Morgunblaðið - 30.09.2000, Side 5
I-
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000 E 5
REYKJAVÍK - MENNINGARBORG EVRÓPU 2000
nýjasta
í þremur sölum Listasafnsins
verður opnuðl4. október yfirlitssýn-
ing á verkum brautryðjanda ís-
lenskrar nútímamyndlistar, Þórar-
ins B. Þorlákssonar, í tilefni þess að
á þessu ári er liðin ein öld frá því að
hann hélt sýningu á verkum sínum
hér á landi, fyrstur íslenskra lista-
manna.
Þórarinn B. Þorláksson stundaði
listnám í Kaupmannahöfn um alda-
mótin 1900 og kynntist þar hinum
rómantíska natúralisma sem hann
hélt tryggð við í listsköpun sinni.
Með rómantískri túlkun á íslenskri
náttúru lagði hann grunn að lands-
lagshefð í íslenskri málaralist í byrj-
un 20. aldar. Sýningin stendur til
26. nóvember.
Aðgangur: Fullorðnir kr. 400.
Eldri borgarar og öryrkjar kr. 250.
Hópar (10 eða fleiri) kr. 250 (á
mann.) 12 ára og yngri ókeypis.
Ókeypis fyrir hópa námsmanna í
fýlgd kennara. Miðvikudaga er að-
gangur ókeypis að sýningum Lista-
safns íslands.
Eldlist í i8
Jyrki Parentainen frá
Finnlandi sýnir listaverk í
i8frá 26.10.-26.11.
þar sem eldur brennur í
táknrænni merkingu.
„í ÞRETTÁN ár hefur eldurinn ver-
ið mitt helsta viðfangsefni og hráefni
í list minni,“ segir finnski listamað-
urinn Jyrki Parantainen en sýning á
verkum hans verður opnuð í Gallerí
i8 26. október. Parantainen hefur
unnið með eld á margvíslegan hátt,
haldið næturbrennur þar sem eldur
og brunnið grjót hefur leikið aðal-
hlutverk; hann hefur kveikt elda í yf-
irgefnum námagöngum og Ijós-
myndað brunann og leikið sér að
eldinum í orðsins fyllstu merkingu.
Á seinustu árum hefur eldlist Par-
entainens þróast í þá átt að skoða
uppruna eldsins, sagnir honum
tengdar, í list og goðsögnum. í nýj-
ustu verkunum hefur eldurinn tekið
á sig táknræna merkingu. og karl-
kyns og kvenkyns tákn takast á þar
sem eldur í alls kyns merkingum
gegnir lykilhlutverki. Hann hefur
vakið mikla athygli fyrir ljósmyndir
af brennandi byggingum en þeim
ber hann sjálfur eld að. í hans huga
er eldlistin ekkert minna en barátta
upp á líf og dauða, barátta sem
stundum vinnst og stundum ekki. í
list sinni storkar Parantainen í senn
sjálfum sér, áhorfendum, listinni
jafnvel og h'finu sjálfu.
Parentainen er í hópi þekktustu
listamanna Finnlands og hefur vakið
mikla athygli fyrir frumlega og
óvenjulega listsköpun sína.
UÓSMYND JYRKI PARANTAINEN AF ÍK-
VEIKJU í STIGAGANGI.
CLAUDETTE SCHREUDERS. MELANCHOLY 2000.
A.r.e.a.
2000
Á Listasafni Reykjavíkur
- Kjarvalsstööum veröur
sjónum beint aö sam-
tímalist ungu kynslóðar-
innar í lýöveldinu Suöur-
Afríku meö sýningu sem
þarveröuropnuö 17.
nóvember og stendur til
7. janúar á næsta ári.
