Morgunblaðið - 20.10.2000, Blaðsíða 6
6 D FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐIÐ
Frumsýning Bíóhöllin og Kringlubíó frumsýna bandarísku
spennumyndina Gossipeða Slúðurmeö James Marsden.
Gossip: Áhrifslúðursins.
fram trúverðugar persónur. Mikil-
vægasta hlutverkið var Derrick
Webb, leiðtogi unga fólksins. Hann er
ríkur og sjálfsöruggur og fær félaga
sína í lið með sér þegar hann tekur að
leika sér að lífi fólks. James Marsden
hreppti hlutverkið.
„Það sem Jimmy Marsden gerði í
prufutökunni var alveg stórfeng-
legt,“ er haft eftir leikstjóranum.
„Hann var ótrúlegur. Hann lifði sig
inn í persónuna af fullkomnu öryggi.
Ég vissi það strax að þarna höfðum
við fundið okkar Derrick.“
Marsden var glaður að fá hlutverk-
Slúður
Leikarar:____________________
James Marsden, Lena Headey,
Norman Reedus, Kate Hudson
ogJoshuha Jackson.
Leikstióri: ______________
Davis Guggenheim.
ið. „Þetta er mynd sem snýst öll í
kringum samtöl, tilfinningar, ástæð-
ur fyrir gerðum persónanna og á end-
anum, vona ég, um sjálfan leikinn."
Þrír vinir skrifa í háskólablað og gera
ekki skýran greinarmun á slúðri og
fréttum. Þetta eru Derrick (James
'Marsden), Jones (Lena Headey) og
Travis (Norman Reedus). Kvöld eitt í
villtu samkvæmi utan háskólalóðar-
innar sér Derrick einkar kræsilegt
viðfangsefni í næstu slúðurfrétt þeg-
ar hann rekst á Nomi (Kate Hudson),
ríkan nýnema, drukkna í höndunum á
Beau (Joshua Jackson). Þremenn-
ingamir segja frá því að þau Nomi og
Beau hafi sofið saman þótt ekki sé
fótur fyrir því.
Það á eftir að draga dilk á eftir sér
og brátt hafa spilin snúist mjög í
höndunum á „fréttamönnunum".
Þannig er söguþráðurinn í banda-
rísku myndinni Gossip eða Slúðri sem
frumsýnd er í Bíóhöllinni og Kringlu-
bíói í dag. Með aðalhlutverkin fara
i James Marsden, Lena Headey, Norm-
an Reedus, Kate Hudson og Joshuha
Jackson en leikstjóri er Davis Gugg-
enheim og er þetta fyrsta myndin
sem hann gerir í fullri lengd, hann
hefur stýrt sjónvarpsþáttum á borð
við E.R. og NYPD Blue.
Hugmyndin að Slúðri varð til hjá
hinum vinsæla leikstjóra Joei
Schumacher (Batman & Robin,
8MM). Hann ætlaði að leikstýra
myndinni sjálfur og á meðan hand-
ritið var í þróun hjá Wamer Bros.
kvikmyndaverinu fékk hann fram-
* leiðenduma Jaffrey Silver og Bobby
NewmyertH liðs við sig. Þegar til kom
hafði Schumacher ekki tfma til þess
að leikstýra myndinni og framleið-
endurnir fengu Guggenheim f starfið.
Honum leist strax vel á verkefnið.
„Hugmyndin varð til hjá Schu-
macher,“ segir hann, „sem vildi skoða
hvað gerðist ef þú slepptir einhveiju
frá þér og gætir ekki tekið það aftur.
Hann hefur einnig náð miklum ár-
angri í því að leikstýra stómm leik-
hópum og það vakti líka áhuga minn.“
Það var nokkmm erfiðleikum
bundið að setja saman leikarahópinn
fyrir myndina. Leikaramir urðu að
vera nógu ungir til þess að geta verið
í háskólanámi en þeir urðu einnig að
vera nógu leiknir til þess að setja
Slúðurfrétt og eftirmál hennar:
James Marsden íhlutverki sínu.
