Morgunblaðið - 24.10.2000, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
h
IÞROTTIR
Sigurvin
ræðir við
Eyjamenn
SIGURVIN Ólafsson knatt-
spymumaður, sem leikið hef-
ur með liði Fram undanfarin
tvö ár, er kominn í viðræður
við sitt gamla félag, IBV.
Hann átti fund með for-
ráðamönnum IBV í gær og
að sögn Eyjamanna gera
þeir sér miklar vonir um að
fá Sigurvin í sínar raðir.
Sigurvin er samnings-
bundinn Fram en að sögn
Bjaraa Hákonarsonar, fram-
kvæmdastjóra hlutafélags
Fram, munu Framarar ekki
standa í vegi fyrir því ef Sig-
urvin vill fara frá félaginu.
Hilmar einnig á förum?
Hilmar Bjömsson er annar
leikmaður Fram sem gæti
verið á förum frá liðinu.
Hilmar hefur verið orðaður
við KR og FH en hann hefur
leikið með báðum þessum fé-
lögum. Hilmar er eins og
Sigurvin með samnnig við
Fram en verður fijálst að yf-
irgefa liðið fari hann fram á
það.
Sebastian
var kvið-
slitinn
SEBASTIAN Alexandersson
markvörður og fyrirliði Fram í
handknattleik verður frá keppni
næstu 3-5 vikuraar. Sebastian hef-
ur átt við meiðsl að stríða í maga í
allt haust og við skoðun hjá lækni
kom í Ijós að um kviðslit var að
ræða og gekkst hann undir að-
gerð í gær.
„Þetta var ekki mikið en læknir-
inn sagði að ef ég hefði haldið
áfram að spila eins og ég er búinn
að vera að gera það sem er af er
mótinu þá hefði þetta ágerst og
aðgerðin orðið stærri fyrir vikið.
Ég er að stefna að því að verða
orðinn leikfær um mánaðamótin
nóvember-desember og með því
ætti ég ekki að missa nema af íjór-
um deildarleikjum,“ sagði Sebasti-
an Alexandersson í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Sebastian hefur verið í lands-
liðshópi Þorbjörns Jenssonar en
koma þessi meiðsl í veg fyrir að
hann geti leikið á HM í janúar?
„Ég er að vona að ég nái að
spila 4-5 leiki sem verða leiknir á
hálfum mánuði í desember til þess
að reyna að sýna mig eitthvað áð-
ur en landsliðið verður valið. Svo
er það undir þjálfaranum komið
hvort hann vill gefa mér tækifæri
í æfingahópinn og þá verð ég að
sanna migþar,“ sagði Sebastian.
Morgunblaðið/Jim Smart
Chris Dade, leikmaður Hamars, sækir hér að Arnari Kárasyni, KR, þegar liðin áttust við í 8-liða úrslitum Kjörísbikarkeppninnar í
körfuknattleik á sunnudag. KR mætir Tindastól í undanúrslitum og Suðurnesjaliðin Njarðvík og Grindvík eigast við í hinum undan-
úrslitaleik keppninnar.
Meistaraliðin
þvjú áfram
DEILDARBIKARMEISTARAR
Tindastóls, bikarmeistararnir
frá Grindavík, íslandsmeistar
KR og Njarðvík tryggðu sér sæti
í undanúrslitum Kjörísbikar-
keppni Körfu knattleiks-
sambands íslands, KKÍ.
Tindastóll vann fyrri leik sinn gegn
Haukum á heimavelli nokkuð
örugglega með 24 stiga mun. Hauk-
um tókst ekki að vinna upp muninn í
seinni leik liðanna og Tindastóll vann
einnig seinni leikinn með 88 stigum
gegn 80.
Islandsmeistarar KR töpuðu fyrri
leik sínum gegn Hamri í Hveragerði
með 11 stiga mun, 77:66 og áttu erfitt
verkefni fyrir höndum. Meistararnir
komu mjög ákveðnir til leiks og náðu
niður forskoti gestanna í fyrsta leik-
hluta. Ólafur Jón Ormsson átti stór-
leik og skoraði 35 stig og geigaði að-
eins á 4 skotum í 23 skottilraunum.
Njarðvík sýndi styrk sinn
Keflvíkingum tókst ekki að leggja
Njarðvíkinga að velli á útivelli og 13
stiga forskot Njarðvíkinga frá fyrri
leik liðanna reyndist of mikið.
Logi Gunnarsson skoraði mest fyr-
ir Njarðvíkinga, 24 stig, en þeir Teit-
ur Örlygsson og Jes V. Hansen komu
næstir með 17 stig. Guðjón Skúlason
skoraði 18 stig en það var
Gunnar Einarsson Keflavík sem
stal senunni í lok leiksins þegar hann
fékk brottrekstrarvillu fyrir að kasta
knettinum í Friðrik Ragnarsson.
