Morgunblaðið - 27.08.2000, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 27.08.2000, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2000 B 13L ÞJODLIFSÞANKARÆr nema von að orðstírpeirra dvíni? Hugleiðingar í heitum pottum Þegar sumri er tekið að halla er hver sólskins- og hlýindadagur sönn Guðs gjöf að áliti íslendinga og þannig er það svo sem líka um hásumarið á Islandi. Eg vaknaði árla morguns sl. sunnudag og ákvað snemmind- is að fara í sund til að sleikja þar morgunsólina. Eg tók saman pjönkur mínar og segir ekki af ferðum mínum þar til ég fór í heitu pottana. Þangað lögðu leið sína sam- landar mínir, stutt- ir og langir, feitir og mjóir - alls kon- n eftir Guðrúnu Guð- laugsdóttur ar fólk, sumt hvert harla hversdags- legt en annað eins og nýstigið út úr skáldsögu, kvikmynd, eða jafnvel helli, það var svo hvítt að það virtist aldrei undir bert loft hafa komið áð- ur. Ég hallaði mér aftur í heitu vatn- inu og velti fyrir mér hvað allt þetta fólk væri að ræða sín á milli, því margir áttu í samræðum. Ég tók að leggja við eyrun. Við hlið sátu tveir menn að spjalli. „Þú ferð ekki í kirkju á sunnudög- um? sagði annar þeirra. „Nei, biddu fyrir þér, í kirkju fer ég ekki nema í giftingar, skímir og jarðarfarir, ég tek ekki í mál að hlusta á vælið í þessum prestum í annan tíma.“ „Ég fer nú svo sem ekki oft en stundum heyrir maður nú ýmislegt ágætt,“ svaraði hinn. „Jæja. Veistu hvernig virðuleg- asta jarðarforin var sem ég hef farið í?“ sagði sá sem helst ekki fór í kirkju. Nei, það vissi hinn ekki. „Þegar kunningi minn gamall var jarðaður í kapellu einni var þar enginn prestur viðstaddur. Þekktur kaupsýslumað- ur rakti æviferil mannsins og þjóð- frægur leikari las kvæði eftir eitt þjóðskáldanna. Þetta var mjög hátíð- legt, þar hefði prestur ekki bætt um betur.“ Eg stóð upp úr pottinum og færði mig í annan heldur heitari. Þar voru fyrir maður og kona. Maðurinn hafði auðheyrilega farið á flugeldasýningu á menningamótt Reykjavíkur og lét nú vel af þeirri upplifun. Konan, komin rösklega á miðjan aldur og glettnisleg í bragði, hafði hins vegar farið á kaffihús á þessum menningardegi Reykjavík- ur. „Ég heyrði þar unga söngkonu með undurfagra rödd syngja ítölsk, spönsk og íslensk lög, ungan mann spila listavel á hljómborð og svo var lesið upp úr nýþýddri franskri bók.“ „Var það skemmtileg saga?“ var spurt. „Hún var dálítið einkennileg,“ svaraði kona. „Nú?“ „Já, sagan var um mann sem bjó með páfagauk og konu sem fór út í bílskúr til að fróa sér. Ég hélt satt að segja að Frakkar væm svo miklir elskhugar að konur þyrftu ekki á slíku að halda þar. Þeir hafa að minnsta kosti haft það orð á sér,“ sagði konan. Mér var orðið ómótt í heitu vatn- inu og fór upp úr. Á leiðinni inn hugs- aði ég um ástandið í íslenskum bíl- skúrnrn, hvort þar væri að vænta fjölskrúðugs ástalífs. „Varla, þó ekki væri nema fyrir kulda sakir," hugs- aði ég meðan ég fór í fötin. Ég velti líka fyrir mér orðstír Frakka og komst að þeirri niðurstöðu að von væri að hann færi dvínandi ef þeir væm teknir upp á því að búa með páfagaukum. „Állt á sér skýringar í þessari veröld,“ hugsaði ég spek- ingslega og hélt heim á leið undir „heitum haddi“ ágústsólarinnar - nokkurs vísari um hvað landinn spjallar um, til dæmis á sunnudags- morgnum í heitum pottum sundlaug- anna. MATARLIST/O/ bara, hvað er núpetta? Matarfœlni og fordómar Ég geri það stundum í hjáverkum að vera fararstjóri hjá ítölskum ferða- mönnum um vort ástkæra, ylhýra... Fátt nema gott eitt um það að segja, nema það að blessuð skinnin em nú ekki alltaf tilbúin til að prófa