Morgunblaðið - 30.09.2000, Síða 8
J
E LAUGARDAGUR 30. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
REYKJAVÍK- MENNINGARBORG EVRÓPU 2000
Heimskautalöndin unaðslegu
ALÞJÓÐLEGIR
VIÐBURÐIR
1.10. Lífið við sjóinn
Samsýning þriggja menn-
ingarborga, Reykjavíkur,
Bergen og Santiago de Com-
postela. Sýningin fjallai' um
sameiginlegan menningararf
og líf og störf við Norð-
ur-Atlantshafið. Sýningin var
haldin í Hafnarhúsinu sl. vor
en henni lýkur í Compostela
31.01.2001.
2.10. -6.10. íslandsdagar í E1
Ferrol á Spáni. Fjölbreytt dag-
skrá í Galisíu til kynningar á ís-
lenskri menningu. www,-
reykjavik2000.is
10.10-25.10. Steinunn Sig-
urðardóttir rithöfundur tekur
þátt í International Writers
Festival og kynnir verk sín í
Calgary, Winnipeg, Gimli og
víðar í Kanada www.ieel-
and2000.org
13.10. -14.10. Einar Már
Guðmundsson rithöfundur tek-
ur þátt í International Writers
Festival í Winnipeg, Gimli og
víðar í Kanada. www.ieel-
and2000.org
22.10. Og höfnin tekur þeim
opnum örmum Ljósmynda- og
skjalasýning í Gimli í Kanada
þar sem Ljósmyndasafn
Reykjavíkur sýnir panorama-
ljósmyndir eftir Magnús Ólafs-
son og Ólaf Magnússon af höfn-
inni fyrstu áratugi 20. aldar.
29.10. -12.11. Júhus Barna-
leiksýning á vegum Islenska
leikhússins og Hafnarfjarðar-
leikhússins á ON leiklistarhá-
tíðinni Vantaa, Finnlandi.
Móður-
ímyndin
í íslenskum
Ijósmyndum
Hinn 11. nóvemberverð-
ursýningin Móöurímynd-
in opnuð í húsakynnum
Ljósmyndasafns Reykja-
víkurí Borgartúni 1.
Á ÞESSARI áhugaverðu sýningu
birtist sögulegt yfirlit yfir ímynd
móðurinnar í íslenskri Ijósmynda-
sögu. Ljósmyndirnar eru ýmist í upp-
runalegri prentun eða sam-
tímaprentun og af þeim má margt
sjá um samfélagslegar forsendur
móðurhlutverksins hér á landi,
reynslu kvenna af móðurhlutverkinu
og þá ímynd sem jafnt atvinnumenn
og áhugaljósmyndarar hafa skapað
þeim. í tengslum við sýninguna
verður gefin út vegleg 192 bls. bók
eftir dr. Önnudís Rúdolfsdóttur, auk
þess sem bókin verður prýdd fjölda
Ijósmynda. Það er Ljósmyndasafn
Reykjavíkur sem stendur að verk-
efninu. Samstarfsaðilar eru Hans
'’-tsrsen hf., Phsrmaco hf. og
KOPAR-ÍNÚÍTAR SPENNA VEIÐIBOGA.
Sýningin Heimskauts-
löndin unaðslegu verður
opnuð 5. nóvemberí
Listasafni Akureyrar.
„ÞAÐ sem er skemmtilegt er að á
sama tíma verður hérna stórt þing:
Rannsóknarþing norðursins, þar
sem verða margir frammámenn í
vísindum og stjórnmálum sem
snerta málefni norðurslóða," sagði
Jónas Gunnar Allansson hjá Stofnun
Kynslóðir mætast 2000
erverkefni sem byggist
á samvinnu 14 félags-
og þjónustumiðstöðva í
Reykjavík og 14 grunn-
skóla í Reykjavík.
VERKEFNIÐ er spunaverkefni
hverrar einingar fyrir sig og spun-
inn er þegar hafinn! Þetta verður
spennandi spuni æsku og elli lát-
laust alla haustönnina fram að
Uppskeruhátíðinni laugardaginn
25. nóvember.
Markmiðið er að leiða saman
yngstu og elstu kynslóðina, alla
ijölskylduna, í takt við nýja tíma,
nýjar aðstæður og nýja tækni.
Spunanum lýkur með Uppskeru-
hátíð fyrir alla fjölskylduna laug-
ardaginn 25. nóvember. Þann dag
milli kl. 14 og 17 munu áðurnefnd-
ar 14 félags- og þjónustumiðstöðv-
ar eldra fólks í mismunandi hverf-
um borgarinnar iða af fjöri,
fræðslu og fjölbreyttum menning-
arviðburðum sem hinir eldri og
yngri hafa skapað í sameiningu.
Opnunarhátíð verður í Miðbæjar-
barnaskólanum og hefst hún kl. 13.
Allmargir hófu þegar samstarf
sl. vor með gagnkvæmum heim-
sóknum og kynningarferðum. Nú
er hið raunverulega samstarf og
samvera að hefjast í öllum 14 ein-
ingunum. Hver og ein eining velur
sér verkefni og aðferðir til sam-
veru og samvinnu eftir efnum,
ástæðum, sameiginlegum vilja og
áhuga þátttakenda.
I vikunni eftir Uppskeruhátíð-
irnar er áætlað að félags- og
þjónustumiðstöðvar eldra fólks
hafi opið hús áfram fyrir alla svo
fleiri gefist kostur á m.a. að sjá
þær sýningar sem verða settar
upp af þessu tilefni og jafnframt
kynna starfsemi sína á breyttum
tímum.
