Morgunblaðið - 03.11.2000, Síða 2
2 C FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
BÍÓBLAÐIÐ
lUMU
Sigríöur Dögg
Auöunsdóttir
Stærsta
hátíðin
til þessa
Ein stærsta kvikmyndahátíð
heims, Kvikmyndahátíö Lund-
úna, stendur nú yfír og sýndar
verða um 200 kvikmyndir í fullri
lengd frá öllum heimshornum
auk 65 stuttmynda. Hátíöin
mun standa yfir í tvær vikur, er
hin fertugasta og fjóröa í rööinni
og hin stærsta til þessa.
Auk þess að bjóða upp á
fjöldann allan af
frumsýningum ogfor-
sýningum verða einnig á
dagskrá sérstakar uppákomur
þar sem áhorfendum gefsttæki-
færi á aö leggja fram spurningar
fyrirvalda kvikmyndageröar-
menn og leikara.
Frumsýningarmynd hátíðar-
innar er kvikmynd Cameron
Crowe, Almost Famous, sem
byggð er að hluta til á sjálfsævi-
sögu hans og segirfrá ungum
blaðamanni átónlistartímaritinu
Rolling Stone sem fylgir banda-
rískri rokkhljómsveit eftir á tón-
leikaferöalagi.
Meðal
hinna 37
kvikmynda
sem
frumsýndar
verða á há-
tíöinni eru
kvikmynd
Ang Lee: Frá Reykja-{e'ks^ór'
vík til London. ans heims'
þekkta,
Angs Lee, sem nefnist á ensku
Crouching Tiger, Hidden Dragon,
en hún varopnunarmynd Kvik-
myndahátíðarí Reykjavík nýlega.
Einnig verðurfrumsýnd ný
Woody Allen mynd sem nefnist
Small Time Crooks en breska
leikkonan Tracy Ullman fer þar
meö aöalhlutverkið. Meðal
stórra frumsýninga eru einnig
kvikmynd Kathryn Bigelow, The
WeightofWater, sem framleidd
er af Sigurjóni Sighvatssyni, og
mynd Christopher McQuarrie,
The Wayofthe Gun, en McQuar-
rie hlaut Óskarsverölaun fyrir
handrit sitt að The Usual
Suspects.
Ennfremur ergert ráð fyrir mik-
illi aðsókn í bandarískar myndir
á borð við spennumyndina The
Contender, með JeffBridges í
aðalhlutverki og The Man Who
Cried þar sem Johnny Depp fer
með eitt aöalhlutverkiö auk
Christina Riccí. sem þekktust
erfyrir leik sinn í myndunum um
Addams-fjölskylduna.
Leikarinn Steve Buscemi leik-
stýrir kvikmyndinni Animal
Factory sem sýnd veröur á hátíð-
inni en hann leikstýrði áður
myndinni Trees Lounge ogfékk
lofsamlega dóma fyrir.
Breskur kvikmyndaiðnaður er
í blóma um þessar mundir og
meðal þeirra bresku kvikmynda
sem mest verða áberandi á há-
tíðinni eru myndimar The Low
Down, sem leikstýrö er af Jamie
Thravers og mynd Stephens
Frears, Liam, sem báöar hafa
hlotið góðan oröstír. Einnig verð-
ur sýnd athyglisverö heimilda-
mynd um hryllingsmyndagerð
sem nefnd hefur verið American
Nightmare.
Búist er við fjölda stórstjarna
á hátíöina, þar á meöal James
Caan, Kate Hudson, John Malk-
ovich, Gwyneth Paltrow, Billy
Crudup, Philip Seymour Hoff-
man, Catherine McCormack,
Michelle Yeoh, Tracy Ullman og
Geoffrey Rush.
Allen, sem leikur varaforsetaefni,
ogJeff Bridges, sem leikur Banda-
ríkjaforseta í The Contender.
Hjátrúin í
Hollywood
Það eru fleiri stéttir en leikarar og
trillukarlarsem haldnareru hjátrú og
hindurvitnum. Framleiðendur í Holly-
wood eru þessu marki brenndir. Þeir
harðneita t.d. að frumsýna myndir af
stjórnmálalegum toga þegar pólitísk
umræða er ofarlega á baugi í þjóðfé-
laginu. Líkt og núna er hinir litríku og
skörunglegu George Bush yngri og
Alhvað hann nú heitir, Gore, kljást
um forsetaembættið. Engu að síður
braut DreamWorks bannhelgarnar
og hóf sýningar á dögunum á The
Contender. Vei þeim! Myndin lyppað-
ist samstundis niður í aðsóknarlegt
skipbrot og hver skyldi hafa verið í
aðalhlutverkinu annar en stórleikar-
inn Jeff Bridges? Jafnheppinn í hlut-
verkavali og endranær.
