Morgunblaðið - 03.11.2000, Page 8

Morgunblaðið - 03.11.2000, Page 8
BÍÓBLAÐIÐ 8 C FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000 „I 4 Abbott og Costello: Fjandvinir í Hold That Ghost (1941). Roy og Trigger: Vinir í vestrinu. MORGUNBLAÐIÐ Martin og Lewis: Hér í My Friend irma Goes West. Þeir sem eru teknir að hærast, fyllast ljúf- sárri fortíðarþrá er hugurinn reikar aftur til Austurbæjarbíós bemskunnar, með Roy og Dale, að ógleymdum undrahestinum Trigg- er. Hafnarbíó bauð Abbott og Costello, Nýja bíó státaði af Gög og Gokke - Laurel og Hardy. Við Tjörnina glöddust menn yfir óför- um Jerrys Lewis og Deans Martin. Enn eimdi eftir af fyrirbrigðinu í Tveir á toppnum - myndum Mels Gibson og Dannys Glover; gott ef þær hafa ekki runnið sitt skeið á enda. Roy og Dale Kúrekastjarnan Roy Rogers og kona hans, Dale Evans, risu hvað hæst af tvíeykjunum hérlendis. Rogers var gamalreyndur vestra- leikari og sveitasöngvari, sem hlaut viðurnefnið „Konungur kúrekanna" um miðjan fimmta áratuginn. Þá JV komst þessi vörpulegi náungi í fremstu röð vinsælustu kvik- myndaleikara Bandaríkjanna. Oft- ast var gítarinn nærri, fötin jafnan hrein og stífpressuð, hvert hár á sínum stað, garpurinn allajafna skegglausari en bóndinn á Berg- þórshvoli. Vinsældirnar fóru dvín- andi undir miðja öldina, en þá kvæntist hann Dale Evans og lukkuhjólið snerist aftur honum í vil. Við upphaf sjötta áratugarins voru þau gífurlega vinsæl um allan heim og meðreiðarsveinninn George „Gabby“ Hayes, og ekki síður gæðingurinn Trigger („gáfað- asti hestur kvikmyndasögunnar"), urðu til að auka við þær. ^ Vinsældirnar einskorðuðust ekki við þrjúbíó í Austurbæjarbíó. Að- dáendaklúbbar hjónanna töldust á annað þúsund þegar best lét, sá stærsti, í London, vel að merkja, og taldi yfir 50 þúsund einstakl- inga. A sínum blómatíma lék Roy í sex myndum að meðaltali á ári, sem nutu aðsóknar 80 milljón gesta; helftar bandarísku þjóðar- innar. Galdurinn fólst í eilífum átökum þar sem snyrtilegasti kú- reki sögunnar hafði jafnan betur við rustaralýðinn; snilli gæðingsins Triggers, gamansamt innlegg Gabbys, fegurð Dale, að ógleymdu jóðli og vellulegum söng hetjanna. Þær börðust drengilega, blótuðu ekki. Nóg af átökum, þeysireiðum, .stundum grípandi melódíum og yfir vötnunum vakti allajafna andi mannlegrar reisnar og heilinda. Ekki slæm uppeldisáhrif það. Það verður ekki af þeim tekið, Roy og Dale voru tígulegt par og auka- meðlimirnir fylltu skemmtilega útí myndina. Þau voru „flott“. Myndirnar voru undantekning- arlaust frá B-mynda fyrirtækinu Republic, þar sem Roy var jafnan samningsbundinn. Nöfnin gefa góða hugmynd um innihaldið: Shine on Harvest Moon (’38), Jeep- xers Creepers (’39), In Old Cheyen- ne (’41), Sunset of the Desert (’42), Man From Music Mountain (’43), The Yellow Rose of Texas (’44), Springtime in the Sierras (’47), o.s.frv., o.s.frv. Báru gjaman með sér vissan ævintýraljóma vesturs- ins, loforð um létta skemmtun og Roy og Dale og öll hin . . . mTimi