Hættulegt
sluður
Frumsýning Laugarásbíó, Háskóla-
bíó og Borgarbíó, Akureyri, frumsýna
bandarísku spennumyndina The Cell
meö Jennifer Lopez.
fjofdamóroingja
CATHERINE Deane (Jennifer Lopez)
er geðlæknir sem hefur verið að gera
tilraunir með byltingarkennda með-
ferð. Með ákveðinni tækni getur hún
hreinlega upplifað það sjálf sem er að
gerast í undirmeðvitund sjúklinga
sinna, þar á meðal drauma þeirra og
leyndustu hugsanir. Hingað til hefur
hún aðeins notað aðferð þessa í einu
tálviki, á meðvitundarlausu bami, og
reynt með henni að koma því til með-
vitundar.
Síðan gerist það að fjöldamorðing-
inn Carl Stargher (Vincent D’Onofr-
io) lendir í samskonar dái í höndum
lögreglunnar. Síðasta fómarlamb
hans berst fyrir lífi sínu á felustað
sem aðeins Carl veit um og FBI-lög-
reglumaðurinn Peter Novak (Vince
Vaughn) fær Catherine til þess að
nota aðferð sína við fjöldamorðingj-
ann og reyna að komast að því hvar
hann geymir fómarlamb sitt.
Þannig er söguþráðurinn í banda-
ríska spennutryllinum The Cell með
fjöllistakonunni Jennifer Lopezí aðal-
hlutverki. Myndin er frumsýnd í dag í
Laugarásbíói, Háskólabíói og Borg-
arbíói á Akureyri. Með önnur hlut-
verk fara Vincent D’ Onofrio, Vince
Vaughn, Marianne Jean - Baptiste,
Jake Weber og Dylan Baker. Hand-
ritið gerir Mark Protosevich en leik-
stjóri er Tarsem Singh.
Handrit Protosevich varð til þegar
hann fór að velta fyrir sér tvenns kon-
ar vísindarannsóknum. Annar vegar
rannsóknum á fjöldamorðingjum og
hins vegar rannsóknum á draumum
og undirmeðvitund. Hann fór að velta
fyrir sér draumum og hugaróram
morðingja og komst að því að það var
óplægður akur í kvikmyndunum.
„Ég vildi notfæra mér áhuga minn á
martröðum, draumum og hugaróram
til þess að búa til nýja gerð fjölda-
The Cell: Jennifer Lopez í drauma-
heimi morðingjans.
Cell
Lelkarar:_____________________
Jennifer Lopez, Vincent D’ On-
ofrio, Vince Vaughn, Marianne
Jean-Baptiste, Jake Weber og
Dylan Baker.
Lelkstióri:___________________
Tarsem Singh.
morðingjatrylla," er haft eftir hand-
ritshöfundinum. „Ég vildi stíga skrefi
lengra en í myndinni Lömbin þagna.
Ég vildi ekki aðeins velta fyrir mér því
hvemig fjöldamorðingjar hugsa held-
ur líka því hvemig ímyndun þeirra
virkar. Ég vissi að þetta mundi vera
skelfíng spennandi efni vegna þess að
hugarórar eru svo miklum mun ílókn-
ari og villtari en daglegt líf okkar vitn-
arum.“
Leikstjórinn Tarsem hefur ekki áð-
ur gert bíómynd en er kunnur leik-
stjóri auglýsinga- og tónlistarmyndb-
anda. „Möguleikamir sem fólust í
hinni myndrænu útfærslu handritsins
var fengu mig til þess að gera þessa
mynd,“ er haft eftir honum. „Hug-
myndin sem liggur að baki handritsins
á sér í raun engin takmörk."
Frumsýning Bíóhóllin, Háskólabíó,
Nýja bíó, Akureyri, og Nýja bíó, Keflavík,
frumsýna leirmyndina Kjúklingaflótta
meö íslensku og ensku tali.
ÞEIR eru fangar geymdir á bak
við gaddavírsgirðingar og óttast
um líf sitt en dreymir um lífið utan
.fangelsisveggjanna. Hver einasta
ílóttatilraun hefur misheppnast og
þeir sem í hlut eiga settir í hræða-
lega einangran. En þetta er heldur
ekkert venjulegt fangelsi og þetta
eru engir venjulegir fangar.
