Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 6
6 C FIMMTUDAGUR12. OKTÓBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ If VIÐSKIPTI Netspor ehf ■ sérhæfír sig í viðhaldi og markaðssetninffli vefsíðna Algengt að fyrirtæki nýti ekki möguleika Netsins NETSPOR ehf. er ungt fyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðssetningu og viðhaldi á vefsíðum fyr- irtækja og stofnana og er eitt fyrsta fyrirtækið sem sérhæfir sig í slíkri þjónustu hér á landi. Sævar Kristi’nsson, framkvæmdastjóri Netspors, segir að þjónusta fyrirtækisins snúst um að láta vefina virka og að lykilatriðið í þeirri viðleitni sé að halda þeim við og nýta þá möguleika sem til staðar séu. Að sögn Sævars er það algengt að fyr- irtæki nýti sér ekki möguleika Netsins á réttan hátt og að vefsíður þeirra lognist oft út af og verði úreltar á stuttum tíma. Til þess að bæta úr því þurfi stjórnendur fyrirtækja að átta sig á því í upphafi hver tilgangurinn með vefsíðugerðinni sé og fylgja síðan eftir settum markmiðum. Sævar segir Netspor vera öðruvísi fyrirtæki í vefþjónustu að því leyti að það búi ekki til vefi heldur sé fyrst og fremst markaðsfyrirtæki. Til- gangur fyrirtækisins sé að sinna markaðssetn- ingu og viðhaldi vefja enda séu þeir þættir að verða sífellt mikilvægari þegar erfiðara verður með hverjum deginum að ná athygli viðskiptavina á Netinu. „Við förum yfir það hvemig halda eigi úti lif- andi vef og hvert markmiðið sé með vefnum. Oft höfum við lent í því að viðskiptavinir okkar hafa verið með vef númer tvö í bígerð og hafa þá ákveðið að leita okkar ráða. Þá höfum við stund- um þurft að henda öllum pakkanum vegna þess að vefurinn myndi augljóslega engu skila. Það er lykilatriði að stjórnendur átti sig á því hverju þeir vilja ná út úr vefnum. Það þarf að hugsa vefinn út frá viðskiptavininum, af hverju ætti hann að vilja koma inn á vefinn, og ekki aðeins einu sinni held- ur aftur og aftur.“ Morgunblaðið/Kristinn Ingvar Sverrisson, markaðsstjóri Netspors, og Sævar Kristinsson framkvæmdastjóri. Tryggja að vefurinn sé alltaf ferskur Hjá Netspor starfa tveir menn í fullu starfi en hins vegar vinna margir á vegum fyrirtækisins að ýmsum verkefnum þannig að starfsemin felst að stórum hluta í verkstjórn. Fyrirtækið tekur að sér þarfagreiningu og stefnumótun sem nýtist sem leiðarvísir við vefgerðina og aðstoðar síðan við markaðssetningu og sinnir mánaðarlegu markaðsviðahaldi. Þá sér fyrirtækið um að rýna vefi viðskiptavina sinna reglulega og tryggja með þeim hætti að vefurinn sé alltaf ferskur. Sævar segir of algengt að ekki sé hugsað til enda fyrir- tækja hver eigi að halda vefnum við. „Eg hef rekið mig á það, að fyrirtæki eru með vefi en hafa síðan ekki mátt vera að því að sinna þeim vegna þess að starfsmenn eru á fullu í sínum reglubundnu störfum. Og af hverju á framleiðslu- fyrirtæki að fara að búa til einhverja sérþekkingu innan fyrirtækisins í viðhaldi á vefnurn?" Að sögn Ingvars Sverrissonar markaðsstjóra Netspors er vefur ekkert annað en þjónustu- og markaðstæki, sem oft verður fyrsta ásýnd fyrir- tækja með vaxandi notkun Netsins. Því megi ekki fela hverjum sem er umsjón vefsins innan fyrir- tækisins, ekkert frekar en gerð auglýsinga og bæklinga. Hann segir að Netspor komi þar til að- stoðar og veiti fyrhtækjum þá sérhæfðu þjónustu að viðhalda og koma vefsíðum þeirra á framfæri til viðskiptavina. FUNDARFERÐIR Fyrirtækjaþjónusta Flu$féla$sins o^alltertilreiðuáfundarstað Loksins er fundarfriður! Nýjiin? í þjónustu við íslensk