Morgunblaðið - 30.09.2000, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000 E 3
REYKJAVIK - MENNINGARBORG EVRÓPU
Þjóð-
skáldin
fara á
kreik
í leikriti Hallgríms Helga-
sonar, Skáldanótt, birt-
ast öll helstu þjóöskáld-
in íslensku holdi klædd
ogtaka þáttí Skálda-
slag. Frumsýning verður
í Borgarleikhúsinu 11.
nóvember.
Morgunblaðið/ Kristinn.
BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON OG NANNA KRISTlN MAGNÚSDÓTTIR ÆFA SKÁLDANÓTT.
EINU SINNI á ári er „Skáldanótt"
haldin hátíðleg í Reykjavík. Þá lifna
við öll helstu skáld þjóðarinnar, allt
frá Agli Skallagrímssyni til Halldórs
Laxness og taka þátt í fjörinu í mið-
bæ Reykjavíkur. Ungskáld bæjarins
fara á stjá og vill þá hver finna „sinn
mann“, ná að hitta eftirlætisskáldið
og sýna því kveðskap sinn. „Skálda-
nótt“ lýkur hverju sinni með
„Skáldaslag", þar sem ungskáldin
keppa í orðfimi. Verkið er að miklu
leyti skrifað í bundnu máli, því á
„Skáldanótt" vakna ekki aðeins látin
þjóðskáld, heldur einnig bragvitund í
hverjum manni og allur almenningur
talar í vísum.
Hallgrímur Helgason er fæddur í
Reykjavík 18. febrúar 1959. Hann
stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskóla Islands og síðan í
Miinchen í Þýskalandi. Hann hefur
haldið fjölda sýninga hér á landi og
erlendis, í París, Boston, New York.
Hann hefur skrifað fjölda pistla í
dagblöð og tímarit og unnið við út-
varp. Helstu ritverk: Hella (skáld-
saga 1990), Þetta er allt að koma
(skáldsaga 1995), 101 Reykjavík
(skáldsaga 1996 og kvikmynd í leik-
stjórn Baltasars Kormáks árið
2000), Ljóðmæli (ljóð 1998). Um
þessar mundir er hann að leggja síð-
ustu hönd á skáldsögu er kemur út á
næsta ári.
Leikarar: Arni Pétur Guðjónsson,
Bergur Þór Ingólfsson, Björn Ingi
Hilmarsson, Edda Björg Eyjólfs-
dóttir, Eggert Þorleifsson, Ellert A.
Ingimundarson, Gunnar Hansson,
Katla Þorgeirsdóttir, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Steinn Armann Magn-
ússon, Theodór Júlíusson, Þór Tulin-
ius. Tónlist: Ragnhildur Gísladóttir.
Lýsing: Elfar Bjarnason. Leikmynd:
Stígur Steinþórsson. Búningar:
Hjördís Sigurbjörnsdóttii-. Leik-
stjórn: Benedikt Erlingsson.
Oröiö tónlist
Frá huga
til hugar
Málþingí Þjóöarbók-
hlöóu 16. nóvemberá
degi íslenskrartungu.
Sýning um sögu prents
og bókaútgáfu meö
áherslu á biblíuþýðingar.
Á DEGI íslenskrar tungu, 16. nó-
vember, verður í Þjóðarbókhlöðu
sýning og ráðstefna sem ber yfir-
skriftina Frá huga til hugar. Með
þessari yfirskrift er verið að vísa
til lesturs almennt. Bækur miðla
hugsun, boðun og trú til
þess sem les þær frá
þeim sem ritar. En á
milli þess sem miðlar og
þess sem tekur við á sér
stað heilmikið ferli. Á
sýningunni verður saga
prents og bókaútgáfu á
Islandi í sviðsljósinu
með sérstakri áherslu á
útgáfu Biblíunnar. Þetta
er löng og fjölbreytileg
saga sem snert hefur
alla þætti íslensks sam-
félags og mótað það.
Þessi saga verður dreg-
in fram með margvísleg-
um hætti. Gamlar Bi-
blíuútgáfur verða til
sýnis og gerð grein fyrir
þeim. Munir sem varð-
veist hafa úr sögu prent-
iðnaðarins í gegnum tíð-
ina verða til sýnis og notkun
þeirra skýrð. I máli og myndum
verður tvinnuð saman útgáfusaga
Biblíunnar og þróun prentiðnaðar-
ins á Islandi og hún rakin frá
fyrstu tíð og allt til dagsins í dag.
