Morgunblaðið - 09.09.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 09.09.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ BÓKMENNTAHÁTÍÐ 2000 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2000 C 11 Uppreisn gegn hugmyndalegu alræöi þykir einkenna verk Ivans Klímas. Hann hefur skrifaö ritgerðir, leikrit og sögur, auk ótal blaðagreina aö sögn Þorvarðar Hjálmarssonar. í nýlegri ritgerö lætur Ivan Klíma áhyggjur í Ijós varöandi breytingar á menningarlífinu í Tékklandi Hin algjöra nálægð RITHÖFUNDURINN Ivan Klíma fædd- ist í Prag árið 1931. Hann er af gyö- inglegu foreldri í föðurætt en hlaut uppeldi sitt sem kristinn mótmæl- andi. Það reyndist honum þó ekki það skjól sem ætla mætti, þegar helför nasista stóð sem hæst í síðari heimsstyrjöldinni var hann handtekinn og settur f nauöungarbúðir og hafður í haldi þangað til stnðinu lauk. Þá tók ekki betra við því örlög Tékka urðu þau að hverfa frá einu alræðinu í annað, frá blóðhundum nas- istaflokksins undir járnhæl sovéska kommún- istaflokksins en sú saga eröllum kunn ogóþarft að rekja hana frekar. Um þessi mál og fleiri hef- ur Ivan Klíma skrifaö margar merkar bækur, rit- geröir, leikrit og skáldsögur, auk fjölda blaða- greina. Hann lét fyrst að sér kveða í tékknesku bókmenntalífi á sjöunda ártugnum og þá sem skáldsagnahöfundur, en á árunum 1964-1976 skrifaði hann ein níu leikrit, en sjö þeirra fengust ekki sett á svið í Tékkóslóvakíu eftir að stjórn Dubceks féll af völdum Varsjárbandalagsins ár- ið 1969. Sviðsetningar þeirra var ekki að vænta fyrr en löngu síöar. í kjölfar alls þessa voru verk Ivans Klíma bönnuð almenningi og hann sjálfur settur á svartan lista sem óvinur þjóðarinnar. Hann vann ýmsa almenna vinnu um tveggja ára- tuga skeið, var meðal annars um tíma sjúkra- flutningamaður en hélt alltaf áfram að skrifa og birta verk sín í ólöglegum dreifiritum og neðan- jaróarútgáfum. Uppreisngegn hugmyndalegu al- ræði setur svip sinn á verk Ivans Klíma og hann þykir beita nokkurri gráglettni á köflum og svört- um húmor, en mannúöarhugsjónin og óskir um réttlæti og betra líf eru þó aldrei langt undan. Kastalinn Kunnasta leikverk Ivans Klíma frá fyrri árun- um er Kastalinn (Zámek) skrifað árið 1964, en það verk byggir hann lauslega á hinni frægu sögu Franz Kafka með sama nafni. í kastala ein- um hefur útvalinn hópur gerspilltra mennta- manna aðsetur sitt, aflokaðir frá umheiminum í sjálfskipðaðri útlegð frá raunveruleika daglegs lífs una þeir glaðir við sitt, en þó kraumar eldur undir niðri. Endrum og sinnum ber gesti að garöi sem kastalabúar fagna í fyrstu en fyrirkoma síó- an í einhvers konar yfirbóta- og sjálfsréttlætingarskyni fyrir veru sinni í kastalanum. Milli íbúanna ríkir úlfúð sem einn daginn kemur upp á yfirborðið með ógnvænleg- um afleiðingum. Ivan Klíma nýtir sér form spennusögunnar við að upplýsa málið og f Tékkóslóvakíu árið 1964 duldist engum hvert hann var aö fara. Annað þekkt leikrit hans er Leikir (Hry) frá 1975 þar sem hann tefiir fram leikriti innan leikritsins til aö opin- bera sálræna og félagslega bar- áttu sem ríkir milii persónanna. Leikritum hans hefur verið líkt við verk Svisslendingsins Friedrichs Durrenmatts og hann er sagður sækja sér áhrif til ítalans Luigis Pirandellos og Englendingsins Harolds Pinters. Ivan Klíma hefur skrifað skáldsögur og smá- sagna- og ritgerðasöfn sem snarað