Morgunblaðið - 09.09.2000, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.09.2000, Blaðsíða 7
6 C LAUGAKDAGUR 9. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ t MORGUNB LAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2000 C 7 BÓKMENNTAHÁTÍÐ 2000 1 1 BÓKMENNTAHÁTÍÐ 2000 A.S. Byatt gaf út sína fyrstu skáldsögu árið 1964 svo ritferill hennar er orðinn nokkuð langur og spannar hug- myndafræðileg umbrot póstmódernismans. Fríóa Björk Ingvarsdóttir leityfirferil Byatt, en sögur hennar hafa með tímanum orðið margslungnar, enda spunnar úr þráðum sem rekja má í margar áttir í senn í könnun á sam- tíma og sögulegri fortíð. Gagn- tekin Póstmóderníska Viktoríukonan Skáldkonan A. S. Byatt, sem bar nafnið Antonia Susan Drabble þartil hún giftist fyrri eiginmanni sínum, er einn þeirra bresku rithöfundasem hóf ritferil sinn í fremur flóknu menningarlegu og þjóðfélagslegu umhverfi sjöunda ára- tugarins. Hún fæddist í Sheffield árið 1936 og lauk BA-prófi frá Cambridge árið 1957. Eftir það stundaði hún framhaldsnám viö Bryn Mawr-kvenna- háskólann í Bandaríkjunum og síöar við Oxford-háskóla í eitt ár. Byatt ólst upp við bóklestur á bernskuheimili sínu, en móðir hennar stundaði einn- ig nám í enskum bókmenntum í Cambridge. Slíkt var fremur óvenju- legt meðal kvenna á þessum tíma og líklegt að það hafi verið Byatt og syst- ur hennar rithöfundinum Margaret Drabble, hvatningtil dáða við að afla sér menntunar og á sviði bókmennt- anna. Auk þess að vinna aö skáldskap hefur Byatt getið sér gott orð sem fræðimaður og háskólakennari en frá árinu 1983 hefur hún eingöngu sinnt ritstörfum. Auk sjö skáldsagna og fjögurra bóka með styttri verkum, hef- ur Byatt skrifaö ritgerðir, gagnrýni og fræðirit. Gerð var kvikmynd eftir bók hennar Angels and Insects (Englarog skordýr) frá árinu 1992 en leikstjóri myndarinnar var Phillip Haas. Áhugi á því sem gerist á bak við tjöldln Byatt gaf út stna fýrstu skáldsögu, The Shadow of the Sun (Skuggi sólar- innar), ung að aldri árið 1964 svo rit- ferill hennar er orðinn nokkuð langur. Hann spannar hugmyndafræðileg umbrot póstmódernismans og vegna áhuga Byatt á Viktoríutímanum, hefur hún stundum verið nefnd „póstmó- derníska Viktoriukonan". Þau ein- kenni eru einkar áberandi í þekktustu skáldsögu hennar, Possession (Gagntekin) sem kom út árið 1990, en það ár hlaut hún hin eftirsóttu Booker-verðlaun týrir umrætt verk. í greininni Choices: On the Writing of Possession (Valmöguleikar: um rit- un bókarinnar Gagntekin) segir Byatt að hugmyndina að bókinni megi rekja til seinni hluta sjöunda áratugarins, þegar hún fékk þá hugdettu á bresku þjóöarbókhlööunni, British Libary, að skrifa skáldsögu sem hverfðist í kringum einskonar „possession" - áráttu eða þráhyggiu varðandi „sam- bandið á milli látinna og lifandi hugs- uða. Þetta var á þeim tíma sem skáldsagan var eingöngu „texti", á tíma „nýju skáidsögunnar" í Frakk- landi og þaö var ekki fyrr en löngu seinna að Byatt fann þessari hug- mynd sinni farveg í frásögn, eða á níunda áratugnum. Þá var hún að kenna Browning, George Eliot og Henry James og fór að velta fýrir sér þeirri sögu sem skáld segja í pers- ónulegum bréfum sínum, þeirri sögu sem þeir hafa ekki ætlað almenningi til aflestrar og eignar eins og skáld- verksín. Þennan póstmóderníska söguþráð um „hina hliðina", um þaó sem gerð- ist á bak við tjöldin, tvinnar Byatt saman við persónulega sögu ein- staklinga úr nútímanum. Hún tók þá ákvörðun að bókin segði sögu tveggja para, manns ogkonu, en annaö parið tilheyrði fortíðinni en hitt samtíman- um. Er