Morgunblaðið - 22.09.2000, Side 6
6 C FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐIÐ
ÐfflDðS
Sigríöur Dögg
Auðunsdóttir
Ofbeldi
og ofsa-
hraði
Pltt: Oskiljan-
legur framburdur.
VART líður sá dagur að dag-
blöðin minnist ekki einhverju
orói á Guy Ritchie, leikstjóra
og höfund kvikmyndanna
Lock, Stock and Two Smok-
ing Barrels og Snatch sem
hefurnýlega verið tekin til
sýningar hér í Bretlandi.
Segja má að hann sé orðinn
„hinn breski Tarantino", svo
mikla umfjöllun hafa myndir
hans hlotið, enda sverja þær
sig óneitanlega í ætt við
myndir á borð við Pulp Fiction
og Reservoir Dogs.
Líkt og í Lock, Stock
and Two Smoking
Barrels eru aóal-
persónur Snatch ætt-
aöarúrundirheimum London
og samansafn fífldjarfra
glæpamanna sem svífast
næreinskis.
Myndin hefst á því aö hóp-
ur þjófa rænir demantasala í
Antwerpen
og kemur
höndum yf-
ir 86 kar-
ata dem-
ant auk
smærri
gimsteina.
Frankie
Four Fing-
ers (Ben-
icio del
Toro) fær
það hlutverk aö koma dem-
öntunum til yfirmanns síns,
Avi (Dennis Farina), í New
York.
Hann kemur hins vegar vió
í London þar sem hann ætlar
aö koma minni demöntum í
hendurnar á Doug „the
Head“ (Mike Reid) ogtekur
þátt í veömáli sem stendur
um ólöglegan hnefaleikabar-
daga milli „Gorgeous Ge-
orge“ og Mickeys O’Neill
(BradPitt).
Þegar Frankie sýnir sig
ekki t New York mætir Avi til
London og ræöur „Bullet
Tooth" Tony (Vinnie Jones) til
þess aö hafa uppi á Frankie
ogtýnda demantinum.
Manngerðir myndarinnar
eru flestar hálfgerðar steríó-
týpur. Þar á meðal eru gyöing-
urinn sem selur skartgripi,
rússneski mafíósinn, lág-
stéttarharðjaxlinn frá London
• og hópur írskra sígauna sem
Brad Pitter í fararbroddi fyrir.
Allireru uppnefndir hlægileg-
um nöfnum og allir eru þeir
karlkyns, fyrir utan eina
konu, móöur Mickeys, sem
einfaldlega er kölluö „Mum
O’Neil" (Sorcha Cusack) og
felur sig í hjólhýsi sínu nær
alla myndina.
Ofbeldiö er ægilegt og
hraóinn í myndinni sltkur aö
áhorfendur veröa aö blikka
augunum á methraða til að
missa örugglega ekki af
neinu á meöan augun lokast.
Hinn uppspunni trski fram-
buröur Brads Pitt kemur síð-
ur en svo í veg fýrir aö hægt
sé aö slaka á athyglinni á
meðan horft er á myndina,
því hann er hreint út sagt
óskiljanlegur. Þaö huggaói
mig þó aö lesa gagnrýni um
myndina eftir á, þar sem
enskumælandi gagnrýnendur
virtust ekki hafa skiliö eitt
einasta orö sem út úr honum
kom. Svar Pitts og Richies:
Þetta átti að hljóma svona!
Frumsýning Huldumaðurinn með Kevin Bacon undir leikstjórn Paul Verhoevens
er frumsýnd í Sambíóunum Álfabakka, Nýja bíói Keflavík, Stjörnubíói, Laugarásbíói
. og Borgarbíói Akureyri.
OsýnilegL .
maðurinn
VÍSINDAMAÐURINN Sebastian
Caine (Kevin Bacon) er sérstaklega
hæfileikaríkur á sínu sviði og upp-
finningasamur og hefur unnið að því
um langt skeið að finna upp aðferð
til þess að gera
menn ósýnilega.
