Morgunblaðið - 10.10.2000, Side 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK
■ ÞAÐ voru mun færrí áhorfendur
á leiknum í Teplice, en reiknað ver
með. Rætt var um að það yrði upp-
selt, 19 þús. áhorfendur. Rigning
kom í veg fyrir það, áhorfendurnir
urðu ekki nema á sjöunda þúsund.
■ RÚNAR Kristinsson lék sinn 85
landsleik - gegn Tékkum í Teplice.
■ HELGI Kolviðsson lék sinn 25
landsleik og fær hann gullúr KSÍ
fyrir þann tímamótaleik.
■ BIRKIR Kristinsson mun leika
sinn 70 landsleik gegn Norður-ír-
um.
NORÐUR-ÍRAR, andstæðingar
íslendinga í undankeppni HM
annað kvöld, gerðu 1:1 jafntefli
á heimavelli sínum í Belfast
gegn Dönum. N-írar og Danir
eru því komnir með 4 stig í riðl-
inum en íslendingar og Möltu-
menn sitja á botni þriðja riðils-
ins án stiga.
David Healy kom N-írum yfir á
38. mínútu en Peter
Schmeichel, markvörður Dana, átti
ekki möguleika á að verja glæsilegt
skot Healys af um 25 metra færi.
Healy er á mála hjá enska meistara-
liðinu Manchester United og markið
sem hann skoraði var hans fimmta í
síðustu sex landsleikjum N-Ira.
Heimamenn voru sterkir í föstu
leikatriðum sínum og í tvígang í fyrri
hálfleik munaði minnstu að Gerry
Taggart bætti við öðru marki þegar
hann fékk fría skalla að marki Dana.
í síðari hálfleik komu Danir sterk-
ari til leiks og á 59. mínútu jafnaði
Dennis Rommendahl metin. N-írar
mótmæltu markinu kröftuglega og
vildu meina að Rommendahl hefði
verið kolrangstæður en dómararnir
gerðu enga athugasemd og dæmdu
markið gott og gilt. N-írar áttu í
fullu tré við dönsku leikmennina og
áttu svo sannarlega skilið annað stig-
ið í leiknum.
Ólöglegt mark
„Ég trúði varla mínum eigin aug-
um þegar dómarinn flautaði markið
á. Þetta var ólöglegt mark enda leik-
maðurinn rúma tvo metra fyrir inn-
an vöm okkar þegar hann fékk
knöttinn. Ég get ekki annað en hrós-
að mínum mönnum fyrir leikinn.
Þeir stóðu sig vel og mæta fullir
sjálfstrausts í leikinn gegn íslend-
ingum á miðvikudaginn," sagði Sam-
my Mclllroy þjálfari N-Ira eftir leik-
inn.
Morten Olsen, landsliðsþjálfari
Dana, sagði að sínir menn hefðu ekki
átt skilið meira en eitt stig út úr
þessum leik.
„Það er gott að skapa sér 6-7
marktækifæri en að skora aðeins eitt
mark úr þeim er ekki gott. Við þurft-
um nauðsynlega á þremur stigum að
halda en ég get ekki sagt að við hefð-
um átt þau skilið,“ sagði Olsen.
Þrjú skailamörk Búlgara
Búlgarir áttu ekki í teljandi vand-
ræðum með að innbyrða þrjú stig
gegn Möltubúum. Lokatölur urðu
3:0 og komu öll mörk heimamanna
með skalla. Það tók Búlgara 39 mín-
útur að brjóta á bak aftur varnarmúr
Möltumanna.
Morgunblaðið/Kristinn
Heiðar Helguson á hér skot að marki, spyrnir knettinum fram hjá Karel Rada, en yfir markið.
Kennslustund
í Teplice
ÞAÐ voru ekki upplitsdjarfir leikmenn íslenska landsliðsins, sem
yfirgáfu leikvöllinn í Teplice fyrir framan hátt í sjö þúsund áhorfend-
ur. Tékkneskir listamenn höfðu tekið þá í kennslustund og fagnað
sigri, 4:0. Þetta var mesti ósigur íslands í þrjú ár, eða síðan leikur
gegn Rúmeníu tapaðist með sama mun i Búkarest. íslendingar áttu
aldrei möguleika gegn Tékkum, sem réðu lögum og lofum á vellin-
um.