hún var beðin um að skrifa gagnrýni um „Nafn rósarinnar" eftir Umberto Eco, áttaði hún sig á því að verkiö þyrfti að vera eftirlíking á öllum mögulegum formum; á hámenningu jafnt sem alþýöumenningu. í greininni um tilurð Possession vitnar Byatt í bandaríska nítjándu ald- ar rithöfundinn Nathaniel Hawthorne, sem hélt því fram að sagnfræöileg rómantík byggði ekki á raunsæi, en leitaöist fremur við að „tengja liöinn tíma þeirri nútíð sem er að flögra í burtu frá okkur". Þetta einsetti Byatt sér að gera og notaði til þess ýmis brögð, skáldaði sendi- bréf frá Viktoríutímanum, hluta af ævisögum, dag- bókum og gamaldags frásögnum um liðna tíð. I þessum stílbrigðum bók- arinnar nýtur þekking Byatt á eldri bókmennt- um sín til hlítar, en henni ferst einstaklega vel úr hendi að búa til trúverö- ugan heim horfins tíma, sem hægt og bítandi fer að hafa áhrif á samtím- ann og afhjúpa hinn sam- mannlega þátt sem hafinn eryfirtíma og rúm. Persónuleg saga paranna tveggja er því saga sem sögð er gegn flæði tímans og þeirrar opinberu sögu sem viö þekkjum Umbrot og hugmyndafræði sjöunda áratugarins Fyrstu bók sína, The Shadow of the Sun, hófst Byatt handa við að skrifa um miðjan sjötta áratuginn þegar hún var við nám í Cambridge. Hún stóð þá, eins og annað ungt fólk af hennar kynslóö, frammi fýrir heimi sem var rétt að vakna til vitundar um jafnrétti og stöðu kvenna. í formála að þess- ari bók segir Byatt aö sig hafl samt sem áður ekki langaö til að skrifa um sjálfa sig og reynsluheim kvenna á þessum tíma, enda segist hún fyrst og fremst hafa verið að berjast við hið klassíska vandamál ungs höfundar; reynsluleysi um lífiö. í formálanum lýsir Byatt viðteknum tíðaranda þessa tíma og ólíkum val- möguleikum karla og kvenna: „Karl- menn gátu gert ráð fýrir hvoru tveggja, starfsferli og ást, en svo virt- ist sem konur gætu þaö ekki. Engin kona af minni kynslóð hefði vænst þess að hugsanlegur eiginmaður tæki tillit til atvinnu- möguleika hennar við sína eigin ákvarðana- töku." Á þessari togst- reitu byggist bókin auövitaö að nokkru leyti, en hún mótast þó fyrst ogfremst af til- raun Byatt til að skilja á milli sinnar eigin kynslóöar og móóur sinnar. Hún segist hafa viljað forðast „bræði hennar, þung- lyndi og vonbrigði, sem varð þó í raun til þess að dætur hennar bundust ekki inni á heimilinu. „Við vildum „ekki vera eins og hún", og það er fyrst núna, nokkr- um árum eftir dauða hennar að ég hef hugrekki til að ímynda mér hvað var að gerast í hugskoti hennar." Löngu seinna, á síðasta áratug, hófst Byatt aftur handa viö að skrifa um þennan þjóðfélagslega umbrota- tíma mótunarára sinna. í bókinni Babel Tower (Babelsturninum) sem út kom 1996 vinnur hún út frá sjónar- horni þess sem hefur öölast reynslu af lífinu og horfir til baka. Eins og Possession fjallar sú bók því bæöi um hennar eigin samtíma jafnframt því að gera fortíöinni skil og vera söguleg í þeim skilningi. Byatt skil- greinir stöðu The Babel Tower innan höfundarverks síns sem þriðju bók- ina í fjögurra bóka flokki, en hinar eru The Virgin in the Garden (Jómfrúin í garöinum) sem kom út áriö 1978 og Still Life (Kyrralífsmynd) sem kom út 1985. Síöasta skáldsagan í þessum sagnabálki hefur hlotið heitið A Whistling Woman (Kona sem blístrar) en hún er ekki enn komin út. Sambandið á milli tungumálsins og raunveruleikans Þó þessi þrjú verk geti öll staðiö sjálfstætt kemur sama sögupersón- an, Frederica Potter, fýrir í þeim öll- um. Að öðru leyti viröast þau við fyrstu sýn ekki eiga mikið sammerkt. Það sem helst tengir þau er að sam- eiginlegt