Morgunblaðið - 07.11.2000, Blaðsíða 42
42 C ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
EIGNABORG ® 5641500
FASTEIGNASALA (f
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar
.EINBYLI OG RAÐHUS
Alfhólsvegur 177 fm raðhús á
þremur hæðum, nýleg innrétting [ eldhúsi,
suðurgaröur, 38 fm bllskúr. (806)
Nýbýlavegur Parhús um 215 fm þar
af er bílskúr um 50 fm Fjögur svefnherb.,
rúmgóð stofa, ALNO innrétting í eldhúsi,
suðurgarður. (824)
Fannafold Giæsiiegt einbýli um 157
fm. ( húsinu eru vandaðar innréttingar, stór-
ar stofur, flísalagt baðherbergi, parket á
svefnherbergjum. Stór vestursólpallur, suð-
urgarður með vönduðum sólpöllum. Hiti (
stéttum fyrir framan hús og bílskúr sem er
um 36 fm Mikið útsýni til vesturs og norð-
urs. Einkasala. V. 24,8 m. (836)
Réttarsel Parhús um 202 fm Á neðri
hæð eru fjögur svefnh. og snyrting, á efri
hæð er stofa með arni, sjónvarpshorn,
hjónaherb. baðh. og eldhús. Tvennar svalir,
mikið útsýni. Auk þess er ófrágenginn kjall-
ari, um 100 fm, þar sem gert er ráð fyrir
þriggja herb. Ibúð. (837)
Hófgerði Einbýlishús, um 142 fm, fjög-
ur svefnh. tvær stofur, bllskúrsréttur. Einka-
sala. (841)
fí
Alfhólsvegur 151 fm endaraðhús,
.fuíflur svefnherbergi, rúmgóð stofa með
'þárketi, að auki er um 60 fm kjallari þar sem
m.a. er sjónvarpsherbergi og snyrting. Mik-
ið útsýni, sjón er sögu ríkari. (839)
Birkigrund Einbýlishús á tveimur
hæðum, með tvöföldum innbyggðum bll-
skúr alls um 286 fm Á neðri hæð er bllskúr
og rúmgóð 3ja herbergja Ibúð með sérinn-
gangi. Á efri hæð eru rúmgóð svefnh. eld-
hús, arinn I stofu, tvennar svalir. Einkasala
(823)
2JA-5 HERB. OG SERHÆÐIR
Digranesvegur 60 fm 2ja - 3ja
herb. með sérinngangi á jarðhæð, laus
fljótlega.
Krummahólar 79 fm 3ja herb. á 6.
hæð, nýleg innrétting I eldhúsi, stórar suð-
ursvalir, mikið útsýni. Stæði I lokuðu blla-
húsi. (843)
Furugrund 73 fm 3ja herb. á 3. hæð I
lyftuhúsi, góðar innréttingar. V. 9,9 m.
(844)
Engihjalli 90 fm 3ja herb. á 3. hæð,
tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum,
parket á stofu, suður- og austursvalir (844)
Lautasmári 79 fm 3ja herb. á 7.
hæð, parket á stofu, fllsar á baði, glæsileg
eign, laus strax. (818)
Nýbýlavegur 78 fm 3ja herb. íbúð á
2. hæð, tvö svefnh. með skápum og park-
eti, rúmgóð stofa, suðursvalir, mjög góð
sameign. 27 fm bllskúr. (833)
Holtagerði 116 fm efri hæð með
sérinngangi I tvíbýli, nýleg innrétting I eld-
húsi, endurnýjaðar hitalagnir I Ibúð. Bílskúr
um 22 fm (835)
NYBYGGINGAR
Reynihvammur Hús með tveimur
(búðum I suðurhllð Kópavog. Á neðri hæð
er um 60 fm 2ja herb. Ibúð með sérinn-
gangi. (búð á efri hæð er alls um 160 fm,
fjögur svefnh. tvennar suðursvalir. Bllskúr
um 30 fm Húsið verður afhent tilbúið að
utan til málningar og fokhelt að innan.
Grófarsmári Um 225 fm parhús á
tveimur hæðum, 25 fm bllskúr. Húsið
verður afhent tilbúið að utan, en að innan
nánast tilbúið undir tréverk. Mikið útsýni.
(825)
Ugluhólar Bflskúr um 24 fm, til af-
hendingar strax.