hinar ýmsu nýjungar í mat og drykk. Þjóðin sú er gjaman hálfsmeyk við fæðu sem er henni framandi líkt og skyr og hangikjöt svo dæmi séu teldn. Margir spekingar hafa samein- ast um þá skoðun, að matar- gerð þjóðanna sé áreiðanlegasta vitnið um menn- ingu þeirra. Eins, að ef takist að brjóta á bak aftur þá fæðufordóma sem séu ríkjandi, sé það ein besta leiðin til gagn- kvæms skilnings þjóða í millum. Þar sem ítölsk matargerð er margrómuð fyrir ferskleika sinn og fjölbreytni, hafa íslendingar ekki farið varhluta af þeirri ítölsku „matarbylgju" sem riðið hefur yfir heiminn á síðustu áram. ítalirnir eiga hins vegar ekki mjög greiðan aðgang að harðfiski, hákarli eða öðru íslensku lostæti að öllu jöfnu og ekki nema eðlilegt að það taki þá smá tíma að ná áttum og venja bragðlaukana við hinar nýju „mataraðstæður". Það er náttúr- lega mjög ráðlegt, að kynna sér örlítið matarmenningu viðkomandi gestaþjóðar áður en lagt er af stað í ferðalag. Svona í það minnsta til að fyrirbyggja barnalegar vand- lætingargrettur framan í gestgjaf- ann sem leggur sig e.t.v. allan fram við matseldina. ítölsk matargerð mætir hins vegar ekki miklum mótþróa meðal íslensku þjóðarinnar og hver ítölsk vömtegundin af annarri slær í gegn. Hinn dásamlegi parmesan- ostur, sem færir jafnvel hvers- dagslegasta kartöflugratín í hæstu hæðir, er ein af þeim. Það gladdi mig mjög að sjá aðra ítalskættaða nýjung í ostabúð nýverið: íslensk- an mozzarella-ost. Reyndar ekki ekta buffala-mozzarella eins hún gerist best, en sambærilegan ost úr kúamjólk, en slíkir ostar fást einnig á Ítalíu. Þessi frábæri ostur lætur lítið yfir sér og er ekki bragðsterkur, en lífgar ótrúlega mikið upp á matinn, með tærhvítri nærvem sinni. Hann er t.d. frábær ofan á pitsuna, eins í samfloti við tómata og ferska basiliku í salati. Ljúffengur er hann líka einn og sér með ólífuolíu og svörtum, ný- möluðum pipar. Upplagt er að sneiða hann út í grænmetis- og pastasalöt og strá t.d. oregano yf- ir. Mozzarella-osturinn er frábær í samlokur úr hvítu brauði frekar en grófu, því þá fær hið milda bragð hans betur notið sín. Það er tilval- ið að skella inn í þær samlokur t.d. tómatsneiðum, ferskri basiliku, smá ólífuolíu, salti og pipar. Uppá- haldmozzarellu-rétturinn minn er grillað grænmeti með mozzarella- osti. Hér fylgir eitt afbrigðið af slíku lostæti. Mozzarella-fyllt- ar paprikur Aðolréttur fyrir 2, forréttur fyrir 4 2 paprikur, ein gul og ein rauð ______200 g mozzarello-ostur_____ __________100 g tómatar__________ _____________2 egg_______________ blanda gf ferskum kryddjurtum, s.s. basiliku, salvíu og oregano co Ví glas af þurru hvítvíni _____________ólífuolía___________ .salt og pipar Sjóðið eggin í 10 mín., kælið þau og skerið því næst í sneiðar. Sker- ið paprikurnar í tvennt eftir endi- löngu og fjarlægið kjarnahús þeirra og stöngla. Raðið því næst eggjum í paprikuhelmingana, þar ofan á tómatsneiðum, kryddið með salti og pipar og stráið krydd- blöndunni yfir. Komið paprikunum fyrir í eld- föstu fati og baðið þær í um 4 msk. af ólífuolíu og hvítvíninu. Grillið í ca 20 mín. við 200°. Takið þær þá út úr ofninum og þekið hvern paprikuhelming með sneiðum af mozzarella-osti. Skellið aftur inn í ofn í 4-5 mín., eða þar til osturinn er orðinn vel bráðinn. eftir Álfheiði Hönnu Friðriksdóttur Jose Caballero/Presslink TÆKNI/Þjóðmenningin og umferðin Á slœmtgengi í um- ferðinni sér rœtur í þjóðmenningunni? Hver þjóð er jafnmikið menntuð og fortíð hennar kveður á um. Þjóðmenn- ingin verður til í víxlverkun við hið efnislega umhverfi þegnanna. Hún er íhaldssöm í þeim skilningi