Morgunblaðið - 29.09.2000, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
QQQ
FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000 B 5
Fyrstu
gullverð
Reuters
EISTINN Erki Nool tryggði sér ólympíumeistaratitilinn í tugþraut
með góðu 1.500 metra hlaupi. Hann var þó heppinn því í annarri
grein gærdagsins, kringiukastinu, voru öll þrjú köst hans í fyrstu
dæmd ógild en það síðan leiðrétt. Nool fékk 8.641 stig, Tékkinn
Roman Sebrle 8.606 í annað sætið og Chris Huffins frá Banda-
ríkjunum, sem hafði forystu þartil í 1.500 metra hlaupinu, varð
þriðji með 8.595 stig. Þetta er í fyrsta sinn sem Nool kemst á pail
á Ólympíuleikum og hann hefur ekki heldur farið á pall á heims-
meistaramóti.
Erki Nool segist lengi hafa dreymt um að hlaupa sigurhring með eistneska
fánann. Draumur hans rættist í gær.
Nool meistari
Öll köst hans í kringlu dæmd ógild en
dómurinn síðan leiðréttur
GULLVERÐLAUNIN í einliða-
leik karla í tennis fóru til Rúss-
lands en Jevgeny Kafelnikov
(mynd fyrir ofanjtryggði sér
ólympfumeistaratitilinn með
því að sigra Þjóðverjan Thom-
as Haas í hörkuspennandi úr-
slitaleik, 7:6, 3:6, 6:2, 4:6 og
6:3. Sigurinn kom Kafelnikov
sjálfum á óvart en fyrir þrem-
ur vikum síðan var hann ekki
viss hvort hann mundi yfir höf
keppa á Ólympíuleikunum.
Eg hugsaði að sennilega
hefði ég ekkert erindi á Ól-
ympíuleikana eins og ég var að
leika skömmu áður en leikarnir
hófust.
Ég var mjög langt niðri eftir
ósigurinn í 3. umferð opna
bandariska meistaramótsins í
sumar og það hvarflaði að mér
að sleppa Ólympíuleikunum,“
sagði Kafelnikov eftir sigurinn
en þetta voru fyrstu gullverð-
laun Rússa í tennis á Ólympíu-
leikum frá upphafi.
„Gullverðlaunin hafa mikila
þýðingu fyrir mig og ég vil
ekki hugsa þá hugsun til enda
ef mér hefði ekki tekist að
vinna úrslitaleikinn. Þegar ég
hóf keppni hér á leikunum
hugsaði ég ekki einu sinni um
verðlaun enda átti ég innst inni
ekki von á því að ég myndi
blanda mér í baráttuna um
verðlaunasæti.
Ég ætlaði fyrst og fremst að
njóta þess að fá að vera með
hér í Sydney og ég á hreiniega
bágt með að trúa því að ég hafi
unnið ólympíumeistaratitilinn.
Ég get ekki verið annað en
hreykinn af sjálfum mér og
minni þjóð,“ sagði þessi 26 ára
gamli Rússi, sigrihrósandi í
Sydney.
Reuters
Eftir fyrri dag þrautarinnar var
Huffins með átta stiga forystu á
Dean Maeey frá Bretlandi en hann
kom virkilega á óvart með góðri og
jafnri þraut, og Nool var 49
stigum á eftir Bandaríkja-
manninum. Huffins byrjaði
síðari daginn vel, varð ann-
ar í 110 grind og var 122
stigum á undan Nool Qg á
milli þeirra var Sebrle og
spennan í hámarki því vitað
er að síðustu þrjár grein-
arnar eru ekki góðar hjá
Huffins. Kringlukastið varð
sögulegt því fyrsta kast
Nools var í búrið í kringum
kasthringinn, annað út fyrir kast-
geirann og þriðja kastið mældist
43,66 metrar, en dómarinn lyfti
rauðu flaggi. Ógilt. Eistinn mótmælti
harkalega og sagðist ekki hafa stigið
ofan á plankann sem er við hrigninn.
Ekkert var hlustað á hann og Nool
klæddi sig og bjóst til þess að fara af
velli en dómararnir tóku málið fyrir
eftir enn frekari kvartanir og sögðu
að kastið hefði verið í lagi.
Huffins náði besta kastinu og jók
forystu sína. í stönginni náði Nool
sér ekki á strik en þar er hann jafnan
mjög öflugur. Hann stökk þó yfir 5
metra á meðan Huffins fór 4,70. I
spjótkastinu fékk Nool 139 stigum
meira en Huffins og fyrir síðustu
greinina, 1.500 metra hlaupið mun-
aði aðeins 14 stigum á þeim. Huffins
vissi að gullið væri gengið honum úr
greipum því hann er slakur í síðustu
greininni, en hann hljóp óvenju vel
að þessu sinni og náði þriðja sætinu.
Nool varð að vera 2,5 sekúndum á
undan Huffins og Sebrle þurti að
koma níu sekúndum á undan Banda-
ríkjamanninum í mark. Það tókst og
hann náði öðru sæti. Þar með lauk
einni jöfnustu tugþrautarkeppni í
sögu Olympíuleikanna. Ólympíumeti
Dan O’Brien, 8.824 stig, frá því í Atl
anta 1996 var ekki í hættu hvað þá
heimsmet Tomasar Dworaks frá
Tékklandi, 8.994 stig. Heimsmethaf-
inn endaði í sjötta sæti þrátt fyrir að
vera meiddur og veikur í þokkabót.
„Dómararnir komust loks að
þeirri niðurstöðu að kastið hefði ver-
ið löglegt og ég er feginn því,“ sagði
Nool skömmu eftir að hann hafði
rætt við forseta og forsætisráðherra
Eistlands í síma. „Mig hefur dreymt
það lengi að hlaupa sigurhringinn
með eistneska fánann og nú er ég
búinn að því. Við erum lítil þjóð og öll
verðlaun skipta okkur miklu máli,“
sagði hinn mikli baráttujaxl.
Því má svo bæta við að 38 kepp-
endur hófu leik í þrautinni en 25 luku
henni þar á meðal Þjóðveijinn Mike
Maczey sem hlaut 7.228 stig en hann
fékk ekkert stig fyrir fyrstu grein
síðari dagsins en ákvað engu að síður
að halda áfram.
íslandsmet Jóns Amars Magnús-
sonar, 8.573 stig síðan 1998 hefði
dugað í fjórða sætið að þessu sinni.
Erki Nool
Eistlandi
Ólympíumeistari í tugþraut karla.
Fæddur: 25. júní 1970 í Voru i Eistlandi.
Helstu afrek: Varð Evrópumeistari árið 1998 og varð þar með
fyrsti Evrópumeistari Eista í 60 ár.
■ Varð í sjöunda sæti í sjöþraut á heimsmeistaramótinu inn-
anhúss árið 1999.
■ Hafnaði í fjórða sæti á heimsmeistaramótinu árið 1995.
■ Á bestan árangur allra i Iangstökki í tugþraut, 8,10 metar
sem hann náði á heimsmeistamótinu árið 1995.
■ Á eistneska metið i langstökki og 200 metra hlaupi.
TUGÞRAUT
„Mig hefur lengi dreymt
um að hlaupa
sigurhringinn með
eistneska fánann“