Samhliða opnun sýningarinnar
verður efnt til málþings þar sem
fræðimenn fjalla um efni hennar
og leggja áherslu á hvernig lestr-
arkunnátta íslensku þjóðarinnar
hefur þróast frá fyrstu tíð. Einnig
hver áhrif þýðing Biblíunnar á ís-
lensku hafði á varðveislu tungum-
álsins. Sýningin stendur út janúar
árið 2001.
Hátíö talaðrar tónlistar
er yfirskrift samkomu
sem útgáfufyrirtækið
Smekkleysa stendurfyr-
irí íslensku óperunni
hinn 7. októbernæst-
komandi.
EINS OG heitið Orðið tónlist bendir
til er hátíðinni ætlað að fagna hvers
kyns samslætti orða og tónlistar, þar
sem mörkin milli skáldskapar og
tóna verða fljótandi og stefna jafnvel
til hafs. Því verður tónlist í stóru
hlutverki þetta kvöld en megin-
áherslan er þó lögð á sjálft orðið;
sjálfan hljóm orðanna í skáldskap,
skáldskap í félagsskap tónlistar,
skáldskap sem tónlist eða skáldskap
tengdan tónlist á einn eða annan
máta.
Fjölbreyttur hópur eriendra og ís-
lenskra listamanna mun koma fram í
Óperunni að kvöldi 7. október; bæði
skáld og rithöfundar sem unnið hafa
með tónlistamönnum og/eða tónlist,
og tónlistarmenn sem byggja verk
sín á beinan eða óbeinan hátt á bók-
menntatextum eða tengja þau við
orð og skáldskap á ýmsa vegu. Þeir
sem koma fram eru hin virta sópr-
ansöngkona og tónskáld Joan La
Barbara sem starfað hefur meðal
annars með tónskáldum á borð við
John Cage og Morton Feldman,
tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn
David Toop, ljóðskáldið Elisabeth
Belilesem vakið hefur mikla athygli í
Bandaríkjunum fyrir djarfa og ögr-
andi ijóðlist, jafnt í bókum sínum
sem hljóðupptökum. íslenskir þátt-
takendur eru múm, Ása Ketilsdóttir,
Sjón vs. Curver, Andri Snær Magna-
son, Michael Pollock, Ásgerður Jún-
íusdóttir, Didda, Hallgrímur Helga-
son, Sigur Rós og Steindór
Andersen, Þorvaldur Þorsteinsson,
Berglind Ágústsdóttir og Bibbi, Ein-
ar Már með kvartett Tómasar R.,
Bragi Ólafsson, Erpur Eyvindsson,
Jóhamar/Einar Melax, Linda Vil-
hjálmsdóttir, Sverrir Guðjónsson,
Birgir Örn Steinarsson og Einar Örn
Benediktsson. Kynnir verður Magga
Stína.
Fyrr um daginn, milli kl. 14 og 17 í
Iðnó, standa Smekkleysa og Reykja-
víkurAkademían fyrir pallborðsum-
ræðum um tónlist og textagerð og
fara þær fram á ensku. Þar munu
tala bandaríski tónlistargagnrýna-
ndinn David Fricke, sem lengi hefur
starfað fyrir tónlistartímaritið Roll-
ing Stone og skrifað bækur um
hljómsveitirnar Cars, Def Leppard
og Rolling Stones; Bretinn David
Toop sem er rithöfundur og blaða-
maður hins virta tónlistartímarits
Wire, meðal bóka hans eru Rap Att-
ack og Ocean of Sound, Davíð Ólafs-
son sagnfræðingur, Geir Svansson
bókmenntafræðingur og Úlfhildur
Dagsdóttir bókmenntafræðingur, öll
frá ReykjavíkurAkademíunni. Há-
tíðinni er einnig ætlað að vera eins
konar markaðstorg tónlistar og
texta; þar sem þátttakendur gætu
haft útgefin verk sín til sölu í anddyri
hússins og/eða dreift textum sínum
og tónlist á annan hátt.
I tilefni orðsins tónlistar mun
Smekkleysa gefa út veglega og
smekklega myndskreytta sýningar-
skrá með textadæmum eftir þátttak-
endur hátíðarinnar, auk greina um
texta og tónlist.
Miðaverð verður kr. 2.000. For-
sala aðgöngumiða er í Tólf tónum og
Japis, Laugavegi.
Danshátíð í október og nóvember
DansflokkarTrans Dans
Europe koma hingað og
halda sýningar 31. októ-
bertil 2. nóvember á
stóra sviðinu í Borgar-
leikhúsinu.