Jozef Chovanec, þjálfari Tékka,
var ánægður með sína menn að
leik loknum - sagði að þeir hefðu
_____________ leikið mjög vel í fyrri
•■■■ hálfleik, en gefið síð-
SigmundurÓ. an eftir í seinni hálf-
Steinarsson ]ejk. Þeir hafi gert út
um leikinn í iym
hálfleiknum. Þjála-farinn getur svo
sannarlega verið ánægður með sína
leikmenn. Þeir byrjuðu leikinn af
miklum krafti og þeir hefðu hæglega
getað skorað tvö mörk á fyrstu
tveimúr mín. leiksins. Birkir Krist-
insson varði til dæmis meistaralega
skot frá Libor Sionko á annarri mín-
útu.
Það var svo á 17. mín. að Birkir
varð að sjá á eftir knettinum í netið -
markið var ódýrt. Jan Köller skallaði
knöttinn niður í hornið af 12 m færi.
Islensku leikmennimir reyndu að
komast inn í leikinn, en þeir áttu við
ofurefli að etja. Þegar íslenskur leik-
maður var með knöttinn, voru yfir-
leitt komnir tveir til fjórir leikmenn
Tékklands að honum. Tékkarnir
voru fljótir, ákveðnir og leiknir. Þeir
létu knöttinn ganga hratt og ráku
þeir Islendinga aftur í varnarstöðu.
Köller, sem hefur skorað fimmtán
mörk í 20 landsleikjum, bætti öðru
marki við með skalla á 40 mín., eftir
honspyrnu Karel Poborský. Það
mark var einnig ódýrt og einnig
þriðja markið sem fyrirliðinn Pavel
Nedvéd skoraði með skoti utan úr
teig, eftir varnarmistök á 43 mín. Þá
má segja að tjaldið hafi fallið - úrslit-
in voru ráðin.
Birkir varði vítaspyrnu
Seinni hálfleikurinn einkenndist
af spennufalli. Tékkar fóru sér að
engu óðslega, enda þurfti þeir þess
ekki - þeir voru búnir að brjóta ís-
lenska liðið á bak aftur. Birkir Krist-
insson gerði sér lítið fyrir og varði
vítaspyrnu frá Jan Köller, en hann
náði ekki að verja aukaspyrnu frá
Nedvéd undir lok leiksins - knöttur-
inn skall á stönginni neðarlega og
þaðan í netið.
Náðu ekki upp liðsheild
Leikur íslenska liðsins olli miklum
vonbrigðum. Vörnin var óörugg, mið-
vallarspil sást varla og þar af leiðandi
sköpuðust fá sóknarfæri. Það vantaði
allan neista í leik íslenska liðsins -
ekki náðist upp liðsheild, sem hefur
verið sterkasta vopn íslands. Maður
hafði það á tilfinningunni að nokkrir
leikmenn vætu ekki tilbúnir í slaginn.
Liðsuppstillingin í fyrri háfleik gekk
ekki upp. Hermann Hreiðarsson fann
sig ekki í stöðu á vinstri vænginum og
Heiðar Helguson á þeim hægri. Rún-
ar Kristinsson náði sér aldrei á strik,
enda ráku Tékkar Rúnar og Helga
Kolviðsson aftur í varnarhlutverk.
Leikenn Islands voru oft sem áhorf-
endur - stóðu og dáðust að leikni
Tékka.
Breytingar voru gerðar á leik-
skipulagi íslenska liðsins í seinni hálf-
leik og þá var íslenska liðið að leika 4-
4-2, sem leikmenn þekkja best. Her-
mann fór inn á miðjuna í stað Péturs
Hafliða Marteinssonar, sem meidd-
ist. Tryggvi Guðmundsson kom inná
fyrir Pétur og fór á vinstri vænginn.
