Morgunblaðið - 17.10.2000, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
ÞRIÐJUDAGUR 17. OKTÓBER 2000 B 3
Viggó Sigurðsson ánægður þó svo að hann hafi fengið reisupassann í Braga
Eg er óhræddur
fyrir síðari átökin
ÞAÐ var stoltur þjálfari sem
gekk af leikvelli í Braga þrátt
fyrir að hann hafi fengið reisu-
passann - rauða spjaldið hjá
dómurum leiksins. Gefum
þjálfaranum, sem kallar ekki allt
ömmu sína í spennuleikjum,
orðið - Viggó Sigurðsson.
W
gg get ekki verið annað en ánægð-
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
frá Braga
ur með leik strákanna. Þeir
spiluðu mjög vel og agað allan tím-
ann. Við vorum ekki
bara að fást við
Braga heldur vorum
við að keppa við
dómara frá Sviss,
sem voru okkur vægast sagt afar
óhagstæðir. Við vorum að spila gegn
gífurlega rútíneruðu liði sem hefur
farið í undanúrslit í Evrópukeppni ár
eftir ár og þess vegna þurftum við að
halda haus allan tímann sem við
gerðum," sagði Viggó.
Hvemig metur þú stöðuna fyrir
síðari ieikinn á Ásvöllum um næstu
helgi?
„Eg met hana jafna. Leikmenn
Braga eru vanir því að vera í svona
stöðu. Þeir slógu Magdeburg út úr
keppninni í fyrra og duttu svo út í
undanúrslitunum gegn Flensburg -
þar sem markamunurinn var jafn, en
Flensburg fór áfram á fleiri mörkum
skoruðum á útivelli. Á þessu sést að
þetta eru ekkert venjulegir karlar.“
Hvað varst þú ánægðastur með í
leikliðsins?
„Ég er ánægðastur með hvað liðið
sýndi mikinn karakter. Menn börð-
ust eins og ljón og héldu jafnvægi all-
an tímann. Mér finnst leikmenn mín-
ir vel undirbúnir fyiirátök. Því ég er
óhræddur fyrir síðari átökin. Við
þurfum að vinna Braga með meira en
þremur mörkum. Heimavöllur á að
gefa okkur fimm til sex mörk. Já,
með Hauka í horni,“ sagði Viggó.
Ekki hægt annað
en vera ánægður
„Það er ekki hægt að vera annað
en ánægður með þessi úrslit. Ég held
að við eigum jafna möguleika á að
komast áfram. Þrjú mörk í Evrópu-
keppni er ekki
mikið og við eigum heimavöllinn í
seinni leiknum. Eg ætla að vona að
fólk mæti í Ásvelli og styðji vel við
bakið á okkur," sagði Halldór Ing-
ólfsson, fyrirliði Hauka.
„Við ætlum okkur auðvitað að
komast áfram í þessari keppni og því
munum við selja okkur dýrt í seinni
viðureigninni.
Við vorum búnir að ræða það fyrir
leikinn að við mættum alls ekki falla í
þá gryfju að fara að flýta okkur of
mikið og missa leikinn út í einhverja
vitleysu. Við gáfum okkur góðan
Halldór Ingólfsson á hér í höggi við Júrí Kostetsky, sem skoraði fjórtán mörk fyrir Braga.
tíma í sókninni og lékum mjög agað.
Við vorum að spila töluvert öðruvísi
en heima. Við reyndum að róa leikinn
niður og nýttum tímann vel þegar við
vorum í sókninni. Ég held að leikað-
ferð okkar hafi gengið að mestu leyti
upp en eftir á er maður svolítið
svekktur að hafa ekki nýtt þessi tvö
víti á lokamínútunum," sagði
Halldór.
Dómgæslan óhagstæð
„Ég er gríðarlega ánægður með
þennan leik og ég held að við höfum
náð að gera að mestu það sem við-
lögðum upp með fyrir leikinn," sagði
Óskar Armannsson.
„Við ætluðum að spila okkar bolta
og ég held að það hafi tekist ágæt-
lega. Dómgæslan var okkur óhag-
stæð og auðvitað vorum við búnir að
búa okkur undir það. Við misstum
aldrei móðinn þrátt fyrir mótlætið og
það sýnir styrkinn í liðinu.
Við förum í seinni leikinn með það
fyrir augum að slá þá út og með góð-
um leik ætti það að vera hægt,“ sagði
Óskar.
Petr Baummk
nálgast Gústaf
PETR Baumruk, sem hefur
Ieikið flesta Evrópuleiki
Hauka, eða þrettán af sautján
leikjum þeirra í Evrópu-
keppni, nálgast óðfluga
markamet Gústafs Bjarnason-
ar. Baumruk hefur skoraði 55
mörk í Evrópukeppninni fyrir
Hauka, en Gústaf er efstur á
blaði með 71 mark í tíu leikj-
um. Halldór Ingólfsson er í
þriðja sæti með 36 mörk - í
sjö leikjum og þá kemur Aron
Kristjánsson með 33 mörk í
tíu leikjum.
Baumruk á sextán mörk í
markamet Gústafs. Möguleik-
ar Baumruks eru óneitanlega
góðir að gefa Gústaf langt nef.
Óskar Armannsson, sem
skoraði tvö mörk fyrir Hauka
gegn Braga og fjögur mörk í
tveimur leikjum gegn Eynatt-
en á dögunum, er sá Ieikmað-
ur Hauka sem hefur skorað
flest Evrópumörk. Hann skor-
aði 52 mörk í Evrópuleikjum
með FH og hefur því skorað
58 Evrópumörk.
Leikmennirnir ná þó ekki
að ógna þjálfaranum Viggó
Sigurðssyni, sem skoraði 87
mörk fyrir Víking á árum áð-
ur.
