Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 4
4 B FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
MORGUNB LAÐIÐ
099
Talið er að gullið hafi kostað norska þjóðarbúið um 300 milljónir króna
Dagny Mellgren sendir hér knöttinn í netið hjá Bandaríkjamönnum í síðustu spymu leiksins.
Reuters
Varamaðurínn tryggði
gullið með gullmarki
NORÐMENN unnu óvæntan en sanngjarnan sigur á fyrrverandi Ól-
ympíu- og heímsmeisturum Bandaríkjanna í knattspyrnu kvenna í
gærkvöld í framlengdum leik. Fyrir leikinn höfðu flestir talið að
bandarísku stúlkurnar ættu auðveldan leik fyrir höndum, en þessi
lið höfðu mæst í riðlakeppninni og þá unnu heimsmeistararnir auð-
veldan sigur, 2:0. Talið er að norska þjóðarbúið hafi tapað um 300
milljónum króna vegna vinnutaps, - en rúm miiljón Norðmanna
fylgdist með leiknum í sjónvarpi.
1
Reuters
Dagny fagnar marki sínu. Hún er nú þjóðhetja í Noregi.
Hafsteinn
enná
siglingu
HAFSTEINN Ægir Geirsson,
siglingamaður, er eini íslend-
ingurinn sem enn er i eldín-
unni á Ólympíkuleikunum. í
gær voru tvær umferðir farn-
ar í flokki Lazer-kæna, en
það er einmitt flokkurinn
sem Hafsteinn tekur þátt, en
upphaflega stóð til að farnar
yrðu þijár umferðir. Fallið
var frá því og þess í stað eru
áformaðar tvær ferðir í dag,
en það er siðasti keppnisdag-
ur.
Hafsteinn náði sér ekki á
strik í gær og í fyrri umferð
dagsins varð hann í 40. sæti
af 42 keppendum. Það hefur
fækkað um einn keppanda í
flokki Hafsteins frá því sem
áður var eftir að keppandi
smáeyjunnar Guam var rek-
inn úr keppni á dögunum og
bátur hans og aðgöngupassi
gerður upptækur um leið.
Hafsteini gekk enn verr í síð-
ari umferð dagsins þar sem
hann rak lestina. Hafsteinn
er því sem fyrr neðstur í
heildarstigakeppninni eftir
átta umferðir og þarf hann
að ná sé afar vel á strik í síð-
ustu umferðunum tveimur til
þess að lyfta sér upp af botn-
inum áður en yfir Iýkur.
Yanina Korolchik.
Persónu-
legt met
í síðasta
kasti dugði
YANINA Korolchik frá Hvíta-
Rússlandi sigraði í kúluvarpi
kvenna með því að kasta 20,56
metra í síðasta kasti sínu og bæta
sinn besta árangur um 25 sentím-
etra.
Sigur Korolchiku kemur nokk-
uð á óvart því flestir höfðu veðjað
á Larisa Peleshenko frá Rússlandi
og hún hafði forytu f keppninni
allt þar til Hvft-Rússinn náði risa-
kastinu. Peleshenko varð í öðru
sæti með 19,92 metra og þýski ól-
ympíu- og þrefaldur heimsmeist-
ari, Astrid Kumbemuss varð
þriðja með kast upp á 19,62 metra.
Janina
Korolchik
Hvíta-Rússland
Ólympíumeistari í kúluvarpi
kvenna.
Fædd: 26. desember 1976.
Helstu afrek: Varð í þriðja sæti
á Evrópumeistaramótinu árið
1998 og í fjórða sæti á heims-
meistaramótinu í Sevilla á síð-
asta ári. Bætti sinn besta ár-
angur þegar hún tryggði sér
gullið í Sydney með kasti upp á
20,31 metra.
Það var fátt sem benti til þess að
norsku stúlkumar myndu eiga
eitthvað í þær bandarísku í upphafi
leiks þvi strax á 5.
Ingibiörg mínútu leiksins
Hinriksdóttir skoraði Tiffany Mil-
skrifarfráSydn- brett fyrir Banda-
ey ríkin eftir frábæran
undirbúning frá Miu Hamm. Einni
mínútu fyrir leikhlé jafnaði Gro
Espeseth fyrir Norðmenn og
hleypti verulegu lífi í leikinn. Síðari
hálfleikur var sannkölluð veisla fyr-
ir augað þar sem bæði lið sýndu sín-
ar bestu hliðar og settu sóknarleik-
inn á oddinn. Norðmenn náðu
forystunni á 78. mínútu með laglegu
marki frá Ragnhild Gullbrandsen,
eftir að bandarísku stúlkumar
höfðu sótt nær látlaust að marki
Norðmanna en flestar sóknir þeirra
stöðvuðust á hinum frábæra leik-
manni og fyrirliða Norðmanna,
Goeril Kringen. Leiktíminn var
nærri útmnninn þegar Tiffany Mil-
brett skoraði annað mark sinn og
Bandaríkjamanna í uppbótartíma,
en aðeins 10 sekúndur liðu frá því
að markið var skorað þar til leik-
tíminn var úti.
