er ég einnig úr leik í stigakeppni Alþjóða frjáls- íþróttasambandsins, en í þeirri keppni er einnig um verðlaunafé að ræða. Á þessari stundu þýðir ekkert að velta sér upp þessu. Aðalatriðið nú er að jafna sig af meiðslunum þannig að þau verði ekki að flækjast fyrir mér á Ólympíuleikunum." En þessi meiðsl hafa áhrif á fleiri þætti en heilsuna? „Það er satt, segja má að meiðslin hafi kippt gulrótinni í burtu, en gulrótin er að vinna verðlaunafé á mótum sem þessum, vera með þeim fremstu í stigamótaröð Alþjóða- sambandsins, á því er enginn vafi. Ég hefði kannski getað lokið keppni í dag en þá átti ég bara á hættu að skemma meira en orðið er í fætinum og það er ekki peninganna virði því fjögurra ára vinna gæti verið farin í vaskinn, undirbúningur og þátttaka í Ólympíuleikunum í Sydney." Lang- aði þig samt ekkert að reyna að halda áfram eftir tæplega tveggja tíma meðferð? „Svo sannarlega því mig langaði svo að bæta mig í stönginni sem ég hef ekki mikið keppt í á þessu ári. Mér leið vel áður en sinin gaf sig og var bjartsýnn á framfarir, en þær verða bara að bíða betri tíma. Von- andi verður það í næstu þraut.“ Hvernig var helgin fram að meiðsl- unum? „Hún vsir góð. Andstæðingai- mínir þóttust vera eitthvað slappir, en mér sýndist nú ekki vera mikill bilbugur á Tomas Dvorák og Erki Nool, hið minnsta. Að minnsta kosti náði Nool sinni annarri bestu þraut á ferlinum. Aðrir voru heldur slakari. Eins og þrautin stóð þá stefndi í að ég næði 8.500 stigum, kannski aðeins rúmlega það. Ég á ekki nema tvær löglegar þrautir yfir 8.500 stigum svo ég var á góðri leið með að fara nærri mínu besta.“ Verður erfitt að koma heim það á bakinu að hafa ekki geta lokið keppni? „Nei, þetta er nú einu sinni það sem maður býr við, hlutirn- ir ganga ekki alltaf eins og vonast er eftir.“ Þú hefur nú fengið þinn skammt af þessum þrautum, ekki satt? „Ég var nú að vona ég hefði lok- ið mínum skammti, en það þýðir ekk- ert að láta þetta slá sig út af laginu. Kannski þessi ósköp öll þýði að ég verði að halda út lengur þar til hlut- irnir fara að ganga upp að nýju. Það skyldi þó aldrei vera að ég verði enn í tugþrautinni fertugur, það eru ekki nema níu ár,“ segir Jón og glottir, þegir um stund og verður alvarlegur á ný og segir. ,Auðvitað er erfitt að koma með þessa staðreynd heim enn einu sinni, að hafa ekki lokið þraut. En ég get ekkert að þessu gert nú, ég hafði ekki orðið var við það sem olli meiðslunum áður en ég byrjaði. í þetta sinn átti bara svona að fara, við því er ekkert að gera.“ HEIMSMETHAFINN og heimsmeistarinn í tugþraut, Tékkinn Tomas Dvorák, sýndi í Talence um helgina að hann verður ekki auðunninn, jafnvel þótt hann gangi ekki heill til skógar vegna hnémeiðsla. Eftir að hafa verið í þriðja sæti og verulega frá sínu besta að loknum fyrri keppnisdegi þá sýndi hann sigurvilja og baráttugleði á síðari keppnis- degi. Þá gerði hann það sem þarf tii þess að sigra og fagnaði efsta sæt- inu annað árið í röð. Alls fékk Dvorák, 8.733 stig, 27 stigum meira en Eistlendingurinn Erki Nool sem varð annar með annan besta árangur ferli síns, 8.706 stig. Dvorák var 261 stigi frá heimsmeti sínu og 167 stigum frá því sem hann hefur best gert í ár. Ivar Benediktsson skrifar frá Bordeaux Ungverjinn og Evrópumeistari ung- linga, Attlia Zsivoczky varð annar með 8.293 stig og Tékkinn Roman Sebrle hlaut fjórða sætiðog olli sjálfum sér og öðrum vonbrigðum með því að öngla aðeins saman 8.228 stigum, var rúm- lega 700 stigum frá sínu besta. Þegar kom að síðustu grein tugþraut- arinnar