Morgunblaðið - 27.09.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000 B 11
ÍÞRÓTTIR
Bikar-
meistarar
fengu
skell
FYRSTA deild kvenna í handknattleik hófst í gærkvöldi og voru
úrslit í samræmi við spá forráðamanna félaganna. Fram vann FH
27:25 í æsispennandi leiki í Safamýrinni, Stjarnan lagði Víkinga
að velli 17:23 í Víkinni og á Akureyri áttu Haukastúlkur ekki í
vandræðum með Þór/KA í 23:37 sigri. Bikarmeistarar Vals fengu
að f inna til tevatnsins að Hlíðarenda eftir 12:26 tap fyrir Gróttu/
KR. Einum leik var frestað þegar ÍR-ingar komust ekki til Eyja
vegna veðurs en sá leikur verður leikinn í kvöld. Nokkur haust-
bragur var í mörgum leikjanna og liðin greinilega misjafnlega
undir atið búin en ágæt tilþrif sýna að unnendur kvennahand-
boltans þurfa ekki að örvænta í vetur.
ISafamýrinni hófu gestirnir úr
Kaplakrika leikinn af miklum
krafti en það skilaði sér ekki nægi-
lega vel á markatöfl-
Stefán Una 0g Þrátt fyrir
Stefánsson giimma vörn skor-
skrifar uðu Framstúlkur úr
fyrstu flmm sóknum
sínum. Hafnflrðingar lögðu áherslu á
að taka Marinu Zovevu stórskyttu úr
umferð enda skoraði hún „aðeins"
fjögur mörk, þar af tvö úr vítum, fyrir
hlé en sóknarleikur Fram var nokkuð
brokkgengur á meðan Marina var
upptekin. Það kostaði hinsvegar
nokkra orku og brottvísanir að halda
henni fjarri því Dagný Skúladóttir,
sem sá um að halda Marinu í skefjum
fékk fljótlega tvær brottvísanir.
Þrátt íýiir kraft í vöm FH var sókn-
arieikurinn lengi vel í molum en liðið
náði sér þó á strik og tók forystu áður
en flautað var til leikhlés.
Eftir hlé var sama uppi á teningn-
um framan af og aldrei skildi meira
en eitt mark liðin að en eftir tíu mín-
útur dró til tíðinda. Þá hóf Hugrún
Þorsteinsdóttir markvörður Fram að
verja með tilþrifum og um leið tók
Marina við sér, sleit sig úr gæslu og
skoraði af kappi. Það skilaði fimm
marka forystu, 25:20, þegar átta mín-
útur voru til leiksloka og ætla mætti
að Framstúlkur héldu fengnum hlut,
sérstaklega þar sem sóknarleikur
gestanna úr Hafnarfirði var hrika-
lega slakur. Hinsvegar voru FH-
stúlkur ekki búnar að syngja sitt síð-
asta því með miklum dugnaði ásamt
góðri markvörslu Kristínar Maríu
HANDKNATTLEIKUR
Guðjónsdóttur náðu þær að minnka
muninn í eitt mark, 25:24, og síðan
26:25 en lengra komust þær ekki því
Díana Guðjónsdóttir innsiglaði sigur
Fram.
„Eg er afar ánægð með að fá þessi
stig en þetta var alltof sveiflukennt
hjá okkur þó að við slíku mætti búast
í fyi'sta leik,“ sagði Hugrún fyririiði
og markvörður Fram. „Helst fannst
mér vanta skynsemi í sóknarleik okk-
ar, sérstaklega áttum við að halda
okkar striki í lokin þegai' við vorum
komin með gott forskot en þá kom
fum og FH-stúlkur voru ótrúlega
snöggar fram,“ bætti fyrirliðinn við
og telur að spáin fyrir deildina, þar
sem Fram er spáð þriðja sæti deild-
arinnar, sé ekki fjarri lagi. „Þessi spá
sýnir að við eigum heima í efri hluta
deildarinnar enda finnst okkur það
sjálfum.“ Hugrún, Marina, Díana og
Katrín Tómasdóttir voru bestar hjá
Fram.