í SUÐUR-AFRÍKU á sér nú stað
einhver merkasta tilraun aldarinnar
á sviði þjóðfélagsuppbyggingar sem
endurspeglast m.a. glöggt í mynd-
listinni. Þar sem áður ríkti skarpur
aðskilnaður kynþátta um áratuga
skeið og samhliða því stríðsástand
um margra ára tímabil takast nú ný-
ir straumar í myndlist á við samfélag
sem leitast við að þróast á jafnréttis-
grunni. List samtímans þar í landi
þarf því að takast á við langvarandi
afleiðingar nýlendustefnunnar, sögu
landsins og leit að nýju þjóðemi, ef
svo má segja. I samtímanum eru það
listamenn af ensku og hollensku
bergi brotnir sem þurfa að leitast við
að skilgreina sig sem Afríkumenn,
jafnvel þótt fjölskyldur þeirra hafi
búið í Suður-Afríku í margar kyn-
slóðir. Það sama gildir um mikilvægi
hvítra listamanna, sem fæddir eru í
Afríku, að fá Evrópubúa til að með-
taka þá sem Afríkubúa en ekki
Evrópubúa.
Á sýningunni gefur að líta verk
óhkra miðla; málverk, höggmyndir,
innsetningar og myndbandaverk.
Listamenn sem eiga verk á sýning-
unni hafa verið valdir af Gavin Youn-
ge, prófessor við listadeild háskólans
í Cape Town í Suður-Afríku og Eiríki
Þorlákssyni, forstöðumanni safns-
ins.
Gullskipið með 200 manns innanborðs
upp að suðurströnd íslands og strand-
aði á Skeiðarársandi. Drukknaði þar
I- margt manna, aðrir dóu á sandinum,
aðeins um sextíu manns komust af og
voru fluttir til bæja í Öræfum. Nokkrar
tilraunir hafa verið gerðar til að finna
flak skipsins en án árangurs.
Jón Hreggviðsson sté á land í Rott-
erdam 1684, hann var fátækur bóndi
úr Borgarfjarðarsýslu sem sakfelldur
hafði verið fyrir morð á böðlinum Sig-
urði Snorrasyni. Lýsing á Jóni var send
um land allt: f lægra lagi... fótagildur,
með litla hönd ... koldökkur á hárslit
... skeggstæði mikið... gráfölur í and-
liti, snareygður og harðlegur í fasi. Jón
komst frá Hollandi til Kaupmannahafn-
ar og gekk í danska herinn. Hann fékk
konungleg verndarbréf og sneri með
þau til íslands þar sem þau voru lesin
upp í lögréttu og var hann þaðan í frá
frjáls ferða sinna.
F
Island öðrum
augum litið
Samsýning í Listasafni
Reykjavíkur Hafnarhús-
inu á verkum íslenskra
og erlendra listamanna
þarsem ísland erí
brennipunkti. Sýningin
hefst 4. nóvember og
Iýkur7.janúar.
LÍTA erlendir lista- og fræðimenn
Island sömu augum og íslenskir
kollegar þeirra eða sjá þeir landið,
náttúruna, umhverfið og mannlífið
í öðru ljósi? Þessi spurning er
kveikjan að samsýningunni ísland
öðrum augum litið sem opnuð
verður í Listasafni Reykjavíkur -
Hafnarhúsi 4. nóvember og stend-
ur til 7. janúar á næsta ári. Ætlun-
in er að setja saman sýningu þar
sem fléttað er saman verkum
nokkurra íslenskra listamanna og
verkum erlendra listamanna sem
hafa sótt mikið hingað til lands
síðustu tvo áratugi og beina at-
hyglinni að sýn þeirra á ísland,
landfræðilega jafnt sem menning-
arlega. ísland er sérstakt og sér-
kennilegt fyrirbæri í augum hins
erlenda ferða- og listamanns.
Þetta viðurkenna íslendingar fús-
lega en reynist sjálfum erfitt að
koma auga á og skilgreina þessa
sérstöðu. Erlendir fræði- og lista-
menn hafa komið til landsins frá
ómunatíð til að skoða það og skil-
greina og það er fyrst í gegnum
þeirra myndverk sem sérstaða
landslags, náttúru landsins og
menningar fara að liggja í augum
uppi. Þannig má að mörgu leiti
þakka ýmsum erlendum gestum er
hingað hafa komið að við höfum
lært að meta þau listrænu gildi
sem liggja í landinu. Það sem
stendur Islendingum sjálfum einna
mest fyrir þrifum er sú nálægð
sem þeir eiga við að glíma í þessu
samhengi - glíman við að sjá og
lýsa sjálfum sér og sínu nánasta
umhverfi á raunsannan hátt án
þess að úr verði klisja.
