Morgunblaðið - 20.10.2000, Side 1
FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000
ÁFÖSTUDÖGUM
Nafnlausi maðurinn sem varð nafn
E
Gamlar og nýjar Disneyrímur
Ellism®Ilur
Eastwoods
CLINT Eastwood er fyrir löngu orðinn ein helsta lifandi goðsögnin í
bandarískri kvikmyndagerð. Þessi svipbrigðalitli, hávaxni leikari,
sem varð heimsfrægur fyrir að leika „nafnlausa manninn" í spag-
hettivestrum Sergios Leone, er ekki aðeins sönn stjarna heldur fjöl-
hæfur og vandvirkur leikstjóri, sem þó hefur átt misjafnan dag, bæði
fyrir framan og aftan tökuvélina. I næstu viku hefjast sýningar hér-
lendis á nýjustu mynd hans, Geimkúrekunutn, sem
er sannkallaður ellismellur, og af því tilefni fjallar
Árni Þórarinsson um líf og starf Clints Eastwood.
Wait, Mikki Mús
og MHdd Eisiwr
WALT Disney-fyrirtækið er eitthvert voldugasta kvikmyndafyrir-
tæki samtímans með fjölda dótturfyrirtækja og fjölbreytta starfsemi.
Teiknimyndirnar eru þó sá gamli grunnur, sem fyrirtækið var byggt
á, allt frá tímum frumkvöðulsins Walts Disney. Höfuðverk hans var
metnaðarmikil blanda teiknimyndar og klassískrar tónlistar,
Fantasia. Nú hefur sú perla verið pússuð uppá nýtt og Fantasia 2000
er sýnd hérlendis. Sæbjörn Valdimarsson rekur rætur Disney-
veldisins, frá Mikka mús til núverandi stjómanda, Michaels Eisners.
Nýtt í bíó
Lopez í
undirmeð-
vitundinni
• Laugarásbíó, Háskólabíó og Borg-
arbíó Akureyri frumsýna í dag nýjan
spennutrylli meö Jennifer Lopez sem
heitir The Cell. Leikstjóri er Tarzem
en myndin segirfrá geðlækni sem
fundið hefur upp aöferð til þess að
komast í undirmeðvitund fólks og
lögreglan fær hana til þess að ferð-
ast um hugsanirfjöldamorðingia í
þeirri von að hægt sé að bjarga síö-
asta fórnarlambi hans.
Lúðar
í háskóla
• Stjörnubíó frumsýnir i dag banda-
rísku gamanmyndina Lúöann eða
Loser eftir Amy Hecklering. Með
aöalhlutverkin fara Jason Biggs og
Mena Suvari. Segir myndin frá
tveimur háskólanemum og hvernig
þeir hittast ogtaka að búa saman.
Bæði eru hálfutangátta í skólanum
en hafa styrk hvort af öðru.
Vandinn
við slúður
•Sambíóin Álfabakka og Kringlubíó
frumsýna bandarísku spennumynd-
ina Slúöureöa Gossip. Leikstjóri er
David Guggenheim en með aðal-
hlutverkin fara James Marsden,
Lena Headey, Norman Redus, Kate
Hudson ogJoshua Jackson. Myndin
gerist í háskóla og segir af því þegar
nokkrir félagar setja slúðurfrétt í
skólablaðið sem enginn fótur er fyrir
og afleiðingunum sem þaö hefur.
Leirkjúllar
•í dagfrumsýna Sambíóin Álfa-
bakka, Háskólabíó, Nýja bíó Keflavík
og Nýja bíó Akureyri bresk/banda-
risku leirbrúðumyndina Kjúklinga-
flótta eða Chicken Run. Hún verður
sýnd með íslensku og ensku tali en
hún segirfrá flóttatilraunum nokkurra
kjúklinga af kjúklingabúgarði og mun
að einhverju leyti vera byggð á stríðs-
fangadramanu The Great Escape.
Mel Gibson fer með aöalhlutverkið í
ensku talsetningunni.
Væntanlegt
Englar
Charlies
•Sambíóin Álfabakka, Stjörnubíó,
Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri og
Nýja bíó Keflavíkfrumsýna hinn 24.
nóvember spennumyndina Engla
CharHes eða Charlie’s Angels, sem
gerö er eftir samnefndum sjónvarps-
þáttum. Með aöalhlutverkinfara
Cameron Diaz, Drew Barrymore,
LucyLiu og BillMurray. Leikstjóri er
McG, eins og hann kýs að kalla sig.