þema þeirra allra er sam- bandið á milli tungumálsins og raun- veruleikans - tungumálsins, opinbers lífs og hugmyndafræöi. The Virgin in the Garden fjallar um fortíðarþrá eftirstríðsáranna eins og hún myndbirtistlkringum krýningu El- ísabetar annarrar. Byatt notar upphaf veldistíma hennartil að kanna tungu- mál og hugmyndafræði þess blóma- tíma enskrar menningar sem tengd- ist nöfnu hennar Elísabetu fýrstu. Still Life ersaga sem viröistvera af mjög ólíkum toga. Hún er það sem Byatt hefur kallað „líffræðilegu skáld- söguna" sína, en þar skrifar hún af hispursleysi og nákvæmni um fæð- ingu, hjónaband og dauöa á tungu- máli þar sem hún gerði tilraun til að nota ekkert myndmál - þó án þess að það tækist því Byatt uppgötvaði í kjölfarið að ímyndunarafl hennar er tengt myndmáli órjúfandi böndum. Sú rannsókn á tungumálinu sem Byatt hefurtekist á hendur með þess- um þremur bókum, undirstrikar möguleika þess sem tækis til tjáning- ar, en ef til vill ekki síöur afstæði tján- ingarmáta hvers tíma I tilraun til að móta sýn okkar á söguna og raun- veruleikann. Lengst gengur Byatt í þessari rannsókn í The Babel Tower, en að hennar sögn fjallar sú bók um það „hvernig tungumálið afmyndaði, skapaði eða breytti lífinu og þjóðfé- laginu" á sjöunda áratugnum. Byatt beinir þar einnig sjónum sínum að hugmyndafræöi hippatímans, aukn- um áhuga á sálfræði, zen-búddisma og uppbroti tungumálsins - eða jafn- vel þögninni. Allt voru þetta umhugs- unarefni sjöunda áratugarins sem einnig endurspegluðust í listum og bókmenntum. Á þessum tíma skrif- aöi t.d. Doris Lessing tímamótabók, The Golden Notebook (Gullnu minnis- bókina), um uppbrottungumálsinsog þar með hugsunarinnar, sem endar I algjöru niðurbroti einstaklingsins áð- ur en hann getur risið upp á nýjan leik á sínum eigin forsendum og sniöið tungumálið að því sem honum liggur á hjarta. The Babel Tower segir margar sög- ur I einni, Babbletower (Bablturninn) er skáldsaga sem fléttast inn í sög- una, svo heita má að óteljandi sögu- brot myndi kjarnann I skáldverkinu sem heild. Afstæði sannleikans Nýjasta skáldsaga A.S. Byatt kom út í byrjun júní á þessu ári og heitir The Biographer’s Tale (Saga ævi- söguritarans). Hún fjallar, eins og nafnið bendir til, um ævisöguritara sem í leit sinni að staðreyndum finn- ur sjálfan sig. Hann sekkur sér ofan í list ævisagnaritunar og uppgötvar smátt og smátt afstæði sannleikans, að þegar búið er að hnýta staðreyndir saman þannig að þær myndi ævi- sögu, þá eru þær ekki einungis ómar- kvissar og óræðar, heldur geta þær beinlínis reynst vera skáldskapur einn. A.S. Byatt hefur haldið því fram að hlutverk listarinnar sé fyrst og fremst að veita mannskepnunni ánægju - og að í kjölfar slíkrar ánægju sé hugsan- legt að koma fróðleik eða pólitískum boðskap á framfæri. „Og ánægjan af skáldskapnum er sú uppgötvun er felst í söguþræðinum," segir Byatt. Sögur hennar hafa með tímanum orð- ið margslungnari, enda eru þær spunnar úr þeim fjölmörgu þráðum sem marka áhugasvið hennar, svo sem líffræði, sagnfræði og heim- speki. Þessa þræði má rekja í margar áttir í senn f könnun á samtíma og sögulegri fortíð sem þegar allt kemur til alls vísartil heimsins sem heildar. A.S. Byatt Hann hafði ekki sagt henni, og gat ekki sagt henni, frá leynilegum þjófnaði sínum. Seint um kvöldið leit hann á bréfin á nýjan leik, inni á baöherbergi. „Kæra frú, alit frá því að hið óvenjulega samtal okkar átti sér stað hef ég ekki leitt hugann að ööru." „Kæra frú, allt frá því að hið ánægjuiega og óvænta samtal okkar átti sér stað hef ég lítið