Þávar
öldin
önnur...
HAUKAR náðu mjög góð-
um árangri gegn ABC
Braga í Portúgal á sunnu-
daginn. Þeir töpuðu ekki
fyrir portúgalska liðinu
nema með þremur mörk-
um, en síðast er Haukar
léku í Braga var munurinn
tólf mörk. Það var er
Haukar léku við Braga í
Evrópukeppni borgarliða
1994-95. Þá komu Haukar
heim með stóran skell,
28:16, en fögnuðu sigri í
seinni leiknum - í Hafnar-
firði, 28.25.
Þess má geta til gamans
að þegar Haukar léku síð-
ast í Braga, héldu þeir frá
íslandi með hópferð í
þotu. Þorgeir Haraldsson,
formaður handknattleik-
sdeildar Hauka, var flug-
maður í ferðinni, en flug-
stjóri var pabbi Páls
Ólafssonar, sem var þá
leikmaður með Haukum,
en er nú þjálfari HK.
Aðeins tveir leikmenn
sem léku með Haukum á
laugardaginn, voru þá
með í ferð - Bjarni Frosta-
son markvörður sem er
flugmaður og Petr Baum-
ruk sem má segja að sé
einnig „flugmaður" - það
var einmitt hann sem lyfti
Haukum á flug í einvíginu
við Fram um Islandsmeist-
aratitlinn sl. keppnis-
tímabil.
Já, Haukar brotlentu
síðast í Braga, en nú er
öldin önnur - þaðan er
tekið létt flugtak.
Mótheriar
ÍBV
óstöðvandi
BUXTEHUDE, mótheijar ÍBV í 2.
umferð EHF-keppninnar í hand-
knattleik kvenna, hefur farið vel
af stað í heimalandi sínu. Buxtehu-
de vann um helgina sigur á
Leipzig, tvöföldum meisturum síð-
asta tímabils, 25:24, og er efst með
fullt hús stiga, 12 stig eftir 6 um-
ferðir. Á þeim 12 árum sem félag-
ið hefur leikið í efstu deiid hefur
það aldrei byijað jafn vel og met-
aðsókn var á leikinn við Leipzig,
1.700 áhorfendur mættu. Al-
eksandra Pavlska var í aðal-
hlutverki hjá Buxtehude og skor-
aði 8 mörk og ljóst er að
Eyjakonur þurfa að hafa góðar
gætur á henni. Besti leikmaður
vallarins var þó markvörður
Buxtehude, Silke Christiansen.
Haukar í kjölfar KA-manna?
HAUKAR eiga góða möguleika á að sigla í kjölfar KA-manna og vera
með í meistaradeild Evrópu í handknattleik. KA-menn tóku þátt í
meistaradeildinni 1997-1998. Haukar þurfa aðeins að leggja ABC
Braga frá Portúgal að velli á Ásvöllum með fjórum mörkum um
næstu helgi, til að endurtaka leik KA.
Leikmenn KA léku í riðli með ít-
alska liðinu General Trieste,
Celje Pivovarna frá Slóveníu og
hinu sterka liði Badel Zagreb frá
Króatíu, en ef Haukar ná að leggja
Braga að velli, verða mótherjar
þeirra þýsku meistararnir frá Kiel,
sem hafa á að skipa einu besta liði
Evrópu, danska liðið GOG Gudme
og Minsk frá Hvíta-Rússlandi eða
General Trieste frá Ítalíu.
Fyrstu leikirnir í meistaradeild
Evrópu fara fram 11. eða 12. nóv-
ember og ef Haukar komast áfram
byrja þeir í Kiel. Leikið er í fjór-
um fjögurra liða riðlum og komast
tvö efstu liðin úr hverjum riðli
áfram í 8-liða úrslit.
Ef svo fer að Haukar ná ekki að
komast áfram er þátttaka þeirra í
Evrópukeppninni ekki búin. Þeir
fara þá í 3. umferð EHF-keppn-
innar og mæta þá Bodö frá Nor-
egi, sem lagði Rauðu strákana frá
frá Lúxemborg að velli í tveimur
leikjum í Noregi um helgina.
Það yrði óneitanlega mikil lyfti-
stöng fyrir handknattleik á íslandi
er Haukar næðu því að komast í
meistaradeild Evrópu.
Viggó Sigurðsson segir að ef allt
fari að óskum komi Haukar til
meða að leika gegn öðru sterkasta
félagsliði heims - Kiel, sem kemur
næst á blaði á eftir Barcelona.
„Það er valinn maður í hverju
rúmi hjá Kiel, eins og sænsku leik-
mennirnir Magnus Wislander,
Staffan Olsson og Stefan Lövgren.
Danski leikmaðurinn Nikolaj
Jacobsen, norski landsliðs-
markvörðurinn Steinar Ege og
Júgóslavneski risinn Nenad Per-
unicic, svo einhverjir séu nefndir.
Það yrði mikill skóli fyrir leik-
menn Hauka að leika fyrir framan
sjö þúsund áhorfendur í ljóna-
gi-yfjunni í Kiel,“ sagði Viggó.
Skjem á
sigurbraut
SKJERN vann stórsigur á
Árhus HK, 32:20, í dönsku
úrvalsdeildinni i' hand-
knattleik um helgina. Aron
Kristjánsson skoraði 3 mörk
fyrir Skjern og Daði
Hafþórsson 2. Lið þeirra
þótti sýna fjölbreyttan sókn-
arleik og vörn og mark-
varsla voru í góðu lagi.
Skjern hefur 8 stig eftir 5
umferðir og er í fjórða sæti
en fyrir ofan era FIF með 10
stig, Viram með 9 og Kold-
ing með 8 stig.