var Dvorák 35 stigum á undan Nool og ljóst að það yrði erfitt fyrir hinn síðarnefnda að snúa taflinu sér í vil. Hann gerði heiðarlega tihaun til þess að hrista heimsmethafann af sér, en gekk illa því Dvorák hélt sig um 2-3 metrum á eftir, enda mátti hann tapa fyrir Nool með fjögurra sekúndna mun. Þegar 300 metrar voru eftir bætti Nool verulega í hraðann, Dvorák virtist sitja eftir, en þegar rúmir 100 metrar voru eftir fór að draga af Nool og að sama skapi dró Dvorák á andstæðing sinn. Fór svo að Nool átti ekkert eftir á síðustu metrun- um og Dvorák kom nokkrum skrefum á eftir í mark. Nool gerði það sem hann gat, bætti sinn besta tíma í greininni um tvær sekúndur, fékk tímann 4.30,40 mín- útur. Dvorák náði næst besta tíma ferils síns í 1.500 m hlaupi, 4.30,83. Sigurvilji fyrir hendi í níundu grein, spjótkasti, sýndi Dvor- ák að hann er ekki auðunnini. Eftir að hafa tapað með 60 sentímetra mun fyrir Nool í stangarstökki, áttundu grein, þá mátti ekkert bera út af hjá Dvorák í spjótkastinu. Tvö fyrstu köstin voru í styttra lagi, 63 til 64 metrar og greini- lega að meiðslin settu strik í reikninginn. Nool kastaði strax í fyrstu umferð, 68,89 og virtist ætla að fara með sigur af hólmi. En í þriðja og síðasta kasti small rétt saman hjá Dvorák, hann kastaði 69,37 og Nool sem kastaði síðasta sinni rétt á eftir átti ekkert svar. Hann gat ekki knésett meistarann sem stóð við stóru orðin frá því á blaðamannafundinum fyrir mótið þar sem hann lét hafa eftir sér að þrátt fyrir að vera meiddur þá væri hann ekki kominn til Talence til þess að tapa, ekk- ert annað en sigur kæmi til greina. Dvorák var í vandræðum á fyrri degi, hljóp 100 m á mun lakari tíma en hann getur best eða á 10,75 sekúndum. Nool fékk besta tímann, 10,69. Langstökkið sem hefur verið mjög gott hjá honum undanfarin misseri gekk ekki sem skyldi en honum tókst að bjarga sér í síðasta stökki með því að stökkva 7,58 metra. Nool stökk allra manna lengst, 7,81. Kúluvarpið var einnig lakara en hans er vandi, en eigi að síður kastaði hann kepp- enda íengst, 16,14 metra. Að vanda vafðist kúluvarpið fyrh Nool, hann varpaði aðeins 14,20. Hástökkið gekk illa og hann var 14 sentimetrum frá sínu besta, stökk 1,95 metra og byrjaði á 1,86. Nool fór einnig hæst yfir 1,95. Síðasta grein fyrri dags gekk allvel hjá Dvorák, 48,07 sekúndur, en Nool gerði enn betur og setti móts- met, 46,95. Alls fékk Dvorák 4.396 stig á fyrri deginum en til samanburðar má geta þess að hann var með 4.645 stig á sama tíma í þraut sinni í Götzis í Austur- ríki í vor þegar hann fékk alls 8.900 sam- tals í þrautinni. Nool var með 4.404 að loknum funm greinum. Nool reyndi við 5,60 metra Dvorák byrjaði síðari daginn á því að vera rúmlega þriðjung úr sekúndu frá sínu besta í 110 m grindahlaupi en kom eigi að síður fyrstur í mark og einn kepp- enda sem hljóp á skemmri tíma en 14 sekúndur. Nool hefur aldrei verið góður í grindahlaupi þótt hann honum hafi farið fram og fékk hann tímann 14,40. Dvorák kastaði vel í kringlukastinu, lengst alha, 49,22 metra. Allt gekk hins vegar á afturlöppunum hjá Nool sem kastaði einu gildu kasti, 41,84 og var nærri því að gera það ógilt. Hin tvö köst Nools voru stutt og fóru út fyrh kast- gehann og því dæmd ógild. Dvorák var nærri sínu besta í stangar- stökki er hann lyfti sér yfir 4,90 í síðustu tilraun. Nool byrjaði hins vegar ekki að stökkva fyrr en ráin var komin í 5,10 metra. Áður en yfir lauk stökk hann 5,50 metra og átti tvær góðar við 5,60 metra sem er jafnt því sem hann hefur hæst stokkið um