Fasteianasalan
MroSArSA Hverfisgötu 105,
nilglUnil 101 Reykjavík.
Þuríður Halldórsdúttlr, hdl., lögg. fasteigna- og skipasali. MdHrtwwi lártisa*,
þerther Itr, SqtjwBi, ssaá 39(3 3BV7. ^
Simar 551 7270 og 893 3985 - Fasteignavefun(g«w- biwfektts
Heraðsdómslögmaóur og byggingameistari
tryggja fagleg vinnubrögð
I byggingu
SÚIuhÖfðÍ 12 Glæsilegt vel hannað
184,5 fm einbýli á einni hæð. Húsið af-
hendist fokhelt að innan eða tilbúið undir
tréverk og málningu að innan og fullbúið
að utan. Góð staðsetnig. Upplýsingar og
teikningar á staðnum og á skrifstofu.
2ja herbergja
ÁstÚn KÓpaVOgí Mjög góð íbúð í
góðu húsi í Fossvogsdal. Vel skipulögð
íbúð, með stórum svölum og gott ytra
umhverfi. Verð 7,9 m.kr.
Atvinnuhúsnæði
Hamarshöfði Gotf 300 fm iðnaðar-
húsnæði með mikilli lofthæð og stórum
innkeyrsludyrum. Góðar loft- og raflagnir.
Sér skrifstofubygging fylgir húsnæðinu.
Óvenjugott húsnæði og góð frágengin
útiaðstaða. Lyklar á skrifstofu.
Höfum kaupendur á skrá.
Vantar eignir vegna mikillar
eftirspurnar.
www.hreidrid.is
Farsæl fasteignaviðskipti
= þekking og reynsla
Félag Fasteignasala
Haust í sumarlandi
FAGURT haust og blíðusumar get-
ur verið lýsing veðurfars hér á landi
á síðustu mánuðum. Það er eitt ör-
uggasta dæmið um að við íslending-
ar tökum að hrósa fegurð náttúr-
unnar þegar vötn og tjarnir líkjast
spegli með kymi yfirborði.
Þá finnst mörgum náttúran feg-
urst á landi okkar. Við erum vön
golu og næðingi.
Nýlega las ég í erlendu blaði að
langflest innbrot í sumarbústaði
væru framin í nóvembermánuði. Það
var tryggingafélag sem hafði látið
gera yfirlit yfir rán og innbrotatíðni
í sumarhús. í þessari grein voru
sumarhúsaeigendur eindregið hvatt-
ir til þess að ganga sem tryggilegast
frá húsum sínum undir veturinn.
Helst skyldu eigendur slíkra húsa
hafa hlera fyrir gluggum og útidyr-
um og reyna að tryggja öryggi húss-
ins sem best svo að erfitt væri að
komast þar inn og að helst væri ekki
hægt að gægjast inn til þess að sjá
búnað sem inni væri.
Varnir gegn músagangi
Hinir óboðnu gestir geta verið
fleiri en mannfólk. Það þarf einnig
að líta vel eftir hvar mýs geta smog-
ið inn í húsið. Þær þurfa svo litlar
smugur til að komast inn og geta
auk þess stækkað gat eða rifu svo að
þær komist inn.
Mýs eru nagdýr, eins og við vitum
og þurfa ótrúlega litla rifu til þess að
komast inn. Því er rétt að veita at-
hygli ef einhvers staðar hefur orðið
vart við að mús hafi nagað við hurð,
þröskuld eða annars staðar þá þarf
að loka fyrir frekari ásókn músa t.d.
með músaneti að utanverðu.
Kunnugt er að mýs sem koma að
húsum hlaupa oft fast með hús-
veggnum í kverkinni þar sem vegg-
ur og jörð mætast. Þess vegna hafa
margir tekið upp það ráð að sáldra
músaeitri inn í plaströrsbúta sem
lagðir eru með nokkru millibili á
jörðina í þessa kverk þar sem mæt-
ist jörð og veggur eða undirstöður
hússins. Þetta mega vera svona 40
til 50 mm gild rör sem mýs geta
hæglega hlaupið í gegnum á leið
sinni með húsveggnum.
