Morgunblaðið - 10.10.2000, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 10.10.2000, Qupperneq 16
ítfómR Ragnar með9í fýrsta leik RAGNAR Óskarsson, lands- liðsmaður í handknattleik, skoraði 9 mörk í fyrsta deilda- leik sínum með Dunkerque í Frakklandi en deildakeppnin þar í landi hófst á sunnudag- inn. Mörk Ragnars dugðu þó ekki því Dunkerque tapaði fyrir Selestat á útivelli, 32:29. „Það er að sjálfsögðu ekki nógu gott að skora 29 mörk og tapa samt. Selestat er sterkt á heimavelli og Dunk- erque hefur ekki unnið þar í 10 ár en við gátum vel gert betur en þetta. Eg klúðraði víti á slæmum tíma þótt það hefði kannski ekki gert út- slagið,“ sagði Ragnar við Morgunblaðið en hann gerði 4 af mörkum sinum úr vítaköst- um. Ragnar segir að Dunk- erque stefni á 3.-5. sætið í deildinni. „Það er raunhæft markmið, Montpellier er með yfirburðalið og Chambery er einnig fímasterkt. Önnur lið eru áþekk og við eigum að geta barist um efstu sætin. Við undirbjuggum okkur vel fyrir deildakeppnina og spil- uðum eina 20 leiki. Við fórum meðal annars til Þýskalands þar sem við unnum Gummers- bach og töpuðum naumlega fyrir Essen og Dormagen," sagði Ragnar. SAMMY Mcllroy, landsliðsþjálfari Norður-íra í knattspyrnu, var nokkuð bjartsýnn á að leikmenn hans myndu ná góðum úrslitum gegn íslendingum á morgun í undankeppni heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu. „Við komum hingað til Reykjavíkur með fjögur stig eftir tvo leiki og það er ágætt - reyndar framar vonum.“ Leikurinn gegn íslendingum verður erfiður en ég er strax farinn að gera mér vonir um að vera með 7 stig eftir leikinn gegn íslend- ingum og vera í þægilegri stöðu þeg- ar við mætum Tékkum á Windsor Park, heimavelli okkar á Norður- írlandi, í mars á næsta ári, “ sagði Mcllroy. Norður-írar unnu Möltu í fyrsta leik sínum og gerðu jafntefli við Dani á heimavelli á laugardag að viðstöddum rúmlega 12.000 áhorf- endum. „Við verðum að vera varkárir þegar íslendingar stilla upp í föst leikatriði og þeir skoruðu markið gegn Dönum hér í Reykjavík úr slíku atriði og það er þeirra aðal- styrkur sóknarlega séð. Eiður Smári Guðjohnsen og Ríkharður Daðason eru líkamlega sterkir leik- menn en samt sem áður nokkuð ólíkir framherjar, Ríkharður er sterkur skallamaður og Eiður Smári getur gert hluti upp á eigin spýtur. Islendingar hafa átt góðu gengi að fagna undanfarin ár og náð hag- stæðum úrslitum en eftir tvö töp í röð verður íslenska liðið án vafa erf- itt viðureignar og við undirbúum okkur fyrir erfiðan leik á Laugar- dalsvelli," bætti Mcllroy við. Það eru allir leikmenn Norður-ír- lands heilir eftir viðureignina gegn Dönum og væntanlegt byrjunarlið verður þannig skipað: Markvörður, Roy Carroll (Wig- an). Varnarmenn, Aaron Hughes (Newcastle), Gerry Taggart (Leicester), Colin Murdock (Prest- on), Stephen Lomas (West Ham). Miðjumenn, Kevin Horlock (Man- chester City), Jim Magilton (Ipswich), Stuart Elliott (Mot- herwell), Jeff Whitley (Manchester City). Framherjar. Neil Lennon (Leicester) og David Healy (Man- chester United). Damien Johnson er eina viðbótin við hóp Norður-íra frá því í Danaleiknum og Blackburn- leikmaðurinn er vongóður um að verða orðinn góður af nárameiðslum sem hafa hrjáð hann að undanförnu og ef hann verður heill er nokkuð ör- uggt að hann verði í byrjunarliðinu. ■ KOLBOTN, lið Katrínar Jóns- dóttur, burstaði Setskog/Höland, 9:2, í norsku úrvalsdeildinni í knattspymu um helgina. Katrín lék vel en náði ekki að skora. Með sigrinum er Kolbotn nær öruggt með 3. sætið en Trondheims-0rn og Asker eru í sérflokki og berjast um norska meistaratitilinn í tveim- ur síðustu umferðunum. ■ MARCELO Salas er á leið til Int- er Milano frá Lazio. I staðinn fær Lazio króatíska landsliðsmanninn Dario Stimic. Salas var óánægður í herbúðum meistaranna enda búinn að missa sæti sitt í byrjunarliðinu til Argentínumannsins Claudios Lopez. ■ PETER Ebdon sigraði á opna breska meistaramótinu í snóker sem lauk í Plymouth um helgina. Hann sigraði hinn vinsæla Jimmy White í úrslitaleik, 9:6. Steve Dav- is, sem