Morgunblaðið - 29.09.2000, Page 8
P 8 B FÖSTUDAGUR 29. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
Blikastúlkur
gáfu Herdísi
og Jörundi
Aka verð-
launafé sitt
UPPSKERUHÁTÍÐ knattspyrnudeildar Breiðabliks fór fram um sl.
helgi og tók sérstæða stefnu er meistaraflokkur kvenna gaf verð-
launapeninga þá er félagið hlaut fyrir sigur í bikarkeppni KSÍ. Stúlk-
urnar gáfu handboltakonunni Herdísi Sigurbergsdóttur og manni
hennar, Jörundi Áka Sveinssyni þjálfara Blikastúlkna, 300.000
krónurnar sem Vífilfell gaf þeim fyrir að vinna bikarkeppnina.
Herdís sleit sem kunnugt er hásin
fyrir um tveimur árum í lands-
leik og þurfti að leita sér aðstoðar
hjá þýskum lækni eftir að ígerð gekk
í sárið. Þýski læknirinn hefur náð
ótrúlega góðum árangri með Herdísi
og hefur hún farið margar ferðir til
Þýskalands til að leita sér lækninga.
Blikastúlkur hafa fylgst náið með
Herdísi í gegnum þjálfara sinn og
ákváðu á uppskeruhátíðinni að gefa
þeim hjónum verðlaunaféð til að að-
stoða þau við þann kostnað sem
skapast hefur vegna meiðslanna.
„Þetta var alveg stórkostlegt. Þær
veittu okkur verðlaunafé sitt. Þetta
kemur sér vel,“ sagði Herdís sem
var agndofa yfir gjöf stúlknanna.
„Útgjöldin eru orðin ansi mikil. Það
var búið að ákveða að tala við banka-
Rússinn
Tikhonov
laus
úr haldi
RÚSSNESKI skíðakappinn
Alexander Tikhonov var
sleppt úr haldi lögreglu í
Rússlandi um helgina en
þar hefur hann verið í rúm-
an mánuð vegna gruns um
að eiga hlut að samsæri um
að myrða rússneskan emb-
ættismann.
Tikhonov sigraði fjórum
sinnum í skiðaskotfimi á Ól-
ympíuleikum og tíu sinnum
á heimsmeistaramótum á
sjöunda og áttunda ára-
tugnum. Hann hætti keppni
eftir að hann fókk gull á
leikunum í Sarajevo 1984
og gerðist þá umfangsmik-
ill kaupsýslumaður í Rúss-
landi. Hann hefur neitað að
eiga þátt í meintu samsæri.
stjórann í Garðabæ en nú er hætt við
það,“ sagði Herdís sem enn á eftir að
fara tvisvar til Þýskalands. Hún fer
út í lok nóvember og verða þá naglar
fjarlægðir úr sininni. Síðan fer hún í
síðasta skiptið í febrúar í lokaskoð-
un. „í gegnum þessi tvö ár hafa
margir lagt sitt af mörkum. Við átt-
um þó engan veginn von á þessu því
það er svo langt síðan þetta gerðist.
Við urðum bæði kjaftstopp. Þetta
var virkilega fallegt af þeim og okk-
ur þykir mjög vænt um þetta,“ sagði
Herdís sem náð hefur góðum ár-
angri í meðferð sinni. Hún hefur þó
lítið getað stundað starf sitt sem að-
stoðarstúlka tannlæknis síðan hún
meiddist og því kemur aðstoðin sér
vel.
Það var tilfínningaþrungin stund
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Herdís Sigurbergsdóttir
ásamt dóttur sinni, Sigrúnu
Maríu Jörgensdóttur.
þegar Blikastúlkur afhentu féð og
þegar Jörundur Áki hélt þakkar-
ræðu.
Margrét og Atli best
A hátíðinni var Margrét Ólafs-
dóttir valin leikmaður ársins og
Laufey Ólafsdóttir sú sem náð hefur
mestum framförum. Helga Ósk
Hannesdóttir var valinn Bliki ársins
ásamt Hákoni Sverrissyni. Atli
Knútsson var valinn leikmaður árs-
ins hjá körlunum og Þorsteinn
Sveinsson sá er náð hefur mestum
framförum.
