Morgunblaðið - 10.10.2000, Page 6

Morgunblaðið - 10.10.2000, Page 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ FOLK ■ TALIÐ er að óvænt andlát móður Kevins Keegans, fyrrverandi landsliðsþjálfara Englendinga, hafí haft mikil áhrif á skyndilega afsögn hans sem landsliðsþjálfara. Móðir hans, Doris, sem var 76 ára gömul, lést af hjartaslagi þremur dögum fyrir leikinn gegn Þjóðverjum á Wembley. ■ ENGLENDINGAR eru í nokkr- um vandræðum með lið sitt fyrir leikinn gegn Finnum í undan- keppni HM sem fram fer í Helsinki. David Beckham, Tony Adams, Graeme Le Saux og Steven Gerr- ard eru allir meiddir og verða ekki með. ■ HOWARD Wilkinson, starfandi landsliðsþjálfari, hefur kallað á Teddy Sheringham, framherja Manchester United, í hópinn að nýju en Sheringham hefur verið í fínu formi með United á leiktíðinni. ■ ÞÁ er líklegt að Paul Ince komi inn í hópinn að nýju en hann var ekki með gegn Þjóðverjum. ■ WBA sigraði Sheffíeld Wednes- day 2:1 á sunnudag. Lárus Orri Sigurðsson lék ekki með WBA vegna meiðsla. ■ SCUNTHORPE, lið Bjamólfs Lámssonar, sigraði Halifax 1:0 á laugardag og er liðið nú í sjötta sæti 3. deildarinnar. Bjamólfur stóð sig með prýði og fékk 8 í ein- kunn í The Sun og Daily Express fyrir frammistöðu sína. ■ GILLES de Bilde gerði um helg- ina tveggja mánaða lánssamning við Aston Villa. Hinn belgíski de Bilde kemur frá Slieffield Wednes- day sem vonast til að selja hann við lok lánssamningsins. ■ DAVID Beckham segir að Alex Ferguson noti njósnara til að fylgj- ast með sér kemur fram í enska blaðinu The Sun. Beckham segir Ferguson hafa áhyggjur af því að hann yfirgefi Manchester United en Ferguson hringdi eitt sinn í Beckham til að athuga hvar hann væri því hann hafði fengið símtal um að hann væri á flugvellinum í Barcelona. Beckham var hinn ró- legasti og á leið í gufubað. Hann segir Ferguson nú hringja í kunn- ingja til að fullvissa sig um að hann sé ekki á leið frá Manchester. ■ PAOLO Maldini, fyrirliði ítalska landsliðsins í knattspyrnu, bætti landsleikjametið þegar ítalir sigr- uðu Rúmena, 3:0, í undankeppni HM um helgina. ■ ÞETTA varvar 113. landsleikur Maldinis en Dino Zoff, fyrrverandi landsliðsþjálfari, stóð 112 sinnum á milli stanganna í ítalska landsliðinu frá 168 til 1983. ■ MARCO Tardelli var um helgina ráðinn þjálfari ítalska stórliðsins Inter í stað Marcelo Lippi sem var rekinn í síðustu viku. Tardelli, sem er fyrrverandi leikmaður Juventus, Inter og ítalska landsliðsins, er þjálfari U-21 árs landsliðs ftala og mun stýra því í síðasta sinn í kvöld þegar það leikur gegn Georgíu. UDAVID SEAMAN, markvörður Arsenaþog enska landsliðsins í knattspymu hefur látið að því liggja að hann muni setja mark- mannshanskana á hilluna eftir tímabilið. ■ SEAMAN er 37 ára og í vor lýkur hann samningi sínum við Arsenal. Aldurinn er greinilega farinn að hafa áhrif á frammistöðu Seamans því hann hefur ekki staðið sig sem skyldi og markið sem Þjóðverjar skoruðu gegn Englendingum á laugardaginn skrifast að miklu leyti á hann. ■ THORSTEIN Helsted, hetja Norðmanna í leiknum gegn Wales, lenti illa á markstönginni í þann mund sem hann skoraði jöfnunar- mark Norðmanna. Ottast var í fyrstu að Helsted hefði meiðst illa en svo var ekki og er hann klár í slaginn gegn tíkraínumönnum í kvöld. Jose Vídigal, leikmaður Portúgals, og írinn Kevin Kilbane í baráttu í Lissabon. Reuters íramir komu á óvarl í Lissabon ÍRAR hafa komið á óvart í öðrum riðli undankeppni HM en i tveimur erfiðum útileikjum hafa þeir náð í stig. í fyrsta leik sínum í keppn- inni gerðu írar 2:2 jafntefli gegn Hollendingum í Amsterdam eftir að hafa komist í 2:0 og um helgina sóttu írar eitt stig til Lissabon þegar þeirgerðu 1:1 jafntefli gegn Portúgölum. |att Holland, félagi Hermanns Hreiðarssonar hjá Ipswich, tryggði Irum annað stigið en Hol- land jafnaði stundarfjórðungi fyrir leikslok með fallegu langskoti. Irar áttu undir högg að sækja mestan hluta leiksins en með baráttu og vel skipulögðum varnarleik gerðu þeir hinum léttleikandi leikmönnum Portúgals erfítt fyrir. Þegar Concecaio kom heimamönnum yfir á 57. mínútu héldu flestir að eftirleik- urinn yrði auðveldur en leikmenn íra voru á öðru máli og tókst að jafna stundarfjórðungi síðar. „Við höfum náð í tvö stig í tveimur mjög erfiðum útileikjum en þau úr- slit hafa litla þýðingu ef okkur tekst ekki að vinna Eista,“ sagði Mick Mc- Carthy, landsliðsþjálfari íra, eftir leikinn. Skotar í basli með San Marínó Skotar lentu í hinu mesta basli með San Marinó. Skotar höfðu tögl og hagldir allan tímann en það var ekki fyrr en á 71. mínútu sem Skot- um tókst að skora og var þar að verki hin marksækni vamarmaður Matt Elliott. Tveimur mínútum síð- ar bætti Don Hutchinson við öðru marki og þar við sat. „Ég var viss um að mörkin kæmu en ég neita því ekki að ég var farinn að naga neglurnar," sagði Craig Brown, landsliðsþjálfari Skota, en Skotar eru á toppi 6. riðilsins með sex stig í tveimur leikjum. Seedorf braut ísinn Hollendingar unnu öruggan 4:0 sigur á Kýpurbúum en eins og Skot- arnir voru Hollendingar lengi að finna netmöskvana. Clarence Seedorf tókst að brjóta ísinn á 69. mínútu en hafði þá skömmu áður komið inná sem varamaður. Seedorf bætti við öðru marki á 78. mínútu og Mark Overmars skoraði það þriðja þremur mínútum síðar. Patrick Kluviert setti svo punktinn yfir i-ið með fjórða markinu á lokamínút- unni. Spánverjar góðir 80.000 áhorfendur á Bernabeu- leikvanginum í Madrid sáu sína menn leggja ísraelsmenn að velli á sanngjarnan hátt, 2:0. Þetta var fyrsti leikur spænska landsliðsins á heimavelli Real Madrid í 12 ár og það fór vel á því að Fernando Hierro, liðsmaður Real Madrid, innsiglaði sigurinn með öðru marki Spánverja á 53. mínútu. Þetta var 24. mark Hierro fyrir Spánverja. Gerard skoraði fyrra mark Spán- verja á 22. mínútu eftir góðan undir- búning Mendieta, en þessi snjalli miðjumaður var maðurinn á bak við flestar sóknir spænska liðsins. Spán- verjar, sem léku mjög vel, áttu góð færi til að bæta við fleiri mörkum og í tvígang átti Raul skot í tréverkið. Færeyingarfengu á sig þrjár vítaspyrnur Færeyingar sóttu ekki gull í greipar Svisslendinga og urðu að sætta sig við stórt tap, 5:1. John Pet- ersen, leikmaður Leifturs, kom Færeyingum yfir strax á 4. mínútu og stóð sú forysta í 20 mínútur. Svisslendingar skoruðu fjögur mörk fyrir hlé og skoruðu svo eitt til við- bótar í seinni hálfleik. Þrú mörk Svisslendinga komu af vítalínunni og var Kubilaz Turkilmaz að verki í öll skiptin. Leiftursmennirnir John Petersen og Sámal Joensen léku með Færeyingum svo og Skagamað- urinn Uni Arge. Maldini bætti landsleikjametið Leikur Itala og Rúmena var merkilegur fyrir þær sakir að Paolo Maldini, fyrirliði Itala, lék sinn 113. landsleik og er þar með orðinn leikjahæsti leikmaður ítalska lands- liðsins frá upphafi. ítalir gerðu út um leikinn á fyrstu 20 mínútum leiksins en þá skoruðu þeir tvö mörk. Fyrra markið skoraði Fillipo Inzaghi og Delvecchio það síðara. Á 41. mínútu gerðu Italir endanlega út um leikinn þegar Franseco Totti skoraði þriðja markið. í seinni hálf- leik settu heimamenn í fyrsta gír og hugsuðu fyrst og fremst um að halda fengnum hlut sem þeir og gerðu. Helsted bjargaði Norðmönnum Varamaðurinn Thorstein Helsted bjargaði stigi fyrir Norðmenn þegar hann jafnaði metin tíu mínútum fyr- ir leikslok gegn Wales í Cardiff en þetta var um leið fyrsta mark Hel- sted fyrir norska landsliðið. 20 mín- útum áður hafði Nathan Blake kom- ið Walesverjum yfir með góðu skallamarki eftir laglega sendingu frá Ryan Giggs. „Þetta er það besta sem ég hef séð til liðsins frá því ég tók við því og ég vona að þeir hafi náð að svara gagn- rýninni sem hefur verið á þá. Ég sagði við leikmenn fyrir leikinn að það væri kominn tími til fyrir þá að sýna hversu góðir leikmenn þeir eru í stórleikjum," sagði Mark Hughes, landsliðsþjálfari Wales, eftir leikinn. „Við áttum að vinna þennan leik enda vorum við að skapa okkur mörg góð færi og þá einkum í fyrri hálfleik. Við byrjuðum seinni hálf- leikinn vel en urðum fyrir áfalli þeg- ar Wales skoraði. Mínir menn lögðu ekki árar í bát. Þeir börðust vel og náðu í stig sem ég er sáttur með,“ sagði Nils Johan Semb, landsliðs- þjálfari Noregs. IVrkir jöfnuðu á lokamínútunni Tyrkir jöfnuðu á lokamínútunni gegn Svíum í Gautaborg og tryggðu sér annað stigið. Varamaðurinn Tayfur Huvutcu jafnaði úr umdeildri vítaspyrnu á 90. mínútu en Henrik Larsson skoraði mark Svía á 68. með fallegri kollspyrnu. „Eg held að þetta hafi eftir allt saman verið sanngjöm úrslit. Við vorum betri í fyrri hálfleik en í þeim síðari voru Svíarnir hreint frábær- ir,“ sagði Senol Gunes, þjálfari Tyrkja, eftir leikinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.