Morgunblaðið - 27.10.2000, Page 6
6 C FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BIOBLAÐIÐ
Frumsýning /Laugarásbíó og Borgarbíó Akureyri frumsýna
endurgeröina Shaft meö Samuel L. Jackson í titilhlutverkinu.
Shaft
snyr aftur
Þegar dekurdrengur og háskóla-
nemi að nafni Walter Wade
(Christian Bale) myrðir ungan
svartan námsmann handtekur lög-
reglumaðurinn John Shaft (Samuel
'L. Jackson) hann. Walter er sleppt
lausum meðan á réttarhöldunum
stendur og hann flýr úr landi. Þeg-
ar hann snýr aftur tveimur árum
síðar með leynd nær Shaft í skottið
á honum og setur í fangageymslur.
Ekki dugar það heldur því mold-
ríkur faðir Wades borgar trygg-
ingu fyrir hann og enn gengur
hann laus og í þetta sinn er hann
harðákveðinn í því að koma Shaft
fyrir í líkpoka. Af öðrum sem eru á
höttunum eftir Shaft má nefna
spillta löggufélaga hans (Dan
Hedaya og Ruben Santiago - Hud-
sorí) að ógleymdum fíkniefnabarón
frá Dóminíkanska lýðveldinu að
nafni Peoples Hernandez (Jeffrey
t Wright), sem vill hefna sín grimmi-
lega á Shaft.
Þannig er söguþráðurinn í
bandarísku endurgerð spennu-
myndarinnar Shaft frá árinu 1971.
Hún er frumsýnd í tveimur kvik-
myndahúsum í Reykjavík og á Ak-
ureyri og er með Samuel L. Jack-
son í titilhlutverkinu en með önnur
hlutverk fara Christian Bale, Dan
Hedaya, Ruben Santiago - Hud-
son, Jeffrey Wright að ógleymdri
Vanessu Williams auk þess sem
Richard Roundtree, hinn uppruna-
' legi Shaft, fer með nokkurt hlut-
verk í myndinni. Leikstjóri er John
Singleton.
Gordon Parks leikstýrði upp-
Morðtólin munduð: Jackson sem
Shaft.
runalegu myndinni sem átti sinn
þátt í því að hrinda af stað bylgju
svertingjamynda áttunda áratugar-
ins. „Hlutirnir voru öðruvísi í þá
daga,“ er haft eftir leikstjóranum
Singleton. „Fram að því áttum við
svertingjar aðeins Sidney Poitier í
kvikmyndunum. Þegar Richard
Roundtree birtist svo á tjaldinu
sem Shaft hafði það gríðarleg áhrif.
Allir vildu herma eftir myndinni."
Og áfram heldur hann: „Við eig-
um aðeins fáeina leikara í dag sem
geta leikið Shaft. Sam Jackson er
algerlega einn af þeim og sá sem
helst kom til greina. Shaft er sval-
ur og á heima hvar sem er, hvort
sem það er á meðal ríka fólksins
eða heimilisleysingjanna. Þannig
var persónan upprunalega og þann-
ig er það sem Sam leikur hana.“
Samuel L. Jackson segist fyrst
hafa séð Shaft þegar hann var við
háskólanám í Atlanta og honum
þótti hún stórkostleg upplifun.
„Þetta var í fyrsta skipti sem ég sá
1 einhvern á hvíta tjaldinu sem leit
út eins og ég sjálfur, talaði eins og
ég, klæddist eins og mig hafði allt-
af dreymt um að klæðast og lék
hetju. Hann var fyrsta hetjan okk-
ar svertingjanna. Þetta snerist allt
um svarta vitund. Hann var sterk-
ur og gáfaður og óhræddur að fást
við glæpalýðinn. Hann hafði innri
kraft og sjálfsöryggi sem okkur öll
langaði til þess að hafa.“
Shaft
Leikarar:
Samuel Jackson: Hinn ofursvali lög-
reglumaður Shaft í endurgerð mynd-
arfrá!971.
Samuel L. Jackson, Vanessa
Williams, Christian Bale, Dan
Hedaya, Ruben Santiago -
Hudson, Jeffrey Wright og
Richard Roundtree.
Leikstióri:__________________
John Singleton (Boyz ’N the
Hood, Poetic Justice, Higher
Learning, Rosewood).