hefur verið yf- ir á erlendartungur á undanförnum árum og upp- skoriö mikið lof fyrir beggja vegna Atlantsála. Kunnustu verk hans sem komiö hafa út á enskri tungu eru skáldsögumar My Golden Trades, A Summer Affair, Love and Garbage og skáldsagan Waiting for the Dark, Waiting for the Light sem hlaut mikið lof á síðastliðnu ári, og að lokum The Ultimate Intimacy. Þá hefursmásagnasafnið Lov- ers for a Day verið gefið út og ritgerðasafnió The Spirit of Prague. Orðið er upphaf alls í nýlegu ritgerðarkorni eftir Ivan Klíma sem hann nefnir, „Bréf frá Prag" skeggræðir hann þær miklu breytingar sem orðið hafa á menning- arlífinu í Tékklandi á undanfömum áratug og þró- un ritlistarinnar í landinu eftir Rauelsbyltinguna margrómuðu. Fyrir daga hennar voru flestir helstu höfundar landsins bannaðir og verk þeirra birtust einungis í ólöglegum neðanjarðarútgáf- um, svoköliuðum „samizadt“-fjölritum. Rithöf- undamir voru eins konar samviska þjóðarinnar, tákn um hugrekki og manndóm gagnvart alræð- inu. En árið 1989 breyttist þetta snögglega, frels- ið rændi höfundana ekki aðeins ritskoðunarbyrð- inni heldur líka því hlutverki þeirra að vera talsmenn undirokaðrar þjóöar. Bækur þeirra komu út í hundruðum þúsunda eintaka og margir þeirra áttu stjórnmálaframa vísan og urðu þingmenn og ráöherrar. Bókaútgáfur spruttu upp eins og gorkúlur og börð- ust sín á milli um sölutölur. Afleiðing- in að sögn Ivans Klíma varð sú aö bækur hækkuðu f verði og meira bar á afþreyingarbókmenntum en áður, nú er svo komið að bókaútgáfa í Tékklandi er orðin meö sama brag og tíökast í öðrum vestrænum lönd- um af svipaðri stærö. Dagar sam- izadt em löngu liðnir. í framhaldi af þessu ræðir hann í bréfinu um þær breytingar sem hlutverk rithöf- unda hefur tekið á undanfömum ámm. Þeir em ekki lengur samviska þjóðarinnar heldur keppa um hylli fólks við poppstjörnur, sjónvarpsfólk, tennisleikara og knattspymumenn. Glöggt má greina að honum líkar ástandið ekki og hann vill hverfa afturtil þeirra tíma sem bókmenntir höfðu mikilvægu hlutverki að gegna í hugum fólks. Þaö segir hann að hægt sé að gera með því að benda fólki á að orðiö er upphaf alls, menningin óx upp af oröinu en ekki af myndum og það var fyrir oröiö sem fólk varð fólk. Ritgeröinni lýkur hann með hugleiöingu um stöðu bókmenntanna í dag í vest- rænum menningarheimi. Hann segir mikilvæg markmið blasa við rithöfundum, sem standi aug- liti til auglitis við gífurlega mikla og á köflum heimskulega fjöldamenningu sem birtist í margmiðlunariðnaði og Ijósvakamiölum nútím- ans. En bókmenntimar mega ekki hopa eða missa samband sitt við lesendur sína, þær eigi ekki að hika við að halda uppi samræðum við þá og hætta þeim leik að höfða einungis til fárra út- valinna manna eins og honum þykir hinar póst- módemísku bókmenntir samtímans hafa til- hneigingu til að gera. Hugleiöingin endar á jákvæðum nótum, þar sem greina má aö þrátt fyrir allt trúir Ivan Klíma því að bjartari tíð fyrir góð- ar bókmenntir sé senn í vændum. í Tékklandi leynist frjóangar og af þeim sé mikils að vænta. Ivan Klima Línudansararnir Ég horfði á loftfimleikana á vírunum, og velti því fyrir mér hvort kvíði og loft- hræðsla annarrar manneskju myndi valda mér þjáningu eins og áöur fyrr, en ^ ég fann ekki til neins. Annaöhvort var þessi loftfimleikamaðurméreinskis virði eða þá að ég var of upptekinn af sjálfum