Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 29.09.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ Q9P FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 B 7 ; myndi fagna sigri í 200 m hlaupi, eins og hann gerir hér. Til hægri við tans er John Capel. Miklir yfirburðir hjá Marian Jones Marion Jones kom langfyrst í mark í 200 m hlaupi kvenna. AP Fyrsta gull Grikkja í spretthlaupi KONSTANTINOS Kenteris braut blað í ólympíusögu Grikkja í gær þegar hann varð fyrsti Grikkinn til að vinna til gullverðlauna i spretthlaupi á Ólympíuleikum. Kenteris átti frábæran endasprett og kom í mark á 20,09 sekúndum. Bretinn Darren Campbell, Evrópumeistari í greininni, varð annar á 20,14 sekúndum og Ato Boldon frá Trinidad og Tobaco, sem vann til silfurverðlauna í 100 metra hlaupinu, þriðji á 20,20 sekúndum. Eftir að í ljós kom að Banda- ríkjamennimir Michael Johnson og Maurice Green voru ekki á meðal keppenda í 200 metra hlaupinu í Sydney áttu menn erfitt með að spá fyrir um úrslitahlaupið en þeir Johnson og Green voru meiddir þegar bandaríska úrtöku- mótið fór fram. Boldon þótti sig- urstranglegastur fyrir leikana. Hann varð heimsmeistari í 200 metra hlaupi fyrir þremur árum en frammistaða hans í undanúr- slitunum gaf til kynna að hann var ekki líklegur. Kenteris, sem var á fjórðu brautinni, setti í fimmta gír síð- ustu 50 metrana og skaust fram úr Boldon og Campbell á lokametr- unum. Vissi að ég myndi vinna „Um leið og ég steig fæti hér í Sydney var ég þess fullviss að ég myndi vinna sigur. Ég vissi að kepp- inautar mínir voru ekkert betri en ég og þar með hræddist ég engan. Ég hef þurft að leggja hart að mér enda undirbjó ég mig sérstaklega vel fyrir leikana," sagði Kantaris eftir hlaupið en hann var fulltrúi hvíta mannsins í úrslitahlaupinu en hinir sjö kepp- endurnir voru allir dökkir á hörund. Kenteris ákvað að tileinka gullið þeim sem fórust með grísku ferjunni í vikunni en 65 manns fórust í slys- inu. Grikkinn er fyrsti hvíti maðurinn sem vinnur til gullverðlauna í sprett- hlaupi á Ólympíuleikum í 20 ár eða síðan ítalinn Pietro Mennea kom fyrstur í mark á leikunum í Moskvu árið 1980. Stöðvaði langa sigurgöngu Bandaríkjamanna Kenteris batt þar með enda á sig- urgöngu Bandaríkjamanna í þessari grein en á fjórum síðustu leikum hafa Bandaríkjamenn borið sigur úr býtum í þessari grein. Tveir Banda- ríkjamenn voru í úrslitunum en þeir höfnuðu í tveimur síðustu sætunum. Coby Miller var sjöundi og John Capel rak lestina. Ato Boldon sagði eftir hlaupið að 100 metra hlaupið hafi greinilega setið í sér. „Þegar 150 metrar voru eftir af hlaupinu var úthaldið gersamlega á þrotum og ég átti í erfiðleikum að komast alla leið. ÚRSLITIN í 200 metra hlaupi kvenna voru eftir bókinni. Mar- ion Jones frá Bandaríkjunum vann yfirburðasigur og tryggði sér önnur gullverðlaun sín á Ól- ympíuleikunum en hún bar einnig sigur úr býtum í 100 metra hlaupinu. Jones kom í mark á 21,84 sekúndum, sem er besti tími ársins, Pauiine Davis- Thompson varð önnur á 22,27 sekúndum og í þriðja sæti hafn- aði Susanthika Jayasinge frá Sri Lanka á 22,28 sekúndum. Eftir að úrslitin lágu ljós fyrir hljóp Jones beint í fangið á eig- inmanni