tvieykjanna Gullöld tvíeykjanna íkvikmyndum virö- ist yfirstaöin, íbili a.m.k. Þau settu marksitt á alla 20. öldina, áttu feiki- legum vinsældum að fagna um allan heim, ekki síst um og eftir miöja öldina og minnist Sæbjörn Valdi- marsson þeirra helstu. drengskap. Og dulitla einfeldni. Á þessu varð engin sjáanleg breyting þegar Dale bættist í hópinn, síðla á fimmta áratugnum. The 4 Gay Ra- nchero (’48), (héti örugglega allt annað í dag!); Down Dakota Way (’49), Trigger Jr. (’49), Heart Of the Rockies (’51). Un þetta leyti fóru hjónin að viðra sig annars staðar. Pals of the IVest (’51), var síðasta Republic- myndin þeirra, enda dvergstúdíóið komið að fótum fram. Leið Roys lá til Paramount, þar sem hann gerði Son of Paleface (’52), frábæra gam- anmynd með Bob Hope, þar sem Roy gerir góðlátlegt grín að sjálf- um sér. Hjónin stjórnuðu um árabil vinsælum sjónvarpsþætti þar sem þau réðu ferðinni, ásamt Trigger og Buttermilk, hestinum hennar Dale. í Austurbæjarbíó var ný kynslóð ungmenna tekin við og far- in að baula undir sýningum; „Roy rolla, Trigger dolla“. Öld sakleysis- ins var greinilega lokið. Gög og Gokke - Laurel og Hardy Stórkostlegir gleðigjafar og vafa- lítið vinsælasta gaman-tvíeyki allr- ar kvikmyndasögunnar. Stan Laur- el, „Gög“, lítill, væskilslegur, gjarnan vesöldin og vonleysið upp- málað, á meðan félagi hans, Oliver Hardy, „Gokke“, var algjör and- stæða hans, stór og feitur og manna borubrattastur. í þessari ólíku samsetningu var galdurinn fólginn. Kvikmyndahúsagestir velt- ust jafnan um af hlátri er Ollie var eilíflega að klúðra hlutunum og hinn skáldlega vaxni félagi hans að bjarga málunum með því að rústa þeim gjörsamlega. Og öfugt. Það var framleiðandinn Hal Roach sem leiddi þessa mögnuðu Laurel og Hardy: Fjandviniríútlendingahersveitinni (Beau Hunks, 1937). gamanleikara saman um miðjan þriðja áratuginn. Það tók um ár að slípa þá saman og finna rétta tón- inn, að því loknu hófst óslitinn frægðarferill sem stóð í eina þrjá áratugi og skilaði af sér á annað hundrað myndum. 27 eru í fullri lengd. Efnið er yfirleitt ekki marg- flókið, galdurinn byggist á lát- bragðsleik og samspili stjarnanna. Myndirnar voru vissulega misjafn- ar að gæðum. Sveifluðust frá húm- orslausum smáskissum uppí sann- kallaða gimsteina gamanmynd- anna. Byggðu yfirleitt meira á afkáralegum uppákomum og lát- bragði en sögufléttum og samtöl- um. Þeir voru vandræðagripir þar sem stertimennið og þöngulhaus- inn Hardy var jafnan seinheppnari og iðnari við að koma öllu í bál og brand. Það var jafnan svo að er tví- menningarnir sáu fyrir endann á vandanum, tókst þeim á hinn bóg- inn að margfalda hann. Þeir voru hreint út sagt yndislegir, ekki síst þegar Stan grét og klóraði sér í kollinum og Ollie var í sínum svæsnasta oflátungsham. Hluti af galdrinum var að yfirgengileg heimska þeirra og flónsháttur fékk áhorfendur til að finna sig ofjarla þeirra. Slík áhrif eru jafnan eftir- sóknarverð. Um 1940 sögðu félagarnir sig úr vistinni hjá