mér, af mínum eigin tilfinning- um. Þar sem ég stóð í þvögunni og starði upp á himneskan loftfimleika- manninn, sem hátt yfir höfðum okkar, yfir dimmu tóminu, vfsaði til víðara tóms með stjömubjörtu andlitinu, virtist mér sem með mér væri að vakna vottur af skilningi á leyndardómi lífsins, að ég myndi verða fær um að sjá það sem ég haföi fram að þessu einungis þreifað eftirafvanmætti. Mérfannst sem lífs- insværi stöðugt freistað af dauðanum, * að það væri ein óslitin sýning hátt yfir djúpinu, að í henni yrði maðurinn að stefna að mastrinu andspænis, jafnvel þó hann kæmi ekki auga á það ekki vegna einskærrar lofthræðslu, að hann yröi að halda áfram, mætti ekki líta til baka, ekki líta niður, ekki láta freistast af þeim sem stóðu þægilega með fast undirfótum, þeirra sem voru einungis áhorfendur. Mérfannst einnig að ég yrði að feta mig áfram á minni eigin línu, að égyrði sjálfur að festa hana á milli tveggja mastra eins og þessir loft- fimleikamenn höfðu gert, og hafa mig út á hana, ég ætti ekki að bíða þess aö einhver byði mér upp og vildi bera mig yfir á bakinu. Ég varð að hefja mína eig- in sýningu, mína stórfenglegu sýningu m sem ekki yrði endurtekin. Og mér fannst sem ég væri fær um það, að ég byggi yfir nægilegum styrk til að gera það. Á því augnabliki snerti einhveröxl- ina á mér. Mér varð svo hverft við að við lá að ég ræki upp óp. En þá hringlaöi í peningakassa og fyrir framan mig birtist kunnuglegt andlit sem ég hafði því sem næst gleymt, andlit ókunnugu fallegu stúlkunnarfrá því fyrir löngu síðan. Ég dró í flýti nokkra smápeninga upp úr vasa mínum og lét hana fá þá. Hún brosti, tennur hennar birtust mér í myrkrinu og ég gat næstum fundið fyrir ♦ heitri, frelsandi snertingu vara hennar. Brot úrsðgu úr smásagnasafninu Fyrstu ástir mínar eftir Ivan Klíma, í þýð- ingu Fríðu Bjarkar Ingvarsdóttur. Heimsókn erlendra forleggjara á bókmenntahátíðina í Reykjavík styrkir þannig þau tengsl sem þegar hafa mynd- ast en leiðir vonandi einnig til þess aö enn fleiri íslenskir höfundar komist á mála hjá erlendum bókaútgáfum, segir Pétur Már Ólafsson útgáfustjóri. Útveröir íslenskra bókmennta ALIÐNUM árum hefur áhugi á verkum höfunda frá Norðurlöndum vaxið mjög austan hafs og vestan og hefur verið rætt um nor- ræna bylgju í því sambandi. Þar nægir að nefna að nú eru öflug forlög í Bret- landi og Bandaríkjunum farin að gefa út verk eftir norræna höfunda en þau höfðu um langt árabil haldiö dyrum sínum luktum fyrir þeim. íslenskir höf- undar hafa veriö mjög áberandi í þessum efnum og er nú svo komiö að verk eftir fjölda þeirra koma út með reglulegu millibili erlendis. Ástæðurnar fyrir þessari tíöu út- gáfu eru vafalaust nokkrar. íslenskir útgefendur hafa sett mikla fjármuni í að kynna verk rithöfunda sinna fyrir kollegum erlendis og raunar séð um samskipti við erlend forlög fyrir þá, nokkrir höfundanna hafa haft sér- staka erlenda umboðsmenn og al- mennur áhugi á því sem norrænt er hefur aukist. Einnig skiptir hér máli að íslenskir rithöfundar hafa verið undir miklum áhrifum frá hinni hefð- bundnu íslensku sagnalist - og þeim hefur þótt takast bærilega upp í því að segja sögur. Þegar öllu er á botn- inn hvolft er auðvitað mikilvægast að verkin standi fyrir sínu því að forleggj- ari sem lent hefur í að gefa út vonda skáldsögu sem gengið hefur illa hugsar sig um tvisvar áður en hann leggur