Morgunblaðið - 10.10.2000, Side 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 B 9
HANDKNATTLEIKUR HANDKNATTLEIKUR n
Heimilislegt
í Smáranum
LEIKUR Breiðablíks og KA á laugardaginn var jafnari en búast
hefði mátt við miðað við úrslit í ieikjum liðanna í fyrstu umferðum
deildarinnar. Munurinn varð þó tíu mörk er yfir lauk, 20:30 fyrir KA.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Það var mjög heimilislegt í
Smáranum enda leikurinn á
sama tíma og landsleikur íslands
og Tékklands í
knattspyrnu og því
sjálfsagt margir
sem horfðu frekar á
hann. Ahorfendur
voru aðeins 25 er leikurinn hófst en
36 er honum lauk og var stór hluti
þeirra á bandi gestanna. Liðin hófu
leikinn einstaklega illa, bæði mis-
notuðu fyrstu þrjár sóknir sínar en
svo lagaðist nýtingin og var sérlega
góð hjá KA á tíma en þá skoraði lið-
ið 11 mörk í 12 sóknum og breytti
stöðunni úr 2:2 í 8:13 en staðan í
leikhléi var 10:14 fyrir KA.
Blikar hófu síðari hálfleikinn með
marki en síðan komu sex mörk
gestanna gegn einu marki heima-
manna og munurinn orðinn átta
mörk og eftir það varð ekki aftur
snúið.
Raunar var sigur KA-manna
aldrei í hættu, en Blikar stóðu þó
vel í þeim fram eftir fyrri hálfeik og
síðari hluta síðari hálfleiks en kafl-
inn þar á milli skóp þann mun sem
var á liðunum.
Norðanmenn hófu leikinn á 3-2-1
vörn og áttu Blikar í miklum vand-
ræðum með hana framan af og
stundum þurfti Zoltan Beláný leik-
stjórnandi að vera alveg aftur undir
miðju. Heimamenn léku hins vegar
flata vörn alveg þar til undir lok
leiksins og gerðu það vel framan af
leik en er á leið náðu gestirnir að
brjóta sér leið í gegnum hana, sér-
staklega í hægra horninu.
Hjá Blikum var Beláný ágætur
en mátti sín þó ekki mikils enda
ekki margir snjallir handknattleiks-
menn með honum í liðinu.
Björn Hólmþórsson, örvhent
skytta, stóð sig þó mjög vel og áttu
norðanmenn í hinum mestu vand-
ræðum með hann. Rósmundur
Magnússon stóð sig þokkalega í
markinu.
Lið KA var jafnt að þessu sinni,
sóknin gekk ágætlega á stundum og
vörnin á eftir að verða nokkuð sterk
því þar er Erlingur Kristjánsson
enn á sínum stað og við hlið hans er
kominn Andreas Stelmokas sem er
stór og öílugur leikmaður sem á eft-
ir að nýtast KA vel. Að þessu sinni
var einbeiting norðanmanna ekki
upp á marga fiska og er það eðlilegt
því það getur varla verið þægilegt
að byggja upp stemmningu í lið þar
sem áhorfendur eru jafn fáir og
hljóðlátir og í Smáranum á laugar-
daginn. Leikmenn leggja mikið upp
úr hraðaupphlaupum og gerðu
fimm mörk eftir slík á laugardag-
inn. Hans Hreinsson kom ágætlega
inn í markið í síðari hálfleik en
Hörður Flóki Ólafsson náði sér ekki
á strik í þeim fyrri.
ingar
ir á blað
FH-ingar eru komnir á blað í 1. deild karla í handknattleik eftir
stórsigur á nýliðum Gróttu/KR, 29:21, í Kaplakrika í fyrrakvöld.
Eftir jafnar upphafsmínúturtóku leikmenn FH völdin og unnu ör-
uggan sigur og nældu Hafnfirðingarnir sér þar með í sin fyrstu
stig á mótinu.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FH-ingurinn Lárus Long sækir hér að vöm Gróttu/KR. Til varnar eru Einar Baldvin Árnason og Alexander Petterson og á línunni er Hálfdán Þórðarson við öllu búinn.
