Morgunblaðið - 24.10.2000, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 24. OKTÓBER 2000 B 9
Barátta
Man. Utd.
og Arsenal
ARSENAL gefur Manchester United ekkert eftir í toppbaráttu ensku
úrvalsdeildarinnar. Stigataflan lítur kunnuglega út í augum flestra
þar sem United er komið í efsta sætið með 21 stig og Arsenal það
næsta með jafnmörg stig en verra markahlutfall. United vann auð-
veldan sigur á Leeds á laugardag þar sem varamaðurinn David Beck-
ham sneri leiknum heimamönnum í hag. Arsenal vann góðan útisigur
á West Ham og Liverpool mikilvægan heimasigur á Leicester City.
Iris Björk
Eysteinsdóttir
skrifarfrá
Englandi
Jimmy Floyd Hasselbaink setti
svo sannarlega svip sinn á helg-
ina með því að skora fjögur mörk
fyrir Chelsea í 6:1-
sigri á Coventry í
leik þar sem Eiður
Smári Guðjohnsen
var skilinn útundan
í leikmannahópi þeirra bláklæddu.
Hermann Hreiðarsson og félagar
hans í Ipswich halda áfram að koma
á óvart í deildinni og sitja nú í 6. sæti
eftir sigur á andlausu liði Bradford.
Arsenal hefur jafnan gengið vel á
Upton Park, heimavelli West Ham,
og þar við sat á laugardag. Liðið
vann sinn áttunda sigur þar í síðustu
ellefu heimsóknum sínum með því að
skora tvö mörk á fyrstu 21 mínút-
unni. Fyrst skoraði Robert Pires eft-
ir að hann komst inn í misheppnaða
sendingu Trevor Sinclear og varn-
armistök West Ham héldu áfram.
FOLX
■ GUÐNI Bergsson lék allan leik-
inn með Bolton er liðið tapaði
naumlega íyrir Stockport, 4:3, í
ensku 1. deildinni á laugardag. Bol-
ton lenti 3:0 undir en náði að jafna.
Stockport skoraði síðan úrslita-
markið á lokamínútunni.
UBJARKI Gunnlaugsson lék síð-
asta stundarfjórðunginn í leik
Preston og Huddersfíeld sem end-
aði 0:0. Bjarki átti laglega íyrirgjöf
undir lokin á Erik Meijer sem hefði
átt að skora örugglega og stela
sigrinum en skallaði framhjá af ör-
stuttu færi.
■ HEIÐAR Helguson lék allan
leikinn með Watford sem sigraði
Nottingham Forest 2:0 á laugar-
dag. Micah Hyde skoraði bæði
mörk Watford sem er í öðra sæti 1.
deildar, aðeins tveimur stigum á
eftir Fulham. Watford hefur enn
ekki tapað leik á tímabilinu. Jóhann
B. Guðmundsson var ekki í leik-
mannahópi Watford.
■ LÁRUS Orri Sigurðsson var
ekki í leikmannahópi West
Bromwich Albion sem gerði 2:2-
jafntefli gegn Tranmere Rovers.
■ ÍVAR Ingimarsson og Ólafur
Gottskálksson léku báðir allan leik-
inn er Brentford tapaði 3:1 gegn
Luton Town í ensku 2. deildinni.
fvar var svo óheppinn að fá dæmda
á sig vítaspyrnu í leiknum sem
Ólafur var nálægt því að verja.
■ HELGI Valur Daníelsson var
ekki í leikmannahópi Peterbor-
ough sem sigraði Notts County 1:0.
■ SIGURÐUR Ragnar Eyjólfsson
var ekki í leikmannahópi Walsall
sem tapaði 3:1 gegn Wycombe.
Walsall heldur efsta sæti 2. deildar
þrátt fyrir tapið.
■ BJARNÓLFUR Lárusson lék all-
an leikinn með Scunthorpe sem
gerði l:l-jafntefli við Darlington í
ensku 3. deildinni. Bjarnólfur var
nálægt því að tryggja Scunthorpe
sigurinn undir lok fyrri hálfleiks
með skoti rétt framhjá markinu.
Scunthorpe er nú í 12. sæti deildar-
innar.
Rio Ferdinand skoraði úrslitamarkið
í leiknum er hann skallaði sendingu
Silvinhos í eigið mark.
West Ham lék betur í síðari hálf-
leik og leit jafnvel út íyrir að stela
stigi en eins og oft áður á þessu tíma-
bili gekk það ekki þrátt fyrir að Stu-
art Pearce hafi minnkað muninn. Ar-
senal vann sinn fyrsta útisigur á
tímabilinu og heldur því fast í við
United á toppnum. Patrick Vieira
lék vel fyi-ir Arsenal en í fyrra fékk
hann rautt spjald í viðureign liðanna
og var svo sektaður fyrir að hrækja í
átt að dómaranum.
