Morgunblaðið - 10.10.2000, Síða 11

Morgunblaðið - 10.10.2000, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 B 11 ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Bjöm Blöndal [ ■ V M':?' ^ 1 1 f II Í i i / i 1 \ i / / | [ i 1 Romario skoraði fjögur BRASILÍSKI knattspymumaður- inn Romario er langt frá þ ví að vera dauður úr ölium æðum. í síð- asta mánuði var Romario kallaður inn í landslið Brasilíu að nýju eftir að hafa verið úti í kuldanum í tvö ár og skoraði þá þrjú mörk og á sunnudaginn gerði þessi 34 ára gamli framherji enn betur. Rom- ario skoraði íjögur mörk þegar Brasilíumenn unnu stórsigur á Venezúela, 6:0, á útivelli í Suður- Ameríkuriðli undankeppni heims- meistaramótsins. Romario skoraði þrjú fyrstu mörk sín á átta mínútna kafla í fyrri hálfleik og fullkomnaði svo femuna um miðjan síðari hálfleik. „Svo lengi sem ég fæ tækifæri til að spila með landsliðinu mun ég skora,“ sagði Romario eftir leikinn. Argentína stendur vel að vígi í stórleik riðilsins höfðu Argent- ínumenn betur gegn Úrúgvæ, 2:1, í hreint frábæmm knattspymuleik. Marcelo Gallardo og Gabriel Bat- istuta skomðu mörk Argentínu- manna í fyrri hálfleik en Federico Magallans minnkaði muninn fyrir Úrúgvæ í upphafi síðari hálfleiks. Þetta var fyrsti sigur Argentínu á heimavelli gegn Úmgvæ síðan í heimsmeistarakeppninni árið 1978 en þá var Daniel Passaralla, lands- liðsþjálfai-i Úrugvæ, fyrirliði Arg- entínumanna sem unnu heims- meistaratitilinn. Argentínumenn standa vel að vi'gi í riðlinum og eiga sæti í úrslitakeppninni næsta ör- uggt. Argentína er með 22 stig, Brasilía og Paragvæ hafa 17, Kól- umbía 15, Úmgvæ 14 og Ekvador 13 en Chile sem tapaði fyrir Ekva- dor er aðeins með 10 stig og á Iitla möguleika á að komast í úrslita- keppnina. Reuters Romario var á skotskónum. Hér er hann í baráttu við Jose Gonzalez, leikmann Venezúela. Keflavíkurstúlkur meistarar meistaranna KEFLAVÍKURSTÚLKUR era meistarar meistaranna en þær lögðu lið IS 71:51 í leik um meist- aratitilinn. Leikið var í Keflavík og heiniastúlkur náðu strax góðri forystu því munurinn var orðinn 16 stig í fyrsta leikhluta, 24:8. Á mynd Bjöms Blöndal má sjá meistaralið Keflavíkur með bik- arinn eftirsótta. Neðri röð frá vinstri: Lára Gunnarsdóttir, Mar- in Karlsdóttir, Sigríður Guðjóns- dóttir, Kristín Blöndal fyrirliði, Theodóra Káradóttir, Svava Ósk Stefánsdóttir, Maríanna Guð- mundsdóttir og Kristinn Einars- son þjálfari. Efri röð frá vinstri: Bonnie Lúðvíksdóttir, Bima Valgarðsdóttir, Guðrún Karls- dóttir og Erla Þorsteinsdóttir. Sóley lokaði markinu Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar %#alur og Stjarnan skiptu á milli sín W hvort sínum hálfleiknum þegar liðin mættust í 1. deild kvenna í hand- knattleik á laugai-- dag. Valsstúlkur, sem höfðu undirtök- in í fyrri hálfleik, léku varnarleikinn mjög framarlega og klipptu út skytt- ur Stjömunnar, þær Nínu K. Björns- dóttur og Höllu Maríu Helgadóttur. Sóknarlega náðu þær að sleppa inn úr homunum og höfðu fjögmra marka forskot í leikhléi, 10:6. Siggeir Magnússon, þjálfari Stjömunnar, hefur lesið hressilega yfir sínum stúlkum í hléinu og í seinni hálfleik var allt annað að sjá til Stjörnuliðsins. Leikur þeirra varð þéttari og markvissari og skilaði það fimm marka sigri, 12:17. Sóley Hall- dórsdóttm, sem kom í markið í síðari hálfleiknum í stað Lijönu Sadzon, setti í lás og sluppu aðeins tvö skot í gegn hjá henni, þar af annað úr víta- kasti. Valsstúlkur, sem léku prýðisvel í fyrri hálfleiknum, hljóta að hafa áhyggjur af því að hafa aðeins náð að skora tvö mörk í þeim síðari. Elfa Björk Hrafnkelsdóttir og Berglind í Hansdóttir markvörður áttu góðan leikíliðiVals. Stjörnustúlkur þurfa einnig að skoða hvað fór úrskeiðis í fyrri hálf- leik hjá þeim en það verður að teljast slakt hjá jafnsterku liði og þær búa yfir að skora aðeins sex mörk á 30 mínútum. Halla María Helgadóttii- og Sóley Halldórsdóttir léku best.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.