Upplitið var ekki alveg eins gott
hjá FH-stúlkum. „Þetta var ekki
nógu gott hjá okkur þótt sumt hafi
gengið ágætlega,“ sagði Gunnur
Sveinsdóttir, sem var markahæst hjá
FH með átta mörk. „Vörnin var ekki
góð og ekki heldur sóknarleikurinn
sem þarf að fínpússa en við höfum
spilað alltof lítið saman,“ bætti Gunn-
ur við og taldi spá forráðamanna um
að FH hafnaði í þriðja neðsta sæti
deildarinnar ekki koma sér illa.
„Okkm* brá nokkuð að sjá spána en
Morgunblaðið/Golli
FH-stúlkur lentu í kröppum dansi í gærkvöldi þegar þær sóttu Fram heim í Safamýrina og urðu að
lokum að játa sig sigraðar. Hér þjarma Björk Tómasdóttir og Signý Sigurvinsdóttir að FH-stúlku.
það getur haft sínar góðu hliðar því
við getum sýnt að við getum betur og
hrakið þessa spá.“ Jolanta Slapikiene
átti stórleik milli stanganna hjá FH
og varði 18 skot en Gunnur, Judit
Esztergal og Harpa Dögg Vífilsdóttir
voru góðar.
Stjörnusigur í Víkinni
Hart var barist í gær þegar Vík-
ingsstúlkur tóku á móti Stjörn-
unni í 1. umferð
Sesselja deildar
Dagbjört kvenna í handbolta
Gunnarsdóttir og leikurinn byrjaði
skrifar ágætlega þar sem
bæði lið virtust þróttmikil og ákveðin.
Liðin spiluðu svipaða vörn þar sem
allir leikmenn lágu í flatri 6:0 vörn, þó
breyttu Stjömustúlkm- um vörn eftir
slakan kafla beggja liða og kom það
þeim að góðum notum þar sem þær
skoruðu þrjú mörk á stuttum kafla. I
seinni hluta fyrrihálfleiks var mikið
um mistök beggja liða og má áætla að
það sé vegna þess að bæði lið eru með
marga nýja leikmenn og ekki í mikilli
leikæfingu saman. Stjörnustúlkur
voru sterkari allan fyrri hálfleikinn
og náðu Víkingsstúlkur aldrei að
jafna og voru hálfleikstölur 8:10.
Víkmgsstúlkur mættu grimmar í
síðari hálfleik en náðu þó aldrei að yf-
irstíga forskot Stjömustúlkna sem
vai’ orðið of mikið. Eftir mikla bar-
áttu Víkingsstúlkna fóm Stjörnu-
stúlkm- með sigur af hólmi, en leikn-
um lauk með 17:23 sigri Garðbæinga.
Dómarai’ leiksins, þeir Guðjón Sig-
urðsson og Ólafur Haraldsson vora
sanngjamir, en þó vantaði aðeins að
samræma dómgæsluna á kafla. Hins-
vegar var mikil stemmning í Víkinni í
gærkvöldi og mættu u.þ.b. 80 manns
og létu vel í sér heyra á þessum
fyrsta leik fyrstu deildar kvenna -
vonandi að stuðningurinn haldi áfram
og skapi skemmtilega umgjörð hjá
stúlkunum.
Liana markvörður Stjörnunnar
varði mjög vel og var Nína Kristín
Bjömsdóttir einnig öflug en hún
skoraði sex mörk fyrir sitt lið. Heið-
rán Guðmundsdóttir og Guðmunda
Ósk Kristjánsdóttir vora bestu leik-
menn Víkings og skoruðu 4 mörk
hvor.