Vei öllum
flókahöttum!
í DAG verður frumsýnd The Legend of
Bagger Vance, önnur mynd með
hrikalega hjátrú ífarteskinu. Holly-
wood er sem sé á því að síöan á tím-
um Guöfööurins og Chinatown þýði
ekki að bjóða almenningi upp á
myndir þar sem menn ganga með-
flókahatta. Nánartiltekið búninga-
myndir sem endurskapa tískuna á
tímabilinu 1929-59. Reyndarfergott
orð af þessari nýju mynd leikstjórans
Roberts Redford og fróölegt að sjá
hvernig hún plumar sig í samanburði
við aösóknarskellina Mobsters, Bug-
sy, Havana, Hoffa, Avalon, The Two
Jakes, Mullholland Drive, Tucker
(einnig með vini okkar, J. Bridges),
af nógu er að taka. Matt Damon fer
með eitt aöalhlutverkiö í The Legend
ofBaggy Vance, hann ætti að varast
hattamyndir og hugsa til Mr. Ripley...
Lífs eða
liðin?
Fréttum ber
ekki saman um
hvort búið sé að
slá af myndina
Alieö a ekki.
Hún átti að
fjalla um litríkt
lífshlaup hnefaleikakappans
hameðs Ali. Þetta var orðið nokkuð
áhugavert verkefni því til stóð að Will
Smithfæri með hlutverk garpsins og
Michael Mann (The Insidet)stjórnaði
verkinu.
Genginn
gagnrýnandi
EINN merkasti gagnrýnandi samtím-
ans, Vincent Canby, féll frá í vikunni
sem leið. Hann mótaði skoðanir mil-
Ijóna manna í Vesturheimi og víðar á
áratugalöngum ferli sem gagnrýn-
andi hjá Variety. Enn frekar á síðari
hluta starfsferilsins sem að-
algagnrýnandi oggreinahöfundur hjá
hinu virta dagblaði The New York
Times. Margfróöur, markviss, meö
kraftmikiö, þó þægilegtogglettið
tungutak. Nefndi sjaldan sjálfan sig.
Canby skrifaöi nánastfram á síð-
asta dag og engin ellimörk á karli
þótt hann væri kominn um áttrætt.
Aler
Napóleon
Franski leikstjórinn ]
Patrice Chereau,
sem þekktastur er
fyrirviöamikla
mynd sína um Mar- \
gréti drottningu,
hefst senn handa
við nýtt mannkyns-
sögulegt verkefni,
þarsem ersaga af
fangelsisdvöl
Napóleons Bóna-
parte á eyjunni St. Helenu og sam-
bandi hans viö dóttur fangavaróar
síns. Myndin á að heita Betsyog
keisarinn - Betsy and the Emperor
og er nú í undirbúningi hjá Storyopol-
isdeild Warner Bros. Al Pacino hefur
tekið aö sér að leika Napóleon.
Al Pacino:
Keisari í útlegð.
Sjónarhorn
j Konur j
: og kvikmyndaleikur:
Eftir Sæbjöm Valdimarsson , KONUR eru negrarheimsins, “ söng Lenn-
on heitinn á sínum tíma. Og haföi margt til
sfns máls. Oft hljóta þeir, sem fylgjast með kvikmyndaheiminum, aö
I undra sig á skammlífum ferli ieikkvenna, fæö bitastæöra handrita þeim j
I til handa, kaupi þeirra og kjörum. Skorti á myndum þar sem kona gnæfir I
I yfir karlpersónuna. Vissulega er nokkuö til sem heitir „ kvennamynd. “
Sem erímargra huga einskonar fasismi á borö viö „kvennalisti". Konan á
ekki aö þurfa aö eiga skjól í slíkum fyrirbrigöum. Þessi myndverk eiga rétt
ásérsem myndir um manneskjur og skilgreiningin væri ekki til í sinni
neikvæöu merkingu efallt væri meö felldu. „Neyöin kennir naktri konu aö
spinnaþaö á ekki illa viö um kvikmyndaiönaöinn.
j Ferill leikkvenna er með ólíkindum stuttur. Ef viö þrengjum hópinn niöur j
I í leikkonurí aöalhlutverkum, veröurhann enn snubbóttari. Efviö lítum til i
síöustu áratuga kemurglögglega í Ijós aö ekki er um auöugan garö aö
I gresja efviö ætlum aö fmna farsælan feril leikkonu. Kíkjum aöeins á örfá
dæmi.