Aganefnd KKÍ kemur saman í dag til
að úrskurða í máli Gunnars og vænt-
anlega fer hann í leikbann.
Grindvíkingar mættu Þór Akur-
eyri í Röstinni í Grindavík og sigruðu
með 107 stigum gegn 101. Grindvík-
ingar höfðu 9 stiga forskot eftir sigur
í fyrri leik liðanna á föstudag og þrátt
fyrir ágætan leik gestanna tókst þeim
ekki að brúa bilið og lokatölur leiks-
ins urðu 107:101. Guðlaugur Eyjólfs-
son var stigahæstur í liði heima-
manna með 17 stig en Clifton Bush
skoraði 30 stig fyrir Þór Akureyri.
EINN leikur var á dagskrá í 1. deild
kvenna í körfuknattleik um helgina.
Keflavík tók á móti ÍS og sigraði,
66:58, í leik þar sem Keflavíkurstúlk-
ur höðu yfirhöndina allan leiktímann.
Það munaði þó aðeins einu stigi eftir
fyrsta leikhlutann, 20:19, en eftir það
skildu leiðir. Keflavíkurstúlkur tóku
leikinn í sínar hendur og höfðu 18
stiga forskot í leikhléi, 41:23.
Þar með má segja að úrslitin hafi
verið ráðin þó svo að stúdínur hafi
náð að laga stöðuna fyrir leikslok.
Liðsheildin var jöfn og sterk hjá
Keflavíkurstúlkum en hjá ÍS var
Hafdís Helgadóttir allt í öllu og skor-
aði meira en helming stiga síns liðs.
Annað kvöld er stórleikur í 1. deild
kvenna en þá tekur KR á móti Kefla-
vík.
NÁMSKEIÐ UM
ÍÞRÓTTALÆKNISFRÆÐI
Heilbrigðisráð Iþrótta- og Ólympíusambands íslands heldur
námskeið um íþróttaiæknisfræði dagana 26.-28. október
næstkomandi.
Námskeiðið er einkum ætlað læknum, sjúkraþjálfurum og
íþróttaþjálfurum og er haldið með styrk frá Ólympíusamhjálpinni
(Olympic Solidarity).
Á námskeiðinu verður m.a. fjallað um meiðsli, forvarnir,
endurhæfingu, áreynsluastma, íþróttasálarfræði, „teipingar",
átröskun, hreyfingu, heilsufar og lyfjamál.
Gestafyrirlesari verður dr. Jón Karlsson, prófessor við
Sahlgrenska háskólann í Gautaborg.
Skráning fer fram á skrifstofu fSÍ, íþróttamiðstöðinni Laugardal,
sími 581 3377.
Þátttökugjald er kr. 1.000.
Heilbrigðisráð ÍSÍ.
Ragnar með
7 í tapleik
RAGNAR Óskarsson hélt upp-
teknum hætti og skoraði 7 mörk, 3
þeirra úr vítaköstum, fyrir lið sitt,
Dunkerque, í franska handboltan-
um á sunnudaginn. Það dugði þó
ekki því Dunkerque tapaði fyrir
Angers/Noyant, 26:25, á útivelli.
Heimamenn skoruðu sigurmark
sitt á síðustu sekúndu leiksins.
Dunkerque hefur unnið einn
heimaleik en tapað tveimur úti-
leikjum í þremur fyrstu umferðun-
um og Ragnar hefur skorað 21
mark, eða 7 að meðaltali í leik.
Fjögur lið eru taplaus í deildinni,
Paris SG og Toulouse eftir þrjá
leiki og Chambery og Montpellier
eftir tvo leiki.
Dómara hótað með
SMS-skilaboðum
ÞAÐ er ekki tekið út með sældinni að vera dómari í 1. deild
karla í handknattieik. Guðjón L. Sigurðsson milliríkjadómari
fékk eftirfarandi SMS-skilaboð á GSM símann sinn í gær:
„Farðu nú að leggja flautunni áður en þú hlítur skaða af.
Við vorum á leiknum í gær. Þú er aumingi og hálfviti.“
Guðjón lítur eðlilega svona lagað mjög alvarlegum augum.
Hann hafði þegar í stað samband við lögregluna sem rann-
sakar hvaðan skilaboðin voru send. Fyrsta vísbending er sú að
skilaboðin voru send úr tölvu.
Ef að líkum lætur koma skilaboðin frá einhveijum stuðn-
ingsmanni Aftureldingar en Guðjón dæmdi leik liðsins gegn
Fram í fyrrakvöld ásamt Ólafi Haraldssyni. Mark Aftureld-
ingar úr vítakasti á lokasekúndum leiksins var dæmt ógilt og
sá dómur hefur greinilega hleypt illu blóði í einhvern stuðn-
ingsmann Mosfellsbæjarliðsins.
I
b
|
!