Fraser og
Hurley
•Stjörnubíó, Sambíóin, Álfabakka,
Borgarbíó, Akureyri, og Nýja bíó,
Keflavík, frumsýna 27. október
bandarísku gamanmyndina Bedazzl-
ed meö Brendan Fraser og Elizabeth
Hurley i aðalhiutverkum. Leikstjóri er
HaroldRamis. Myndin segirfrá
manni sem gengur ekki of vel í
kvennamálum en fær sjö óskir í
skiptumfyrirsál sína.
Nornaverk-
efnið 2
•Áætlað er að frumsýna fram-
haldsmynd The Blair Witch Project
þann 17. nóvember. Hún heitir
Skuggabókin: Nornaverkefniö 2
eða Shadow Book: Blair Witch Proj-
ect 2 og er leikstýrt af Joe Berling-
er. Verður hún sýnd í Sambíóunum
Álfabakka, Kringlubíói, Nýja bíói
Keflavík og Nýja bíói Akureyri og
segir af enn frekari óhugnaði í
skóglendinu við Burkettesville.
Særinga-
maðurinn
snýr aftur
•Sambíóin Álfabakka, Kringlubíó og
Nýja bíó Akureyri endursýna hinn 3.
nóvember hryllingsmyndina marg-
frægu Særingamanninn eða The Ex-
orcisti leikstjórn Williams Friedkins.
Hann hefurendurskoöaö fyrri útgáfu
og bætt viö nokkrum mínútum en
sem kunnugt er fjallar myndin um 12
ára stúlku sem verður andsetin af
djöflinum. Með aöalhlutverkinfara
Ellen Burstyn, Max Von Sydow,
Jason Miller og Linda Blair.
Edduverðlaunin afhent 19. nóvember í Þjóðleikhúsinu
störfum
aunafíokkar
E
EDDUHÁTÍÐIN, þar sem verðlaun
Islensku kvikmynda- og sjónvarps-
akademíunnar fyrir árið 2000 verða
afhent, fer fram í Þjóðleikhúsinu að
kvöldi sunnudagsins 19. nóvember
og verður hátíðin sýnd í beinni út-
sendingu í Sjónvarpinu. Sjö manna
valnefnd, skipuð aðilum óháðum
akademíunni, er að störfum við til-
nelningar en í hverjum verðlauna-
flokkanna tólf verða þrjár tilnefning-
ar. Þær verða kynntar 2. nóvember.
Þetta er í annað sinn, sem Eddu-
verðlaunin eru afhent. Að sögn Ás-
gríms Sverrissonar, framkvæmda-
stjóra hátíðarinnar, munu félagar
akademíunnar, sem eru á sjötta
hundrað talsins, síðan kjósa milli til-
nefninganna frá 13. til og með 17.
nóvember. Almenningur getur einn-
ig tekið þátt í kjörinu á Netinu, nán-
ar tiltekið mbl.is, og er vægið 30% á
móti 70% vægi kosningar akad-
emíunnar. Verðlaunaflokkarnir eru:
Bíómynd ársins, leikið sjónvarps-
verk ársins, heimildamynd ársins,
leikari og leikkona ársins í aðalhlut-
verkum, leikari og leikkona ársins í
aukahlutverkum, en það eru nýir
flokkar, leikstjóri ársins, sjónvarps-
þáttur ársins, þrenn fagverðlaun
verða veitt og sérstök heiðursverð-
laun. Þá verður valinn sjónvarps-
maður ársins en sú kosning fer ekki
fram innan akademíunnar heldur
einvörðungu meðal almennings á
mbl.is, en eins og í fyrra er Morgun-
blaðið aðalstyrktaraðili Eddu-verð-
launanna. Þá er þess ógetið að á há-
tíðinni verður einnig tilkynnt
niðurstaða kosningar akademíunnar
um framlag íslands til Óskarsverð-
launanna.
Ásgrímur Sverrisson segir að
Edduhátíðin verði enn veglegri en í
íyrra og verði boðið upp á ýmis
glæsileg skemmtiatriði, auk verð-
launaafhendingarinnar sjálfrar. Þá
verði kosningin meira spennandi því
fleiri íslenskar bíómyndir eru í pott-
inum en 1999. Þær eru í þeirri röð
sem þær voru frumsýndar: Myrkra-
höfðinginn, Englar alheimsins,
Fíaskó, 101 Reykjavík og íslenski
draumurinn. Valnefndin tilnefnir
síðan þrjár af þessum fimm, en þær
eru hins vegar allar kjörgengar til
Óskarsverðlaunanna.
Höfundur Eddunnar, verðlauna-
grips íslensku kvikmynda- og sjón-
varpsakademíunnar, er Magnús
Tómasson. Stjómarformaður akad-
emíunnar er Björn Brynjúlfur Björns-
son.