Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.10.2000, Blaðsíða 8
8 C FIMMTUDAGUR 12. OKTÓBER 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Strá ehf ■ í samstarf við stærstu ráðningarstofu heims Fyrirtækjatalsmenn og sjónvarp Sífellt erfíðara að ráða hæfa stjórnendur Morgunblaðiö/Ámi Sæberg Guðný Harðardóttir, framkvæmdastjóri Strá ehf., ásamt Gunnari Hanssen og Trond Larsen, fulltrúum Norðurlandadcildar MRI Worldwide. FYRIRTÆKJUM reynist sífellt erfiðara að ná í hæft starfsfólk og hæfileikaríka stjórnendur. Til þess að bregðast við þessum vanda leita fyrirtæki í ríkari mæli fyrir sér er- lendis í von um að ná til sín starfs- fólki. Strá - Starfsráðningar ehf. og MRI Worldwide, ein stærsta ráðn- ingarstofa heims, hafa nú gengið til samstarfs, og segir Guðný Harðar- dóttir, framkvæmdastjóri Strás, að þessi tengsl auki verulega möguleika Islendinga á að koma sér á framfæri erlendis, auk þess sem að möguleik- ar opnist fyrir ráðningu sérhæfðra starfskrafta hingað til lands. Fulltrúar Norðurlandsdeildar MRI, Gunnar Hanssen og Trond Larsen, voru hér á dögunum til að þjálfa starfsfólk Strás ehf. Þeir hafa verið í samstarfi í tvö ár og í samein- ingu unnið við að byggja upp ráðn- ingarstofur MRI á Norðurlöndum. „Nú er Strá orðið hluti af MRI- samsteypunni, þannig að nú getum Forstjóri Tel- ia hættur FORSTJÓRI Telia, Jan Áke Kark, hefur sagt starfi sínu lausu sökum heilsubrests en hann þjáist af magasári. Mar- ianne Nivert, framkvæmda- stjóri hjá Telia, tekur við for- stjórastarfinu tímabundið, að því er m.a. kemur fram í Dagens næringsliv. Búist er við að Kark komi aft- ur til starfa hjá Telia þegar hann hefur náð heilsu á ný, en þá sem ráðgjafi. Hafin er leit að arftaka Karks og sérfræðingar segja að sá arftaki þurfi að hafa burði til að lyfta fyrirtækmu upp úr öldu- dalnum sem það er nú í. Til þess þurfi miklar skipulagsbreyting- ar. Markaðurinn lýsir eftir manneskju sem hefur ekki starfað hjá Telia, hugsanlega er- lendri, að því er fram kemur á sænska viðskiptavefnum E24. við aðstoðað íslenska aðila sem vilja leita sér að vinnu víða um heim og einnig ráðið fólk hingað hvaðanæva úr heiminum, Bandaríkjunum, Asíu eða hvaðan sem er,“ segir Hanssen. Sífelit færri umsækjendur um hverja stöðu Að sögn Trond Larsen er MRI með net nærri 1.100 þúsund skrif- stofa víða um heim, um 900 skrifstof- ur í Bandaríkjunum, 85 í Bretlandi og 45 í Þýskalandi. Einnig eru skrif- stofur í Suður-Afríku, Kína, Hong Kong, Singapúr og Astralíu, svo dæmi séu tekin. ,Ástæðan fyrir velgengni fyrir- tækisins er að við höfum getað náð til hæfileikaríks fólks víða um heim. Nú orðið er mjög erfitt að fá hæfa stjómendur til starfa, og mörg fyrir- tæki munu ekki lifa af vegna þess að þau geta ekki ráðið til sína nægilega gott starfsfólk. Þessi þróun er að hefjast í Evrópu, en hefur verið í gangi í Bandaríkjunum síðustu tvö árin. Allir toppstjómendur í Banda- ríkjunum fá tilboð fjóram til fimm sinnum á ári um nýtt starf frá „mannaveiðurum.