ævin Forsmekkur að Sydney Einvígi Dvoráks og Nools var spenn- andi. Efth að Jón Arnar Magnússon féll úr keppni fyrir stangarstökkið gat eng- inn andstæðinga þeiira veitt keppni. Einvígið var e.t.v. forsmekkurinn að því sem koma skal á Ólympíuleikunum í Sydney. Tveir frábærlega þjálfaðh íþróttamenn sem hafa ómælda trú á sjálfum sér og hafa fyllstu ástæðu til þess að vonast eftir gullverðlaunum í haust. Það verður ekki heiglum hent fyr- ir aðra að standa þeim á sporði, það er hins vegar ekki útilokað fyrir þá sem eru vel þjálfaðh og trúa á verk sín á leikvell- inum. Dvorák verður ekki auðsigraður, það sannaðist í Talence. skaptinu TVEIR keppendur sem skráðir voru til leiks í tug- þrautarkeppninni í Tal- ence, Aleksandr Jurkov, Úkraínu, og Tékkinn Jiri Ryba, hrukku úr skaptinu á síðustu stundu. Engar opin- berar skýringai' voru gefn- ar á fjarveru þeirra og ypptu starfsmenn mótsins öxlum þegar leitað var eftir þeim og kann að vera að þær hafi aldrei borist form- lega. Kastaði upp í lok dags JÓN Amar Magnússon, kastaði upp fljótlega eftir að hann lauk keppni í síð- ustu grein fyrri keppnis- dagsins, 400 m hlaupi. Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns kippti sér ekkert upp við þetta. Sagði þetta koma stundum fyrir. „Eftir fjögur hundruð metra hlaupið á sér stundum stað ákveðin spennulosun og það var það sem gerðist hjá Jóni, þetta var ekkert alvarlegt," sagði Gísli. Jón náði sér fljótlega og fór að hreyfa sig á nýjan leik áður en hann hélt út á hótel í vel útilátinn kvöld- verð. Dvorák langt frá sínu besta TOMAS Dvorák náði sér ekki á strik á fyrri degi í Talence og var hnémeiðsl- um um að kenna. Hann stökk, 1,95 m, 14 sentímetr- um lægra en hann á best frá því í Götzis í vor. Ljóst var eftir upphitun að hástökkið yrði Dvorák erfitt, hann fékk mikla hnéspelku. Hann fór yfír 1,95 áþijóskunni í þriðja og siðasta stökki. Þess má geta að það er gef- ið 129 stigum færra fyrir 1,95 en 2,09 m og munar um minna í jafnri keppni. + Gísli Sigurðsson segir að séu meiðsli Jóns Arnars ekki alvarleg sé engin ástæða til annars en bjartsýni Jón er í toppæfingu ■t „ÞAÐ eru vissulega vonbrigði að Jón Arnar skyldi meiðast og þurfa að hætta, en ég hef ekki áhyggjur af meiðslum ef þau eru ekki alvarlegs eðlis. Þá ætti þetta ekki að hafa áhrif á undirbúninginn fyrir leikana,“ sagði Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns Arnars Magnússonar, eftir að Jón varð að draga sig út úr keppninni að loknum sjö greinum af tíu vegna tognunar í lið- bandi við stórutá á hægri fæti. Meiðslin eru þess eðlis að Jón á afar erfitt með að hlaupa og beygja tána. Gisli segir enn fremur að hann hafi séð nóg í keppninni þótt hann hafi ekki lokið öllum greinum, hann hafi fengið staðfestingu á því hvað bæta þarf áður en að Ólympíuleikunum kemur og að unnið verði að því eftir fremsta megni, en að sjálfsögðu fengi Jón tíma til þess að jafna sig. Framan af þrautinni segir Gísli að útlitið hafi verið gott og Jón hafi stefnt í að ná einni bestu þraut sinni frá upphafi og hafi lvar jafnvel átt mögu- Benediktsson loika á að bæta Is- skrifar landsmet sitt, 8.573 fráBordeaux stig. „Ég sá að Jón er í formi, það var aðalatriðið fyrir mig, ég á að skila honum í eins góðri æfingu og kostur er þegar á hólminn er komið í Sydney.