Morgunblaðið - 02.09.2000, Page 7

Morgunblaðið - 02.09.2000, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 2000 B 7 KNATTSPYRNA Danir treysta á Ebbe Sand Ebbe Sand er leikmaðurinn sem Danir treysta mikið á í leiknum gegn Islendingum í kvöld en þessi öflugi Guðmundur framherji hefur Hilmarsson verið mjög heitur skrifar Upp á síðkastið. Sand skoraði annað af mörkum Dana í 2:0 sigri gegn Færeying- um á dögunum og hefur skorað þrjú mörk fyrir Schalke í Þýska- landi, tvö í úrvalsdeildinni og eitt í bikarkeppninni. „Mér hefur gengið vel upp við markið í undanförnum leikjum og vonandi heldur það áfram í leikn- um gegn íslendingum. Aðalmálið er hins vegar að við vinnum leik- inn,“ sagði Ebbe Sand í viðtali við Morgunblaðið í gær. Sand er 28 ára gamall og leikur í kvöld sinn 28. landsleik en hann hefur skorað 6 mörk fyrir danska landsliðið. Tveir leikmenn í danska liðinu hafa skorað meira, Jon Dahl Tomasson 8 og Allan Nielsen 7. „Ég reikna með mjög erfiðum leik gegn Islendingum og við vit- um að íslenska landsliðið hefur náð mjög athyglisverðum úrslit- um undanfarið. íslensku leik- mennirnir eru líkamlega sterkir og vel þjálfaðir og þeir hafa verið þekktir fyrir mikla baráttu í leikj- um sínum.“ Er ekki mikil pressa á ykkur að ná góðum úrslitum í þessum leik eftir dapurt gengi ykkar á Evrópumótinu í sumar? „Það er alltaf mikil pressa á lið- inu, hvort sem það er að spila á stórmóti eða vináttuleiki. Evrópu- mótið er að baki og nú er að byrja ný keppni sem við ætlum að standa okkur vel í.“ Hvað þekkir þú til íslenska liðs- ins? „Ég veit að flestallir leikmenn íslenska liðsins spila erlendis og nokkrir þeirra eru í mjög sterkum liðum sem spila í erfiðum deild- um. Islendingar stóðu sig frábær- lega í undankeppni Evrópumóts- ins og fengu 15 stig og það segir mér að liðið sé mjög sterkt sem við berum mikla virðingu fyrir. Mundir þú sætta þig við að yfir- gefa ísland með eitt stig í fartesk- inu? „Ég vonast náttúrulega eftir því fá öll þrjú stigin í leiknum. Það er samt mjög mikilvægt fyrir okkur að tapa ekki leiknum og jafntefli yrði kannski ekki svo slæm úrslit. Við förum hins vegar með því hugarfari að vinna þenn- an leik,“ sagði Sand. Hægara sagt en gert að vinna ísland Ólafur valdi EM hópinn RIÐLAKEPPNI Evrópu- mótsins í knattspyrnu fyrir landslið kvenna skipað leik- mönnum 18 ára og yngri fer fram á íslandi 8.-12. september og verðurjeikið á Suðurnesjum. Með íslandi í riðli eru Moldavia og Wal- es, en tvö lið komast upp úr riðlinum. Ólafur Þór Guð- björnsson landsliðsþjálfari hefur valið hóp sinn. Mark- verðir eru þær María B. Ágústsdóttir Sljörnunni og Dúfa D. Ásbjörnsdóttir úr Stjörnunni. Aðrir leikmenn eru Bjarnveig Birgisdóttir, Erna B Sigurðardóttir og Helga M. Vigfúsdóttir, Breiðabliki. Silja Þórðar- dóttir, FH, Elín Anna Stein- arsdóttir og Laufey Jó- hannsdóttir, ÍA. Lind Hrafnsdóttir, ÍBV, Embla Grétarsdóttir, KR, Elfa B. Erlingsdóttir, Stjörnunni, Ásta Arnadóttir og Guðrún Viðarsdóttir, Þór, Guðný Þórðardóttir, Málfríður Sigurðardóttir og Margrét L. Hrafnkelsdóttir, Val. Morgunblaðið/Ásdís Michael Laudrup tók við sem aðstoðarþjálfari danska landsliðsins um leið og Morten Olssen tók við, þ.e. að lokinni Evrópukeppninni í sumar. Morgunblaðið/Asdís Danir hafa