leitt hug- ann að öðru." Áríðandi, óklárað. Hneykslanlegt. Rol- and hafði aldrei haft mikinn áhuga á horfnum líkama Randolph Henry Ash; hann eyddi ekki tíma í aö heim- sækja hús hans I Russel Street, né í að sitja þar sem hann hafði setið, á garðstól- um úr steini; það var meira í anda Cropper. Það sem Rol- and hafði ánægju af var þekking hans á þeirri hreyf- ingu sem átti sér stað í huga Ash, hann læddist í gegnum króka og kima setn- inga hans, sem skyndilega urðu skarpar og tærar í óvæntum ummælum. En þessir dauðu bókstafir trufl- uðu hann, meira að segja líkamlega, vegna þess að þeir stóðu aðeins fyrir byij- anir. Hann gerði sér ekki f hugarlund hvemig Randolph Henry Ash hreyfði pennann hratt yfir örkina, heldur leiddi hann hugann að létt- um slætti þeirra löngu dauöu fingra sem höfðu handfjatlað og brotið þess- ar hálfskrifuöu arkir, áöur en þeirvarðveittu þærf bókinni f stað þess að fleygja þeim. Hver? Hann yrði að reyna að komast aö því. Brot úr skáldsögunni Gagntekin eftir A. S. Byatt í þýðingu Fríðu Bjarkar ingvar- sdóttur. Slawomir Mrozek er í hópi merkustu leikskálda tuttugustu aldar segir Árni Ibsen leikhúsfræöingur. Mrozek er höfundur yfir 30 leikrita, en hann er þekktur skopteiknari og höfundur smásagna og skáldsagna. Háöiö er hans beitt- asta vopn MROZEK er djúphugull húm- oristi, skopið er aðal- smerki hans, háös- ádeilan sú aöferö sem honum er tömust, þó aö e.t.v. megi skipta leikritum hans gróflega í tvo flokka. Það eru annars vegar grót- eskar háðsádeilur að hefð Witkiewitz og Gombrowitz, þó að hann sé reyndar heim- spekilegri höfunduren þessirfýrirrennar- ar hans, og hins vegar sálfræðileg kamm- erverk meö þungri pólitískri undiröldu. Mrozek fæddist í Bovzercin í grennd við Kraká 1930. Hann hóf nám í listasögu og arkitektúr, en hætti og las heimspeki og tungumál Austurlanda. Hann gerðist síð- an blaðamaður og ritstjóri tímaritsins Framfarasinninn, sem var helgaö póli- tískri satíru. Þar vöktu örsögur hans og teikningarathygli. Þíðan í austur-evrópskum stjómmálum 1956 haföi töluverö áhrif á listalff land- anna fýrir austan járntjald, ekki síst í Pól- landi þar sem leikhúslífió blómstraði sem aldrei fýrr. Um svipað leyti hóf Mrozek að birta satírískar smásögur í tímaritum og fýrsta smásagnasafnið, Rllinn (Slon), kom út 1957 og hlaut hann virt bók- menntaverðlaun fýrir. Mrozek hafði fýrst skrifaö fýrir leiksviö meðan hann var í stúdentakabarett í Gdansk snemma á sjötta áratugnum, en fýrsta leikritið var Lögreglan (Policja, 1958), snjall einþáttungur um vanda lög- reglunnar í alræðisríki þar sem pólitísk glæpastarfsemi hefur verið upprætt. Til að viðhalda sjálfri sér og hafa verkefni gerir lögreglan liðsmenn sína út af örkinni til að fremja pólitíska glæpi. Þetta verk er dæmigert fýrir húmor Mrozeks; þama er þeitt, pólitískt háð á ferð líkt og í skop- teikningum hans. í kjölfar Lögreglunnar komu fleiri ágætir einþáttungar sem hafa notiö vinsælda víða um heim. Þar á með- al eru Píslarvætti Péturs Óhei (Meczen- stwo Piotra Oheya, 1959), Á rúmsjó (Na pelnym morzu, 1961), en það er leikritið fræga um feita manninn, miölungs manninnn og granna manninn á fleka úti á rúmsjó þar sem sá granni er étinn og lætur sér vel Ifka, Striptease (1962), Karol (1962) og Töfranótt (Czarowna noc, 1963). Fyrsta leikrit hans í fullri lengd var Tangó (1964), þaö verk sem gerði hann heimsfrægan. Tangó færði Mrozek heimsfrægð Tangó var fýrst prentað í hinu merka leiklistartímariti Dialog, en skömmu sfðar var það frumsýnt í Varsjá. Verkiö varð sam- stundis frægt og á örfáum árum