í viðlíka ævintýri á ný. Útgáfa erlendis skiptir höfunda miklu máli. Þannig gefst þeim kostur á stærri lesendahópi og viðbrögöin eru þeim vonandi hvatning til frekari dáða. í þessu sambandi má nefna hollenska höfundinn Cees Noot- eboom sem kom á Bókmenntahátíö 1995. Bók hans, Sagan sem hérferá eftir, fékk heldur dræmar viðtökur gagnrýnenda í heimalandinu og kvaðst hann hafa „áfrýjað" þeim dómum til Evrópu. Þjóðverjar tóku verkinu opnum örmum, sagan fékk frábærar umsagnir og varð mest selda bók ársins þar í landi. Þá hlaut verkið Bókmenntaverðlaun Evrópu. Það er tímanna tákn að á Bókmennta- hátíð er að þessu sinni boöið hópi er- lendra útgefenda sem hafa gefiö út verk íslenskra höfunda eða sýnt því mikinn áhuga. Þeim gefst hér kostur á aö kynnast höfundum milliliðalaust á heimavelli, auk þess sem þeir geta hlýtt á orðsins menn frá fjöl- mörgum öðrum löndum. Þeir forleggjarar sem heiðra okkur meö nær- veru sinni koma frá tólf forlögum í níu löndum. í fljótu bragöi virðast þau eiga fátt sameiginlegt. Sum útgáfufyrirtækin voru stofnuð fyrir nokkr- um árum, önnur hafa veriö við lýði frá fyrri hluta 19. aldar, þau eru bæði smá og stór en eiga þaö sammerkt að reka metnaðarfulla bók- menntaútgáfu og hafa mikinn áhuga á norrænum - og þá ekki síst íslensk- um-bókmenntum. Að koma fleirum á framfæri Meöal gestanna á hátíðinni má nefna Christoph Buchwald sem er út- gáfustjóri Suhrkamp en það er eitt þekktasta bókaforlag Þýskalands. Fulltrúar elstu útgáfufyrirtækja Sví- þjóðar og Noregs, Nor- stedts og Caþpelen, sækja okkur heim en einnig Timo Ernamo frá Like í Rnnlandi sem hóf starfsemi sína sem eins konar neöanjarðar- útgáfa en er nú eitt af öflugri forlögum þar I landi á sviði fagurbók- mennta og nýsköpunar. Faber og Faber í Eng- landi er þekkt fyrir sitt mikla framlagtil enskra bókmennta, ekki síst á sviði skáldsagna og Ijóðiistar, og sama má segja um Harvill Press sem hefur einmitt lagt mikla rækt við þýöingar. Útgáfustjórar beggja þess- ara forlaga koma nú á Bókmenntahá- tíð. Gerhard Steidl hjá samnefndu for- lagi gefur út verk Nóbelskáldsins Gunters Grass (og Halldórs Laxness) og fylgir sínum manni til tslands. Sunnar í Evrópu hefur áhugi á ís- lenskum bókmenntum vaxið mjög. Ip- erborea er lítiö forlag á Ítalíu sem gef- ur einkum út bókmenntir frá Norður-Evrópu og kemur útgáfustjóri þess, Emilia Lodigiani, á Bókmennta- hátíðina. Kollega hennar hjá Seuil í Frakklandi, Anne Freyer, verður hér einnig á ferð en Seuil er eitt stærsta forlag á sviði fagurbókmennta í sínu landi. Markmiðið með því að bjóða þess- um fríða flokki útvarða íslenskra bók- mennta á hátíðina er öðru fremur að gefa þeim kost á að hitta kollega sína hér á landi og íslenska rithöfunda. Þeim verða kynntar íslenskar nútíma- bókmenntir í sérstakri dagskrá og er þess að vænta að hún kveiki áhuga þeirra á fleiri höfundum héðan. Einnig gefst þeim kostur á að taka þátt í mál- þingi þar sem fjallaö er um framtíð bóka í prentuöu formi, hlutverk þýddra skáldverka og möguleika ís- lenskra bókmennta á erlendri grund. Heimsókn erlendra forleggjara á bók- menntahátíðina í Reykjavík styrkir þannig þau tengsl sem þegar hafa myndast en leiöir vonandi einnig til þess að enn fleiri íslenskir höfundar komist á mála hjá erlendum bókaút- gáfum. Pétur Már Ólafsson bók/fcla. /túdeivtK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.