verið mjög afslappaðir f rá því að þeir komu til landsins á f immtudag. Þá æfðu þeir síð- sdegis og síðan komu þeir saman á lokaða æfingu á Framvellinum í gærmorgun. Stemmningin er Hvaða leikmenn ííslenska telur þú vera hættulegasta? „Ég held að það séu framherjarnir tveir, Guðjohnsen og Daðason (Eið- ur Smári og Ríkharður). Við sáum þá ná mjög vel saman í leiknum gegn Svíum. Ríkharður er stór og sterkur í loftinu og Eiður er mjög teknískur og er góður maður gegn manni. Við þurfum að hafa virkilega góðar gæt- ur á þessum tveimur leikmönnum." Dönum gekk ekki sem skyldi á Evrópumótinu í sumar. Er ekki pressa á liðinu að rétta gengið af og vinna leikinn? „Ég mundi ekki segja að pressan sé meiri á liðinu nú en áður. Auðvitað er krafan heima í Danmörku að við sækjum þrjú stig til Reykjavíkur en það er hægara sagt en gert. Danir og Þjóðverjar eru einu þjóðirnar í Evrópu sem hafa komist í úrslit Evrópukeppninnar í síðustu fimm skipti og það er auðvitað frábær ár- angur. En sumt fólk vill meira og það vill í það minnsta ná sama árangri. Það hins vegar gleymir því oft að við erum lítil þjóð á borð við Spán, Frakkland og Ítalíu." Sagan segir okkur að Islendingar hafa aldrei náð að leggja Dani að velli. Hvað mundi heyrast í Dönum ef þið töpuðuðþessum leik? „Það er ekki gott að segja en stað- reyndin er sú að við getum vel tapað þessum leik eins og að vinna hann. Það er liðin tíð að þjóðir geti verið örugg með sigur gegn íslendingum og það hér í Reykjavík. Ef svo fer að leikurinn tapist fyrir okkur þýðir ekkert að gráta það því níu leikir verða þá eftir í riðlinum. En fyrst skulum við spila leikinn áður en við förum að velta okkur upp úr því.“ hins vegar góð í þeirra röðum. Er ekki erfítt fyrir þig að vera fyr- ir utan völl og horfa á fyrrum félaga þína afbekknum spila knattspyrnu? „Nei það er ekki erfitt. Ég er mjög stoltur af mínum ferli sem knatt- spyrnumaður. Ég fékk að reyna allt og lék með mörgum frábærum liðum svo ég er ekki að missa af neinu. Ég hef ekki alveg sett skóna á hilluna. Ég hef verið að spila með landsliði eldri leikmanna í Danmörku og við höfum verið að spila þetta 30 leiki á ári. Það er hins vegar mjög gaman að fást við þetta verkefni sem ég hef hjá landsliðinu í dag. Ég reyni að miðla minni reynslu til leikmannanna og það er mjög gefandi og skemmti- legt,“ sagði þessi viðkunnanlegi Dani að lokum. Lék gegn Val og Fram Laudrup hefur einu sinni klæðst dönsku landsliðstreyjunni í leik gegn Islendingum en það var árið 1988. Leikurinn sem fram fór í Danmörku lauk með 1:0 sigri Dana. Hann hefur hins vegar tvívegis leikið á Laugar: dalsvellinum í Evrópukeppninni. í fyrra skiptið með Juventus gegn Val árið 1986 þegar Juventus sigraði 4:0 með tveimur mörkum Laudrups og Platinis og það síðara með Barcelona gegn Fram tveimur árum síðar. Knattspyrnan hefur skipað stóran sess í lífi Michaels Laudrap. Bróðir hans, Brian Laudrap, sem hætti að leika með landsliðinu í fyrra, er frá- bær knattspymumaður sem leikur nú með Ajax í Hollandi og faðir þeirra, Finn Laudrap, gerði garðinn frægan með landsliði Dana á áram áður en hann skoraði þrjú mörk í hinum fræga leik árið 1967 þegar Danir lögðu íslendinga, 14:2. FOLK UJAN Heintze er elsti leikmaður danska landsliðsins en hann er 37 ára