var það þýtt á tugi tungumála og sýnt í fjölda leik- húsa víða um heim. Tangó er margslung- ið, tragi-kómfskt verk, að ytra formi hefð- bundiö fjölskyldudrama, en atburöarásin er tákngerð lýsing á flókinni þjóðfélags- þróun frá frjálslyndi gegnum byltingu til einræðis. Þegar byitingin bregst blasir tóm ogtilgangsleysi við; þá er ekkert eftir nema hrátt valdiö. Og til aö halda svartsýni f skefjum dugir aöeins valdið. Meö Vatslav (Waclaw, 1969) urðu tíma- mót á ferli Mrozeks, en það var fýrsta leikritiö sem hann sendi frá sér eftir nokk- urt hlé og eftir innrás Varsjárbandalag- sins ÍTékkóslóvakfu, atburð sem skáldið fordæmdi og voru verk þess bönnuð í Póllandi um hríð. Með þessu leikriti fer hann nýjar leiöir í formi og frásagnaraö- ferð, en verkiö er epfskt ævintýri í 77 at- riðum um skipbrotsmann sem bjargast einsamall upp á strönd undarlegs lands þar sem blóðsugur ráða rfkjum. Á næstu árum skrifar hann fjóra einþáttunga að fyrirmynd La Fontaines þar sem aðalpers- ónan er refur. Merkasta leikrit Mrozeks á áttunda áratugnum er Landflótti (Emigranci, 1974), háðsádeila fyrir tvo leik- ara um mótsagnir frels- isins, Sláturhúsiö' (1975) og Kroppinbakur (Garbus, 1976). Frá níunda áratugnum er Sendiherrann (Ambasa- dor, 1981) vinsælast, en fýrstu sýningar á því uröu endasleppar f heimalandi höfundar þar sem leikhúsinu var lokaö skömmu eftir frumsýningu þegar hin illræmdu herlög voru sett. Frá seinustu árum má nefna Sumardag (1984), Ekkjur (1990), táknrænan dauðadans, og Ástir á Krímskaga (1993), sem er að nokkru tsékóvsk paródía um lífsstíl Austur- Evrópubúa eftir fall Berlínarmúrsins, en að ytra formi ágrip af sögu Rússlands seinustu hundrað árin. Landffótta um árabil Slawomir Mrozek flúði land 1963 og settist aö á ítölsku rivierunni. Hann flutt- ist til Parísar 1968 og gerðist franskur rík- isborgari 1978, en síðar bjó hann um skeiö í Mexíkó og dvaldi í Bandaríkjunum; Bretlandi og Svíþjóð, en býr nú í Kraká í Póllandi. Honum hafa hlotnast fjöldi al- þjóðlegra viðurkenninga, þar á meðal eru Franz Kafka-verölaunin (1989). Hvorki smásögur né skáldsögur Mrozeks hafa veriö þýddar á íslensku, en nokkur leikrita hans hafa verið leikin hér. Þjóðleikhúsið sýndi Á rúmsjó 1965. Leikfélag Reykjavík- ur sýndi Tangó í Iðnó 1967 og Meðgöngu- tíma 1974. Menntskælingar í Hamrahlíö sýndu Vatslav 1981, og Leiksmiðjan Kaþ- arsis Sumardag 1990. Útvarpsleikhúsiö flutti Karol (1971), Sendiherrann (1985) og Sumardag (1988). Slawomir Mrozek „Ég skrifa um líf og dauöa og um ást í Aitenburg á miklum umbrotatímum," segir þýski rithöfundur inn Ingo Schulze í viötali vió norska blaðamanninn Tone Myklebost. Sagnahefðin endurnýjuð AUSTUR-þýski rithöfundur- inn Ingo Schulze hlakkar mikiðtil aðtaka þáttíbók- menntahátíðinni f Reykja- vík í september en hann segist þó hafa veriö búinn að ákveða að þiggja ekki nein boð um utan- landsferðir á næstunni „Ég er að vinna aö nýrri bók og verð að einbeita mér að henni en þegar mér var boðið að koma til íslands gat ég ekki sagt nei. Þangað hef ég aldrei komið en mér hefur verið sagt, að það sé ótrú- lega spennandi land að mörgu leyti. Svo líst mér líka vel á bókmenntahá- tföina," segirSchulze. „Þeim, sem eru undir þrítugu, ganga um meö sólgleraugu og skrifa um Berlfn, gengur allt í haginn. Þeir, sem komnir eru yfir fimmtugt og hafa kannski skrifaö sex eða sjö bækur, eiga hins vegar í efiðleikum með fá eitthvert forlag til að géfa þær út,“ segir Schulze hlæjandi um leið og hann greiöir mikinn hárlubbann frá andlitinu. „Ég er kannski að taka of djúpt í árinni en