Frumsýning /Háskólabíófrumsýnir
bresku gamanmyndina With Or Without
You meö Chrístopher Eccleston
í aöalhlutverki.
Frakkinn sem fær unga eiginkonu til
að hugsa sig um tvisvar: Yvan Attal
í hlutverki sínu.
With or Without You: Eccleston og
Kirwan í hlutverkum sínum.
Með eða
án þín
Rosie (Dervla Kirwan) og Vincent
Boyd (Christopher Eccleston) vilja
eignast bam saman. Þau hafa hent
getnaðarvörnunum og gert bama-
herbergi úr aukaherberginu en heilt
ár líður áður en nokkuð gerist og þess
fer að sjást merki í hjónabandinu.
Um það bil sem mest reynir á sam-
bandið birtist gamall pennavinur
Rosie á dyrahellunni hjá þeim en
hann er franskur tónlistarmaður og
fyrrum starfsmaður við Póstinn.
Rosie er ákaflega glöð að hitta loks-
ins í eigin persónu manninn sem hún
skrifaðist svo lengi á við en Vincent
hefur áhyggjur af því að Frakkinn
Frumsýning /Bíóhöllin, Bíóborgin og Kringlubíó frumsýna nýjustu mynd Clint
Eastwoods, Space Cowboys.
■■ >
Fjórir
geimkúrekar
ÁRIÐ 1958 vom fjórir flugmenn í
Daedalus-hópnum, fæmstu tilrauna-
flugmenn bandaríska flughersins,
reiðubúnir að verða fyrstu Banda-
ríkjamennimir til þess að fara út í
geiminn. En þegar Geimferða-
stofnun Bandaríkjanna var stofnuð
um það leyti var Daedalus-hópunum
ýtt til hliðar, api var sendur í geiminn
í staðinn og mennimir fengu aldrei
draum simi uppfylltan.
Núna, meira en fjórum áratugum
síðar, er rússneska gervitunglið
, Ikon, gamalt mjög, að eyðileggjast á
sporbraut um jörðu og mikilvægt er
að laga það en þeir em fáir eftir á lífi
sem kunna handtökin. Yfirmaður hjá
Geimkúrekar
Geimferðastofnunni, Bob Gerson (Ja-
mes Cromwell), finnur lausnina þeg-
ar hann minnist Daedalus-hópsins og
kallar á leiðtoga hans, Frank Corvin
(Clint Eastwood), til hjálpar.
Frank er reiðubúinh að fara út í
geiminn en hann vill hafa félaga sína
með sér, Hawk Hawkins (TommyLee
Jones), Jerry O'Neill (Donald Sut-
herland) og Tank Sullivan (James
Garner). Og það líður ekki á löngu áð-
ur en þeir skrýðast geimbúningum.
Þannig er söguþráðurinn í banda-
rísku myndinni Space Cowboys sem
framsýnd er í þremuj; kvikmynda-
húsum í Reykjavík. Héiðursmenn-
imir Eastwood, Jones, Sutherland
Clint var ánægdur med leikhópinn: Eastwood, Jones, Garner og Sutherland.
Leikarar:
Clint Eastwood, Jones, Sutherl-
and, James Gamer, James
Cromwell, Marcia Gay Harden,
William Devane og Courtney B.
Vance.
Leikstióri:____________________
Clint Eastwood (m.a. Play Misty
for Me, High Plains Drifter, The
Outlaw Josey Wales, The
Gauntlet, Escape From Al-
catraz, Tightrope, Pale Rider,
Heartbreak Ridge, Unforgiven).
Kominn út í geim: Cllnt Eastwood í Space
Cowboys.
og Garner fara með fjögur aðalhlut-
verkin en leikstjóri er Clint Ea-
stwood sjálfur. Aðrir leikarar em Ja-
mes Cromwell, Marcia Gay Harden,
William Devane og Courtney B. Van-
ce.