Það þurfti því að grípa til fram-
lengingar, þar sem gullmark réði
úrslitum, og í henni skoraði vara-
maðurinn Dagny Mellgren sigur-
mark Norðmanna, þegar 11 mínút-
ur og 11 sekúndur voru liðnar af
framlengingunni. Ástralar vom
fljótir að sjá það á klukkunni að
þarna var Cathy Freeman enn einu
sinni að verki, sigurmarkið kom á
11.11 en 11 er númer Freeman hér
á leikunum.
Leikurinn var frábærlega leikinn
af báðum liðum sem sýndu það og
sönnuðu að þar fara tvö bestu
kvennalið heims um þessar mundir.
Bandaríkjamenn léku að vanda
léttan leik þar sem áhersla var lögð
á að láta boltann ganga hratt milli
manna á meðan norsku stúlkumar
reyndu stöðugt að senda langar
sendingar fram völlinn á tiltölulega
undirmannaða sóknarlínu, sem
treysti á það að fá aðstoð frá miðj-
unni skömmu síðar. Besti leikmað-
ur vallarins var án efa fyrirliði
Norðmanna, Goeril Kringen, sem
bjargaði sínu liði einu sinni sem oft-
ar á ævintýralegan hátt með skalla
af marklínu.
„Ég er mjög stoltur af stelpunum
og stundin þegar sigurmarkið var
skorað var rafmögnuð," sagði Per
Hagmo, þjálfari norsku stúlknanna.
„Stelpumar börðust allan tímann
og þótt þær hafi lent undir komu
þær alltaf sterkari til baka. Við er-
um með leikmenn í liðinu sem geta
breytt gangi leiksins hvenær sem
er en í dag var það liðsheildin sem
skapaði þennan sigur, stelpurnar
eiga allar hrós skilið," sagði Hag-
mo, sem hefur stýrt norska liðinu í
57 leikjum þar sem liðið hefur sigr-
að í 41 leik. Hann stýrði norska lið-
inu nú í síðasta sinn en við starfi
hans tekur Age Steen.
April Heinrich, þjálfari banda-
rísku stúlknanna, bar höfðið hátt í
leikslok, enda ekki ástæða til ann-
ars. „Við gáfum allt í leikinn sem
við gátum og ég er gífurlega stolt af
stúlkunum. Leiðin í úrslitin hefur
verið löng og ströng en við fundum
ekki fyrir neinni pressu á okkur.
Leikurinn var opinn og gaf mikla
möguleika, bæði lið léku frábæran
fótbolta, og við tókum stoltar á móti
silfurverðlaununum," sagði Hein-
rich.
Þjóðverjar tryggðu sér bronsið
Þýsku stúlkurnar áttu ekki í
neinum vandræðum með að leggja
Brasilíumenn að velli í leiknum um
bronsið og sigruðu 2:0. Eftir að
hafa átt í nokkrum erfiðleikum með
brasilíska liðið í markalausum fyrri
hálfleik bættu Þjóðverjar enn í leik
sinn og Renate Lingor skoraði
fyrra mark Þjóðverja á 64. mínútu
með skoti beint úr aukaspyrnu og
Birgit Prinz skoraði það seinna á
79. mínútu eftir hraðaupphlaup.
Þjóðverjar náðu að sýna sitt rétta
andlit í þessum leik eftir að hafa
orðið fyrir gríðarlegum vonbrigðum
með að ná ekki í úrslitin þegar þeir
töpuðu fyrir Norðmönnum í undan-
úrslitum. Tina Theune Meyer, þjálf-
ari Þjóðveija, var ánægð með sínar
stúlkur í leikslok. „Ég er mjög án-
ægð með sigurinn, sérstaklega þeg-
ar tekið er tillit til þess hvað okkur
gekk illa í byrjun leiks. En við náð-
um að bæta leik okkar mikið í síðari
hálfleiknum og ég er sátt í leiks-
lok,“ sagði Tina Theune Meyer.