þetta er ekki fjarri sanni. Þannig er þetta líka í öðrum listgreinum. Þaö er skemmtanaiön- aðurinn, sem öllu ræöur." Schulze er sjálfur oröinn að peði í þessu tafli. Hér áðurfór hann fátt en nú má segja, að hann sé lagstur í ferðalög. Róm, Buenos Aires, Norð- urlönd og svo framvegis. „Það er Ingo Schulze helst, aö ég hitti aðra rit- höfunda, suma, sem búa hér f sama hverfinu, á feröum mínum um heiminn. Ég hitti t.d. vin minn og nágranna, Durs Grunbein, síöast í MoskvuogSeattle." Mikil velgengni Þegar „Einfaldar sög- ur" eftir Ingo Schulze komu út í Þýskalandi 1998 klifruðu þær strax upp alla mögulega lista og salan sló öll met. Síð- an hafa erlendar bókaút- gáfur barist um að fá að gefa bókina út en undirtitill hennar er „Saga frá Austur-Þýskalandi". Schulze gekk einnig vel með fyrstu bókina sína 1995, „33 hamingjurík augnablik", en þar var um að ræða smásögusafn og sögusviðið Sankti Pétursborg. „Segja má, aö hjá mér hafi hvert kraftaverkiö rekið annað. Fyrsta bók- in var verölaunuð og seldist vel og það auðveldaöi mér að vinna að þeirri næstu, sem sló í gegn. Það er alltaf erfitt að skrifa en mér fundust vonirnar, sem viö mig voru bundnar, ekki hafa nein slæm áhrif á mig. Mér fannst ágætt að vera búinn að brjóta ísinn. Ég skrifa ekki þaö, sem égtel, að aörir vilji heyra, heldur það, sem mig langar tii, og þetta hefur lánast vel," seg- irSchulze. Hann opnar stoltur dyrnar aö nýju fbúð- inni sinni í Prenzlauer Berg í Berlín en það hverfi er nú mikiö f tísku ef svo má segja. Iðnaðarmennimir voru að leggja sföustu hönd á verkið en íbúö- in er gerð úr tveimur, sem voru sameinaö- ar. Hún er strokin og fín en vantar ennþá þetta persónulega. Húsgögnin eru ný og ónotuö og stóru bókaskáparnir bíöa þess að verða fýlltir. Schulze er ánægður með þetta nýja heimili sitt og fer meö mig út á svalirnar. Þaöan sjáum við út yfir Austur-Berlfn, niðurnídd húsin, sem öll þurfa á andlitslyftingu að halda. Hana munu þau líka fá fýrr en varir. Uppbyggingin og endurreisnin eru á fleygiferö. 29 sögur „Einfaldar sögur" gerist í bænum Altenburg í Thuringen og fjallar um viðbrögð Austur-Þjóöverja við sam- einingunni og þeim breytingum, sem henni fýlgdu. Er um að ræöa 29 að því er virðist sjálfstæöar sögur, sem veita lesandanum innsýn inn í hvers- dagslífið í Altenburg. Þær segja frá draumum og vonum, sem brugöust; samskiptum fólks í mörgum mynd- um og frá eilífu baktjaldamakki og togstreitu á sjónvarpsstöðinni í bæn- um. Þærsegjafráfólki, semferðastí fýrsta sinn til Ítalíu, baráttu þess við yfirvöld ogvonlausan vinnumarkað. Persónurnar koma fram f einni sögu, hverfa og skjóta síðan upp kollinum í annarri. Blaðamenn og bíl- stjórar, hjúkrunarnemi, atvinnulaus menntamaöur, rithöfundur og geö- læknir. Með hverri persónu öðlast sagan nýja vídd. „Ég reyndi að skrifa sögurnar sem kafla og mér finnst skemmtilegt hvernig þær tengjast. Með því að nota persónurnar á ólíkan hátt gat ég komiö ýmsu að án þess að segja það berum oröum. Persónurnar tengjast með nokkrum hætti og lesa- ndinn verður að draga sínar eigin ál- yktanir af því. Ég skrifa um líf og dauða og um ást í Altenburg á mikl- um umbrotatímum. Nálægðin var hins vegar svo mikil, þaö er svo skammt um liöiö, að bókin gat ekki oröið neitt yfirlit eða allsherjarúttekt. Þetta eru brot, svipmyndir og bókin sett saman eins og púsluspil." Fall múrsins Schulze segir, að hefði hann skrif- að „Einfaldar sögur" nú, hefði bókin ekki oröiö neitt öðruvísi. Tfminn erár- in frá 1990 til 1997 og aöeins fjórir eða fimm kaflar snúast um fýrstu ár- in eftir fall