Morgunblaðið - 10.10.2000, Side 5

Morgunblaðið - 10.10.2000, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 B 5 KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Kristinn Hermann Hreiðarsson lék nýja stöðu gegn Tékkum en náði ekki góðum tökum á henni. Hermann lék síðan sem miðvörður í seinni hálfleik, er Pétur Hafliði meiddist. Eyjólfur Sverrisson, fyrirliði íslenska landsliðsins eftirtapið íTeplice „Við upplifðum mikil vonbrigði" „VIÐ upplifðum mikil vonbrigði hér í Tékklandi. Við ætluðum okkur meira - komum vel stemmdir til leiks, en vorum slegnir út af laginu eftir að hafa fengið á okkur tvö mörk sem voru vægast sagt ódýr. Við gerðum mistök og eftir að við höfðum fengið á okkur tvö klaufa- leg mörk var róðurinn mjög erfiður," sagði Eyjólfur Sverrisson, fyr- irliði íslenska landsliðsins. að þeir gerðu. Við vissum hvernig þeir myndu taka hornspyrnurnar, við vissum hvað Koller var hættu- legur í loftinu. Við vissum að Ned- véd væri stórhættulegur á miðjunni. Já, við vissum svo mikið og vonim búnir að ræða oft um hvar Tékkar væru hættulegastir. Samt gerist það að Koller skorar tvö mörk með skalla - þó svo að við tefldum fram öllum okkar sterkustu skallamönn- um - og Nedvéd skoraði beint úr aukaspyrnu sem hann er frægur fyrir. Eg er sár og svekktur og það eru leikmenn mínir einnig.“ Þegar landsliðshópurinn yfirgaf Teplice að kvöldlagi var myrkur. Ovæntar fréttir bárust frá Englandi - að Kevin Keegan, landsliðsþjálfari Englendinga, hefði sagt starfi sínu lausu eftir tap gegn Þýskalandi á Wembley. Er Atli Eðvaldsson í sömu hugleiðingum eftir stóran skell í Tékklandi? Atli brosir og segir: „Nei, ég verð ekki fyrstur til að stökkva af skút- unni. Eg er örugglega allt öðru vísi persóna en Keegan. Við eigum marga leiki fyrir höndum og erum ákveðnir í að bæta okkur. Þó að leik- urinn hafi þróast upp í ákveðna mar- tröð hér er ekki öll nótt úti - þetta er rétt að byrja. Eftir mjög gott gengi hjá okkur í ár leikum við gegn tveimur sterkum liðum og erum með ekkert stig. Við hefðum getað verið með fullt hús stiga ef við hefðum til dæmis byrjað á leik gegn Norður- írlandi heima og Möltu úti. Við ætl- um okkur ekki að vera niðurdregnir þegar við mætum Norður-írum,“ sagði Atli. Eyjólfur sagði að leikmenn ís- lenska liðsins hefðu verið óör- uggir í leik sínum í fyrri hálfleik. Við áttum ekkert svar við ákveðn- um Tékkum, sem ■■■■■■■ léku mjög vel gegn SigmundurÓ. okkur - eru gríðar- Steinarsson iega sterkir. Þeir skrríar sýndu okkur það hvers vegna þeir eru með eitt af fimm bestu liðum heims Styrkur Tékka hentar landsliði íslands einfaldlega ekki. Tékkar leika vel og þá eru þeir líkamlega sterkir. Það var mjög erfitt að ráða við Jan Koller, hinn hávaxna miðherja Tékka. Við vorum ósáttir við leik okkar. Okkur gekk betur í seinni hálfleik, þegar við náðum að skapa okkur tækifæri uppi við mark Tékka,“ sagði Eyjólfur. Tékkar byrjuðu leikinn með miklum látum. Reiknaði Eyjólfur með að Tékkar myndu byrja þann- ig? „Já, ég átti von á því að Tékk- arnir myndu setja pressu á okkur í byrjun leiksins - já, við vissum það. Þeir voru búnir að skora hjá okkur eftir aðeins sautján mínút- ur. Það hefur alltaf verið sagt að við þurfum þetta tuttugu mínútur til að átta okkur á hlutunum, standast áhlaup og koma í veg fyr- ir að knötturinn hafni í netinu. Það tókst ekki - við fengum mark á okkur á versta tíma og það afar ódýrt. Við fáum síðan aftur klaufa- mark á okkur og síðan það þriðja rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins. Það má segja að það hafi allt gengið á afturfótunum hjá okkur.“ Nú haldið þið beint heim og mætið Norður-írum á Laugardals- vellinum. Telur þú að þessi skellur muni liggja þungt á ykkur? „Nei, það held ég ekki. Við vit- um að við áttum slakan leik gegn Tékkum, sem áttu mjög góðan leik. Þegar þannig fer er á bratt- ann að sækja fyrir okkur. Við vit- um að við þurfum að eiga mjög góðan dag ef við ætlum að stand- ast bestu liðum heims snúninginn. Við erum ákveðnir að sýna okkar rétta andlit gegn írunum og þá sérstaklega þar sem við leikum fyrir framan okkar eigið fólk. Við erum ákveðnir í að berjast sem einn og reyna að knýja fram sigur. Það er mikilvægt fyrir okkur og vonum að við fáum stuðning frá áhorfendum þó svo að illa hafi far- ið hér í Tékklandi," sagði Eyjólfur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.