Morgunblaðið - 10.10.2000, Side 3
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 B 3
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Kristinn
Dæmigerð mynd, sem sýnir yf irburði Tékka. Eiður Smári Guðjohnsen liggur á vellinum, með þrjá Tékka fyrir framan sig. Fyrirliðinn Pavel Nedvéd er að taka knöttinn.
Rúnar Kristinsson segir að leikmenn íslands hafi orðið hræddir ÍTeplice
Reiknaði ekki með Tékk-
um svona rosalega góðum
FYRIR leikinn gegn Tékkum í Teplice var iagt upp með það að það
ætti að létta fyrir Rúnari Kristinssyni á miðjunni, þannig að hann
fengi pláss til að athafna sig. Leikurinn þróaðist á annan hátt. ís-
lensku leikmennirnir fundu ekki taktinn og Rúnar fékk aldrei tæki-
færi til að sýna í hvað honum býr. „Það er rétt, við náðum okkur ekki
á strik. Tékkar byrjuðu með látum og við urðum hræddir - vorum
kannski ekki tiibúnir í þessi átök. Við vissum út í hvað við værum að
fara, en ég reiknaði ekki með Tékkum svona rosalega góðum,“
sagði Rúnar.
Tékkarnir voru einfaldlega miklu
betri en við héldum. Við ætluð-
um ekki að bera neina virðingu fyrir
Tékkunum - reyna
■■■■■■■ okkar besta og
SigmundurÓ. reyna að gera hluti
Steinarsson sem ]agt var fyrir að
við gerðum. Það var
mjög erfitt. Tékkamir voru mjög
hreyfanlegir og voru að stinga sér
mjög mikið inn í vörnina hjá okkur.
Við lentum í miklum vandræðum
strax í byrjun. Það gerði það að
verkum að leikmenn fóru að bakka
aftur - lengra en þeir eiga að gera og
verða hræddir. Það auðveldaði
Tékkum leiðina upp að vítateig okk-
ar. Þegar þeir voru komnir það ná-
lægt þá áttu þeir auðvelt með að gefa
knöttinn á Jan Köller. Það skapaðist
alltaf stórhætta er boltinn var ná-
lægt honum. Köller er ótrúlegur -
bæði stór og sterkur, einnig leikinn.
Það hefur ekki alltaf farið saman að
vera stór og góður knattspyrnumað-
ur. Köller hefur sýnt okkur að þetta
á ekki við hann - hann er heimsgæða
knattspymumaður, með tækni,
styrk og hraða. Við réðum ekkert við
hann. Köller var mesta ógnunin,"
sagði Rúnai-.
Það er stutt í næsta leik - gegn
Norður-írum. Verður það ekki erfið-
ur leikur?
„Hann verður það. Við verðum að
rífa okkur upp og bæta leik okkar
verulega. Við verðum að reyna að
gleyma þessum leik gegn Tékkum
sem fyrst. Fyrst verðum við þó að
draga lærdóm af honum.
Það er ekki hægt að ætlast til þess
TÉKK AR veittu forráðamönnum
Knattspymusambands Islands,
sem vora í Tékklandi, mjög mikil-
vægar upplýsingar um staðhætti í
Sofiu í Búlgaríu. Tékkar fóru til
Búlgarfu á dögunum og fögnuðu
þar sigri á Búlgörum, 1:0. KSI-
menn hafa fengið upplýsingar um
hótel og hvar Tékkar gistu í Sofiu.
að við vinnum Tékka - ekki á þeirra
heimavelli. Jafntefli hefði verið
framar öllum vonum, en að tapa
leiknum á þann hátt sem við gerðum,
er mjög svekkjandi. Við erum ósáttir
við það. Að tapa fjögur núll er ein
mesta niðurlæging sem maður verð-
ur fyrir. Mann langar ekki til að láta
sjá sig næstu dagana á eftir. En
svona er einu sinni knattspyrnan -
bestu lið geta tapað svo stórt. Við
verðum að ýta þessum leik fá okkur
sem fyrst.
Sam betur fer eigum við leik gegn
Norður-írum strax á eftir. Við get-
um hæglega náð góðum leik og eig-
um möguleika á að vinna. Til þess
þurfum við að ná mjög góðum leik.
íslenskir leikmenn hafa oft orðið
fyrir því að tapa svona stórt. Einu
sinni gerðist það einu sinni á ári eða
jafnvel tvisvar. Nú gerist þetta ekki
oft, enda erum við farnir að styrkjast
„Eftir að hafa rætt við Tékkana,
þá er ljóst að við munum panta
gistingu á sama hóteli og þeir
gistu á í Sofiu. Þeir sendu menn til
að kanna aðstæður þar áður en
tékkneska liðið hélt þangað,"
sagði Geir Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusam-
bands Islands.
sem lið. Síðast töpuðum við fjögur
núll fyrir þremur ái-um gegn Rúm-
enum í Rúmeníu. Þetta er hlutur
sem við verðum að lifa með - við er-
um ekki bestir í heimi, ekki heldur
næstbestir. Vorum að leika við lið
sem er númer tvö á heimslitstanum.
Það segir okkur að það eru aðeins
Brasilíumenn sem eru betri en Tékk-
ar.
Eg ætla ekki að reyna að verja
fjögur núll tap. Við erum alls ekki
sáttir - við gátum gert betur.
Eins og ég sagði áðan, þá er sem
betur fer stutt í næsta leik. Við erum
strax byrjaðir að hugsa um hann,
farnir að hlaða batteríin,“ sagði Rún-
ar.
Evrópuleikir ganga fyrir
Rúnar er á forum til Lokeren -
hefur gert samning við belgíska liðið.
Hvenær yfirgefur hann Lilleström?
ísiand leikur við Búlgaríu
heima og heiman á næsta ári,
einnig við Möltu. Leikið verður
gegn Norður-írum á Laugar-
dalsvellinum á morgun, siðan
verður leikið við þá í Belfast á
næsta ári, einnig gegn Dönum í
Kaupmannahöfn og þá gegn
Tékkum í Reykjavík.
Upplýsingar um Búlgaríu
„Það ræðst allt af árangri Lillestr-
öm í Evrópukeppninni. Síðari leikur
liðsins í Evrópukeppninni verður 9.
nóvember. Ef við föllum úr keppni
held ég fljótlega til Lokeren. Ef við
komumst áfram þá mun ég vera í
Lilleström fram í miðjan desember."
S
Upplý&íngar
{ skna 530 2525
TaxtavarpÍÚ 110-113
fíÚV 281,233og 284
(E J.0 .2000 ,
MilM
I 04. 10. 20001
AÐAtTÖLUR
22) 26)
Prefaldur f
1. vinningur
BÓNUSTÖLUR inæStU VÍkU %
o 'i vio\ Alltafá s
x. } miðvikudögum
Tvöfaldur
1. vinningur
ku
Jókertölur vikuruiar
0 2 4 5 6