Hann starfar við
leynilegar rann-
sóknir á vegum
Bandaríkja-
stjórnar og hefur
loksins eftir
miklar rannsókn-
ir tekist að búa
til efni sem gerir
dýr ósýnileg.
Caine er í
sjöunda himni og
þverbrýtur allar reglur þegar hann
gerir tilraunir með efnið á sjálfum
sér með óttalegum afleiðingum. Að-
stoðarmenn hans, Linda McKay (El-
isabeth Shue) og Matthew Kensing-
ton (Josh Brolin) reyna að koma
honum til hjálpar en hinn ósýnilegi
Caine er ekki á því að verða sýnileg-
ur aftur í bráð. Hann hefur komist
að því að mikil völd fylgja ósýnileika
og persónuleiki hans breytist. „Það
er með ólíkindum hvað maður getur
gert ef maður þarf ekki lengur að
horfa framan í sig í spegli," segir
hann.
Þannig er söguþráðurinn í banda-
rísku spennumyndinni Huldumann-
inum eða Hollow Man með Kevin
Bacon í aðalhlutverki. Með önnur
hlutverk fara Eiisabeth Shue, Josh
Brolin, Kim Dickens, Greg Grunberg
og William Devane. Leikstjóri er
Paul Verhoeven, sem gert hefur
nokkra trylla á
sínum ferli.
Myndin er
frumsýnd í fímm
kvikmyndahús-
um.
Framleiðand-
inn Douglas
Wick fékk þá
hugmynd fyrir
11 árum að gera
mynd um ósýni-
leika. „Um það
leyti var tölvu-
tæknin að ryðja sér til rúms,“ er
haft eftir honum, „og mér varð ljóst
að hægt var að sýna afleiðingar
ósýnileika með áhrifaríkari hætti en
nokkru sinni áður.“ Hann fékk
Andrew Marlowe til þess að þróa
fyrir sig hugmyndina og gera kvik-
myndahandrit og sendi það Paul
Verhoeven. „Hann var sá leikstjóri
sem við helst vildum að gerði Huldu-
manninn," segir Wick. „Það erfið-
asta við myndina var að fá tækni-
brellurnar til þess að verða hluti af
dramatískri sögu og Paul er rétti
maðurinn til þess að leysa slíkt
vandamál."
Verhoeven leist vel á handritið.
„Persónumar voru skýrt mótaðar.
Söguþráðurinn fór ýmsar skemmti-
legar krókaleiðir og lék sér með
ósýnileikann á frumlegan hátt. Sag-
an var úttekt á hinu illa. Hún byrjar
sem vísindaævintýri með nokkrum
húmor en með tímanum sjáum við
hvernig vísindamaðurinn Sebastian
Caine verður að skelfilegu skrímsli."
Kevin Bacon var fenginn til þess
að fara með hlutverk vísindamanns-
ins. „Það sem kveikti áhuga minn á
myndinni," er haft eftir leikaranum,
„var tækifærið til þess að vinna með
Paul Verhoeven og persónuleiki
Sebastian Caines. Hann er valda-
gráðugur, sjálfselskur dekurdreng-
ur sem missir algerlega stjórn á sér
þegar hann verður ósýnilegur.“
Leikarar: Kevin Bacon, Elisa-
beth Shue, Josh Brolin, Kim
Dickens, Greg Grunberg og
William Devane.
Leikstjóri: Paul Verhoeven
(Flesh + Blood, RoboCop, Total
Recall, Basic Instinct,
Showgirls, StarshipTroopers).
HHMHMMMHMHHMMHH
Frumsýning Háskólabíó, Sambíóin Álfabakka og Nýja bíó Akureyri sýna mynd
Lars Von Triers, Dancer in the Dark, meö Björk Guðmundsdóttur í aöalhlutverki.
i uansara
SELMA (Björk Guðmundsdóttir) er
þrítug kona frá Tékkóslóvakíu sem
flytur í lítinn iðnaðarbæ í Wash-
ington-fylki á sjöunda áratugnum
ásamt 12 ára gömlum syni sínum.
