Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 13

Morgunblaðið - 12.10.2000, Side 13
‘mörgunblaðið VIÐSKIPTI FIMIÍÍTUÖAGUR12. OKTÓBEÍt'2ÓöO C 13 þeir telji að muni standa uppi sem sigurvegarar og hvort sú sýn sem þessi fyrirtæki hafa samrýmist þeim þörfum sem þeir hafa og koma til með að hafa. Fyrir mér þýðir þetta einfaldlega að menn skilja mikilvægi þess sem Oracle er að gera. Allt E- Business-lausnasafnið gengur út á samhæfingu, þ.e.a.s. það er hannað inn í kerfið frá grunni að ekki bara tengjast öðrum kerfum heldur vera hluti af stærri heild. Þess vegna eru allar þessar mismunandi einingar samtengjanlegar með aðferðum sem eru hluti af grunn-tæknihögun for- ritasafnsins.“ Oracle alltaf náð góðum árangri á ERP-sviðinu Gunnar segir að Oracle hafi alltaf náð góðum árangri á ERP-sviðinu, sviði stærri viðskiptakerfa. „Ólíkt SAP hefur Oracle verið miklu sneggri og gengið betur að komast inn á markað meðalstórra íyrirtækja með því að vera með lausnasafnið samsett úr mörgum mismunandi ein- ingum og einnig með innleiðingarað- ferðum eins og t.d. „FastForward" og „iSpeed", aðferðum þar sem stað- allausn hefur verið skilgreind og menn komast í loftið á mjög stuttum tíma, en þurfa í staðinn að sætta sig við að hafa ekki alla hluti sérsmíðaða. Til aðgreiningar má segja að Oracle bjóði eina heild, þar sem hægt er að „aftengja" þá kerfisvii-kni sem menn hyggjast ekki nota, í stað þess að í öðrum lausnum er gefinn ákveðinn grunnur (grunnlausn) og síðan for- ritað eða sérsniðið ofan á þann grunn það sem upp á vantar. Nálgunin er því gjörólík, og miklu áhættuminni þegar kemur að rafrænum viðskipta- lausnum Oracle. Að mati flestra sérfræðinga hafa SAP-menn líka verið afskaplega seinir til að átta sig á mikilvægi Nets- ins og hvernig Netið hefur áhrif á það hvernig við stundum okkar við- skipti. SAP-arar hafa einnig seint áttað sig á mikilvægi CRM-kerfa og það er aðeins stutt síðan þeir hófu samstarf við sérhæfða CRM-fram- leiðendur. Það þýðir auðvitað að þeir þurfa að taka á vandamálum sem tengjast því að hengja þessi kerfi ut- aná SAP þar sem þessi kerfi eru hönnuð á mismunandi hátt í grunn- inn. Á heildina litið virðist SAP vera að lyppast niður án þess að hafa skýra hugmynd hvað fyrirtækið ætl- ar að gera í framtíðinni." Oracle fljótt að átta sig á möguleikum Netsins Oracle var mjög fljótt að átta sig á möguleikum Netsins og segja má að velgengni fyrirtækisins undanfarin misseri skýrist að einhverju leyti af því. Gunnar segir að það sé ekki síst vegna þess að Oracle ákvað sjálft að nýta E-Business-lausnasafnið og þá aðferðafræði sem fyrirtækið boðaði á markaðnum gagnvart sér sjálfu. „Fram til þessa dags er árangur fyr- irtækisins ótrúlegur og hefur skilað sér í lækkun rekstrarkostnaðar um 1,3 milljarða bandaríkjadala á 15 mánuðum. Takmarkið er að ná tveggja milljarða markmiðinu fyrir mitt næsta ár. Þetta þýðir að „bott- om line“ sýnir hreina tvo milljarða til viðbótar m.v. eldra viðskiptamódel- ið.“ Gagnrýnendur Oracle hafa þó haldið því fram að grunnurinn sé gamaldags hönnun í grunnþáttum samanborið við til að mynda DB/2 gagnagrunn IBM sem sé nýlega end- urskrifaður gagnagrunnur og því nú- tímalegri. Gunnar svarar því til að að sínu mati hafi IBM-menn sjálfir komið með bestu rökin fyrir því af hverju Oracle-gagnagrunnar standa framar en gagnagrunnar í DB/2 fjöl- skyldunni í hvítbók sem tekur á því hvemig flytja eigi gögn frá Oracle yf- ir í DB/2. „DB/2 er eftir sem áður sundurleit fjölskylda af gagnagrunn- um, sem