að siðir vorir, venjur, hugsanagangur og hegðun er arfur frá fortíðinni, ekki aðeins frá okkar eigin fortíð heldur einnig for- feðra vorra, líkt og segja má um tungumálið. Þeir umgengnishættir sem ríkja meðal vor, t.d. í Reykjavík þann dag í dag era ákvarðaðir, m.a. af hey- skaparháttum austur í Flóa á síðustu öld. Og vitaskuld þar að auki af því efnislega umhverfi sem við höfum búið okkur hér og nú. Við losum okkur ekki við fortíð okkar, sem betur fer, því að hvar væri þjóðmenning vor stödd ef við gerðum það? Það má benda bæði á jákvæðar og neikvæðar hliðar við það að draga þennan menningarlega hala á eftir sér. Nei- kvæðir þættir kunna að felast í því að við lögum okkur ekki nógu hratt að síbreyti- legum efnislegum kringumstæðum. Þannig verða lög- mál bændamenningarinnar sem ráða enn mestu um umgengnis- hætti okkar hvert við annað til þess að við sitjum uppi með sjálf- hverfa umgengnishætti okkar á milli sem era óæskilegir í borgar- samfélagi. Þetta kemur fram í ýmsu: Til dæmis er oss lítt að skapi að fara eftir reglum sem hafa verið settar til að gera umgengni okkar hvert við annað þægilegri. Hins vegar sitjum við uppi með þann úrelta hugsunarhátt að við séum ein í heiminum og séum hvert um sig miðja hans og allt sé hægt að miða við okkar eigið sjón- arhorn. Þetta tvennt á ágætlega við sé ég á gangi uppi í Gljúfurleit. Hver setur mér þá reglur annar en landið sem ég geng. Er nokkurt sjónarhorn annað hugsanlegt en mitt eigið ef ég sé ekki annað en grös og grjót? Varla fer ég að taka tillit til þeirra hluta né setja mig inn í hugsanagang þeirra til að það hafi áhrif á atferli mitt. Kringumstæðurnar hafa breyst afar ört á þann veg að við kom- umst ekki upp með að hugsa svona. í engu kemur þetta jafn- skýrt fram og umferðarmenning- unni. Hún er allan daginn, hvern dag, lýsandi mælir á sjálfhverfan hugsanagang samborgara minna. í engu verður jafnskýrt að við verð- um sífellt að vera að setja okkur fyrir hugskotssjónir sjónarhom meðborgara okkar. Enda þykist yfirritaður merkja að hann sé meir áberandi meðal hinna rosknu öku- manna en hinna yngri. Þetta er svo þrátt fyrir þá staðreynd að það séu *" yngstu ökumennirnir sem valda tíðast slysum. Það virðist einkum tengt glæfraakstri eða því að þeir hafi hlotið ónóga þjálfun. Ég (sem bý í miðbæ Reykjavíkur) verð oft á dag fyrir því að sjá hin þjóðlegu ís- lensku brot (vöntun stefnuljósa, af- ar rangar vinstri beygjur með ranga staðsetningu bíls á gatna- mótum miðað við beygjuna sem er tekin, ekið þvert í veg fyrir mann inn á aðalbrauto.s.frv.) Bjóði kringumstæðurnar upp á að maður sjái ökumanninn er það afar oft roskinn maður (sjaldnar kona). Umferðarappeldi og uppeldi al- mennt virðist vera farið að skila því að hinir ungu hafi hugmynd unrt að aðrir séu með þeim á götunum og taki tillit till þess. Það er meira en má segja um marga þeirra hinna eldri. Yfirritaður varð fyrir því (láni) að kynnast umferð í öðra landi, gamalgrónu evrópuríki þar sem reglur eru reglur. Það var satt að segja bæði í umferðinni og í um- gengnisháttum almennt meðal manna að ég varð fyrir e.k. menn- ingarlegu áfalli við að flytjast til landsins árið 1976. Það styður þó tilgátuna hér í upphafi um menn- ingarlegan dratthalagangað þaff^, má lúshægt sjá umferðarmálin snúast til betri vegar. Líklega verðum við farin að keyra eins og sæmilega siðmenntuð Evrópuþjóð einum tuttugu áram eftir andlát mitt. Það verður gaman að horfa á gróandi þjóðlífið árið 2040 - eða hvað? Af aksturslagi manna skuluð þér þekkja þá. eftir Egil Egilsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.