Morgunblaðið - 27.09.2000, Blaðsíða 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AP
Jan Holpert, markvörður Þjóðverja, var að vonum vonsvikinn með að falla úr keppninni, en Spánverjar sigruðu Þjóðverja með einu
marki og mæta Svíum í undanúrslitum.
Svíar stefna ótrauð
ir að ólympíugulli
HEIMS- og Evrópumeistarar Svía stefna ótrauðir að sigri í hand-
knattleikskeppni Ólympíuleikanna, en það er eini titillinn sem
hið sigursæla lið Svía getur ekki státað af. Svíar, Júgóslavar,
Spánverjar og Rússar eru komnir áfram í undanúrslit.
Svíar lögðu Egypta í átta liða
úrslitum, 27:24, eftir að staðan
hafði verið 14:12 í leikhléi. Egyptar
voru allt annað en ánægðir með
dómgæsluna og er það engin ný-
lunda þegar Svíar eiga í hlut. Um
miðjan síðari hálfleikinn var staðan
19:19 en þá voru tveir Egyptar
reknir af velli með stuttu millibili
og Svíar náðu forystu á ný.
Er staðan var 23:21 fyrir Svía
voru tveir Egyptar reknir út af á
sama tíma og sigur Svía ekki í
hættu eftir það. Svíar voru þríveg-
is reknir af velli í tvær mínútur en
Egyptar átta sinnum.
„Það er ekki hægt að sigra þeg-
ar dómararnir eru svona áberandi
á bandi annars liðsins," sagði
Mohamed Alfí, aðstoðarþjálfari
Egj^pta, eftir leikinn. Bengt
Johansson, þjálfari Svía, sagði
vissara að ræða ekki um dómgæsl-
una, en dómararnir hefðu vissulega
gert mistök en þó ekki eins mörg
og leikmennirnir.
Svíar mæta Spánverjum í und-
anúrslitum en Spánverjar lögðu
Þjóðverja 27:26. Spánverjar höfðu
undirtökin lengst af fyrri hálfleiks,
meðal annars 10:6, en Þjóðverjar
voru 13:11 yfir 1 leikhléi og 19:16
er tíu mínútur voru eftir. Spán-
verjar komust í 21:19 en Þjóðverj-
ar náðu eins marks forystu, 26:25,
er rúmar tvær mínútur voru eftir
en allt kom fyrir ekki.
„Við hlökkum aliir til leiksins við
Svía. Við höfum tapað alltof oft
fyrir þeim undanfarin ár og ætlum
að breyta því núna,“ sagði Talant
Dujshebaev.
Júgóslavía hafði undirtökin gegn
Frökkum og sigraði nokkuð örugg-
lega og’ Rússar voru í fluggírnum
þegar þeir unnu Slóvena 33:22.
Þau lið sem leika um 5.-8. sætið
eru Slóvenía, Frakkland, Þýska-
land og Egyptaland. Undanúrslita-
leikirnir verða á föstudaginn.
Tilþrif Vince
Carters voru
engu lík
Bandarísku landsliðin í karla-
og kvennaflokki unnu alia leiki
sína í riðlakeppni Ólympíuleik-
ana í Sydney og karlaliðið hef-
ur nú leikið 108 leiki á Ólymp-
íuleikum frá og aðeins tapað 2
leikjum.
Vinee Carter leikmaður banda-
ríska liðsins og „troðslukóng-
ur“ NBA-deildarinnar var aðalum-
ræðuefnið eftir sigurleik gegn
Frökkum en í leiknum tróð Carter
boltanum sem oftar í körfuna en í
þetta sinn stökk Carter nánast yfir
miðherjann Frederic Weiss sem er
„aðeins“ 2.18 metrar á hæð. Rudy
Tomjanovich þjálfari bandaríska
liðsins sagði við fjölmiðla eftir leik-
inn að hann hefði aldrei áður séð
leikmann stökkva jafn hátt og Car-
ter gerði í þessu tilfelli og troðslan
væri eitthvað sérstakt sem allir
myndu eftir að Ólympíuleikunum
loknum. Jason Kidd samherji Cart-
ers tók undir orð þjálfararns og
sagði að jafnvel Michael Jordan
hefði ekki getað leikið þetta eftir.
Spánn, Kína, Angóla og Nýja-
Sjáland komust ekki áfram úr riðla-
keppninni í karlaflokki en Senegal,
Nýja-Sjáland, Kanada og Kúba í
kvennaflokki.
