Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 B 3
KÖRFUKNATTLEIKUR
Hama
stakk ísfi
ingana
Hamar í Hveragerði vann KFÍ mjög örugglega, 105:72, á heimavelli
sínum í Hveragerði í gærkvöldi. Leikurinn byrjaði fjörlega en fljót-
lega í öðrum leikhluía skildu leiðir og Hamar stakk af. Leikurinn
einkenndist af mikilli baráttu heimamanna, Hamar stal 25 boltum á
meðan KFÍ stal aðeins 10 boltum og hafði það mikið að segja þegar
upp var staðið.
Vð unnum þennan leik örugg-
lega og ég er ánasgður með
leikinn, sem hefði kannski ekki
gengið svona vel
gegn betra liði.
Valberg Einar kom inn á °S
skrifar var að gera góða
hluti, svo stóð Dade
sig vel og stóru mennirnir voru að
skila sínu. Allir leikir eru mikilvæg-
ir og við þurfum að vinna þá
nokkra í vetur. Þetta er byrjunin,
sigur er sigur sama hve stór hann
er,“ sagði Pétur Ingvarsson, þjálf-
ari og leikmaður Hamars, eftir leik.
Heimamenn byrjuðu vel en síðan
■ KÁRI Marísson, fyrrum lands-
liðsmaður í körfuknattleik, kom
inn þegar Tindastóll tók á móti
Njarðvíkingum í úrvalsdeildinni í
gærkvöld. Hann er án efa elsti
leikmaður úrvalsdeildar frá upp-
hafi en Kári verður 49 ára í nóv-
ember.
■ KÁRI spilaði sinn fyrsta leik í
úrvalsdeild í ellefu ár en hann lék
síðast með Tindastóli gegn KR í
desember 1989. Frá þeim tíma
hefur hann aðallega leikið með 2.
deildarliði Smára úr Varmahlíð.
■ FYRSTA leik sinn í meistara-
flokki lék Kári hins vegar árið
1967 og þá var hann í liði KFR og
leikurinn fór fram í gamla Há-
logalandinu.
■ AXEL Kárason, sonur Kára, er
17 ára gamall og er einnig í leik-
mannahópi Tindastóls. Vaiur
Ingimundarson, þjálfari Tinda-
stóls, valdi pabbann framyfír son-
inn í tíu manna hópinn fyrir leik-
inn í gærkvöld
■ BALDUR Jónasson úr KFÍ var
drjúgur í þriggja stiga skotunum
gegn Hamri í Hveragerði í gærk-
völd. Baldur skoraði 18 af 20
stigum sínum með skotum fyrir
utan 3ja stiga línuna.
■ KR-INGAR og ÍR-ingar skor-
uðu mest í þriðja leikhluta en
hann fór 29:28 fyrir ÍR. KR gerði
hins vegar aðeins 15 stig í síðasta
leikhlutanum.
■ ÍR-INGAR töpuðu boltanum 14
sinnum í leiknum enda var æði-
bunugangurinn stundum mikill i
sókninni. KR tapaði boltanum
hins vegar 11 sinnum.
■ STOÐSENDINGAR heima-
manna voru 26 talsins og átti Eir-
íkur Önundarson ófáar þeirra.
■ KR-INGAR fengu skráðar 20
stoðsendingar og áttu þeir Ólafur
Jón Ormsson og Arnar Kárason
flestar þeirra, fjórar hvor.
■ KR notaði alla tíu leikmenn
sína í leiknum í gær og þeir sem
minnst léku fengu að reyna sig í
þrjár mínútur. IR-ingar notuðu
hins vegar ekki alla sína menn
því tveir komu ekkert inn á í
leiknum.
dró af þeim þegar leið á fyrsta leik-
hluta. Annar leikhluti var eign
Hamars frá upphafi til enda og
komu þeir sér upp 19 stiga forskoti.
Leikmenn KFÍ voru hreinlega ekki
komnir í form og kom það mikið
niður á spilamennsku þeirra. Þá
vantaði gestina tilfinnanlega stóra
miðherja sem geta hirt fráköstin,
en það var veikasti hlekkur þeirra
ásamt mjög götóttri vörn.
Ljósið í leik KFÍ var Dwayne
Fontana sem átti hreint út sagt
stórkostlegan leik og var lang-
stigahæstur með 33 stig, 14 fráköst
og 4 stolna bolta, einnig átti Baldur
Jónasson ágætan leik en hann
skoraði sex þriggja stiga körfur í
leiknum.
Hjá Hamri stóð Chris Dade sig
mjög vel og átti margar góðar stoð-
sendingar á félaga sína. Hann skor-
aði m.a. fallega flaututroðslukörfu í
lok leiksins eftir glæsilega send-
ingu frá Lárusi Jónssyni þvert yfir
völlinn. Undir lokin hægðist á
leiknum og Hamar innbyrti mjög
þægilegan og öruggan sigur.
„Ég er ekki smeykur við fram-
haldið, við spiluðum fáa æfingaleiki
og það tekur ákveðinn tíma fyrir
liðið að komast í form. Við getum
spilað miklu betur en þetta, það
þýðir samt ekki að vera að afsaka
neitt. Leikmenn KFÍ geta miklu
meira en þeir sýndu í kvöld,“ sagði
Karl Jónsson, þjálfari KFI, sem
var að vonum svekktur eftir leikinn
en KFI var spáð falli í deildinni af
þjálfurum, formönnum og liðsstjór-
um.
Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson
Dwayne Fontana, besti maður KFÍ, reynir að verja skot Svavars Páls Pálssonar úr Hamri.
‘ 111
nrpm
Tindastóll skellti
meistaraefnunum
TINDASTÓLL gerði sér lítið fyrir og skellti sigurstranglegasta liði
úrvalsdeildarinnar, Njarðvík, í fyrstu umferðinni á Sauðárkróki í
gærkvöld. Lokatölur urðu 84:73 eftir mikla baráttu þar sem þrír
Njarðvíkingar fóru af velli undir lokin eftir að hafa fengið á sig
tæknivíti og villur fyrir að mótmæla dómgæslunni. Heimamenn
komu sterkir til leiks og verða greinilega erfiðir heim að sækja í vet-
ur, sem fyrr.
Frá fyrstu sekúndu var Ijóst að
bæði liðin ætluðu sér ekkert
nema sigur í leiknum, sem var mjög
hraður og einkennd-
ist af mikilli baráttu.
Björnsson Gestirnir náðu að
skrifar skora fyrstu stigin,
en heimamenn börð-
ust af harðfylgi og fljótlega náðu þeir
að jafna og í fyrsta leikhluta skiptust
liðin á að leiða með einu eða tveim
stigum. Varnir beggja liða voru
traustar, en hittnin var ekki að sama
skapi mikil alveg í byrjun. Þó var alls
ekki um neinn haustbrag að ræða á
leik þessara liða, og virtust bæði
koma vel undirbúin til leiks.
Sama baráttan einkenndi annan
leikhluta, þó höfðu heimamenn alltaf
frumkvæðið og munaði verulega um
að Ómar Sigmarsson og Lárus Dag-
ur voru sjóðheitir, og röðuðu niður
þriggja stiga körfum, og einnig var
Lárus mjög sterkur í vörninni. Þá
áttu Shawn Myers og Kristinn Frið-
riksson ágætan leik. Hjá Njarðvík-
ingum voru Teitur Örlygsson og
Sævar Garðarsson langbestir en
Brenton Birmingham náði sér aldrei
á strik og var langt frá því að sýna
sitt besta. Hálfleikstölur voru 42:36.
Sama baráttan hófst strax í upp-
hafi síðari hlutans og söxuðu gestim-
ir á forskot Tindastólsmanna og
komust yfir, 46:47, en þá kom mjög
góður kafli hjá heimamönnum, sem
tóku forystuna og létu hana ekki af
hendi það sem eftir lifði leiksins. Á
seinustu mínútum síðasta leikhluta
misstu Njarðvíkingar þrjá menn út-
af með fimm villur, þá Brenton
Birmingham, Teit Örlygsson og
Loga Gunnarsson, og fengu á sig
tæknivíti og villur vegna athuga-
semda við dómgæsluna, sem þeir
máttu alls ekki við, á meðan heima-
menn nýttu sér þetta til fullnustu og
héldu fengnum hlut.
Tindastólsliðið lék allt mjög vel
spilaði mjög sterka vörn, og beittar
sóknir, og þegar gamla kempan Kári
Marísson kom inn á nokkru fyrir
leikslok var honum fagnað ákaflega.
í liði Njarðvíkinga var Teitur Ór-
lygsson mjög góður ásamt Sævari
Garðarssyni, en einnig átti nýi
danski miðheijinn, Jes V. Hansen,
mjög góðan kafla í síðari hluta leiks-
ins, svo og Logi Gunnarsson.
Mikilvægt að sigra í fyrsta leik
Valur Ingimundarson þjálfari
Tindastóls var að vonum ánægður í
leikslok. „Það var okkur mjög mikil-
vægt að sigra í fyrsta leik, leik sem
við vissum að mundi verða erfiður.
Við lékum góða vörn og allt liðið sem
heild spilaði vel, þetta hvetur okkur
bara til þess að halda svona áfram og
gefa ekkert eftir, því að við getum
þetta.“
Klukkan
bilaði og
leiknum
frestað
LEIKMENN Keflavíkur og Hauka
ásamt rúmlega 300 áhorfendumvoru
klárir í slaginn á tilsettum tíma í
gærkvöldi í íþróttahúsinu í Keflavík
enda fýrsti alvöruleikur ársins fram-
undan á Islandsmótinu í körfuknatt-
leik. Þegar ágætir dómarar leiksins,
þeir Jón Bender og Eggert Þór Að-
alsteinsson, ætluðu að hefja leik kom
í ljós að vallarklukkan var biluð og
eftir árangurslausar viðgerðartil-
raunir sem stóðu í tæpa klukkustund
var ákveðið að fresta leiknum. Marg-
ar hugmyndir voru reifaðar hvernig
hægt væri að leysa málin á meðan
reynt var að koma klukkunni í lag og
ein tillagan var að leikurinn yrði
færður í íþróttahús Njarðvíkur, en
sú lausn fékk ekki góðar undirtektir.
Rafeindavirkinn og leikmaður
Hauka, Guðmundur Bragason,
reyndi sig við klukkuna ásamt raf-
virkja sem kallaður var til en ekkert
gekk og áhorfendur snéru heim á
leið og fengu endurgreiddan að-
gangseyrinn. Leikur Keflavíkur og
Hauka verður leikinn í kvöld kl.
20.00 í íþróttahúsi Keflavíkur og
vonandi verður búið að koma vallar-
klukkunni í betra ástand.