Jill Clayburgh (44), var í hópi ofurstjarna íkringum 1980. Haföi sannaö
sig sem færleikkona í bæöi gaman- og dramatískum hiutverkum í mynd-
um á borö viö Silver Streak, Semi Tough, An Unmarried Woman, þegar
j kom aö skellinum Hanna K (83). Clayburgh hefur ekki fengið umtalsvert j
I hlutverk síöan 93, er hún iék á móti Albert Finney í Rich in Love. I
Fyrsta konan sem fékk sambærileg laun fyrir kvikmyndaleik, miðaö viö I
karl-ofurstjörnur dagsins, var Demi Moore (62). Sló lítillega ígegn sem
unglingastjarna í myndum einsog Blame it on Rio (84) og St. Elmós Fire
(85), náöi almennum vinsældum t burðarmeiri verkum líkt og Ghost (90),
I A Few Good Men (2) og Disclosure (94). Þegar hér var komiö sögu setti
Moore fram þá sjáifsögöu kröfu aö fá laun ínámunda viö (þáverandi)
| bónda sinn, Bruce Willis. Þaö gekk eftir en jafnharöan varö Moore æ
I minna áberandi á tjaldinu. Hvort sem slæmu myndavali er um aö kenna i
(The Scarlet Letter 95, Striptease 96, G.l. Jane 97), fjölgandi árum eöa
hálaununum, þá erhin svellandi Moore svo gott sem horfin afyfírborðinu.
Kathleen Turner (54), rauk upp stjörnuhimininn af hreinræktuöum
sprengikrafti. Enda sannkölluö bomba, kynbomba. Turner er einnig af-
bragösleikkona og maöur taldi víst aö hún yröi lífseigari á tjaldinu en raun
ber vitni. Allt frá því hún sigraöi heiminn IBody Heat (81), til War ofthe
j Roses (89). Allan níunda áratuginn var Turner hin ókrýnda drottning og
I kyntröll Hollywood, með stórleik íhverri gæöa- oggangmyndinni á eftir i
i annarri; Crimes ofPassion, Prizzís Honor, Romancing the Stone, Peggy I
SueGot Married, svo nokkrar séu nefndar. ídag er hún týnd eöa tröllum
gefín í leiöindum á borð við Baby Geniuses (98).
! Nýjasta dæmiö um falivalt gengi ieikkvenna er sjáifMeryl Streep (49). !
Hana þarfekki aö kynna fyrir lesendum. Streep hefur staöist tímans tönn
beturen nokkur önnurjafnaidra hennarí kvikmyndaborginni. Kom sá og
I sigraöi í The Deer Hunter (77), síöan hefur hvert stórvirkiö rekiö annaö í j
I hartnærtvoáratugi. Síöan hún iék (undur vel), IThe Bridges of Madison j
I County, fyrir fímm árum, hefurStreep ekki fengiö bitastætt hlutverk. I
Orsakimareru sjálfsagt margar. Einhverjar líffræöilegar. Afeinhverjum •
undariegum ástæöum ganga margir í kvikmyndaiönaðinum (og reyndar
víöar) meö þá grillu í kollinum aö karlar haidi betur kynþokkanum en kon-
ur, ergráu hárunum fjölgar. Aö mínu áliti skrifast ástandiö fyrst og síðast
á reikning handritshöfunda. Þeir einblína á ungpíurnar, þær einar fá
j bragömiklu rullurnar. Ekki ofoft hver, meö örfáum undantekningum. Nýj- j
I asta dæmiö er Dancer in the Dark, þar sem okkar eigin Björk er þaö eina I
I sem stendur uppúr niðurdrepandi leiöindunum. Glórulítið hlutverk frá
hendi Lars von Trier, en matarmikiö, og söngkonan gerir þvígóö skil og
hleypirháspennu á atriðin sem hún semur, leikur, syngurog dansarsjálf
og stjómar. Annars er einsog myndin gangi fyrir vasaljósarafhlööum.
Til eru konur sem halda sínum hlut. Stjömur á borö viö Börbru Streis-
and, Goldie Hawn. Þær framleiöa myndimar sínar sjáifar - og ráöa í aöal-
I hlutverkin. \
L.-----------------------------------------------------------1
Bubbi Morthens er áhugamaður um vissar tegundir kvikmynda og gefur ekki mikið
fyrir megnið af því sem bíógestum hefur verið boðið upp á í seinni tíð.