Þeir eru fangar Tweedy-kjúkl-
ingabúsins þar sem hver og einn
kjúklingur gæti orðið að dýrindis
máltíð. En hörkukjúllinn Ginger er
ákveðin í því að leggja á flótta og
leggur allt í sölurnar, sérstaklega
eftir að fréttist af nýjustu maskínu
kjúklingabúsins, kjúklingabökuvél-
inni. Hún fær einfarann Rocky í lið
■með sér og nú á að gera síðustu og
alvarlegustu tilraunina til fjölda-
flótta.
Þannig er söguþráðurinn í
bresk/bandarísku gamanmyndinni
Chicken Run eða Kjúklingaflótta
sem frumsýnd er í fjórum kvik-
myndahúsum þessa helgi. Hún er
sýnd bæði með íslensku og ensku
tali en í síðarnefndu útgáfunni fara
Mel Gibson, Julia Sawalha og Mir-
anda Richardson með aðalhlut-
verkin. Helstu raddir í íslensku
talsetninguna tilheyra Hilmi Snæ
Guðnasyni, Helgu Jónsdóttur og
Ingu Maríu Valdimarsdóttur.
Framleiðandi myndarinnar vestan-
hafs er DreamWorks, fyrirtæki
Raddir:________________________
Mel Gibson, Julia Sawahla, Mir-
anda Richardson og í ísl. tal-
setningunni Hilmir Snær
Guönason, Helga Jónsdóttir og
Inga María Valdimarsdóttir.
Leikstiórar:___________________
Peter Lord, Nick Park (Wallace
& Gromit, Creature Comfort).
Hænan frakka Ginger: Óttast kjúklingabökuvélina.
Stevens Spieibergs og félaga, en
höfundar era Bretarnir Peter Lord
og Nick Park.
Kjúklingaflótti er leirmynd, all-
ar persónurnar eru mótaðar úr
leir, en þeir Peter Lord og Nick
Park eru einna fremstu leirmynda-
smiðir í heiminum.
Þeir hafa unnið til Óskars-
verðlauna fyrir myndir sínar um
Wallace & Gromit og myndina
Creature Comforts. Fyrirtæki
þeirra heitir Aardman og það var
eiginlega aðeins tímapursmál hve-
nær það réðist í gerð bíómyndar í
fullri lengd sem byggðist á leir-
myndatækninni.
„Allt frá því að við fengum
fyrstu Óskarsverðlaunin,“ segir
Peter Lord, „hefur fólk verið að
spyrja okkur að því hvort við ætl-
uðum ekki að gera leirmynd í fullri
lengd. Við skoðuðum marga mögu-
leika og gáfum okkur góðan tíma
en uppástungurnar um söguefni
hafa verið óteljandi. Ekkert af því
féll okkur í geð svo við biðum allt-
af og létum tímann vinna með okk-
ur.“
Framleiðandinn, Jake Eberts,
sem þekkir nokkuð til brúðu-
mynda sem framleiðandi James
and the Giant Peach, heimtaði loks
fund með tvímenningunum þar
Kjullinn Rocky: Einfari sem kemur
til hjálpar á Kjúklingaflótta.
sem ræða skyldi kvikmyndaverk-
efni. „Ég vissi ekki á hverju ég gat
átt von,“ segir Eberts, en þeir
komu mér skemmtilega á óvart.“
Hugmyndin um kjúklinga í að-
alhlutverkum er fengin úr teikn-
ingu sem Nick Park gerði af
kjúklingi að grafa holu með skeið
undir gaddavírsgirðingu. „Mér
hafa alltaf þótt kjúklingar sérlega
fyndin dýr,“ er haft eftir lista-
manninum. „Þegar þú sérð þá
fyrst í myndinni hugsarðu með
þér, ojæja, þetta eru nú bara
kjúklingar, en svo kemstu að því
að kjúklingar eru líka fólk eins og
allir aðrir.“