“ Toppstjórnandi í Bandaríkjunum er yfirleitt ekki lengur í starfi en tvö ár, það er með- altalið," segir Larsen. Hann telur að sú þróun muni ör- ugglega eiga sér stað hér á landi eins og annars staðar, að það verði sífellt færri umsækjendur um hveija stöðu. „Það era að spretta upp ný fyrirtæki og rafrænir viðskiptahætt- ir era sífellt að aukast. Sá iðnaður er að taka mikið af hæfu starfsfólki úr hefðbundnum störfum, vegna þess að nýju fyrirtækin bjóða betri kjör, hærri laun og hluti í fyrirtækjum, en þetta era kostir sem hefðbundin fyr- irtæki era ekki að nota í dag. Þessi þróun virðist ekki hafin ennþá hér á landi, en þetta er byrjað í Noregi og Svíþjóð." Hanssen segir að í Ósló sé það orðin viðtekin venja að borga mönn- um undirskriftarþóknun, menn fá greiddar tvær milljónir íslenskra króna fyrir það eitt að skrifa undir starfssamning, líkt og þegar knatt- spyrnumenn undirrita nýjan samn- ing. „Þannig að menn nota allt sem þeir geta til að laða að nýtt starfs- fólk.“ Hann segist telja að verði ísland markaðssett sem framandi og spennandi land, þá verði það freist- andi fyrir t.d. Norðmenn eða Breta að koma hingað til starfa. „Vegna þess að þetta er mjög fallegt land og frábragðið öðrum löndum.“ HAMPIÐJAN Rafrœn skráning hlutabréfa Stjórn Hampiðjunar hf., kt. 590169-3079, gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995, hefur hún tekið ákvörðun um að hlutabréf í félaginu verði tekin til rafrænnar skráningar í kerfi Verðbréfaskráningar íslands hf. Rafræn skrán- ing tekur gildi 22. janúar árið 2001 kl. 9.00 árdegis. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifan- legu hlutabréf í félaginu í samræmi við heim- ild í ákvæði til bráðabirgða nr. H í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr. 6. gr. laga nr. 32/2000, um breytingar á ýmsum lögum vegna tilkomu rafrænnar eignarskráningar á verðbréfum og reglugerð nr. 397/2000, um raffæna eignar- skráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð. Nánar tilgreint verða öll hlutabréf Hampiðjunar hf. tekin til rafrænnar skrán- ingar, en þau eru öll í einum flokki, auðkennd raðnúmerum nr. 1-10000 og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi. Hér með er skorað á alla eigendur ofan- greindra hlutabréfa, sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Hampiðjunar hf., að staðreyna skráninguna með fyrirspurn til skrifstofu hlutaskrár Hampiðjunar hf. að Bíldshöfða 9, Reykjavík. Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköUunar þess- arar. Ennfremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi tU ofangreindra hluta- bréfa, s.s. veðréttindi, að koma þeim á fram- færi við fuUgUda reikningsstofnun, sbr. 10. gr. laga nr. 131/1997, um rafræna eignar- skráningu verðbréfa, innan þriggja mánaða frá síðari birtingu innköUunar þessarar. Gæta skal þess að reikningsstofnun hafi gert aðildarsamning við Verðbréfaskráningu ís- lands hf. Við rafræna útgáfu ofangreindra hlutabréfa skiptist hlutaféð í hluti að fjárhæð ein króna og margfeldi þar af. Að lokinni raffænni skráningu geta hluthafar falið reikningsstofnun sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu íslands hf. umsjón með eignarhlut sínum í félaginu. Hluthafar munu fá sendar tUkynningar og reikningsyfirlit í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 397/2000. Stjóm Hatnpiðjunnar hf. MAGNET GLORIA1 DYNEX' £pÖLY-ICE Framleiðandi flottrolla, hlera, kaðla og neta ^ Að sýna bestu hliðina Flest fyrirtæki eiga gríðarlega mikið undir því að talsmenn þeirra séu hæfír, skrifar Sig- urður G. Valgeirsson og að framganga þeirra í fjölmiðlum sé eins fagmannleg og jákvæð og aðstæður hverju sinni leyfa. FORVÍGISMENN fyrirtækja era andlit þeirra út á við og framkoma þeirra ræður miklu um álit mikil- vægra hópa eins og við- skiptavina, fjárfesta, samstarfsaðila og al- mennings. Af öllum miðlum er sjónvarpið sá sterkasti. Fréttatímar stærstu stöðvanna tveggja ná augum og eyram stórs hluta þjóðarinnar og umræðuþáttur um