allir sem einn eru lakari en Oracle. Reyndu að fá IBM til að gefa skriflega tryggingu fyrir því að þú getir hvenær sem er, án þess að breyta forritunum þínum, flutt gagnagrunnskerfin þín frá OS/2, yfir á NT, yfir á AIX, yfir á HP-UX yfir á Linux, yfir á AS/400 yfir á OS/390 - vandræðalaust! Ég hef ekki mikla trú á að þeir þyrðu að gefa slíka tryggingu. Þetta hefur hinsvegar verið einn af styrkleikum Oracle í gegnum tíðina. Ef við horfum fram- hjá þessu má einnig benda á að virkni í Oracle 8i er miklu meiri en nokk- umtíma í DB/2.“ Fullkominn hugbúnaður með marga möguleika Aðspurður hvaða fótur sé fyrir þeirri gagnrýni sumra að netlausnir Oracle séu fullflóknar segist Gunnar ekki sammála þeirri staðhæfingu. „Oracle er fullkominn hugbúnaður með marga möguleika, og það þarf því mikla þekkingu til að nýta þá alla til fulls. Án þess að ég vilji vera hrokafullur hljóma svona fullyrðing- ar fyrir mér eins og þeir sem segja slíkt skilji ekki muninn á flækjustigi og sveigjanleika. Veflausnir Oracle em gríðarlega öflugar, enda fyrir- tækið búið að leggja mikla áherslu á Netið í mörg ár. Það er afskaplega einfalt að koma gögnum beint úr Oracle á vefinn og til að mynda getur Oracle 8i talað beint og milliliðalaust út á vefinn. Hinsvegar er þessi hug- búnaður einnig mjög sveigjanlegur og til að nýta sér alla hugsanlega möguleika þarf maður auðvitað mikla þekkingu. Það er hinsvegar ekkert sem segir að til að geta nýtt möguleika 1-3 þurfi að kunna á möguleika 4-200. Að auki stendur enginn Oracle á sporðihvað snerth- skalanleika, því auka má afköst nán- ast línulega með því að fjölga vélum án þess að minnka áreiðanleika eða uppitíma. Varðandi þróun þessara mála má nefna að Oracle hefur ný- lega lagt sínum eigin vefmiðlara sem byggðist á Spyglass og brúkar núna Apache einfaldlega af því að Apache er betri. Vestan hafs nota 96% af Fortune e-50 fyrirtækjunum og 92% af. USA Today Intemet 100 fyrir- tækjunum Oracle." Oracle var með fyrstu fyrirtækjum sem hömpuðu kerfisveituhugmynd- inni, en í kjölfarið deildu sumir sam- starfsaðilar fyrirtækisins á það fyrir að vera komið í samkeppni við þá. Gunnar segir aftur á móti að hingað til hafi Oracle ekki misst neinn sam- starfsaðila vegna Business Online- þjónustunnar. ,AHir hugbúnaðar- framleiðendur, allt frá SAP til Damgaard og Navision, hafa farið af stað með mismunandi útgáfur af kerfisveitum. SAP með MySAP, Damgaard með danska samstarfínu við Ax Business Intelligence og Nav- ision með ófullburða tilraunum sín- um vestan hafs. I þessu samhengi er rétt að geta þess að menn útfæra tvær lausnir, hefðbundna biðlara- miðlara lausn og svo netlausn. Oracle er bara með eina lausn, sem er net- lausn. Það kostar helmingi meira í þróun að vera með tvær lausnir held- ur en eina. Þeir sem halda úti tveim- ur lausnum munu eiga í miklum erf- iðleikum þegar fram í sækir og allar líkur á því að þeir verði undir í bar- áttunni við Oracle því það verður helmingi fljótara að koma nýjungar og viðbætur, heldur en keppinautur- inn sem þarf að halda úti tveimur út- gáfum. Þar fyrir utan geta allir Or- acle-samstarfsaðilar selt og innleitt þjónustuna og haft tekjur af henni. Við eigum hinsvegar eftir að sjá hvemig fer ef samstarfsaðilar Oracle byrja að vinna með samkeppnisað- ilum Oracle vegna kerfisveita Oracle. Það er þó ólíklegt að það verði þar sem samstarfsaðilar Oracle geta haft vel upp úr þvi að selja og innleiða kerfisveitulausnir frá Öracle.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.