Múrsins. Frá 1995 hefur lítið breyst. Ég spyr Schulze hvað honum finn- ist um þróunina frá þvf þýsku ríkin sameinuðust. „Það er alltaf forvitnilegt að kynn- ast einhverjum nýjum, einkum ef við- komandi er ríkur og spennandi, en munurinn kemur fljótlega í Ijós. Þannig er þaö með austur og vestur. Við vildum þó ekki trúa þvf í fýrstu enda tölum við sömu tungu og erum ein þjóð. Við lítum samt öðruvísi á hlutina. Ég á marga vini í vesturhlut- anum og veit um hvað ég er að tala. Þetta er þó annað með unga fólkið. Það, sem erfætt eftir 1975, upplifði atburðina 1989 með öðrum hætti. Hvers vegna ættum við líka að vera eins? Mér finnst þessi munur bara ágætur. Hefði Noregur veriö að hluta undir rússneskum yfirráöum og að hluta undir bandarískum, væri mikill munur á landshlutunum. Ólík reynsla getur verið góð og það væri f raun skelfilegt ef allir væru eins. Af- staðan til Kosovostríösins var t.d. önnur í austri en í vestri og ég hefði ekki getað skrifaö sögurnar frá Sankti Pétursborg, hefði ég komið aðvestan." Frá Dresden Ingo Schulze fæddist f Dresden 1962. í nokkur ár starfaði hann sem leikskáld en eftir fall Múrsins og sameininguna lagði hann fýrir sig blaðamennsku og gaf út auglýsinga- blað. Tókst honum að spara töluvert fé og gat því helgað sig skriftunum án þess að stunda aðra vinnu. „Ég hef ekki neinn sérstakan stíl og þess vegna eru bækurnar svona ólíkar. í hverri bók leita ég að þeim stíl, sem mér finnst passa. Þriöja bókin mín, sem á aðfjalla um atburö- ina 1989, fær alveg nýjan stfl. Ég er að vinna að henni og kannski verður um einhvers konar einræöu að ræöa. Égveit það ekki. Éghefýmsar hugmyndir og það er ekkert ákveöiö enn. Það er búið að segja svo mikiö um þessa atburði, að þaö er betra að fara varlega og gæta þess, að ekki verði um einhvers konar frétta- frásögn að ræða. Ég býst við að bók- in muni segja frá rithöfundi, sem birti aldrei neitt, lét sig bara dreyma." Schulze er handgenginn Alfred Döblin og konseptúalismanum og hann þekkir einnig vel til bandarísku skáldsögunnar. Hann er hrifinn af Hemingway og Carver. Schulze legg- ur mikla áherslu á ólíkan frásagnar- máta en segist þó þekkja takmörk síníþeimefnum. Á síðustu áratugum hefur lítið far- ið fýrir þýskum bókmenntum, jafnt innanlands sem á alþjóðavettvangi. Þýsku forlögin hafa einbeitt sér að þýðingum erlendra verka en lítið sinnt þýskum rithöfundum. Nú virö- ist þó vera bjartara framundan. „I austri hefur alltaf veriö mikil sagnahefö og sagt er, að nú sé hún að ganga í endurnýjun lífdaganna f vesturhlutanum. Ég vil gjama_ trúa því," segir Schulze og brosir. „í upp- hafi síöustu aldar las þýskumælandi fólk Musil, Mann, Broch og Kafka en eftir seinna strfð var það Grass, Jung, Weiss og Heiner Múller. Síðan tók þögnin við. Þá kom 1989 og upp reis bylgja ungra rithöfunda. Það á eftir aö koma í Ijós hve hátt hún nær. Sameiningin hafði mikil áhrif en sumir telja, að ártalið 2000 skipti máli, að þá byrji eitthvað nýtt. Mark- aöslögmálin koma hér líka við sögu. Bandarískar og norrænar bókmennt- ir em orðnar of dýrar fyrir þýsku for- lögin og þess vegna verða þau ein- faldlega að líta sér nær, kanna hvað er nýtt hér innanlands." Þarmeö hverfur Schulze upp stig- ann að vinnustofu sinni. Þar leitar hann að sinni eigin rödd í glímunni við söguna um 1989. Einn af yngstu gestum bókmenntahátíöarinnar er lettneska skáldkonan Nora Ikstena. Skafti Halldórsson bókmenntafræðingur kynnir hana til sögunnar og gerir grein fyrir verkum hennar. Veisla lífsins undir vængjum dauöans NORA Ikstena er fædd 1969 í Riga og telst einn