Framan af leik benti þó ekkert til
annars en að í vændum væri
spennandi leikur. Jafnt var á flestum
tölum fyrstu 13 mín-
útumar en um hálf-
leikinn miðjan urðu
kaflaskipti. Með
Bergsvein Berg-
sveinsson í miklum ham í markinu
náðu FH-ingar að byggja upp góða
forystu þegar flautað var til hálfleiks.
Sóknarleikur gestanna var mjög
vandræðalegur og vörn þeirra götótt
og það náðu FH-ingar að færa sér í
nyt. FH-ingar brugðu á það ráð að
klippa Hilmar Þórlindsson út í sókn-
inni og átti Gróttu/KR menn lítil svör
viðþví.
Hilmar Þórlindsson skoraði fyrsta
markið í síðari hálfleik og minnkaði
muninn í fjögur mörk en í kjölfarið
fylgdu þrjú FH-mörk í röð og þar
með má segja að úrslitin hafi verið
ráðin. Heimamenn hertu takið smátt
og smátt, náðu mest tíu marka for-
skoti og léku gesti sína á köflum afar
grátt.
FH-ingar léku lengst af mjög góða
6:0-vöm og fyrir aftan hana sýndi
Bergsveinn gamalkunn tilþrif. Sókn-
arleikurinn gekk vel á köflum en auð-
vitað setur það strik í reikninginn hjá
FH-ingum að hafa ekki örvhenta
skyttu. Það kom í hlut Héðins Gils-
sonar að leysa skyttustöðuna vinstra
megin að mestu. Fyrir vikið nýttist
hann ekki sem skyldi sem skotmaður
en Héðinn var ógnandi og studdi
samherja sína oft vel. Valur Arnarson
og Sigurgeir Ægisson voru varnar-
mönnum Gróttu/KR mjög erfiðir og
ekki má gleyma jaxlinum á línunni,
Hálfdáni Þórðarsyni, sem lék vel
bæði í sókn og vörn. í heild má segja
að sigurinn hafi verið liðsheildarinnar
hjá FH-ingum og hann verður eflaust
gott veganesti í leikinn gegn íslands-
meisturum Hauka annað kvöld.
Höfum orðið fyrir mótlæti
„Það var svolítil pressa á okkur
fyrir þennan leik eftir töp í tveimur
fyrstu leikjunum en við náðum okkur
nokkuð vel á strik og ég er því mjög
sáttur við sigurinn. Við höfum orðið
fyrir töluverðu mótlæti fyrir og í
byrjun mótsins, en við vorum ákveðn-
ir í að rífa okkur upp úr því og erum
vonandi vaknaðir til lífsins. Vömin og
markvarslan var í fínu lagi og miklu
betri stjómun í sóknarleiknum en í
undanfömum leikjum. Þessi sigur
ætti að verða ágætt veganesti fyrir
leikinn gegn Haukum. Það verður
gaman að mæta meisturunum. Þeir
em á pappíranum með betra lið en
við, en það breytir litlu þegar þessar
viðureignir fara fram,“ sagði Guð-
mundur Karlsson, þjálfari FH-inga,
við Morgunblaðið eftir leikinn.
Leikur Gróttu/KR liðsins var á af-
ar lágu plani ef frá era taldar fyrstu
10 mínútur leiksins. Sóknarleikurinn'
var einhæfur og vandræðalegur og
öll vamarafbrigðin sem Ólafur Lár-
usson, þjálfari liðsins, lét sína menn
reyna gengu ekki upp. Aleksander
Petterson og Hilmar Þórlindsson
skoraðu bróðui’partinn af mörkum
sinna manna og lengi vel í leiknum
vora þeir einu mennimir sem komu
skotum á mark FH-inga. Á pappíran-
um er Grótta/KR með ágætan mann-
skap sem á að geta gert miklu betur
en gert var í þessum leik.