■■■■■■■■■■■■■■■^■■■^^^■^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■h
Raneri boðar breytingar
ÍTALINN Claudio Raneri sem tók við enska knattspyrnuliðinu
Chelsea á dögunum hefur boðað breytingar á æfmgamynstri
félagsins. Raneri hefur krafist þess að leikmenn liðins séu
klárir á æfingar tvisvar á dag og að þeir leikmenn sem standi
sig í leikjum félagsins fái að spila. Landi Raneris og forveri í
starfinu, Gianluca Vialli, hafði þann háttinn á að leikmenn
liðsins vissu nánast aldrei hveijir yrðu í byrjunarliðinu og lyk-
illeikmenn máttu oft sætta sig við það hlutskipti að verma
varamannabekkinn. Það er talið að þessi venja Vialli hafi ver-
ið stærsti þáttur í óánægju sumra leikmann og Rainer hefur
gefið það út að liafi ekki í hyggju að nota sömu aðferðir og
Vialli.
Það er nóg að gera hjá Gianfranco Zola og Roberto di Matt-
eo á æfíngum liðsins en Rainer talar ekki stakt orð í ensku og
þeir félagar verða því að þýða flest allt sem sagt er á æfingum.
Kristján Helgason í úrslitakeppni opna breska meistaramótsins í snóker
Kristján Helgason er hér að kanna hvernig sé best að senda eina kúluna í horngat.
Á góða möguleika gegn Steve Davis
Kristján Helgason mætir Steve
Davis, einhveijum frægasta
snókerspilara allra tíma og
sexföldum heims-
meistaraj i fyrstu
umferð úrslita-
keppninnar á opna
breska meistara-
mótinu í snóker á mánudagskvöld-
ið. Sjónvarpsstöðin BBC sýnir
leikinn beint eins og aðra leiki í
lokakeppninni en 48 taka þátt í
í> henni og þar eru mættir allir þeir
bestu í heiminum.Kristján er að
Eftir
Víði
Sigurðsson
fara í sinn þriðja sjónvarpsleik á
stórmóti á ferlinum en hinir tveir
voru í vor. Fyrst mætti hann Mark
Williams á opna skoska meistara-
mótinu og síðan Stephen Lee á
heimsmeistaramótinu í Sheffield.
„Ég hef undirbúið mig eins og
best verður á kosið, síðan ég kom
heim frá undankeppninni fyrr í
mánuðinum, og er mjög bjartsýnn
fyrir þessa viðureign. Ég hef að
undanförnu spilað minn besta
snóker í þrjú ár og tel að mínir
möguleikar gegn Davis séu mjög
góðir. Hann er að sjálfsögðu frá-
bær snókerspilari, einn sá besti
sem uppi hefur verið, en ég er ekki
að velta honum of mikið fyrir mér,
það myndi bara rugla mig. Ég ein-
beiti mér að sjálfum mér og að
spila sem best,“ sagði Kristján við
Morgunblaðið.
Er ekki mjög sérstakt að mæta
manni á borð við Steve Davis?
„Jú, því er ekki að neita, þar
sem hann er geysilega virtur og
vinnur mikið fyrir snókeríþróttina.
Hann situr í stjórn alþjóðasam-
bandsins og er nokkurs konar
sendiherra íþróttarinnar, og mjög
góð ímynd fyrir hana. Davis er
orðinn 43 ára og er núna í fyrsta
skipti ekki í hópi 16 efstu á heims-
listanum."
Hefurðu hitt Davis áður?
„Ég hef einu sinni talað við
hann, á heimsmeistaramótinu í
Sheffield í vor. Hann spurði mig
mikið um ísland, enda kom hann
hingað tvívegis og spilaði fyrir
rúmum tíu árum. Þá var leikinn
einn riðill á stórmóti hérna, í Vals-
heimilinu, og ég fylgdist með hon-
um í sjónvarpinu. Ég var nýbyrj-
aður að spila sjálfur á þeim tíina
og ekki orðinn svo áhugasamur að
ég færi á staðinn."
Keppt er með útsláttarfyrir-
komulagi í Plymouth og sá sigrar
sem vinnur fimm ramma. Leikur-
inn getur því farið í allt að níu
ramma. Sigurvegarinn fer í 32
manna úrslit og mætir þá Fergal
O’Brien, sem er í 9. sæti á heims-
listanum. Sextán efstu á listanum
sitja hjá í fyrstu umferðinni.