Að sögn Asdísar Skúladóttur
verkefnisstjóra má lauslega gera
ráð fyrir að um sé að ræða allt að
2000 manns sem hafi þetta verk-
Vilhjálms Stefánssonar á Akureyri.
„Á sýningunni er mikil áhersla lögð á
að setja fram á listrænan hátt arf-
leifð Vilhjálms Stefánsson og jafn-
framt kynna málefni samtímans, svo
sem mannvist á norðurslóðum, nýt-
ingu auðlinda, sjálfbæra þróun og líf-
vænleika samfélaga. Rauði þráður-
inn í sýningunni er þó áherslan á
fólkið, ekki bara hina hrikalegu nátt-
úru. Sumt af efni sýningarinnar hef-
ur aldrei áður verið birt opinberlega,
svo sem dagbækur Vilhjálms Ste-
fánssonar og ýmsar ljósmyndir sem
teknar voru í leiðöngrum hans. Þar á
meðal eru mjög fallegar handmálað-
ar litskyggnur sem eru hrein lista-
verk. Við reynum að byggja sýning-
una þannig upp að gestirnir séu
þátttakendur í henni. Samhliða sýn-
ingunni verður opnaður sérstakur
Vilhjálmsvefur: www.svs.is/stefans-
son.htm, þar sem hægt verður að
fræðast um ævi og störf Vilhjálms
Stefánssonar. Sýning þessi er sam-
starfsverkefni Stofnunar Vilhjálms
Stefánssonar og Daartmouth Col-
lege í samvinnu við Listasafn Akur-
eyrar með stuðningi M-2000 og Ak-
ureyrarbæjar."
SAGA/
MENNINGARARFUR
11.11.-3.12. Móðirin í íslensk-
um ljósmyndum www.reykja-
vik.is/ljosmyndasafn
16.11. Frá huga til huga.
Sýning í Þjóðarbókhlöðu.
www.bok.hi.is
19.11. -27.11. Jólamerki
Thorvaldsensfélagsins
www.reykjavik2000.is
8.12,- 21.12. Afmælishátíð
Ríkisútvarpsins
www.ruv.is
23.10. Fræðasetur opnað í
Gróttu Samstarfsverkefni
Seltjarnarness og M-2000 er
opnun fræðaseturs í Gróttu.
Framtakinu er ætlað að efla
rannsóknir og kennslu í nátt-
úru- og umhverfisfræðum. Fyr-
irhugað er að halda ýmsa fundi
og námskeið í Fræðasetrinu,
einkum í tengslum við Staðar-
dagsskrá 21.www:seltjarnar-
nes.is
5.11.-17.12. Heimsskauts-
löndin unaðslegu
Annað af tveimur samstarfs-
verkefnum Akureyrarbæjar og
M-2000 er farandsýning í
Listasafni Akureyrar um arf-
leifð Vilhjálms Stefánsonar og
norðurslóðir samtímans. http://
www.svs.is/stefansson.htm.
efni á sinni könnu á einhvern hátt
þessa dagana, ungir sem aldnir,
miðaldra sem unglingar! „Það er
mikið um að vera víðsvegar um
borgina! Samvera, samvinna og
samtal," segir Ásdís.
Sem dæmi um fjölbreytt verk-
efni nefnir hún fjölskyldualbúmið
mitt - núna þá - framtíð. Sama
nýja Reykjavík - framtíð. Ferm-
ingin mín - fermingin þín. Bestu
skammarstrikin fyrr og nú þín/mín
- segðu engum! Jólin koma - sam-
vinna um jólakort/heillakveðjur ár-
ið 2000 - kertin skreytt -jólin mín/
þín. Sýning á gömlum jólakortum.
Hinn endalausi „kynslóðaormur"
prjónaður eða krílaður - skreyttur
pallíettum og ýmsu pírumpári úr
skúffum og skotum. Tölvan tæknin
og framtíðin. Við tökum lagið -
samvinna um stofnun kór ungra og
aldinna. Öskjuhlíðin - „perla“
Reykjavíkur. Kústarnir teknir
fram - hrein torg - fögur borg -
frumlegasti kústurinn! Öskudagur-
inn minn - þátíð - nútíð - sauma
og bródera öskupoka m.m. Dans-
inn dunar - ungir og aldnir stofna
dansflokk. Samspil söng/píanó.
Stóð ég úti í tunglsljósi - Elliðaár-
dalurinn - þjóðtrú - þjóðsögur.
Þúsaldarblómið - bútasaumur.
Sameiginlegir tímar - samvera-
spjall áhugamál mín/þín áhyggjur
mínar/ þínar. jólin koma og kertin
skreytt jólin mín/þín. Ljóð - Þús-
aidarljóðin. Skerum út skrautið -
ýsubein og tré. Uppáhaldsbókin
mín - Gi'ímsævintýri Lína Lang-
sokkur og Bert. Samspil harmón-
ikka/fiðla. Lagt á borð - þjóðhátta-
sýning fyrr og nú. Bingó - spilað
teflt-farið í leiki, sippað- húlahúla
- hagyrðingakeppni - langavit-
leysa - Ólsen Olsen (ekki Olsen
bræður heldur spilið) - boccia -
línudans - laufabrauðsbakstur -
gluggað í Harry Potter og Hjalta
litla o.fl. o.fl.
Framkvæmdanefnd skipa Anna
Þrúður Þorkelsdóttir frá Félags-
þjónustu Reykjavíkur, Guðrún
Þórsdóttir frá Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur og Ásdís Skúladóttir
sem jafnframt er forsvarsmaður
verkefnisins.
Stefnumót kynslóðanna
KYNSLÓÐIR MÆTAST - MYND