Morgunblaðið - 10.10.2000, Blaðsíða 12
i2 B ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Evrópa
fékk f lest
verðlaun
KEPPNISFÓLK frá Evrópuþjóð-
um, að Rússlandi og öðrum fyrrver-
andi ríkjum fyrrverandi Sovétríkj-
anna meðtöldum, unnu flesta
verðlaunapeninga á Ólympíuleikun-
um.
Alls unnu Evrópuþjóðir 352 verð-
launapeninga, 125 gull, 118 silfur og
109 bronsverðlaun. Asía vann 136
verðlaun, Afríka 36, Kyrrahafsríki
62, Suður- og Mið-Ameríka 68 og
Bandaríkin 111. Af þeim voru 42
gull, 38 silfur og 41 brons. Til saman-
burðar má nefna að hefðu gömlu
Sovétríkin verið til í dag hefðu ríki
þess unnið 163 verðlaun, 48 gull, 48
silfur og 67 brons.
Það er athyglisvert að skoða þess-
ar tölur í samanburði við samkeppni
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna áð-
ur fyrr. Samanburðurinn nú er hins
vegar ekki alveg réttur sökum þess
að nú koma fleiri keppendur í hverja
grein en frá Sovétríkjunum á sinni
tíð sökum þess að þá máttu samein-
uð Sovétríkin senda þrjá keppendur
í hverja grein. Nú geta t.d. Rússar
sent þijá í hverja grein til viðbótar
við sama fjölda frá Ukraínu og
Hvíta-Rússlandi svo dæmi sé tekið.
Það er alkunna að ef boltinn fer á annað borð út af vellinum hefur hann tilhneigingu til þess að hafna á óhagstæðum stað. Hér leitar
Jóhann Benediktsson á stað sem gefur ekki tilefni til bjartsýni.
Þeir elstu stóðu
sig vel í Valencia
ISLENSKA landsliðið í golfí, skip-
að leikmönnuin sem fæddir eru
1930 og fyrr, verða sem sagt sjö-
tugir á árinu, varð í þriðja sæti á
Evrópumóti þess aldursflokks fyrr
i haust.
íslendingar hafa tekið þátt í ár-
Iegri Evrópukeppni senjóra, kylf-
inga 55 ára og eldri, sfðan 1984 og
siðustu árin hafa konur bæst við.
En fjöldi kylfinga er í góðu formi
þótt komnir séu um sjötugt og í ár
var bætt við nýrri Evrópukeppni
landsliða þar sem yngstu þátttak-
endur eru fæddir 1930 og verða
sjötugir á árinu. í fimm golfmótum
sfðastliðið sumar gátu menn áunn-
ið sér rétt til þátttöku og að þeim
loknum voru eftirtaldir sex kylf-
ingar ■ þessu elsta landsliði okkar:
Vilhjálmur Ólafsson, Golfklúbbi
Reykjavíkur, Sverrir Einarsson,
Nesklúbbnum, Knútur Björnsson
og Gísli Sigurðsson, Golfklúbbnum
Keili, Þorbjöm Kjærbo og Friðjón
Þorleifsson, Golfklúbbi Suður-
nesja. Svo fór að Þorbjöm gat ekki
gefið kost á sér og fyrsti varamað-
ur, Jóhann Benediktsson, Golf-
klúbbi Suðumesja, tók sæti hans.
Forseti Landssambands eldri kylf-
inga, Ríkarður Pálsson, var farar-
stjóri.
European Master Seniors, eins
og keppnin er nefnd, fór fram á 01-
iva Nova-golfvellinum, skammt frá
Valencia. Það er nýlegur völlur og
langur, eða 6.000 m af gulum teig-
um, þaðan sem leikið var. Hann
minnir á velli í Flórída og koma
vötn við sögu á 14 brautum af 18.
Formið var nokkuð frábmgðið því
sem menn eiga að venjast en þótti
skemmtilegt. Keppt var bæði með
og án forgjafar en á þann hátt að
liðið myndar þrjár sveitir; tveir
leika saman alla þrjá dagana.
Fyrsta daginn var leikinn betri
bolti. Þá leika báðir eins og venju-
lega, en betra skorið gildir á hverri
holu. Annan daginn var leikið það
sem Bretar kalla „greensome“. Þá
slá báðir leikmenn af teig, en siðan
velja þeir betra teighöggið og leika
þeim bolta til skiptis uns hann er
kominn í holuna. Á þriðja degi var
siðan einstaklingsskeppni og gilti
þá eins og hina dagana skor
tveggja betri sveitanna. Bæði æf-
ingadagana tvo á undan og keppn-
isdagana fengu allir þátttakendur
golfbíla, boðið var til kvöldverðar
af mikilli rausn og mjög vel var að
öllu mótshaldi staðið.
Miðað við höggleik einvörðungu
má segja að þetta blandaða keppn-
isform hafi í för með sér að heppni
verði ríkari þáttur. Það er að
segja, sú heppni þegar tveir leika
saman, að þeir vinni vel saman og
öðrum takist að bjarga skorinu
þegar eitthvað fer úrskeiðis hjá
hinum. Þegar upp er staðið kemur
í Ijós að heppni og óheppni dreifist,
furðu jafnt. Urslitin urðu ánægju-
leg fyrir íslenska liðið, það komst á
verðlaunapall og varð í þriðja sæti
án forgjafar. Spánveijar unnu, en
Norðmenn urðu í öðru sæti. Með
forgjöf vann þýska liðið, það
franska varð í öðru sæti og Austur-
ríkismenn íþvíþriðja.
A leið til
Póllands
Guðni Kjartansson, lands-
liðsþjálfari unglinga-
landsliðsins í knattspyrnu,
skipað leikmönnum undir 18
ára aldri, hefur valið þá 16
leikmenn sem leika fyrir hönd
íslands í undanriðli Evrópu-
mótsins sem fram fer í Pól-
landi síðar í þessum mánuði.
Leikmennirnir eru þessir:
Ríkharð Bjarni Snorrason,
Fram, Kjartan Páll Þórarins-
son, Skallagrími, Viktor B.
Arnarsson, Utrecht,. Albert
Ásvaldsson, Fram, Andri
Fannar Glttósson, Fram, Ólaf-
ur Ingi Skúlason, Fylki, Sig-
urður Logi Jóhannsson,
Fylki, Grétar Rafn Steinsson,
ÍÁ, Hjálmur Dór Hjálmsson,
ÍA, Jóhannes Gíslason, ÍA,
Atli Jóhannsson, ÍBV, Gunnar
Heiðar Þorvaldsson, ÍBV,
Brynjar Örn Guðmundsson,
Keflavík, Magnús Sverrir
Þorsteinsson, Keflavík, Egill
Atlason, KR, og Grétar Sig-
finnur Sigurðsson, Sindra.
Elsta landsliðið f golfi í keppninni á Spáni: Fremri röð frá vinstri: Jóhann Benediktsson, Ríkarður Pálsson fararstjóri, Vilhjálmur Ól-
afsson. Aftari röð: Gísli Sigurðsson, Friðjón Þorleifsson, Sverrir Einarsson og Knútur Bjömsson.
y