I undanúrslitum kvennaliða þann
27. september mætast: Rússland -
Brasilía, Astralía - Pólland, Frakk-
land - Kórea, Bandaríkin - Slóvakía.
Undanúrslit karlaliðana hefjast
28. september og liðin sem mætast
eru: Italía - Astralía, Kanada -
Frakkland, Júgóslavía - Litháen,
Bandaríkin - Rússland.
AP
Bandaríkjamaðurinn Vince Carter þótti sýna snilidartilrif er
hann stökk nánast yfir hinn 218 sentímetra háa franska mið-
herja, Frederic Weis, og tróð boltanum ofan í körfuna.
Ódýrir
miðar
„ÉG hafði aldrei heyrt á þessa
íþrótt minnst áður og ég þekki
ekkert reglurnar en ég fer samt á
leiki því stemmning er góð,“_
sagði einn áhorfenda á leik Astr-
ala og Frakka í handknattleik
karla snemma vikunnar. Frakkar
unnu leikinn 28:16 en heimamenn
skemmtu sér vel á áhofendapöll-
unurn.
„Ég fer aðallega á þessa leiki til
þess að taka þátt í Ólympíuleikun-
um. Miðarnir eni ódýrir og leik-
irnir eru býsna fjörugir," sagði
annar áhorfandi á sama leik.
„Flestir áhorfendur okkar liafa
ekki hugmynd um hvað gengur á
inni á vellinum en þeir skemmta
sér samt,“ segir Renton Taylor
Ieikmaður karlaliðs Ástralíu.
„Ástralar elska íþróttir og þeim
er alveg sama þótt við töpum öll-
um leikjunum bara ef við náum að
skora nokkur mörk, þá eru allir
ánægðir. Ég reikna með því að
flestir áhorfendur hand-
boltaleikjanna eigi ekki eftir að
fylgjast með þessari íþrótt í fram-
tíðinni," sagði Taylor enn fremur.
Satt er að fjölmargir áhofendur
hafa séð handboltaleiki Ólympíu-
leikanna. Aðalástæðan mun vera
sú að miðarnir kosta lítið, eða um
500 krónur inn á tvo leiki. Miðar á
tennis, sem er sérlega vinsæl
íþrótt í Ástralíu, kosta t.d. rúm-
lega fimm sinnum meira. Þetta er
talsverður peningur í augum
Ástrala því sem dæmi má nefna
að ágæt steik og forréttur á veit-
ingastað kostar t.d. um 2.000
krónur með einu rauðvíðsglasi
eða gosi eftir smekk og lyst hvers
og eins.
Rúnar
eignast son
RÚNAR Alexandersson fim-
leikamaður eignaðist son á
sunnudaginn en hann hefur
beðið spenntur síðstu viku
eftir fréttinni um fæðingu
frumburðarins sem væntan-
legur var á meðan Ólympíu-
leikarnir standa yfir. Þetta
er fyrsta barn Rúnars en
liann er í sambúð með
sænskri stúlku, Helenu.
Móður og barni heilsast vel
og fór Rúnar í dag til Sví-
þjóðar, þar sem hann býr, til
móts við mæðginin.
Erfitt hjá
Hafsteini
SIGLINGAMÖNNUM gekk heldur
brösulega að halda sjó í gær þegar
sjöunda umferð af ellefu var sigld í
flokki Lazer-kæna, þar sem Haf-
steinn Ægir Geirsson er á meðal
þátttakenda. Mjög misvindasamt
var á keppnisvæðinu og ekki bætti
úr skák að það rigndi sem hellt væri
úr fötu hluta þess tíma sem menn
voru til sjós. Hafsteinn varð 42. og
næst síðastur í gær, um það bil fimm
mínútum á eftir ítölskum keppanda
sem vann mjög óvænt. Eftir sem áð-
ur rekur Hafsteinn lestina í stiga-
keppninni, hefur 278 stig, er 26 stig-
um á eftir keppanda frá Gúam en sá
er næst neðstur. Þriðji neðstur er
siglingamaður frá Kýpur, 30 stigum
á undan Hafsteini.
Sökum þess að aðeins tókst að
fara aðra af ferðum gærdagsins
vegna slæmra aðstæðna þá verður
áttunda umferðin í dag, en síðan
verður gert eins dags hlé þar til farn-
ar verða tvær umferðir á föstudag
áður en að lokaumferðinni kemur á
laugardag, en Hafsteinn verður síð-
astur íslensku keppendanna til þess
að ljúka þátttöku á Ólympíuleikun-
um.