Meðal listamanna sem eiga verk
á sýningunni eru Roni Horn,
Douwe Jan Bakker, Roman Signer
og Birgir Andrésson.
MYNDLIST
/HÖNNUN
6.10.-26.10. Echo. Mynd-
listarsýning Ingu Sólveigar
Friðjónsdóttur og Ingu Guð-
rúnar Hlöðversdóttur
www.reykjavik2000.is
14.10.-12.11. Þórarinn B.
Þorláksson. Listasafn íslands
www.listasafn.is
14.10. -12.11. Mót. íslensk
hönnun á 20. öld
www.reykj avik2000.is
14.10-19.11. Rauð. Rauð er
lokasýningin í trílógíu Nýlista-
safnsins: Hvít, blá og rauð.
Rauð er tileinkuð lífshættu-
legu lífi og pólitískri róttækni
myndlistarkonunnar Rósku.
Róska (1940-1996) tilheyrði
hópi evrópskra listamanna, an-
arkista og bóhema. Róska
lagði stund á myndlist og kvik-
myndagerð við listaháskóla í
Prag, París og Róm. Sýningin
í Nýlistasafninu mun draga
upp upp fjölbreytta og sprell-
lifandi mynd af kvikmynda-
gerðarkonunni, Ijósmyndaran-
um, málaranum,
dagbókarhöfundinum, gjörn-
inga- og lífslistakonunni
Rósku. Sýningarstjóri er
Hjálmar Sveinsson.
Sýningarnar þrjár eru þær
veglegustu sem Nýlistasafnið
hefur ráðist í. Þeim verður
fylgt eftir með sýningarskrám,
umræðum og viðburðum af
ýmsu tagi.
www.nylo.is
19.10 - 26.11. Sigurður
Guðmundsson.
Listasafn íslands
www.listasafn.is
26.10. - 26.11. Jyrki Par-
antainen í Gallerí i8
www.i8.is
4.11. Island öðrum augum
litið. Samsýning í Listasafni
Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Sýningunni lýkur 7.1. 2001.
www.reykjavik.is/listasafn
5.11 „Hærra til þín.“ Kristin
minni í norrænni myndlist eru
viðfangsefni tveggja sýninga í
Listasafni Sigurjóns og í Safni
Ásmundar Sveinssonar, þar
sem valin verk eftir norræna
myndlistarmenn tuttugustu al-
dar, bæði myndhöggvara og
málara, verða sýnd. Sérstak-
lega verður horft til þeirra
listamanna sem ekki hafa
fengist við hefðbundna kirkjul-
ist, en sem engu að síður hafa
fjallað um kristin og trúarleg 1
minni í verkum sínum. Á sýn-
ingunni verða meðal annars
verk eftir íslensku myndhögg-
varana Ásmund Sveinsson og
Sigurjón Ólafsson, færeyska
málarann Samuel Joensen-
Mikines og dansk myndhöggv-
arann Robert Jacobsen. Á sýn-
ingunni er því miðlað af sam-
eiginlegum menningararfi sem
gæti auðgað og eflt skilning
manna á norrænni sjálfsmynd.
Sýningin er samvinnuverk-
efni Listasafns Sigurjóns Ól-
afssonar og Ásmundarsafns og
er einnig liður í dagskrá
kristnihátíðar. Henni lýkur
14.1.2001.
www.reykjavik.is/listasafn
11.11. -1.12. Vignir Jó-
hannsson í Gallerí Sævars
Karls. Vignir Jóhannsson er
málari, grafíklistamaður,
myndhöggvai’i og leikmynda-
teiknari. Segja má að allar
þessar greinar sameinist í
helstu verkum hans, sem eru
yfirleitt litrík, uppfull af líf-
legri teikningu og með ákveðn-
um skírskotunum til hins þrí-
víða. Auk þess eru þau
dramatísk í besta skilningi;
gjarnan „sviðsetningar á hug-
leiðingum eða tilfinningum“.
www.reykjavik2000.is
17.11. A.R.E.A. 2000. Sam-
sýning í Listasafni Reykjavík-
ur - Kjarvalsstöðum á sam-
tímalist frá Suður-Afríku.
Sýningunni lýkur 7.1. 2001.
www.reykjavik.is/listasafn