Morgunblaðið - 27.08.2000, Page 14

Morgunblaðið - 27.08.2000, Page 14
Jf 4 B SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ Bráðræði á Bráðræðisholti. Thor Jensen mun hafa reist húsið árið 1904. Það var reisulegt og því var vel við- haldið í tíð Thors. Varð hrömun að bráð. Öðlaðist nýtt líf í Kópavogi. Ljósmynd/Guðlaugur Leósson Bráðræði í Kópavogi, hækkað og stækkað. Var reist á mótum Þverbrekku og Hlaðbrekku. frægt hús Bráðræði þekkja margír og Bráðræðisholt, segir Pétur Pétursson, en hann fjallar hér um þetta sögufræga hús, sem öðlaðist nýtt líf í Kópavogi þar sem það stendur nú. FRÆG og fleyg er gamansöm lýsing Valdimars Ásmundssonar ritstjóra, föður Héðins alþingismanns, á Reykjavík: „Ekki er von að vel fari í bæ sem byrjar í Bráðræði og endar í Ráðleysu." Bráðræði þekkja margir og Bráð- ræðisholt. „Ráðleysa" var alþýðlegt uppnefni á húsi Egils Diðrikssonar við Laugaveg, gegnt Kirkjuhúsinu þar sem Marteinn Einarsson réð áð- ur ríkjum á velmektardögum. Jón Helgason biskup, sem flest hefír skrifað af fjölvísi og þekkingu um Reykjavík fyrri tíðar, var hreint ekki hrifinn af því að Selsholti, sem hann nefndi svo, skyldi vera valið heitið Bráðræðisholt. Það mun mega rekja til þess að Jóni biskupi féll illa að stóreignir kirkjunnar lentu í hönd- um einstaklinga....var það illa séð af mörgum er stiftsyfirvöld seldu Magnúsi Jónssyni í Bráðræði dóm- kirkjujörðina Sel fyrir 1500 ríkisdali í stað þess að bjóða bæjarstjóm kaup á henni.“ Seli fylgdu hjáleigur og landflæmi mikið. Magnús Jónsson, sem ýmist var kenndur við Austurhlíð í Biskups- tungum eða Bráðræði í Reykjavík var afi Magnúsar Sigurðssonar bank- astjóra og Jóns Hjaltalíns prófessors, nafna Jóns Hjaltalíns landlæknis, sem var ömmubróðir þeirra bræðra. Ekki þarf sá skyldleiki að hafa spillt fyrir því að kaup tókust. Þeir feðgar Magnús og Sigurður sonur hans, sem einnig var kenndur við Bráðræði, stunduðu verslun við Vesturgötu þar sem Th. Thorsteinsson verslaði síðar, en konur hafa nú haslað sér völl. Séra Ami Þórarinsson segir hjartnæma sögu af viðskilnaði Sigurðar í Bráð- ræði við verslun sína er hann „lokar búð og hættir að höndla" vegna gjald- þrots. Hann sendir þjónustustúlku í búðina að sækja eldspýtustokk. Opn- ar buddu og fær henni nokkra skild- inga til þess að setja í peningakassa verslunarinnar. Ekkert skyldi sækja af vörubirgðum nema gjald kæmi fyrir. Eiríkur Einarsson alþingis- maður var lengi náinn samstarfsmað- ur Magnúsar bankastjóra, sonar Sig- urðar í Bráðræði. Hann rómaði heiðarleika Magnúsar í alkunrui vísu: Við ríkmannlegan bæjarbrag ogborgarþef sér mjakar allt til Magnúsar hvemjúkláttskref! Eg veglyndari valdamann ei vitað hef né svipað þessu saklaust hjarta í silfurref. i fnám gmiðlunarvefhönnun Forskot á Vinnumarkaði Vefhönnun Háhraðavefur Margmiðlun Hljóðvinnsla Myndvinnsla Videóvinnsla ^klnnritun á haustönn að Ijúka Einn bekkur Örfá sæti laus Innritun fvrir vorönn hafin Streymi is Nýr skóli Tvær annir ► Markmið D Kvöldskóli ► Frábært nám

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.