Roach og hugðust nýta frelsið til aukinna umsvifa og frægðar. Það fór á annan veg því kvikmyndaverin sem tóku þá uppá arma sína, MGM og 20th Century Fox, voru jafnvel enn meira með fingurna í hlutunum en Roach. Þeir gerðu hlé á kvikmyndaleik 1945, ferðuðust um heiminn með sýning- arflokk og luku ferlinum með Atoll K (’50), nauðaómerkilegri, ítalskri gamanmynd. Félagarnir hugðu á endurkomu í litmyndum um miðjan sjötta áratuginn, en þær áætlanir urðu að engu er Ollie fékk slag sem dró hann að lokum til dauða árið 1957. Laurel féll frá 8 árum síðar. Fyndnasta trúðapar sögunn- ar var þagnað en nafn þeirra mun haldast á lofti í fjölmörgum mynda þeirra, og samsettu úrvalsefni sem sýnt hefur verið í kvikmyndahús- um eftir fráfall þeirra og ótrúlega mikið af vel tilhöfðu efni er að fá á myndböndum. Abbott og Costello Abbott og Costello byggðu vin- sældir sínar á sömu uppskrift og Laurel og Hardy, gerðu marga góða hluti þó þeir nálguðust aldrei fyrirmyndirnar að vinsældum né hæfni. A og C byrjuðu að leika saman árið 1931; Abbott var sá granni og alvarlegi, Costello lítill og þéttvaxinn. Félagsskapurinn hófst í sýningarflokkum sem ferð- uðust um Bandaríkin, þaðan lá leiðin í útvarpið (’38), ári síðar tróðu þeir upp í revíu á Broadway. Þar vöktu þeir talsverða lukku og léku í sinni fyrstu Hollywoodmynd, One Night in the Tropics, árið 1940. Hún vakti enga athygli, en sú næsta, Buck Privates (’41), sló heldur betur í gegn og halaði inn 10 milljónir dala, sem var ógnar- legt ríkidæmi á þessum tíma. Næsta áratuginn voru þeir fasta- gestir á vinsældalistunum og myndir þeirra margar komust í hóp þeiiTa mest sóttu. Árið 1957 drógu félagarnir sig í hlé og myndir þeirra, sem urðu rösklega 30, þykja eldast heldur illa. Það breytir engu um að hlátra- sköll gestanna sem horfðu á mynd- ir félaganna ætluðu að rífa þakið af Hafnarbíósbragganum „í den“. Jerry Lewis og Dean Martin Lewis og Martin voru lítilsmetn- ir uppistandarar og söngvarar m.m. er leiðir þeirra lágu saman árið 1946. Þeir fóru að troða upp saman og fyrr en varði höfðu þeir náð miklum vinsældum og skemmtu á helstu næturklúbbum Bandaríkjanna fyrir fullu húsi. Martin var í hlutverki þess alvar- lega, söng og var afar glæstur á meðan Lewis var trúðurinn, aulinn sem aldrei lét félagann í friði. Þeir létu ýmislegt fljúga, óhefluð skeyti gengu á milli og glöddu gestina. Um 1950 voru þeir einir vinsælustu skemmtikraftar á sviði um Banda- ríkin þver og endilöng, og í sjón- varpi. Stórframleiðandinn Hal Wallis sá í þeim hagnaðarvon og léku Lewis og Martin í 17 myndum á sjötta áratugnum, áður en leiðir skildu á nýjan leik. Fæstar eru þær virkilega eftirminnilegar en hlutu mikla aðsókn víða um lönd. Þær minnisstæðustu eru The Caddy (’53), Artists and Models (’55) og Pardners, Hollywood or Bust (’57), sem reyndist síðasta mynd þessara ólíku grínara, sem héldu sitt í hvora áttina síðla árs ’56. Langþreyttir hvor á öðrum, segir sagan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.