„íslenski dansflokkurinn skipuleg-
gur danshátíðina Trans Dans Eur-
ope hér á landi,“ sagði Katrín Hall,
listrænn stjórnandi íslenska dans-
flokksins. „Við opnum þessa hátíð
með sýningu 31. okt. á verki Ólafar
Ingólfsdóttur, Maðurinn er alltaf
einn. Það er einmitt það verk okkar
sem íslenski dansflokkurinn hefur
sýnt í erlendu menningarborgun-
um, Avignon, Prag og Bologna.
Sama kvöldið verður Soy sýnt, það
er framlag Avignon, dansað af
franska dansflokknum Kubilai
Kahn Investigation.
Næsta sýning verður kvöldið eft-
ir á sama stað, þá sýna dansflokkar
frá Prag og Bergen. Tvö verk
verða sýnd frá Prag en frá Noregi
kemur verk fyrir einn dansara.
Þriðja sýningin samanstendur af
verki Katrínar Hall, NPK, sem ís-
lenski dansflokkurinn dansar, þá
sýnir dansflokkur frá Bologna verk
eftir Monicu Francia. Loks
frumsýnir íslenski dansflokkurinn
verkið Kippa eftir Cameron Cor-
bett við nýja tónlist eftir hljóm-
sveitina MÖM.
Ástæða er til hvetja fólk til að
sækja vel þessar sýningar, það er
sjaldan sem fólki hér gefst kostur á
að sjá erlendar danssýningar.“
Loks má geta þess að íslenski
dansflokkurinn mun í október sýna
barnadansverkið Auðunn og ís-
björninn eftir Nönnu Ólafsdóttur,
sem frumsýnt var á listahátíð í vor.
„í nóvember munum við svo sýna
verkið Diaghilev eftir Jochen Ul-
rich, sem við sýndum sl. vetur við
fádæma góðar viðtökur og urðum
að hætta sýningum á fyrir fullu
húsi. Fyrsta sýningin á Diaghilev
núna verður 12. nóvember," sagði
Katrín.
Ljósin
í norðri
UÓSIN í noröri er Ijósa-
hátíö sem hefst er
dimma tekur föstudag-
inn 3. nóvember og verö-
ur næstu þrjú kvöld eða
til og meö 6. nóvember.
„Þetta er hugsað sem hátíð sem höfða
á til sem flestra, efnið er miðað við
alla aldurshópa, einnig fyrir börn,“
sagði Hanna Styrmisdóttir,verkefna-
stjóri umræddrar ljósahátíðar.
„Sumt af því sem er á dagskrá er
ljósaverk sem standa eiga alla hátíð-
ina, en annað er tímabundið, svo sem
gjörningar og sýningar. Þar má t.d.
nefna fjölþjóðlegan bamakór,
skuggaleikhús á framhlið Háskóla ís-
lands. Danskur fjölleikahópur sýnir
listir sínar við Norræna húsið, m.a.
vinnur hann með lifandi eld. Margt
fleira verður á dagskrá. Listamenn
og ljósahönnuðir frá Bergen og Hels-
inki koma í heimsókn, en þetta er
samstarfsverkefni Reykjavíkur og
íyrrnefndra borga. Á laugardag-
skvöldið verður samstarfsverkefni
borganna þriggja á Kaffi Thomsen.
Frá Finnlandi kemur sýning sem er í
raun eins konar færanlegur stjörnu-
himinn sem settur verður upp í kjall-
ara Norræna hússins, þetta er ætlað
fyrir böm.
Ljósmyndari/Brynjar
Listahátíð
unga
fólksins
Unglisterárviss
Listahátíö unga
fólksins, haldin í
samvinnu viö Hitt
húsiö síöan 1992.
HÁTÍÐIN nær yfir tíu haust-
daga á menningarárinu og þar
gefur að líta fjölbreyttan úr-
drátt af þeirri listsköpun sem
ungt fólk hefur fengist við á ár-
inu. Opnunin verður í Ráðhús-
inu kl. 20 en á menningarborg-
arári ber svo við að Unglist
teygir anga sína út um landið til
Egilsstaða, Akureyrar og Vest-
fjarða með metnaðarfullri dag-
skrá á öllum stöðunum.
Dagskráin samanstendur af
djarfmannlegum og fmmlegum
viðburðum sem tengjast m.a.
tónlist, hönnun, tísku, Ijós-
myndun, myndlist, leiklist,
íþróttum svo að eitthvað sé
nefnt. Listasmiðjur, hæfileika-
keppnir og maraþon af ýmsu
tagi verða hluti af Unglist og
mun hátíðin endurspegla það
helsta sem hefur verið í gangi í
listsköpun ungs fólks. Megin-
markmið Unglistar verður sem
fyrr að allir menningarkimar
fái tækifæri á að koma listsköp-
un sinni á framfæri.