Bikarmeistarar
Vals fengu skell
Bikarmeistarar Vals fengu harða
útreið þegar Grótta/KR sótti þær
heim að Hlíðarenda í gærkvöldi og
sigraðu 12:26. Gestirnir byrjuðu af
krafti, höfðu yfir, 5:12, í leikhléi og
fylgdu því svo eftir í síðari hálfleik og
kaffærðu bikameistarana.
„Þetta er ekki heimsendir,“ sagði
Eivor Pála Blöndal, fyrh’liði Vals eft-
ir leikinn. „Þetta var bai’a byijunin
og við eigum eftir að fóta okkur því
við eram með svo til nýtt lið en þaá
mun smella saman og við eram ekki
smeykar við framhaldið. Það gekk lít-
ið upp hjá okkui’ í sóknarleiknum en
vömin var ágæt.“
Öruggt hjá Haukum á Akureyri
A Akureyri stóð sameinað lið Þórs
og KA í stórræðum þegar Haukar
komu í heimsókn og þeim dugði ekki
að skora 23 mörk því Hafnfirðingar
gerðu 37.
„Eg get ekki annað en hrósað
stúlkunum en úrslitin vora eins og
mátti búast við því það er mjög mikill
munur á liðunum," sagði Hlynur Jó-
hannsson þjálfari Þórs/KA eftir leik-
inn. „Við tefldum nánast fram ungl-
ingaliði því við höfum misst fimm
leikmenn úr byrjunarliðinu frá því r»
íyrra en í staðinn höfum við fengið
góðan liðsstyrk í ungum stúlkum frá
Húsavík. Við eram að leita að meiri
liðsstyrk og þá helst erlendis frá en
sjáum hvað setur.“
Fuðrudu titilvonir Hakkinens upp?
MÖRGUM finnst sem möguleikar Mika Hakkinen á að verða
heimsmeistari i Formúlu-1 þriðja árið í röð hafi fuðrað upp í
reyknum frá eldinum í mótornum á McLaren-bíl hans í Indiana-
polis. Sjálfur er hann ekki á þvi og heitir því að gefa hvergi eftir
fyrr en köflótta flaggið fellur í lokamótinu. Með sigrinum í Indi-
anapolis er Michael Schumacher hins vegar kominn með 8 stiga
forystu á Hákkinen þegar aðeins tvö mót eru eftir og róður Hákk-
inens getur því ekki verið þyngri ætli hann sér að verða fyrsti
ökuþórinn í rúm fjörutíu ár sem vinnur heimsmeistaratitilinn þrjú
ár í röð.
Utlit var íyrir spennandi keppni
milli Schumachers og Hakkin-
ens í Indianapolis, því er brautin tók
að þorna sótti silfur-
Agúst ör Hakkinens á
Ásgeirsson E ei’ran-fák Schu-
skrifar machers. Ok sá fyrr-
nefndi hvern hring-
inn á fætur öðram heillri til hálfri
annarri sekúndu hraðar er um þriðj-
ungur keppni var búinn og stefndi í
slag um forystuna. Munaði aðeins 4
sekúndum eftir að bilið hafði verið 40
um skeið. En búmm, botninn datt
fljótt úr þeirri keppni. Dramatískar
myndir birtust á sjónvarpsskjánum
af Hákkinen á hægu slefi inn að bíl-
skúrum með logana standandi undan
FORMÚLA-1
vélarhúddinu á 26. hring af 73. Þang-
að komst hann ekki alla leið og von-
brigðin leyndu sér ekki er hann steig
upp úr rjúkandi bílnum.
Eftir þetta var engin spenna í
keppninni nema um þriðja sætið og
önnur aftar. Schumacher ók til ör-
uggs sigurs og var aldrei ógnað
nema af sjálfum sér er einbeitingar-
leysi varð þess valdandi að hann
missti bílinn út fyrir brautarkant á
beygju og snerist heilhring þegar
fimm hringir vora enn á mark.
Bjargaði það honum að grasbalinn
var rennisléttur og hindrunarlaus.