“ Hvaða áhrif hef- ur það á undirbúning ykkar fyrir leikana að Jón skyldi ekki geta keppt í öllum greinum? „Ég sá það sem ég þurfti að sjá. Varðandi framhaldið get ég ekkert sagt á þessari stundu, enda spurningin sú hversu lengi Jón verður að ná sér að fullu. Ég vona að sjálfsögðu að hann nái sér hið fyrsta þannig að við getum einbeitt okkur að því sem þarf að laga fyrir Ólymp- íuleikana." Ef Jón verður frá í tvær til þrjár vikur, setur það mikið úr skorðum? „Við myndum þola tvær vikur, það er ljóst, því við höldum áfram að æfa þótt þetta hafi gerst, það eina sem breytist er hvað við gerum á hverjum tíma. Meiðslin þurfa ekki að koma illa við ýmsar líkamlegar æfingar, s.s. lyftingar og þess háttar, ég tala ekki um ef Jón jafnar sig á tveimur vikum. Jón er í mjög góðri æfingu, það er ljóst, en hann fær ekkert að hvíla aftur fyrir leikana eins og hann gerði fyrir þessa þraut. Ef hann kemst á fullt ról í hraða, snerpu og sprengi- kraftsþjálfun þá þolir hann alveg þessa hvíld. Nú þurfum við að halda áfram í erfiðum líkamlegum æfing- um þrátt fyrir þetta og það er ekkert mál, það þarf aðeins að hliðra til og breyta áherslum, þá þurfa þessi meiðsl ekki að slá okkur út af laginu svo fremi sem þau verða ekki lang- vinn.“ Hverju þarf að breyta? „Fyrst og fremst verðum við að vinna í út- haldsþjálfun en meira í snerpuæf- ingum þar sem því verður við komið. Síðan verður Jón að taka til við lyft- ingaæfingar að nýju auk þess sem úthaldsþjálfun í vatni verður fram- haldið, bæði í „tempóæfingum“ og grunnþolsæfingum lítillega. Ég kvíði engu.“ Er fyrirséð mikil vinna í ein- hverjum atriðum? „Nei, alls ekki. Þótt ýmsar tæknigreinar hafi ekki verið upp á það besta nú í Talence þá get ég ekki kennt manninum neitt frekar í þeim atriðum, hann kann þetta allt saman. Spurningin snýst nú eingöngu um stemmningu í þess- um greinum þegar á leikana sjálfa er komið, hvað Jón Arnai' gerir þegar á hólminn er komið. Ég veit það og trúi því að Jón verður í öndvegis hraða- og frísk- leikaformi þegar blásið verður til leiks í tugþrautarkeppninni, í dag bendir ekkert til annars. Þar með verður Jón aðeins að svara því þegar keppnin stendur yfir á Ólympíuleik- unum hvað hann langar að ná langt. Auðvitað er slæmt að hann skuli meiðast nú, en eins og staðan er á honum að öðru leyti þá hef ég engar áhyggjur, ég veit ekki af hverju ég hef þessa tilfinningu eða af hverju ég ætti að hafa áhyggjur, svo fremi sem meiðslin verða ekki langvinn og elta okkur inn á leikana. Ég trúi því hins vegar ekki. Þegar á hólminn er komið geta greinar alltaf heppnast misvel, bæði gengið vel og illa. Verði það raunin þá verður ekki hægt að afsaka neitt með því að Jón sé ekki tilbúinn í slaginn. Hann verður tilbúinn að gera sitt besta. Ég bendi á að um helgina þá stökk Jón gilt stökk upp á 7,63 metra. Ég hef aldrei séð hann stökkva eins illa svo langt og þá. Það segir mér bara eitt, Jón Arnar hefur aldrei verið í betri æfingu til þess að stökkva lang- stökk á sínum ferli. Þetta hljómar ef til vill eins og gömul plata hjá mér, en er eigi að síður staðreynd. Úr því að hann getur stokkið 7,63 metra og gert það eins illa og hann gerði þá er Ijóst að með því að vanda stökkið betur getur hann stokkið enn lengra. Það er það sem hann meðal annars þarf til þess að ná árangri á Ólymp- íuleikunum." Gísli hallar sér aftur í sæti sínu, afslappaður á svip og ítrekar: „Ég hef engar áhyggjur. Um helgina sá ég öll merki þess að Jón Arnar verði í eins góðri æfingu á réttum tíma og frekast er hægt. Jón verður í toppformi í Sydney, það eina sem getur komið í veg fyrir það er að meiðslin sem nú komu upp séu alvarlegri en við teljum. Um það er ekki hægt að segja enn, en það ætti að koma í ljós mjög fljótlega, vona ég.