„Mér fannst Patrick leika frábær-
lega. Hann lék heiðarlega og var á
fullu frá fyrstu mínútunni til þeirrar
síðustu,“ sagði Arsene Wenger,
knattspyrnustjóri Arsenal, sem
sagðist hafa verið smeykur fyrir
leikinn. „Þegar ég frétti að í dag væri
alþjóðlegur „Fair Play“-dagur hjá
FIFA þá brá mér. Svoleiðis uppá-
komur geta oft farið á þveröfugan
máta,“ bætti Wenger við. Dómarinn
hélt þó sínu striki og sýndi aðeins
eitt gult spjald í leiknum.
Ellefu á sjúkralista
hjá Leeds
Leeds mætti til leiks á Old Traf-
ford með 11 leikmenn á sjúkralista.
Alex Ferguson sýndi traust sitt á
varaliðsmenn sína og hóf leikinn með
Andy Cole, Ryan Giggs og David
Beckham á varamannabekknum.
Lee Bowyer fékk fyrsta marktæki-
færið í leiknum og hefði getað náð
forystunni fyrir Leeds en rétt missti
af boltanum eftir ágæta fyrirgjöf.
Beckham tók stjórnina um leið og
hann kom inná eftir rúman hálftíma í
stað fyrirliðans Roy Keane sem
meiddist. Hann hóf sóknina sem skil-
aði fyrsta marki United í leiknum.
Þá gaf hann boltann á Ole Gunnar
Solskjær sem sendi fyrir markið á
Dwight Yorke sem skoraði sitt ann-
að mark á tímabilinu.
Snemma í síðari hálfleik hélt
Beckham áfram að láta að sér kveða
er hann skoraði úr aukaspyrnu með
skoti í Bowyer og inn. Ólukka Leeds
fullkomnaðist undir lok leiksins er
Matthew Jones skoraði í eigið mark.
„Það eina sem ég get sagt er að ef
maður kemur á Old Trafford með ell-
efu menn meidda þá eru mestar líkur
á því að tapa,“ sagði David O’Leary,
knattspyi-nustjóri Leeds.
„Það er ekki auðvelt að velja í liðið
en ég verð að reyna að halda í fersk-
leikann í framlínunni," sagði Alex
Ferguson. „Sendingarnar hjá Beck-
ham vora ótrúlegar. Hann byrjaði á
varamannabekknum þvi hann var
með smá kvef.
Hann tók við fyrirliðabandinu af
Roy Keane og ef leikmaður vill þann-
ig ábyrgð er það í fínu lagi mín
vegna,“ sagði Ferguson.
Ljóst er að Keane missir af
Evi-ópuleiknum gegn Anderlecht á
þriðjudag ásamt Teddy Sheringham
sem lék ekki um helgina vegna
meiðsla.
Enn skorar Heskey
Liverpool vann góðan heimasigur
á Leicester City á laugardag þar
sem fyrrum Leieester-maðurinn
Emile Heskey skoraði eina mark
leiksins og sitt fjórða á einni viku.
Heskey var hreint frábær í leiknum
og fékk fjölda færa en Tim Flowers,
markvörður Leicester, sá við flest-
AP
Jimmy Floyd Hasselbaink var heldur betur á skotskónum. Hér fagnar hann einu af fjórum mörk-
um sínum, sem hann skoraði gegn Coventry, ásamt Gianfranco Zola.
um þeirra. Leicester fékk að upplifa
hversu hörð baráttan er á toppnum
og hefur nú tapað tveimur leikjum í
röð. Arnar Gunnlaugsson var ekki í
leikmannahópi Leicester. „Við sýnd-
um karakterinn í liðinu með því að
sigra. Emile er ekki fullmótaður
ennþá. Hann þarf að bæta sig í að
klára færin, en það kemur með
reynslunni," sagði Gerard Houllier,
knattspymustjóri Liverpool.
Hasselbaink með
fjögur mörk
Chelsea mátti þakka dómaranum
fyrir hans Joátt í 6:l-sigri þeirra á
Coventry. A 24. mínútu dæmdi hann
umdeilt víti er Hasselbaink komst
einn í gegn og markvörður Cov-
entry, Chris Kirkland, fékk að líta
rauða spjaldið fyrir að brjóta á hon-
um. Kirkland sem var að byrja inni á
í aðeins öðram leik sínum í úrvals-
deildinni gekk grátandi af velli enda
var ekki annað að sjá en hann hafi lít-
ið sem ekkert snert Frakkann. Hass-
elbaink skoraði sjálfur úr vítinu og í
kjölfarið virtist hver snerting vera
töfrum búin því hann skoraði fjögur
marka liðsins en Gianfranco Zola og
Thore Andre Flo hin tvö.