Bíllinn hélst í gangi svo hann gat
tekið á stað aftur eins og ekkert
hefði í skorist. „Ég vaknaði við þetta,
sagði hann og játti að einbeitingin
var engin sakir þess hve örugg for-
ystan var og enginn sótti að honum.
Vélarbilunin er sú fyrsta sem
bindur enda á akstur Hákkinens eft-
ir að hafa unnið stig í 12 mótum í röð.
Titilvonirnar hafa minnkað veralega
því úr þessu dugar honum ekki að
vinna bæði mótin sem eftir era ef
Schumacher kemur í öðra sæti á
mark í báðum. Þá væra þeir jafnir að
stigum en Schumacher með 7 móts-
sigra gegn 6. Þótt útlitið sé svart hef-
ur Hákkinen ekki gefist upp; ætlar
ekki að færa Schumacher titilinn á
silfurfati.
Taugarnar þandar(herbúðum
McLaren næstu vikur
„Þetta var svekkjandi því ég hélt
að ég myndi fara með sigur af
hólmi,“ segir Hákkinen og kveðst
enn hafa trá á að hann geti fagnað í
vertíðarlok þótt staðan hafi snúist
Ferrari mjög í hag. „Það era tvö mót
eftir, þetta er ekki búið. Þetta verður
bardagi alveg þar til vertíðinni lýkur.
Átta stiga munur er ekkert. Enn get-
ur allt gerst, rétt eins og við höfum
áður séð á vertíðinni. Ég gefst ekki
upp þótt útlitið kunni að vera svart,“
segir Finninn fljúgandi. Hann
kvaðst ekki vita hvað olli því að vélin
bilaði, en það er í fyrsta sinn sem
McLaren-bíllinn bilar frá í Brasilíu-
kappakstrinum. „Þegar við lyftum
húddinu af kom í ljós að hún hafi
skemmst alvarlega," bætir hann við.
Ron Dennis, aðalstjórnandi
McLaren, segir að allt sem Hákkin-
en þurfi að gera sé að vinna næstu
tvö mót. Það kunni að líta út fyrir að
vera einkar erfitt, en að sínu mati sé
það ekki. „Ég held við séum sterkir í
þeim tveimur brautum sem eftir era.
Við förum til mótanna með því að
reyna vinna þau bæði,“ segir hann.
Dennis viðurkennir þó að taugar
McLaren-manna verði veralega
þandar það sem eftir er keppnis-
tímabilsins. „Þetta er eins og rássí-
banareið hjá okkur núna, en svoleið-
is er nú Formúla-1 og hún er ekki
fyrir þá veiklunduðu,“ bætir hann
við.
Ferrari finnur reykinn
af réttunum
í herbúðum Ferrari era menn
hins vegar farnir að finna reykinn af
réttunum og vona að biðin eftir,
heimsmeistaratign ökuþóra sé loks á '
enda, eftir 21 árs bið. Jean Todt
íþróttastjóri Ferrari brosti út að
eyram eftir tvöfaldan sigui’ í Indi-
anapolis og talaði eins og hann sæi
hilla undir titilinn langþráða. „Þetta
er áttundi sigur Ferrari á árinu og
við höfum unnið 143 stig. Hvort
tveggja er met í sögu Ferrari. Á degi
sem þessum sækir hugsunin um
heimsmeistaratignina enn meira á
en við vitum þó að þó aðeins séu tvö
mót eftir er vegurinn framundan enn
langur og torfarinn," sagði Todt.
Vinni Schumacher næsta kapjjr
akstur, í Suzuka í Japan eftir II
daga, verður brosið á Todt enn
breiðara. Þá yrði titillinn í höfn og
lokamótið formsatriði. Yrði það í
fyrsta sinn frá 1995 sem sú staða
kæmi upp en þá hampaði Schu-
macher einnig heimsmeistaratitli, á
lokaári sínu hjá Benetton.