Morgunblaðið - 10.10.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 10. OKTÓBER 2000 B 13
ÍÞRÓTTIR
Morgunblaðið/Kristinn
Frá Reykjavíktil Reykjavíkur
EFTIR að landsliðshópurinn hafði borðað á veitingastaðnum Reykjavík í miðborg
Prag, hélt hópurinn til Reykjavíkur til að glíma við Norður-íra. Þórir Gunnarsson,
ræðismaður íslands í Prag, á staðinn sem er afar glæsilegur. Leikmenn landsliðs-
ins eru hér að hefja borðhald á efri hæð veitingastaðarins. Á myndinni tii hliðar er
Þórir búinn að klæða sig í landsliðsbúning íslands sem Halldór B. Jónsson, for-
maður Knattspyrnusambands íslands, færði honum að gjöf sem þakklætisvott fyr-
ir góðar móttökur í Prag.
L, # |Í Y íjL dP * r _
1 ' á.-.. % ' |J if J§ |j|| BPlæJfóliHl ' -
¥
Felixson-
fjölskyldan
fatalaus - en
vel tryggð
Miðherji til
ísfirðinga
EINS og sagl, var frá á dögun-
um var allur farangur íslenska
landsliðsins merktur FEL-
IXSON. Þegar Geir Þorsteins-
son skráði íslenska iandsliðið til
brottferðar frá Keflavík gaf
hann upp nafnið Felixson.
Landsliðsmenn hentu gaman að
þessu og sögðu að þar væri
ekki Simpson-fjölskyldan á
ferð, heldur Felixson-fjölskyld-
an.
„Felixson var gott nafn, fár
vel í munni og á prenti,“ sagði
Geir, þegar hann var spurður
um uppátækið. Bjarni Felixson,
íþróttafréttamaður Ríkisút-
varpsins, er með í för og var
allur farangurinn skráður á
hans nafn.
Eins og Morgunblaðið hefur
sagt frá glötuðust Iandsliðsbún-
ingar landsliðsins í London, þar
sem var millilent. Stór hvít
kista, merkt Felixson, kom ekki
í leitirnar. Felixson-kistan kom
aldrei í leitirnar. í kistunni
voru bæði hvítir og bláir lands-
liðsbúningar og einnig utanyfir-
gallar. „Við verðum að afskrifa
þessa búninga - ég hef ekki trú
á að við sjáum þá frarnar,"
sagði Geir í gær og bætti síðan
við í gamansömun tón: „Bjarni
Felixson er örugglega vel
tryggður. Bróðir hans, Gunnar,
vinnur hjá Tryggingamiðstöð-
inni.“ Geir var ekki fyrr búinn
að sleppa orðinu að Bjarni hló
og sagði: „Ég verð að renna yf-
ir smáa letrið á tryggingunni.“
Landsliðið lék við Tékka í
búningum ungmennaliðsins,
sem það lék í daginn áður. Bún-
ingarnir voru þvegnir í Prag á
föstudagskvöldið.
Körfuknattleiksfélag ísafjarðar
hefur miðherja frá Bosníu í
sigtinu sem fylla á skarð Ástralans
Steve Ryan sem hvarf af iandi brott
fyrir skemmstu eftir aðeins þriggja
daga dvöl á ísaflrði. Bosníumaður-
inn er sagður vera 2,15 metrar á
hæð og yrði þar með stærsti leik-
maður úrvalsdeildarinnar og yrði
kærkomin viðbót við frekar lágvaxið
lið KFÍ. Forsvarsmenn KFÍ fengu á
dögunum fréttir af Ryan í gegnum
umboðsmann hans og er Ástralinn
kominn til síns heima. Umboðsmað-
urinn sagði að samkvæmt frásögn
Ryan hefðu ísfirðingar ekki staðið
við gerða samninga og farið illa með
hann en Karl Jónsson þjálfari KFI
segir þessi ummæli vera uppspuna
frá rótum og í raun hlægileg.
Fyrstatap-
ið hjá leper
HELGI Jónas Guðfinnsson
og félagar í Ieper töpuðu
sínum fyrsta leik í belgísku
úrvalsdeildinni íkörfuknatt-
Ieik um hclgina þegar þeir
lágu fyrir Oostende, 88:70, í
3. umferð. Helgi lék í 20
minútur og náði sér ekki á
strik, hitti úr einu skoti af
sex og skoraði 3 stig.
Friðrik Stefánsson og fé-
lagar í Lappeenrannan töp-
uðu í fjórða skipti í jafn-
mörgum leikjum í finnsku
úrvalsdeildinni, nú fyrir
SiiyRi á hcimavclli, 70:80. *
Friðrik lék í 28 mínútur,
skoraði 2 stig og tók 9 frá-
köst.
Víkingar
úr leik
MEISTARAR Víkings í
borðtennis töpuðu fyrir
austurríska liðinu Linz,
3:1, í 1. umferð Evrópuk-
eppni meistaraliða um
helgina. Guðmundur E.
Stephensen vann eina leik
Víkings, lagði Julian Pietr-
opaoli, 2:0(21:11 og 21:18).
Guðmundur tapaði svo fyr-
ir Ivan Vitesk, 0:2. Markús
Árnason tapaði einnig fyrir
Vitesk, 0:2. Adam Harðar-
son tapaði sínum leik, 2:1.
Síðbúin keppni
stúlknaliðs á Spáni
UNGLINGALANDSLIÐ stúlkna í knattspyrnu, 18 ára og
yngri, komst í milliriðil í Evrópukeppninni með sigri í forriðli
hér á landi í haust. Nú hefur verið ákveðið að milliriðillinn
verði leikinn á Spáni á óvenjulegum tíma, 26. nóvember til 2.
desember, en þar mætir Island liðum Spánar og Póllands.
Þessari keppni átti að vera lokið fyrir 20. nóvember en eftir
vandræði með að fá keppnisstað buðu Spánverjar upp á áður-
nefnda leikdaga. Olafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari íslenska
Iiðsins, mun því undirbúa hópinn á næstu vikum en 22 stúlkur
voru fyrir skömmu valdar til æfinga.