mikilvægt málefni get- ur dregið allt að þrem- ur fjórðu hlutum þjóð- arinnar að skjánum. SkUmerkilegt viðtal sem endar jafnvel með hnyttnu tilsvari verður fólki minnisstætt. Óskýr, illa hugsuð svör og óöragg framkoma getur á hinn bóginn hægt og rólega mótað fremur neikvæða afstöðu almennings til talsmanns og þess fyrirtækis eða málstaðar sem hann stendur fyrir. Þó að þess séu dæmi að talsmenn virðist frá fyrsta degi eins og fiskar í vatni í sjónvarpi er það algengara að fyrstu viðtölin séu stirðleg. Feimni og streita birtist til dæmis í stein- rannu andliti, stami, ræskingum eða því að viðkomandi gjóar augunum útundan sér eins og hann sé með eitthvað alvarlegt á samviskunni. Þeir stjórnendur sem oftast er tal- að við virðast í dag hafa sprottið al- skapaðir fram á sjónarsviðið. Þeir era sjálfsöraggari en fréttamennirn- ir sem spyrja þá útúr og lenda oftast ofaná í rökræðum og viðtölum. Yfir- leitt á þetta fólk þó að baki erfið augnablik fyrir framan fréttamann og tökuvél. Að þeim örfáu frátöldum sem frá upphafi spjara sig vel í sjónvarpi eiga þeir bestu það sameiginlegt að hafa ekki látið hugfallast þrátt fyrir brösótta byrjun. Þetta er fólk sem hefur horfst í augu við vandann, skoðað sjálft sig gagnrýnið og síðan unnið út frá sínum bestu kostum og jafnframt reynt að draga úr þeim göllum sem blasa við á skjánum. Til allrar hamingju eru flestir til- búnir að gleyma - jafnvel fimm sek- úndunum óendanlegu í umræðu- þættinum þar sem hugsunin gufaði skyndilega upp og munnurinn opnaðist bara og lokaðist nokkr- um sinnum. Að halda áfram í stað þess að draga sig í hlé er fyrsta skref að því marki að ná árangri í sjónvarpi. Skynsam- legt er að æfa sig með myndbandstökuvél fjölskyldunnar að vopni. Best og fljótvir- kast er auðvitað að leita sér kennslu og ráðgjafar á þessu sviði. Með fagmannlegri ráð- gjöf, raunsæi, einbeit- ingu og æfingu er hægt að stórbæta frammi- stöðuna á tiltölulega skömmum tíma. Þeim sem óttast að þjálfun verði til þess að allir verði sem steyptir í sama mót má benda á gott knatt- spyrnulið. Leikmennirnir ellefu njóta allir leiðsagnar sama þjálf- arans en framganga þeirra er inn- byrðis ólík. Astæðan er augljós: Eðl- iskostir og hæfileikar fólks eru mjög mismunandi og leiðirnar að markinu era margar. Höfundur er einn eigenda upp- lysingamiðlunar- og almanna- tengslafyrirtækisins Inntaks. Sigurður B. Valgeirsson Sverrir Björnsson og Stefán Einarsson, hönnunarstjörar Hvíta hússins, með nýjasta verðlaunagripinn fyrir Mastercard-auglýsingar. Gullverðlaun í Cresta og New York Festival HVÍTA húsið hlaut gullverðlaun fyrir þrjár Mastercard-auglýsingar í Cresta-auglýsingasamkeppninni sem haldin er í samvinnu við Al- þjóðlegu auglýsingasamtökin, IAA, en úrslit í samkeppninni voru nýl- ega kunngerð. Verðlaunin hlaut Hvíta húsið fyrir auglýsingar úr seríu sem Europay notar fyrir Mastercard. Keppt er í 50 flokkum í Cresta- auglýsingasamkeppninni og var heildarfjöldi innsendinga í keppn- ina yfir 5.000 frá 55 löndum. I úr- slit komst 241 auglýsing og her- ferðir frá 34 löndum. 145 manna dómnefnd sat þekkt auglýsingafólk hvaðanæva úr heiminum. Verð- launin verða afhent á hátíð í Mflanó þann 31. október næstkomandi. í byrjun september fékk Hvíta húsið tilkynningu um að Ma- stercard-auglýsingin með smokk- um hefði hlotið gullverðlaun í flokki fjármálaauglýsinga í New York Festival, sem er stór al- þjóðleg samkeppni um bestu auglýsingar hvers árs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.