„Þetta er frábær leikhópur," er
haft eftir Eastwood. „Ég hef lengi
dáðst að því sem þessir
leikarar hafa gert í bíó-
myndum. Ég vann fyrir
mörgum áram með Ja-
mes Garner þegar við
vorum báðir að bytja
okkar leikferil í sjónvar-
psþáttunum Maverick
og ég hef þekkt hann ár-
um saman. Við höfum
hlustað á brandarana í
Donald og kvartanimar í
Jim daglega og við höfum
skemmt okkur mikið við
gerð þessarar myndar.“
„Clint hefur sérstak-
lega gaman af því að búa
til bíómyndir,“ segir
Tommy Lee Jones, „og hann er harð-
ákveðinn í því að njóta hverrar
stundar svo það finnst öllum gaman
að vera með í myndunum hans. Og
kompaníið sem maður hefur við gerð
þessarar myndar er auðvitað með
eindæmum skemmtilegt.“
„Ég vildi að myndin yrði eins trú-
verðug og hægt var,“ segir East-
wood um framleiðsluna. „Til þess að
svo mætti verða þurfti Geimvísind-
astofnunin að koma okkur til aðstoð-
ar og fólkið þar var okkur svo sann-
arlega dýrmætt. Það var sjálfsagt
talsverður hausverkur fyrir það að
taka á móti stómm hópi kvikmynda-
gerðarmanna en tökurnar tókust
mjög vel og ég gæti ekki verið án-
ægðari með árangurinn."
Leikararnir þurftu að reyna á sig
með ýmsum hætti og meðal annars
upplifa þyngdarleysi sem kallað er
fram með ákveðnum hætti er reynir
mjög á meltingarkerfið. „Ég held að
þetta hafi allt gengið að óskum,“ seg-
ir Clint.
ætli ekkert að láta sig hverfa á næst-
unni.
Þannig er upphafið á bresku gam-
anmyndinni With Or Without You
sem Háskólabíó fmmsýnir í dag en
hún var áður sýnd í kvikmynda-
klúbbnum Filmundi. Leikstjóri er
Michael Winterbottom en með
helstu hlutverk fara Dervla Klrwn og
Christopher Eccleston. Handritið
gerir John Forte. Winterbottom
hreifst mjög af því.
„Þetta var íyrsta handritið hans
Johns,“ er haft eftir leikstjóranum,
„en skrifin vom mjög slípuð og hann
hafði strax áhrif á mann. Það var
ákveðinn léttleiki í handritinu sem þú
getur fundið í myndum Francois
Truffauts.“
Og leikstjórinn heldur áfram: „Ég
sé þessa mynd fyrir mér sem einfalda
ástarsögu með hinum sígilda ástar-
þríhymingi. En þar að auki er um um
það hvemig konan upplifir sitt líf, líf-
ið sem hana langar að lifa og lífið sem
hún telur sig hafa misst af. Rosie og
Vincent em við það að verða ævifé-
lagar. Þau hafa verið gift í fimm ár og
þau hafa ákveðið að eignast bam með
allri þeirri ábyrgð sem því fylgir. En
það gengur erfiðlega fyrir þau að
eignast bam og í millitíðinni kemur
þessi maður úr fortíð Rosie og hún
verður að velja og hafna.“
Dervla Kirwan, sem íslenskir
sjónvarpsáhorfendur ættu að kann-
ast við sem kráareiganda í þáttunum
Ballykissangel, leikur Rosle þessa en
bæði Wlnterbottom og framleiðand-
inn Andrew Eaton höfðu hana í huga í
hlutverkið frá fyrstu stundu. „Að
vinna með Michael og Andrew er
eins og að fá ósk sína uppfyllta," seg-
ir leikkonan. „Þeir gáfu mér þetta
tækifæri til þess að leika í bíómynö
og hlutverk Rosie er að mínu viti sér-
staklega bitastætt."
Með hitt aðalhlutverkið fer einnig
kunnur breskur sjónvarpsleikari,
Christopher Eccleston, sem verið
hefur að leika æ meira í bíómyndum
hin síðari ár. Hann hefur áður unnið
með Winterbottum við gerð mynd-
anna Jude og Cracker. „Mér fannst
það mjög áhugaverð tilhugsun að
gera gamanmynd með Michael,"
segir leikarinn. „Það sem ég kann
best við í fari hans er að hann er ekki
haldinn neinni tilfinningavellu.“
Með eða án þín
Leikarar:____________________
ChristopherEccleston, Dervla
Kirwan.
Leikstióri:__________________
Michael Winterbottom (Jude,
Welcome to Sarajevo, I Want
You).