vann Kristján Helgason í 1. umferð, sigraði Fergal O’Brien, 5:2, í 2. umferð en tapaði fyrir Alan McManus, 3:5, í 16 manna úrslitum. Sammy Mcllroy, þjálfari Norður-íra, brá á leik með þeim Steve Lomas og Peter McCandless í Bel- fast þegar liðið undirbjó sig fyrir átökin í undankeppni HM gegn íslendingum og Dönum. Mcllroy mundar öxina en Lomas bregður sverðinu að McCandless. Sammy Mcllroy bjartsýnn á sigur Njáll þjálfar ÍBV Njáll Eiðsson var um helgina ráð- inn þjálfari karlaliðs ÍBV í knattspyrnu í stað Kristins R. Jóns- sonar sem tekinn er við þjálfarastarf- inu hjá Fram. Njáll er einn af reyndustu þjálfur- um hér á landi. Hann hefur þjálfað lið ÍR-inga undanfarin fjögur ár og þá hefur hann einnig þjálfað lið FH, KA og Einherja. Aðeins eitt lið í efstu deild karla á eftir að ráða þjálfara fyrir næstu leik- tíð en það eru Keflvíkingar. „Við erum svona að fara yfir þær umsóknir sem okkur hafa borist en engin niðurstaða liggur fyrir ennþá. Velimir Sargic, unglingaþjálfarinn okkar, mun sjá um æfingar liðsins til að byrja með og hann er auðvitað einn möguleikinn sem við höfum í þjálfara- stöðuna," sagði Rúnar Amarson, for- maður knattspymudeildar Keflavík- ur, í samtali við Morgunblaðið. Þá gengu Eyjamenn einnig frá ráðningu á þjálfara fyrir kvennalið fé- lagsins. Heimir Hallgrímsson var endurráðinn en rætt hafði verið um að hann ætlaði að hætta eftir þetta tímabil. Heimir hefur náð góðum árangri með Eyjakonurnar og er mik- il ánægja hjá þeim að halda Heimi. Emafrá í heilt ár? Ema B. Sigurðardóttir, knatt- spyrnukonan efnilega úr Breiðabliki, er með slitið krossband í hné og hætta er á að hún missi af stóram hluta næsta keppnistímabils, jafnvel því öllu. Erna meiddist í leik með 2. flokki Breiðabliks á dögunum og þurfti að draga sig út úr A-landsliðshópnum af þeim sökum fyrir seinni leikinn gegn Rúmeníu. Fyrst var talið að meiðslin væru minni háttar en nú er komið í ljós að ytra krossband er slitið og samkvæmt reynslu tekur allt að einu ári að ná sér af slíkum meiðslum. Erna er 18 ára og átti frábært tímabil með Breiðabliki en hún var valin í úrvalslið efstu deildar í haust. Hún var í A-landsliðshópnum og lék alla leiki 21 árs landsliðsins og 18 ára landsliðsins. Það síðarnefnda býr sig undir milliriðil í Evrópukeppninni og fjarvera Emu verður skarð fyrir skildiíþeim hópi. Baldur líka til Uerdingen BALDUR Aðalsteinsson, knattspyrnumaður úr IA, er á förum til Þýskalands og spilar sem lánsmaður með 3. deild- arliðinu Uerdingen í vetur. Þar verður einnig félagi hans úr Skagaliðinu, Gunnlaugur Jónsson, eins og áður hefur komið fram. Félögin eiga eftir að ganga frá samningi sín á milli en að öllu óbreyttu fer Baldur, sem í gær var kallað- ur inn í 21-árs landsliðshóp- inn, til Þýskalands um næstu helgi. Uerdingen er í 3. sæti í norðurriðli 3. deildarinnar, stigi á eftir efsta liðinu. Hjalti fótbrotnaði HJALTI Jónsson, knattspyrnumaður frá Vestmannaeyjum, fót- brotnaði á æfingu með 21 -árs landsliði íslands (gær en liðið býr sig undir að mæta Norður-írum í Evrópukeppninni í Kaplakrika klukkan 16 í dag. Baldur Aðalsteinsson úr ÍA var kallaður inn í hópinn í staðinn en áður hafði Indriða Sigurðssyni frá Lilleström verið bætt við. Indr- iði missti af leiknum í Tékklandi síðasta föstudag af persónulegum ástæðum. „Þetta var mjög slysalegt atvik, Hjalti og annar leikmaður rákust saman með þessum afleiðingum. Leggurinn fór í sundur og Hjalti verður einar 6-8 vikur í gifsi,“ sagði Sigurður Grétarsson, þjálfari 21- árs landsliðsins, við Morgunblaðið í gær. Sigurður telur að Island eigi góða sigurmöguleika gegn Norður-írum í dag. „Eg hef skoðað myndband af leik þeirra við Möltu sem endaði 1:1 og þótt þeir hafi verið mun sterkari aðilinn í þeim leik er ljóst að þeir standa bæði Dönum og Tékkum að baki. Hér á heimavelli eigum við að geta sigrað þetta lið,“ sagði Sigurð- ur. íslenska liðið tapaði, 2:1, fyrir Tékkum ytra á föstudaginn en hafði áður gert jafntefli, 0:0, gegn Dönum í Kaplakrika í byrjun september.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.