Chaplin
magnaðasti lista-
maður aldarinnar
Kvikmyndin og ég
Eftir Pál Kristin Pálsson Chariie
Chaplin og Akira Kurosawa,“ segir
Bubbi. „Myndir Kurosawa sá ég
fyrst á mánudagssýningunum í Há-
skólabíói í gamla daga og mér þykir
hann bera af öðrum leikstjórum á
seinni hluta tuttugustu aldar. Mynd-
ir hans eins og Lífvörðurinn og Sjö
samúræjar eru fyrirmyndir að doll-
aramyndum Sergio Leone og þetta
eru hasarmyndir sem slá allt út. Þær
tengjast auðvitað Islendingasögun-
um og Hrafninn flýgur eftir Hrafn
Gunnlaugsson er náskyldur þessum
myndum. Eg á flestar myndir Kuros-
awa á bandi og horfi á þær reglulega.
Svo safna ég líka gömlum hryllings-
myndum, sérstaklega um Drakúla
greifa. Ég er þannig mjög hrifinn af
gömlum myndum Hammer-fyrir-
tækisins með köppum eins og Christ-
opher Lee og Peter Cushing. Þessar
myndir, sem maður sá fyrst sem
unglingur í Hafnarbíói, voi'u gerðar
á fjórum til fimm dögum, en þær slá
við flestum nútímamyndum sem eru
bara umbúðir og ekkert innihald,
mér finnst þær að minnsta kosti hafa
voða lítið upp á að bjóða.“
En í fyrsta sæti hjá Bubba er
Charlie Chaplin. „Ég horfi á hann
aftur og aftur,“ segir hann. „Ég held
mikið upp á Einræðisherrann, Gull-
æðið og Nútímann. Krakkarnir mín-
ir elska hann eins og ég og við horf-
um mikið saman á Chaplin. Hann er
að mínum dómi sennilega einn
magnaðasti, ef ekki sá magnaðasti,
listamaður síðustu aldar. Ef við lítum
á að árið 2000 eru sex, sjö og átta ára
Bubbi Morthens
er44 ára. Hann hefurveriö
einn mikilvirkasti og
vinsælasti rokkari og
trúbador landsins
undanfarna tvo ára-
tugi. Bubbi hefursent
frá sér, ýmist einn
eðaífélagi við aöra,
nokkratugi hljóm-
platnaoggeisla-
diska og skrifað
eina barnabók. í
sumarkom út
diskurmeð Bellman-
söngvum og nýverið safnplatan
Sögur 1990-2000. Um þessar
mundir er hann aö æfa upp
hljómsveit með gítarleikurun-
um Guðmundi Péturssyni og
Pétri Hallgrímssyni, bassaleik-
aranum Jakobi Magnússyni og
trymblinum Arnari Geirog
stefnir að því að koma fram
seinnaí mánuöinum.
krakkar grenjandi af hlátri yfir
myndum sem gerðar voru á árunum
1920 til 1930, þá segir það allt um
hverskonar snillingur hann hefur
verið.
Bubbi hefur aðeins komið nálægt
íslenskri kvikmyndagerð. Hann lék í
fyrstu mynd kvikmyndafyrirtaakis-
ins Umba, Skilaboðum til Söndru, og
samdi lög fyrir Skytturnar og Bíó-
daga eftir Friðrik Þór Frið-
riksson. „Ég er mjög hrif-
inn af myndum Friðriks
Þórs,“ segir hann. „Prívat
og persónulega er ég hrifn-
astur af Bíódögum, en
Djöflaeyjan og Englar a1-
heimsins eru líka mjög góð-
ar. Mér finnst mest varið í
Djöflaeyjuna fyrir það hvað
hún sýnir alkóhólismann í
skemmtilegu, átakanlegu og
sterku ljósi. Hvað varðar
Engla alheirpsins snertir hún mig
mjög djúpt. Ég þekkti Páima heitinn
frekar vel, mér fannst bókin frábær
og útfærslan á myndinni ekki síður
vel heppnuð. Sérstaklega var leikur
Ingvars E. Sigurðssonar ofsagóður,
og ég var líka hrifinn af Birni Jörundi,
sem kom mér verulega á óvart með
frammistöðu sinni. Af öðrum íslensk-
um myndum sem mér hefur líkað má
nefna Fíaskó eftir Ragnar Bragason
og sjónvarpsmyndina Blóðrautt sól-
arlag eftir Hrafn Gunnlaugsson, sem
mér þykir ein besta mynd sem hefur
verið gerð hér heima og toppurinn
hjá HrafniJ'