Bergsveinn kláraði leikinn
MEISTARAR Hauka áttu svör við flestu því sem Stjarnan úr
Garðabæ dró út úr erminni þegar liðin áttust við í Ásgarði á laug-
ardag í íslandsmótinu í handknattleik karla. í hálfleik voru
heimamenn í Stjörnunni einu marki yfir, 13:12, og til alls líklegir
en meistararnir tóku af skarið þegar á þurfti með Halldór Ingólfs-
son fremstan í flokki og innbyrtu nokkuð öruggan fimm marka
sigur, 26:31. Edvard Moskalenko, rússneskur línumaður Stjörn-
unnar, var allt í öllu í sóknarleik liðsins og skoraði 6 mörk ásamt
því að fiska 7 vítaköst.
Arnar Pétursson skoraði fyrstu
tvö mörk Stjörnunnar úr víta-
köstum en Einar Örn Jónsson og
Halldór Ingólfsson
Siguröur Eivar svöruðu fyrir Hauka
Þórólfsson og jofnuðu leikinn.
skrifar Leikmenn beggja
liða voru fastir fyrir
í varnarleiknum og dómarar leiks-
ins, Valgeir Egill Ómarsson og
Bjarni Viggósson, vora í aðalhlut-
verkum fyrsta stundarfjórðung
leiksins enda höfðu þrír leikmenn
Hauka þá þegar fengið tvær tveggja
mínútna brottvísanir ásamt Arnari
Péturssyni, Stjörnunni.
Leikurinn róaðist aðeins það sem
eftir lifði hálfleiks. Meistararnir
fóru illa með tækifæri sín og sem
dæmi má nefna að átta sóknir í röð
fóra í súginn hjá liðinu en á sama
tíma gekk lítið betur hjá Stjörnunni.
í upphafi seinni hálfleiks náði
Stjarnan tveggja marka forskoti,
16:14, en þá hrökk Haukaliðið í gang
og eftir 38 mínútna leik var staðan
17:20 fyrir Hauka. Þess verður að
geta að á þessum leikkafla voru leik-
menn Stjörnunnar fjórir gegn full-
skipuðu liði Hauka og enn syrti í ál-
inn þegar enn einum leikmanni var
vísað af velli og aðeins þrír leikmenn
eftir gegn 6 Haukum. Arnari Pét-
urssyni tókst að minnka muninn í
18:20 er Stjarnan var tveimur leik-
mönnum færri en síðan fór að draga
af Garðbæingum og 3 til 5 marka
munur var á liðunum það sem eftir
lifði leiks.
Þáttur fyrirliða Hauka, Halldórs
Ingólfssonar, í seinni hálfleik var
stór þar sem hann skoraði 8 mörk
og Óskar Ármannsson bætti við 4
mörkum í seinni hálfleik úr eitruð-
um langskotum. Einar Örn Jónsson,
Rúnar Sigmundsson og Peter
Baumruk vora mest áberandi í fyrri
hálfleiknum en höfðu frekar hljótt
um sig í seinni hálfleik, enda Hall-
dór og Óskar funheitir. Meistararn-
ir búa yfir mikilli breidd og þar á bæ
var alltaf einhver tilbúinn að taka af
skarið ef á þurfti að halda og að
þessu sinni komu 12 mörk af 19
mörkum Hauka í seinni hálfeik frá
Halldóri og Óskari.