Þórður Guðjónsson tók stöðu Rík-
harðs Daðasonar, sem meiddist.
Hann fór á hægri vænginn og Heiðar
inn á miðjuna í hlutverk Ríkharðs.
Leikur liðsins skánaði, en það var
þó engin tónn í leik liðsins. Gott dæmi
um það hvað leikurinn var erfiður
fyrir Island, var þegar Heiðar sótti
einn að marki Tékka, að fimm leik-
menn Tékklands voru í kringum
hann. Vön íslenska liðsins hefur oft-
ar verið betri _ leikmenn ákveðnari
og yfirvegaðri. Það getur haft sitt að
segja að Auðun Helgason, Pétur
Hafliði Marteinsson og Eyjólfur
Sverrisson hafa lítið leikið á undan-
förnu. Auðun og Pétur hafa verið
meiddir. Sigurður Örn Jónsson, sem
lék sem vinstri
bakvörður, leikur stöðu hægri
bakvarðar og fyrir framan hann var
Hermann Hreiðarsson í nýju hlut-
verki. Það var gerð tilraun til að
stöðva Tékka, en eftir á að hyggja
hugsar maður _ var rétt að vera með
tilraunastarfsemi gegn geysilega
sterku liði Tékka á þeirra heima-
velli?
Hefði verið réttar að láta Her-
mann elta Jan Koller? Þá er einni
spumingu ósvarað. Hvað með Guðna
Bergsson, fyrrverandi fyrirliða
landsliðsins. Hefður íslenskt landslið
efni á að láta svo reyndan og yfir-
vegaðan leikmann vera fyrir utan
landsliðið.
Guðni hefur verið að leika vel með
Bolton í vetur, eins og hann gerði
keppnistímabilið á undan. Höfum við
virkilega efni á að nýta ekki krafta
hans?
Leikurinn í Teplice var engin
skemmtun fyrh- Islendinga. Allir
leikmenn íslenska liðsins geta gert
miklu betur en þeir gerðu - þeir léku
allir langt undir getu.
O I
Leikskipulag: 4-4-2
Pavel Srnicek
Pavel Horváth
(Tomás Rosický 79.)
Undankeppni HM, 3. riðill
annar leikur íslands.
FK Teplice
laugardginn 7. okt., 2000
Leikskipulag: 4-5-1
Birkir Kristinsson
Auðun Helgason___________
Pétur Hafliði Marteinsson
Milan Fukal Rigning, hægur andvari (Tryggvi Guðmundsson 46.)
Karel Rada af norðri og blautur völlur Eyjólfur Sverrisson
Tomás Repka Anorfendur: b.4oJ Sigurður Örn Jénsson
Karel Poborský Dómari: Heiðar Heiguson
(Radoslav Látal 68.) Kyros Vassaros, Helgi Kolviðsson
Radek Bejbl Grikklandi. Rúnar Kristinsson
Pavei Nedvéd Aðstoðardómarar: (Arnar Grétarsson 84.)
Roman Týce Dimitions Groutsis Eiður Smári Guðjohnsen
Jan Koller Skotámark: 19-7 RikharðurDaðason
(Vratislav Lokvenc 75.) Hornspyrnur: 6 - 0 (Þórður Guðjénsson 46.)
Libor Sionko Rangstöður: 1 - 2
1:0 (17.) Jan Koller skallaði I netið af 12 metra færi eftir sendingu Pavel
Hornváth frá hægri.
2:0 (40.) Karel Poborský tók hornspyrnu frá hægri og enn náði Jan Koller
að skalla í netið.
3:0 (43.) Eftir mistök í vörn íslands náði Pavel Nedvéd góðu skoti úr miðjum
vítateignum hægra metin og i netið.
4:0 (90.) Tékkar fengu aukaspyrnu um 25 metra frá marki og Pavel Nedvéd
skoraði beint úr spyrnunni, neðst í hægra hornið.
Gul spjöld: Helgi Kolviðsson, íslandi (24.) fyrir brot
Eyjólfur Sverrisson, íslandi (65.) fyrir brot
Auðun Helgason, Islandi (68.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin.