Morgunblaðið - 30.09.2000, Blaðsíða 6
6 E LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
REYKJAVIK - MENNINGARBORG EVROPU
Ný verk eftir
Jón og Hjálmar
'\ tvennum tónleikum
Sinfóníuhljómsveitar ís-
landsíHáskólabíói 9.
nóvember og 7. desem-
ber veröa frumflutt ný
tónverk eftirJón Nordal
og Hjálmar H. Ragnars-
son.
Á TÓNLEIKUM Sinfóníunnar hinn
9. nóvember verður frumfluttur
klarinettkonsert eftir Jón Nordal.
Konsertinn er saminn fyrir Einar
Jóhannesson klarinettleikara og ein-
leikara á tónleikunum. Jón Nordal
er í hópi fremstu tónskálda Islend-
inga á þessari öld. Með honum hafa
Kammersveitin The Lon-
don Mozart Players held-
urtónleika í Salnum,
Kópavogi, mánudaginn
6. nóvember kl. 20.
KAMMERSVEITIN The London
Mozart Players samanstendur af að-
almeðlimum í The London Mozart
Players sem er elsta kammersveit
Bretlands. Kammersveitin kom fyrst
fram sem sérstök sveit árið 1985 í
Queen Elizabeth Hall í Lundúnum
og síðan hefur sveitin haldið tónleika
á tónlistarhátíðum og tónleikaröðum
um allt Bretland ásamt tónleikaferð-
um á Spáni, Norður-írlandi og ný-
lega eftirminnilega tónleika í Sara-
jevo og Banja Luca.
Kammersveitin kemur fram með
ýmsum hætti. í henni eru strengja-
leikarar, tré- og málmblástursleikar-
ar. Allir meðlimir sveitarinnar hafa
komið fram með henni og einnig sem
einleikarar um allt Bretland.
The London Mozart Players er
viðurkennd sem ein af bestu kamm-
ersveitum Evrópu og fræg fyrir ein-
stök gæði tónleika sinna, einkum
þegar um er að ræða háklassíska efn-
isskrá eftir tónskáld á borð við
Haydn, Mozart, Schubert og Beetho-
ven. Hljómsveitarstjórinn, Andrew
Parrott, er nýr stjórnandi The Lon-
borist straumar nútímatónlistar til
íslands en þó bera verk Jóns því
glöggt vitni að hann er engri einni
listastefnu bundinn en hlýðir sinni
eigin rödd. Einar Jóhannesson er 1.
klarinettuleikari Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands og hefur frumflutt
mörg verk eftir íslensk tónskáld.
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari.
Einleikari: Einar Jóhannesson. Efn-
isskrá: Jean Sibelius: Ránardætur
Jón Nordal: klarinettkonsert, frum-
flutningur Béla Bartók: Konsert
fyrir hljómsveit. Á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitarinnar hinn 7. des-
ember verður flutt nýtt verk eftir
Hjálmar H. Ragnarsson sem samið
er fyrir tilstuðlan menningarborgar-
innar. Hjálmar teflir fram andstæð-
um og beitir til fullnustu þeim
möguleikum sem hljómsveitin býr
don Mozart Players og James
Galway er aðalgestastjórnandi henn-
ar. Auk þess að koma fram í helstu
tónleikahúsum Bretlands og erlendis
hefur tónlist sveitarinnar verið
hljóðrituð með góðum árangri. Sveit-
in vinnur nú að útgáfu á Con-
temporaries of Mozart og heildarút-
gáfu á Hummel Piano Concertos
(með Howard Shelley) fyrir Chandos
Records og hefur gefið út þrjá geisla-
diska með James Galway hjá BMG.
Þeir sem koma fram á tónleikun-
um í salnum eru David Jurtiz 1. fiðla,
Maya Magub 2. fiðla, Judith Bus-
bridge 1. víóla, Julia Knight 2. víóla,
Sebastian Comberti 1. selló, Julia
Desbruslais 2. selló. Joseph Ognibe-
ne, fyrsti homleikari Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands, mun einnig leika með
kammersveitinni The London
Mozart Players og finnst sveitinni
það mjög ánægjulegt.
Tónlistin á tónleikum The London
Mozart Players er frá seinni hluta át-
jándu aldar fram á miðja tuttugustu
öld og eru Simple Symphony eftir
Benjamin Britten, The Interlude
fyrir strengjasextett úr óperunni
Capriccio eftir Richard Strauss,
Kvintett í E moll fyrir hom og
strengjasveit eftir W.A. Mozart,
Sextet No.l í B moll, Op. 18 eftir J.
Brahms.
Tónleikarnir eru á vegum breska
sendiráðsins í samvinnu við M- 2000.
HJÁLMAR H. RAGNARSSON.
yfir þegar magna á upp átök og
spennu. I bakgranninum býr sú við-
leitni höfundarins að leita samsvör-
unar milli ímyndunarheima tónlist-
arinnar og þess sem við
raunverulega sjáum og heyrum.
Tónverkið er smækkuð mynd af
stærri heimi og lögmálin era algild.
Inntakið þekkjum við, við bara skilj-
Þriöji hluti tónleikaraðar
Tónskáldafélags íslands
í samvinnu viö Reykjavík
- menningarborg Evrópu
áriö 2000fersenn í
hönd. Yfirskrift hennar
er íslensk tónlist frá lok-
um 20. aldar og verður
þar reynt að gefa nokkra
mynd af því sem nýjast
er úrtónsmiöju ís-
lenskra tónskálda.
í ÞESSUM þriðja hluta verður lögð
sérstök áhersla á ungt tónlistarfólk,
tónskáld og flytjendur sem og nýjar
aðferðir til tónsköpunar með tilkomu
tækninýjunga á sviði raf- og tölvu-
tónlistar. Hátíðin hefst 18. október
kl. 20 í Salnum sem hluti af opnun
ART2000 alþjóðlegu raf- og tölvu-
tónlistarhátíðarinnar. Þar verða
flutt verk eftir íslenska brautryðj-
endur á svið raf- og tölvutónlistar.
Aðrir raf- og tölvutónleikar verða
síðan haldnir í Salnum 22. október kl.
20. Hinn 4. nóvember koma sem
gestir á hátíðina Agon kammersveit-
in frá Prag, þeir munu flytja ný
evrópsk tónverk, 8. nóvember heldur
Peter Maté píanótónleika með ís-
lenskum verkum og verða hvorir-
tveggju þessara tónleika í Salnum og
hefjast kl. 20.
JÓN NORDAL.
um það ekki. Hljómsveitarstjóri:
Jerzy Maksymiuk. Einleikari: Evel-
yn Glennie. Efnisskrá: Hjálmar H.
Ragnarsson: Hljómsveitarverk. Mil-
enko Zivkovic: Marimbukonsert.
Antonio Vivaldi: Blokkflautukonsert
umskrifaður f. víbrafón og hljóm-
sveit. Frank Zappa: EnVelopes og
Strictly Genteel.
11. nóvember heldur CAPUT-
flokkurinn tónleika með nýjum ís-
lenskum kammerverkum í Lang-
holtskirkju kl. 17. Klukkan 14 sama
dag verður börnum boðið upp á mjög
sérstakt hljóðleikhús, POY, í Gerðu-
bergi sem er farandsýning frá Nor-
egi. Aðra gesti fær Tónskáldafélagið
til sín 12. nóvember en það er kam-
merhópurinn Music Attuale frá ítal-
íu, sem munu kynna nýja ítalska tón-
list og auk þess framflytja íslensk
tónverk. Þessir tónleikar verða í
Salnum og hefjast kl. 20 og á sama
stað hinn 14. nóvember munu Guð-
rún Birgisdóttir, Martial Nardau og
Pétur Jónasson flytja og frumflytja
það nýjasta í íslenskri tónlist sem
samið hefur verið fyrir flautur og gít-
ar.
Helgina þar á eftir munu nokkrir
tugir barna á höfuðborgasvæðinu
flytja stóran hluta af þeirri tónlist
sem samin hefur verið fyrir barna-
kóra á íslandi síðastliðin 20 ár. Einar
Jóhannesson klarinettuleikari,
Richard Tarkowsky sellóleikari og
Öm Magnússon píanóleikari verða
með túnleika hinn 20. nóvember í
Salnum kl. 20. Að lokum mun
Hamrahlíðarkórinn undir stjórn
Þorgerðar Ingólfsdóttur syngja út
þessa hátíð og þar með þetta yfirlit
íslenskrar tónlistar á síðustu öld.
Hamrahlíðarkórinn hefur tekið þátt í
öllum þremur hátíðarhlutunum sem
undirstrikar þann þátt sem hann
hefur átt í að kynna íslenska kórtón-
list og vekja almennt áhuga á ís-
lenskri tónlist innan lands sem utan.
KVIKMYNDIR
/ FJÖLMIÐLAR
16.11.-19.11. íslendingasög-
urnar og vestrinn með viðkomu
hjá Hammett og Chandler. Hug-
myndalegur og listrænn skyld-
leiki með íslendingasögum og
vestrum er mun meiri en al-
mennt er trúað og til að kanna
þessi tengsl frekar stendur
Kvikmyndahátíð í Reykjavík í
samvinnu við M-2000 og Kvik-
myndasafn Islands, fyrir kvik-
myndasýningum og málþingi í
Háskólabíói. Fyiirlestrar og
sýningar á á ýmsum þekktustu
vestram og „film noir kvik-
myndasögunnar munu fara fram
á kvöldin. Málþingið verður
haldið laugardaginn 18.11. og
munu leikir og lærðir halda er-
indi og taka þátt í pallborðsum-
ræðum. Von er á hópi erlendra
fræðimanna sem hafa kynnt sér
þessi mál sérstaklega.