“ Fari svo að meiðslin reynist ekki draga neinn dilk á eftir sér og þið getið haldið ykkar striki, keppir Jón Arnar þá eitthvað meira fyi-ir leikana? „Það vona ég því þrátt fyrir allt samstarf okkar Jóns má ekki gleyma því að við erum í sama félag- inu, Ungmennafélaginu Tindastóli sem er innan UMSS í Skagafirði. Það félag tekur þátt í Bikarkeppni FRÍ eftir tvær vikur og það er vænt- anlega sá tími sem Jón verður að taka hvíld frá hraða- og sprengi- kraftsæfingum að öllum líkindum. Jón hefur hins vegar sótt kraft og at- orku til þessa félags þótt hann sé nú um stundir atvinnumaður. Vonandi get ég eitthvað notað hann í þessari keppni en væntanlega verður það minna en við og hann vonuðum áður en hann meiddist nú um helgina. Ég vonast til þess að við getum eigi að síður staðið okkur mjög vel og hugs- anlega klórað aðeins í sigurliðið und- anfarin ár. Hvort Jón keppir eða ekki verður að koma í ljós, en hann þarf að stökkva stangarstökk og hlaupa spretthlaup, ná tilfinningunni í þess- um greinum. Spjótkastið hefur ekki gengið sem skyldi í vor og það þarf að laga. Ég er hins vegar alveg afslappaður út af langstökki, hástökki, 400 metra hlaupi og fleiri greinum. Síðan eig- um við örugglega einhverja ása uppi í erminni þegar stóra stundin rennur upp, allur okkar undirbúningur und- . anfarin ár miðast við leikana og þá gerast hlutii-nir vonandi, við eigum það inni að sjá verulegar framfarir í nokkrum greinum. Meiðsli nú eru vissulega ekki spennandi, en við lærum á þeim þannig að mótbyi' herðir menn og hvetur til dáða. Ég sé ekki nokkra ástæðu til annars en bjartsýni,“ sagði Gísli Sigurðsson, þjálfari Jóns Arnars Magnússonar. Jón Arnar fékk konfekt EINS og greint var frá í Morgun- blaðinu á laugardaginn átti Jón Arn- ar Magnússon 31 árs afmæli á fostu- daginn, áður en keppnin hófst í Talence. Ekki var sungið fyrir pilt í tilefni dagsins, en eftir kvöldverð á föstu- daginn komu tveir andstæðingar hans, Tékkamir Tomas Dvorák, heimsmethafi í tugþraut, og Roman Sebrle, færandi hendi með gómsætt konfekt og færðu Jóni að gjöf í tilefni dagsins. Jón þakkaði að sjálfsögðu fyrir sig og sagðist ætla að geyma gjöfina þar til keppni væri lokið á sunnudag. Stuðningshópur Nolls lítill HLUTI af svokölluðum stuðn- ingsmannaklúbbi Erki Nool var mættur til þess að styðja við bakið á sínum manni eins og hann gerir ævinlega á mótum. Eru stuðnings- mennirnir í sérstaklega merktum bolum og láta mikið fyi'ir sér fara með húrrahrópum og setja ævinlega mikinn svip á mót. Að þessu sinni var hópurinn þó óvenju fámennur enda um langan veg að fara auk þess sem félagsmenn munu vera að safna fyrir ferð á Ólympíuleikana í Sydney í haust. Fámennið kom hins vegar ^ ekki í veg fyrir að stuðningsmenn- irnir hleyptu upp fjöri í áhorfenda- stúkunni á leikvellinum í Talence. Nool er í góðu sambandi við stuðn- ingsmannahópinn og talar við suma úr hópnum eftir hverja keppnisgrein og segir þeim frá hvað gott hafi verið gert og hvað hafi farið miður hjá sér í undangenginni grein. Árangur Jóns Amars Árangur Jóns Arnars í Talence var sem hér segir: 100 m hlaup - 10,75 sekúndur - 915 stig langstökk - 7,63 metrar - 967 stig kúlu- varp - 15,61 metrar - 827 stig hástökk - 2,04 metrar - 840 stig 400 m hlaup - 47,67 sekúndur - 925 stig 110 m grindahl. - 14,57 sek- úndur - 902 stig kringlukast - 45,65 metrar - 776 stig. Þrettán af sautján keppendum tókst að ljúka keppni í ölium tíu greinum tug- þrautarinnar, auk Jóns hættu Frakkamir Wilfrid Boulineau, Yves Bourgey og Gaetan Blouin keppni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.