fyrirtæki hvar sem er á tandinu. Floyið 05 fundað Við bjóðum fyrirtækjum saman í pakka flugfar og fundaraðstöðu í dagsferðum til fimm helstu áfangastaða Flugfélags íslands sem eru: ísafjörður Akureyri Egilsstaðir Höfn í Hornafirði Vestmannaeyjar Fljúgið að morgni, vinnið á fundi yfir daginn og snúið aftur heim um kvöldið. Fundaraðstaða er í samstarfshótelum okkar á framangreindum áfangastöðum. Eitt símtal - oí[ við sjáum um allan undirbúniny Við pöntum flugfar, akstur til og frá flugvelli á fundarstað, fundar- aðstöðu og veitingar og sjáum til þess að allur búnaður verði til reiðu á fundarstað. Pöntum gistingu, sé þess óskað, og tökum að okkur að skipuleggja skoðunarferðir eða aðrar útivistarferðir á fundarstað. Viltu ná umtalsverðum áranyri á næsta fundi? Fínn kosturáferðalöfutn Hafðu strax samband við okkur í síma 570 3606 eða í tölvupósti: flugkort@airiceland.is FLUGFELAG ISLANDS Air Iceland Flugfélag íslands, ReykjavíkurfIugvelIi, sími 570 3030, fax 570 3001, www.flugfelag.is Mistök Morgan Stanl- ey í Svíþjóð Oslií, Morgunblaðið. • ÞAÐ lítur út fyrir að skráning dótt- urfyrirtækis Telia, Eniro, á hluta- bréfamarkað verði álíka misheppn- uð og skráning hlutabréfa Telia, og sérstakt áfall fyrir bandaríska fjár- festingarbankann Morgan Staniey, að því er segir í Dagens industri. Morgan Stanley sá einnig um út- boðiö í Telia en eins og kunnugt er hafa hlutabréf Telia lækkað veru- lega frá skráningunni fyrr á árinu, eða um 38% á 4 mánuðum. Morg- an Stanley var einnig aðalráðgjafi Bredbandsbolaget en í gær var ákveðiö að fresta skráningu bréfa þess félags á Nasdaq og Kauphöll- ina í Stokkhólmi. Morgan Stanley stóð fyrir 95% af viðskiptum með Eniro fyrri hluta fyrsta viöskiptadagsins, í gær, og reyndi með öllum ráöum að hindra að gengið færi undir 84 sænskar krónur á hlut, en í útboðslýsingu kom fram að útboðsgengið yrði á bilinu 84-110 krónur. Afkoma OM undir vænfingum Ósló. Morgunblaðið. • HAGNAÐUR sænska fyrirtækis- ins OM Gruppen, sem lagt hefur fram tilboö í Kauphöllina í London (LSE), á fyrstu níu mánuðum ársins var undir væntingum markaðs- aðila, að því er m.a. kemur fram í Dagens industri. Hagnaður OM á tímabilinu nam 569 milljónum sænskra króna eða um 4,8 milljörðum íslenskra króna. Sérfræðingar höfðu búist við hagn- aði sem samsvarar um 5,3 millj- öröum. Afkoma fyrirtækisins er þó betri en á sama tlma í fyrra þegar hagnaðurinn var 3,3 milljarðar. Hlutabréfamarkaöurinn brást við afkomutölum frá OM t gær þannig að hlutabréfin lækkuðu um 1,5% í 375 sænskar krónur á hlut. Þetta greiöir ekki fyrir tilboði OM í LSE, sem að meirihluta miöast við greiðslu í hlutabréfum. Tilboðið er í gildi til 23. október. Skráningu f restaó vegna lækkunar á Nasdaq Ósló. Morgunblaðið. • SÆNSKA fyrirtækiö Bredbands- bolaget hefur frestað áformum um skráningu bréfa félagsins á Nasdaq og Kauphöliina í Stokk- hólmi, aö því er Dagens industri greinir frá. Forsvarsmenn fyrirtækisins vtsa til slæmra markaðsaöstæðna fyrir hátæknifyrirtæki, þar sem Nasdaq- vísitalan hafi lækkaö um 17,5% síðan í byrjun september. Á sama tíma hafi vísitala upplýsinga- tæknifyrirtækja á sænska mark- aðnum lækkað um 27%. Forsvarsmenn félagsins leggja áherslu á að langtímaáætlanir fyrir- tækisins hafi ekki breyst og frest- unin hafi ekki áhrif á umsókn þess um UMTS-farsímaleyfi, ásamt Or- ange, Skanska og Schibsted. Bókhaldskerfi P\ KERFISÞRÓUN HF. FAKAFENI 11, s. 568 8055 http://www.kerfisthroun.is/ -I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.