Áhorfendur fengu nóg fyrir pen-
ingana í þessari viðureign því eftir að
hafa skorað 6 mörk í leiknum gerðu
Chelsea-menn sig seka um mistök.
Markvörður þeirra, Ed de Goey,
missti boltann klaufalega í eigin
markteig og skoraði Cedric Roussel
síðasta mark leiksins fyrir Coventry.
„Við sýndum styrk okkar frá byrj-
un, “ sagði Claudio Ranieri eftir leik-
inn. „Jimmy er stórkostlegur marka-
skorari."
Hermann Hreiðarsson stóð sig
með prýði er Ipswich sigraði Brad-
ford öragglega 2:0 og var það þriðji
útisigur liðsins í röð. Ipswich hafði
mikla yfirburði allan tímann og virð-
ist engin von til þess að Bradford
haldi sér í deildinni. Eini gallinn á
leik Ipswich var hversu illa leikmenn
kláruðu marktækifæri sín. „Ef við
höldum okkur uppi er markmiðinu
náð en nú segjast strákarnir vilja
setja markið hærra,“ sagði George
Burley knattspyi'nustjóri Ipswich.
„Ég lék eitt sinn fyrir Ipswich í
Evrópukeppninni og dag einn vil ég
fara þangað sem þjálfari en þetta
verður langt og erfitt tímabil,“ bætti
hann við.
Leonhardsen skoraði tvö mörk
fyrir Tottenham í 3:l-sigri á fallvöltu
liði Derby. Framkvæmdastjórar
beggja liða eru valtir í sessi um þess-
ar mundir eftir erfiða byrjun tíma-
bilsins. Leikmenn Tottenham lýstu
yfir stuðningi við George Graham
knattspyi'nustjóra fyrir leikinn og
stóðu fast á bak við orð sín með góðri
frammistöðu. Það mun þó taka meira
en sigur gegn liði í botnbaráttunni að
þagga niður í óánægðum Spurs-
áhorfendum. Þegar Derby jafnaði
leikinn á 39. mínútu tóku áhorfendur
strax að púa á liðið. „Hluti áhorfenda
byrjaði að láta illa og ég var hræddur
um að þeii' stæðu ekki á bak við liðið
einmitt þegar leikmennirnir þurftu
mest á því að halda,“ sagði Graham
sem sagðist glaður taka allri gagn-
rýni frá áhorfendum ef það sé til að
létta pressunni af leikmönnunum.
Óánægja áhorfenda virtist ekki hafa
áhrif á Tottenham og Stephen Cai-r
náði aftur forystunni fyrir liðið rétt
áður en ílautað var til loka fyrri hálf-
leiks. Derby hefur aldrei byrjað
tímabil jafn illa og í ár og er hætt við
að Jim Smith, sem hélt upp á sextugs
afmæli sitt í vikunni, verði fljótlega
látinn taka pokann sinn.
Sunderiand og Aston Villa gerðu
markalaust jafntefli á Villa Park á
sunnudag og er það í fyrsta sinn sem
leikur þessara liða endar markalaus.
Kevin Phillips og Dion Dublin skor-
uðu samtals 45 mörk í fyrra en hvor-
ugur var á skotskónum í gær þótt
báðir fengju þeir ágæt marktæki-
færi. Villa var betra liðið í leiknum
en Phillips komst samt næst því að
skora fyrir Sunderland en skot hans
hafnaði í þverslánni. Bæði lið sigla
lygnan sjó um miðja töflu.
Everton vann Newcastle 1:0 þar
sem Kevin Campbell skoraði úrslita-
markið og ti-yggði Everton óvænt
þrjú stig. Paul Gascoigne var skap-
andi á miðjunni hjá Everton á meðan
Newcastle fór hikandi í gegnum leik-
inn. „í fyrsta sinn á tímabilinu lékum
við vel allan leikinn," sagði Walter
Smith, hæstánægður knattspyrnu-
stjóri Everton.
Charlton vann Middlesbrough 1:0
í Dalnum í London. Ugo Ehiogu sem
nýlega gekk til liðs við Boro frá Ast-
on Villa haltraði vonsvikinn af velli
eftir aðeins fjögurra mínútna leik.
Flest gekk á afturfótunum hjá Boro
eftir það.
Andy Campbell var klárlega felld-
ur í vítateig Charlton en dómarinn
dæmdi ekkert. Charlton vann leik-
inn síðan með því að skora úr eina*
færinu sem liðið fékk í leiknum. Til
að hlaða ennfremur á vonbrigði Boro
fékk Paul Ince sitt fimmta gula
spjald á tímabilinu og verður því í
leikbanni í næsta leik. Boro var
betra liðið í leiknum en Charlton er
með óbilandi sjálfstraust á heima-
velli enda hefur liðið ekki tapað í
Dalnum síðan í apríl.