gamall. I leiknum gegn fslend- ingum í kvöld setur hann nýtt met en hann hefur þá verið með í síðustu 39 landsleikjum Dana. Gamla metið átti Marc Rieper, 38 leikir í röð. ■ PETER Schmeichel á danska landsleikjametið en hann hefur spil- að 125 landsleiki. Fyrir utan hann hafa aðeins tveir Danir náð 100 landsleikjum og það eru einmitt nú- verandi stjómendur liðsins, þjálfa- rinn Morten Olsen (102) og aðstoð- armaður hahs, Michael Laudrup (104). Jan Heintze hefur leikið næstflesta leiki af þeim sem nú skipa liðið, 66 landsleiki. ■ HELGI Kolviðsson og Tryggvi Guðmundsson eru einu leikmenn- imir sem hafa spilað alla fimm leiki íslands undir stjórn Atla Eðvalds- sonar. Alls hafa 32 leikmenn fengið tækifæri hjá Atla í þessum fimm leikjum sem era að baki undir hans stjóm. - ■ HELGI Sigurðsson og Ríkharður Daðason hafa skorað fjögur mörk hvor í leikjum liðsins undir stjórn Atla. Helgi hefur aðeins leikið tvo leiki en Ríkharður fjóra. Hin þrjú mörk liðsins í ár hafa þeir Bjarki Gunnlaugsson, Heiðar Helguson og Eyjólfur Sverrisson skorað. MICHAEL Laudrup, aðstoðarþjálfari danska landsliðsins i knatt- spyrnu, er í hópi frægustu og bestu knattspyrnumanna í Danmörku fyrr og síðar en þessi magnaði leikmaður batt enda á glæsilegan feril sinn fyrir tveimur árum. Ferill hans með landsiiðinu spannaði 16 ár og á þeim tíma lék hann 104 leiki og skoraði 37 mörk. Laudrup hóf feril sinn með KB í Danmörku árið 1982 og fram til ársins 1998 lék hann með danska liðinu Bröndby, Lazio og Juventus á Ítalíu, spænsku liðunum Barcelona og Real Madrid, Vissel Kobe í Japan og loks með Ajax Hollandi þar sem hann lauk keppnisferlinum, 34 ára gamall. Laudrup var ráðinn aðstoðarþjálf- ari danska landsliðsins eftir Evrópumótið í Hollandi og Belgíu í sumar en liðinu stýr- Guðmundur f *nnar Hilmarsson knattspyrnukappi, skrifar Morten Olsen, sem eins og Laudrup telst í hópi bestu knattspyrnumanna Dana frá upphafi. íslenska landsliðinu hef ur f leygt mikið fram Morgunblaðið hitti Laudrap í gær og innti hann fyrst eftir því hvort Danir reiknuðu ekki með erfiðum leik gegn íslendingum. „Þetta verður injög strembinn leikur fyrir okkur. íslenska landslið- inu hefur fleygt mikið fram á undan- förnum árum og heimavöllur þess hefur reynst mörgum stóram knatt- spymuþjóðum erfiður viðureignar. Það þarf ekki nema að skoða úrslit íslenska landsliðsins undanfarin tvö ár þá sér maður hversu sterkt liðið er orðið. íslendingar unnu Rússa, gerðu jafntefli gegn Úkraínumönn- um og Frökkum og vora ekki langt frá því að komast í lokakeppni Evrópumótsins. Það er því ekki ann- að hægt en bera virðingu fyrir ís- lenska landsliðinu." Eiður og Ríkharður hættulegastir Hvað telur þú vera helsta styrk- Ieika íslenska landsliðsins? „Ég mundi segja að það sé þessi mikli vilji og baráttugleði sem er ein- kennandi fyrir liðið. I þeim leikjum sem við höfum séð, hefur íslenska liðið verið mjög agað, það leikur sterkan varnarleik og er með fljóta og hættulega menn sem geta sótt hratt á varnir andstæðinganna. Ég held að þessi sigur íslendinga á Svíum á dögunum hafi gert það af verkum að leikmenn danska lands- liðsins vita nú að hverju þeir ganga og mæta ekki í þennan leik með neitt vanmat í huga.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.