Sóknarleikur Stjörnunnar snýst
að mestu um að koma boltanum á
frábæran línumann þeirra, Edvard
Moskalenko, og lítil ógnun er af
skyttum Stjörnunnar. Arnar Pét-
ursson skoraði tíu mörk í leiknum
en þar af voru átta úr vítum og að-
eins eitt úr iangskoti. Rússinn
David Kekelija lék í stöðu vinstri
handar skyttu og var ógnandi en
hann hefði að ósekju mátt taka
meira af skarið í seinni hálfleik og
Morgunblaðið/Bryiyar Gauti
Haraldur Ingólfsson átti góðan leik þegar Haukar lögðu Stjörnuna, gerði tíu mörk.
reyna meira sjálfur. Birkir ívar
Guðmundsson, markvörður Stjörn-
unnar, varði vel í leiknum og alls 18
skot en ágæt markvarsla hans skil-
aði sér ekki í hraðaupphlaupum hjá
Stjörnunni. í heild var leikurinn
ágætlega leikinn og mörg skemmti-
leg tilþrif sáust en það sem vantaði
voru fleiri áhorfendur. Að þessu
sinni þurfti hinn almenni áhorfandi
að velja á milli sjónvarpsútsending-
ar frá Tékklandi eða handknattleiks
í Ásgarði og greinilegt að Hafnfirð-
ingar vora í meirihluta áhorfenda
sem náðu vart 80 að tölu.
Góður
útisigur
hjá Skjem
SKJERN, lið Arons Kristjánssonar og
Daða Hafþórssonar, vann góðan úti-
sigur á Viborg HK, 27:21, í dönsku úr-
valsdeildinni í handknattleik um helg-
ina. Aron skoraði 3 mörk fyrir Skjern
en fékk að líta rauða spjaldið þegar 10
mínútur voru til leiksloka. Daði lék
ekki með en hann á við smávægileg
meiðsl að stríða. Skjem er í sjötta sæti
ásamt tveimur öðram liðum með 6
stig, tveimur stigum á eftir toppliðun-
um, Virum, Kolding og FIF.
Enn tapar Stavanger
Það gengur illa hjá lærisveinum Sig-
urðar Gunnarssonar í Stavanger í
norsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik. Um helgina tapaði Stav-
anger á heimavelli fyrir Fyllingen,
24:27, og er því án stiga eftir þrjár
fyrstu umferðiraar. Islendingarnir
tveir í liði Stavanger, Þröstur Helga-
son og Björn Guðmundsson, voru ekki
á meðal markaskorara hjá Stavanger.
Liðið hefur talsvert verið gagnrýnt
fyrir slaka frammistöðu í haust og Sig-
urður fyrir að færa menn stöðugt til á
vellinum. Sigurður sagði við Stavang-
er Aftenblad eftir Ieikinn um helgina
að hann væri ekki búinn að finna rétta
blöndu í liðinu og því væri enn mikið
um tilfærslur og breytingar í leik þess.
Tíu Framarar
komust á blað
TÍU leikmönnum Fram tókst að koma boltanum í netið hjá HK-
mönnum (Digranesi á laugardag. Þangað gerði liðið góða ferð,
burstaði heimamenn með ellefu marka mun, 30:19. Vissulega er
varla hægt að lita framhjá styrk Framara þegar iiðið vinnur svo
stóran sigur, en þegar talað er tæpitungulaust virðist eðlilegra
að leita orsaka þessa ójafna leiks innan raða heimamanna. Það
var eins og leikmenn HK hefðu séð draug í búningsherberginu.
Þeir voru sem lamaðir.
Edwin
Rögnvaldsson
skrifar
Iupphafi viðureignarinnar stefndi í
jafnari leik, þótt hann hefði nú
ekki verið beinlínis uppörvandi, en
jafn var hann þó og
báðum liðum gekk
illa að skora. Fyrsta
markið gerði Kúbu-
maðurinn Garcia fyr-
ir heimamenn þegar tæpar fjórar
mínútur vora liðnar. Sundur dró með
liðunum eftir að hvort lið hafði gert
sex mörk, Framarar breyttu þá stöð-
unni fljótíega í 10:7. Þeir léku lengst-
um vörn af gerðinni 5-1, en HK not-
aðist við flata vörn, eða 6-0. Staðan í
leikhléi var 12:9, gestunum í vil.
Ekkert benti til þess að þróunin í
átt að sífellt ójafnari leik myndi
breytast þegar síðari hálfleikurinn
hófst og Framarar hófu hann eins og
þeir luku hinum fyrri. Línumaðurinn
Alexander Arnarson, sem hafði verið
baráttuglaðasti leikmaður HK í
leiknum, fékk þriðju brottvísun sína
um miðbik síðari hálfleiks og varð því
frá að hverfa. Það munaði um minna,
því aðrir HK-menn vora ekki jafn-
ákveðnir og þessi fallni félagi þeirra.
En munurinn jókst sem sagt hægt og
bítandi, leikurinn fjaraði því smám
saman út og Kópavogsbúar játuðu
sig sigraða löngu áður en leiktíminn
rann út. Þeir fáu áhorfendur sem
þarna vora sneru sér að því að benda
dómurunum á það sem miður fór í
ákvörðunum þeirra og margt af því
átti við rök að styðjast. Það var engu
líkara en tekin hefði verið ákvörðun
um að taka harðar á sóknarbrotum á
nýliðnum dómarafundi, eða eitthvað í
þá vera. Slíkt hefur lengi vantað, en
öllu má ofgera og undirrituðum þóttu
sumir raðningsdóma þeirra Einars
Sveinssonar og Þorláks Kjartansson-
ar hreint stórfurðulegir, þótt þeir séu
eflaust á öðra máli.
Þótt leikur HK-manna hafi verið á
hálfgerðum útfararhraða er ekki
hægt að loka augunum fyrir því að
Framarar era með betra lið, mun
heilsteyptara. Athygli vakti að
Hjálmar Vilhjálmsson, sem lék lengi
með HK, skoraði fimm mörk gegn
gömlu félögum sínum. Hann var
markahæstur Framara ásamt línu-
manninum Róberti Gunnarssyni. Þá
kom Magnús Erlendsson, sem leysti
fyrirliðann Sebastían Alexandersson
af í markinu undir lokin, skemmti-
lega á óvart með góðri markvörslu.
Hann varði sex skot og er hér gengið
svo langt að fullyrða að ef hann hefði
ekki varið úr tveimur dauðafærum
HK í stöðunni 21:15 hefði fjör getað
færst í leikinn, en það er hæpið.
Þetta er fyrsti leikurinn sem und-
irritaður sér HK leika á þessu keppn-
istímabili. Eflaust vora þeir eitthvað
illa fyrirkallaðir, en af þessum leik að
dæma hafa þeir verk að vinna ætli
þeir að kveða þennan di’aug, eða hvað
það er sem vefst fyrir þeim, í burtu.
„Það var á brattan að sækja allan
tímann fyrir okkur. Við misstum þá
of langt frammúr okkur og þó að
menn ætli sér að gera hlutina eru’ ■
áherslupunktamir á röngum stöðum.
Varnarleikurinn og markvarslan var
ekki nógu góð og þunginn í sókn okk-
ar lá nánast á tveimur mönnum. Við
fóram illa með færin og Bergsveinn
gerði okkur lífið leitt og ég met það
svo að hann hafi klárað þennan leik
fyrir FH. Þegar við eram ekki tilbún-
ir í leik eins og þennan er ekki von á
góðu,“ sagði Olafur Lárasson, þjálf-
ari Gróttu/KR, við Morgunblaðið eft-
ir leikinn.
■ DÓMARAR á leik Vals og ÍBV á
laugardaginn sáu ástæðu til að biðja
starfsmenn að tala við nokki’a full-
orðna áhorfendur og biðja þá hætta
óviðeigandi orðbragði. Að öðram
kosti sögðust þeir verða að rýma
húsið.
mEYJAMENN léku með sorgar-
bönd gegn Val á laugardaginn til að
minnast Sigurðar Einarssonar oj*'
Kristins Friðrikssonar, sem létust
fyrir skömmu.
■ INGVARI Sverríssyni, leikmanni
Vals, tókst illa upp í leiklistinni gegn
ÍBV á laugardaginn þegar hann féll
með tilþrifum á gólfið því dómarar
leiksins gáfu honum afar slaka ein-
kunn: Tveggja mínútna brottvísun.