Hún starfar í vefnaðarverksmiðju og
þrælai- í öðrum störfum til þess að
safna peningum. Hún þjáist af erfða-
sjúkdómi sem getur gert hana blinda
en skurðaðgerð gæti hjálpað henni.
Hún á það til að flýja grámygluleg-
an raunveruleikann inn í ímyndaðan
heim fullan af tónlist og dansi en sag-
an tekur óvænta stefnu þegar pen-
ingum Selmu er rænt og hún reynir
að ná þeim til baka.
Þannig er söguþráðurinn í nýjustu
mynd danska leikstjórans Lars Von
Triers, Dancerin theDark, með Björk
Guðmundsdóttur í aðalhlutverki.
Myndin verður frumsýnd í dag í Há-
skólabíói, Sambíóunum Alfabakka og
Nýja bíói Akureyri en með önnur
hlutverk í henni fara Catherine De-
neuve, Peter Stormare, David
Morse, Cara Seymore, Uda Kier,
Jean-Marc Barr og Stellan Skars-
gárd, sem fer með litla gestarullu. Is-
lenska kvikmyndasamsteypan er
meðframleiðandi myndarinnar.
Dancer in the Dark er sannarlega
alþjóðleg. Leikstjórinn er danskur,
aðalleikkonan íslensk, aðrir leikarar
koma frá Norðurlöndunum, Frakk-
landi og Bandaríkjunum, hún fjallar
um Tékka í Bandaríkjunum en er
tekin í smábæ í Svíþjóð. Hún er
þriðja myndin í trílógíu sem Lars kall-
ar Gullhjartað en fyrri tvær myndim-
ar í flokknum eru Brimbrot og Fávit-
amir. Gullhjartað var myndabók sem
í réttarsalnum: Björk ieinu söngatriðinu.
Björk sem Selma: Flýrgrámyglu raunveruleikans inn í tónlist og dans.
Lars átti ungur drengur. Aðalpersón-
an í myndinni heitir Selma eins og
dóttir leikstjórans.
„Ég ákvað að gefa Dancer in the
Dark sama ferskleikann og Dogma -
myndunum og Brimbroti,“ sagði Lars
fyrir nokkru í viðtali við breska kvik-
myndatímaritið Sight and Sound.
„011 leiknu atriðin eru tekin með
handheldum myndavélum en söng-
og dansatriðin eru tekin upp með 100
vídeómyndavélum sem dreift er um
sviðið. Það var reyndar minn gamli
vinur Tómas Gíslason, sem ég hef
unnið með við margar myndir mínar,
er kom með þá hugmynd að nota 100
myndavélar. Við töluðum saman um
hvemig söngleikjamynd ætti að líta
út og vorum sammála um að við ætt-
um ekki að notast við neitt plat.“
Lars segir að uppáhalds söng-
leikjamynd hans sé Saga úr vestur-
bænum eða West Side Story „vegna
þess að hún fæst við svo dæmigert
Dancer in the Dark
Leikarar: Björk Guðmundsdótt-
ir, Catherine Deneuve, Peter
Stormare, David Morse, Cara
Seymore, Uda Kier, Jean-Marc
Barr og Stellan Skarsgárd.
Leikstjóri: Lars Von Trier (Ele-
ment of Crime, Europa, Riget 1
og2, Brimbrot, Fávitarnir).
amerískt þema“, og vegna þess að
hún færði söngleikinn út á göturnar.
Önnur söngleikjamynd sem er í
miklu uppáhaldi hjá Lars er Singing
in the Itain, „sérstaklega vegna Gene
Kellys“.
Leikstjórinn segir á öðrum stað að
Dancer in the Dark gerist í Banda-
ríkjunum vegna þess að „þaðan eru
söngleikirnir en líka vegna þess að
það er staður sem ég hef aldrei komið
til og mun sennilega aldrei koma til
vegna þess að ég ferðast ekki með
flugvélum. Fyrir mér er það goð-
sagnalegt land“.