sínum, C. J. Hunter og faðm- aði hann en Hunter komst heldur bet- ur í sviðsljósið í vikunni þegar í ljós kom að hann hafði fallið á lyfjaprófi. Fréttimar um meint lyfjahneyksli Hunters virtust ekki koma Jones úr neinu jafnvægi og þessi glæsilega íþróttakona sýndi og sannaði að hún er besta spretthlaupakona heims. Jones, sem er 24 ára gömul, var ótrú- lega afslöppuð í úrslitahlaupinu, og áttu keppinautar hennar ekkert svar. „Ég er mjög ánægð með að hafa unnið þetta og nú tekur við næsta verkefni sem er langstökkið. Þar ætla ég mér mikið. Ég hef ekki látið þetta mál með Hunter hafa áhrif á mig. Ég ætla að halda mínu striki og draumur minn er að vinna til fimm gullverð- launa,“ sagði Jones eftir hlaupið. Þeg- ar hún var spurð út í lyfjamálin sagði hún: „Allir sem þekkja mig og æfa með mér vita að ég hef ekki tekið inn nein efni.“ Jones grét af gleði eftir sigurinn í 100 metra hlaupinu og fagnaði nyög mildð en sigrinum í 200 metra hlaup- inu tók hún með ró og lét sér nægja að brosa til áhorfenda. Jones á möguleika á þremur Konstantinos Kenteris Grikklandi Ólympíumeistari í 200 metra hlaupi karla. Fæddur: 11. júlí 1973 í Mytilene, Grikklandi Helstu afrek: Sigraði í 400 metra hlaupi á Evrópubikar- móti árið 1993 og varð þriðji á sama móti í fyrra. Varð í sjötta sæti á heimsmeistaramóti unglinga árið 1992. ■ Bætti gríska metið í úrslitahlaupinu og er fyrsti Grikk- inn til að vinna til verðlauna í spretthlaupi á Ólympíuleik- um. AP Það fyrsta sem Marion Jones gerði eftir sigurinn var að fara tii eiginmanns sins, C.J. Hunter, og smella á hann kossi. gullpeningum til viðbótar. Hún er komin í úrslit í langstökki og er í sveit Bandaríkjanna bæði í 4x100 og 4x400 metra boðhlaupi. Tólf ár eru Úðin síðan sama konan vann bæði gull í 100 og 200 metra hlaupi en Florence Griffith-Joyner lék sama leikinn á Ólympíuleikunum í Seoul árið 1988. Ástralska stúlkan Cathy Freeman ,* þjóðhetja Ástrala, sem vann sigur í 400 metra hlaupinu og varð þar með fyrsti frumbyggi Ástrala til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum, náði sér ekki á strik og kom sjöunda í mark á 22,53 sekúndum. Jones Bandaríkjunum Ólympíumeistari í 200 metra hlaupi kvenna. Fædd: 12. október 1975 í Los Angeles í Banda- ríkjunum. Helstu afrek: Ólympíu- meistari í 100 metra hlaupi í Sydney. Heims- meistari í 100 m hlaupi 1997. Árið 1998 vann hún 34 mót í hlaupum og lang- | stökki. Varði HM-titilinn í | 100 m hlaupi 1999 en féll í og hætti keppni í 200 m hlaupi. ■ Unglingameistari Bandaríkjanna í 100 og 200 m hlaupum 1991 og 1992. ■ Var valin sem vara- maður fyrir boðshlaups- sveit Bandaríkjanna á Ól- ympfuleikunum í Barcelona 1992 en hafn- aðiþví. ■ Sneri sér að körfukn- attleik og varð banda- rískur háskólameistari sem skotbakvörður með Noth Carolina 1994. ■ Fótbrotnaði árið 1995 en hóf keppni í fijálsum íþróttum á ný tveimur árum síðar. ■ Árið 1998 lýsti því hún því fyrir að hún stefndi að því að vinna jL fimm ólympíugull í Sydn- || ey. Er gift kúluvarparan- um ■ C.J. Hunter en hann komst í fréttirnar í vik- unni þar sem upplýst var að hann hefði fallið á lyíjaprófi. ...... » l i j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.