Málþingið er opið almenningi
og aðgangur ókeypis.
www.reykjavik2000.is
26.11. „Þá verður líklega
farin af mér feimni. Rödd kon-
unnar í landslaginu Reykjavík er
þema tilraunar til að lýsa þvi
hvemig konan nær máli í
Reykjavík og rödd hennar
hljómai- og mótar borgina á
þeirri öld sem nú er að h'ða. Um
er að ræða 40 mínútna leikna
heimildamynd sem framflutt
verður samtímis í Ríkissjónvarp-
inu og Rás 1. Myndin fjallar um
tvær konur og baráttu konunnar
í Reykjavík á íyrri hluta 20. aldar
við að ná máli og vopnum sínum.
Konurnar sem sagt er frá eru
Málfríður Einarsdóttir og Elka
Bjömsdóttir. Að verkinu standa
María Kristjánsdóttir, leikstjóri
Sigurður Sverrir Pálsson kvik-
myndagerðarmaður og Bjarni
Jónsson dramatúrg. www.ruv.is
8.12. Óvæntir bólfélagar. Á
stefnumóti síðustu bólfélaga árs-
ins verður áherslan lögð á kvik-
myndir. Friðrik Þór Friðriksson
og Didda munu vinna saman
stuttmynd sem sýnd verður í
Tjai-narbíói.
Reykjavík í öðru ljósi. Hrafn
Gunnlaugsson hefur unnið mynd
um Reykjavík þar sem hann
spyi' spuminga og veltir upp
skemmtilegum möguleikum er
snerta þróun borgarinnar: Hvað
réði því að Reykjavík lítur út
eins og hún birtist okkur nú við
aldamótin? Myndin skoðar einn-
ig skipulagshugmyndir sem
aldrei urðu að veraleika, fram-
tíðarsýnir manna á borð við Ein-
ai- Benediktsson, Kjarval og
Guðjón Samúelsson. Reykjavik í
öðra ljósi verður frumsýnd í
Ráðhúsi Reykjavíkur á milli jóla
og nýárs og í Sjónvarpinu um
áramótin.
www.reykjavik2000.is
Ein fremsta
kammersveit
heims
Frumflytja ný
íslensk tónverk
Blind ást,
botnlaust hatur
Morgunblaöiö/Þorkell
Ný leikgerö gríska harmleiksins
Medeu eftir Ingu Lísu Middle-
ton, Þóreyju Sigþórsdótturog
Hilmar Oddsson byggö á sam-
nefndum harmleik eftir Evrí-
pídes veröur frumsýnd í lönó
18. nóvember.
MEDEA er magnþrunginn fjölskylduharm-
leikur um blinda ást, botnlaust hatur, svik,
afbrýði, hefnd og morð.
Sagan er tímalaus, uppgjör og átök hjóna,
sem vekur spurningar um það hversu langt
er réttlætanlegt að ganga til að hefna fyrir
svívirta ást.
í hatrömmu stríði kynjanna verða börnin
jafnt valdatæki sem fórnarlömb.
Að sögn aðstandenda sýningarinnar er hér
á ferðinni óvenjuleg tilraun til að færa forn-
an, sígildan harmleik til nútíðar. Hópur lista-
manna úr ólíkum áttum sameinar krafta sína
í nýstárlegri glímu við leikhús í ljósi marg-
miðlunar. Leikurinn fer fram á sviði, á skjám
og á hljóðrás og öll hlutverkin eru leikin af
tveimur leikuram, manni og konu.
Leikarar eru Þórey Sigþórsdóttir og Vald-
imar Örn Flygenring. Leikstjóri er Hilmar
Oddsson. Utlitshönnun sér Sonný Þor-
björnsdóttir um. Tónlist semur Jonathan
Cooper Kórar: Hulda Björk Garðarsdóttir
og Þórey Sigþórsdóttir.
Lýsing Alfreð Sturla Böðvarsson. Radd-
þjálfun: Nadine George. Sviðshreyfingar og
aðstoðarleikstjórn: Ólöf Ingólfsdóttir. Leik-
gerð: Inga Lísa Middleton, Þórey Sigþórs-
dóttir og Hilmar Oddsson.
Þýðandi er Helgi Hálfdanarson. Verkefnið
er samvinnuverkefni Leikfélagsins Fljúg-
ÞÓREY SIGÞÓRSDÓTTIR ER MEDEA.
andi fiska, Leikfélags íslands, Þjóðleikhúss-
ins og Stöðvar 2. Verkefnið er styrkt af leik-
listarráði íslands og Evrópusambandinu -
menningaráætluninni Culture 2000 og
Reykjavík - menningarborg Evrópu árið
2000.