mikilvæg- asti höfunduryngstu kynslóð- ar lettneskra rlthöfunda. Ikst- ena lagði stund á lettnesku og bókmenntir við Háskóia Lettlands á ár- unum 1987-1992. Hún fór til náms f Bandaríkjunum við Columbia-háskólann í Missouri 1994-1995 þar sem hún stund- aöi nám í ensku og bókmenntum. Þar starfaöi hún meðal annars að sérútgáfu The Review of Contemporary Rction sem helguö var nýju lettnesku skáldsögunni. Auk þess starfaði hún að ritstörfum en henni var boðið að starfa sem gestarithöfundur við rithöfundanýlendu (Ledig House Informational Writers’ Colo- ny) í Ghent, New York. Áriö 1992 var fyrsta bók hennar gefin út. Hún nefndist Pamákðana Grámata par Anna Rumani íeniöu (Heimkoman). Sú bók er bókmenntaleg og söguleg könnun á lífi Önnu þessarar sem var rithöfundur og starfsmaður við utanríkisþjónustuna. Nýjasta bók höfundarins er einnig ævi- söguleg og nefnist Brinumainá kártá og kom út árið 1999. Skömmu eftir útkomu fyrstu bókarinnar tóku smásögur Ikstena að birtast og fýrsta smásagnasafnið sem út kom 1995 vakti strax mikla athygli. Það nefndist Nieki un izpriecas (Hégómi og gaman- mál) og gagnrýnendur töldu það miðla nútímalegri rómantík. Skömmu eftir Bandaríkjadvölina áriö 1997 kom út smásagnasfnið Maldigas romances (Ævintýri á villigötum). Var því vel tekiö sem hinu fýrra. Nora Ikstena teflir pers- ónum sínum fram í margs konar um- hverfi, jafnt í ömurlegustu nástrætum sem í goösagnaveruleika. Sögurnar snúast giarnan um glímu persónanna við óvænt og óvenjuleg sálræn vanda- mál. Árið 1998 kom svo út skáldsagan Dzives svingðana (Veisla lífsins) sem þykir ein athyglisveröasta bók áratugar- ins í Lettlandi. Dzives svingðana fjallar um það á hve margbrotinn hátt við get- um tengst fólki. Ikstena er hér að fjalla öðrum þræðinum um dauðann. Dauði Elenóru er upphafspunktur sögunnar. Samband hennar og dóttur hennar, Hel- enu, hefuraldrei verið náið. Eigi að síður verður Helena við þeirri undarlegu ósk móður sinnar að bjóða sjö ókunnugum aðilum til jarðarfararinnar. Nóttina eftir greftrunina segir hver þessara sjö mann- vera furöulega sögu þar sem Elenónra leikur aðalhlutverkið. Tvær sagnanna gerast í Þýskalandi og Rússlandi en hin- ar í Lettlandi. Frásagnirnar sýna Helenu sjö áður óþekktar hliðar á móðurinni. Sú innsýn breytir afstöðu hennar til móöur sinnar, hennar sjálfrar og framtíöarinnar. Þessi söguaðferð Noru Ikstena er beint framhald af fýrri smásagnaskrifum henn- ar. Jafnframt gefur hún henni færi á að spreyta sig á fjölbreytilegum stflformum. Vissulega er einnig svolítill ævintýrablær á þessari sögu Ikstena. Sá háttur höfund- ar að kalla sjö mannverur til vitnis um hinn látna einstakling tengir okkur ósjálf- rátt heimi ævintýra og drauma. Draumar ramma líka skáldsöguna inn í upphafi og lok bókar. Veruleiki söguhnar er því eins og millibilsástand milli drauma. Guntis Berelis sem ergagnrýnandi stærsta dag- blaðs Letta líkti texta sögunnar við töfra- formúlur og bætti við að ein þeirra líktist óræðum oröskvið: „Látið hið deyjandi lifa og það lifandi deyja." Þennan orðskvið telur Berelis grundvöll sögunnar. Hægt sé að skoða Dzives svingðana sem at- hugasemd eða tilbrigöi við hann ,,um lífiö eftir dauðann, um hinn lifandi dauða og veislu lífsins undir vængjum dauðans." Bókasafnsfræðingar í Lettlandi völdu Dzives svingðana bestu bók ársins og einnig hlaut hún árleg bókmenntaverð- laun lettneska menntamálaráöuneytis- ins. Kvikmyndafýrirtækið Jura Podnieka er að undirbúa að kvikmynda söguna und- ir stjórn Antra Cilinska.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.