Músanet þarf að vera fínriðið
vírnet sem neglt er eða heft með
heftibyssu á húsið neðanvert þar
sem hætta þykir vera á að mýs geti
leitað inn, en möskvar þess mega
varla vera stærri en 2-3 mm. Það
getur líka verið gott að klæða með
slíku músneti yfir þröskulda útidyra
og neðaná útihurðir hússins. Al-
kunnugt er hve fast mýsnar sækja í
húsin þegar veður fer að kólna og
snjóa tekur.
Það er frágangur á vatnsleiðslum,
krönum, vatnslásum og hreinlætis-
Smiðjan
Margs þarf að gæta,
þegar sumarhúsið er
yfirgefíð að hausti og
búið undir veturinn,
segir Bjarni Qlafsson.
Vanda þarf fráganginn
sem best.
tækjum sem er áríðandi að vandlega
sé hugað að þegar sumarhúsið er yf-
irgefið að haustinu. Ef vatn frýs í
einhverjum tækjum þá getur það
valdið tjóni á dýrum tækjum og
kostað dýrar viðgerðir.
Margir velja frostlög
Margir hafa valið þann kost að
kaupa frostlög og setja í salernis-
skálina og aðra staði þar sem vatn
situr að staðaldri. Þá þarf að vera til
á staðnum brúsi með frostlegi svo að
bæta megi í salemiskassann. Oft er
það sem einhver þarf að pissa áður
en lagt er af stað heim og þá þarf
auðvitað að bæta aftur frostlegi í
vatnskassann og salernisskálina.
Það er áríðandi að þetta gleymist
ekki.
Sumarhús eru stundum höfð með
vægum hita á ofnum allan veturinn
þar sem hitað er upp með rafmagni
og bjargar það auðvitað frá frost-
skemmdum. Þá er að muna eftir
sumarhúsinu ef illviðri gengur yfir
svo að rafstraumur rofni.
Þá má ekki gleyma hættunni af
frostskemmdum og þarf þá annað-
hvort að biðja góðan granna um að
líta eftir hita í sumarhúsinu eða að
fara þangað sjálfur. Þetta fer eftir
vegalengd og aðstæðum hjá hverj-
um og einum. Ef svo ber við, þar
sem rafhitun er, að straumur fari af
í langan tíma þá getur það bjargað
frá frostskemmdum að kveikja á
kertum inni. Vel þarf að búa um
kertin, t.d. að láta þau standa á leir-
eða glerfati og vera í öruggum stjök-
um ef farið verður frá logandi kert-
um. Það gæti orðið dýrkeypt ef eld-
ur kviknar í húsinu af þeim sökum.
Margir eru svo lánsamir að eiga
sumarhús hitað upp með heitu vatni.
Það sparar miklar áhyggjur. Þó að
stundum verði einnig skaðar af
vatnsleka eða gufu og raka, ef bilun
verður.
Stundum hendir það að vetri til að
bleytubletta verður vart á gólfi. Það
er auðvitað ávallt hætta á því í húsi
sem stendur fleiri mánuði mann-
laust, að vatn komist inn. Um getur
verið að ræða þakleka eða skaf-
renning sem kemst undir þakjárn og
bráðnar síðan við ylinn inni. Einnig
er hætt við að fíngerður skafsnjór
komist inn með glugga eða hurð.
Þakleki getur verið vandfundinn
en er þó þess eðlis að það er bráð-
nauðsynlegt að finna lekastaðinn. Þá
er rétt að leita fyrst eftir því hvort
nagli hefur lyfst upp úr þak-
klæðningunni eða hvort þakplata
hefur losnað að hluta til. Nú svo er
líka algengt að t.d. járnplötur á þaki
ryðgi í sundur þar sem tvær plötur
skarast.
Þá getur verið erfitt að sjá hvar
lekastaðurinn er af því að efri platan
liggur yfir ryðgati á undirplötunni.
Til þess að sjá svona ryðgat í undir-
plötu verður að losa efri plötuna.
Þegar svona bilun hefur orðið þarf
auðvitað að setja bót yfir gatið og
þarf að hreinsa ryð sem undir kann
að vera og bera menju, eða ryðverj-
andi málningu, yfir áður en ný plata
er sett yfir. Það tefur fyrir nýrri
ryðmyndun.
Ég nefndi gluggahlera hér í upp-
hafi. Gluggahlerar eru hið besta
þarfaþing á sumarhúsi. Þeir verja
gluggana fyrir skemmdum í illviðr-
um og varna á þeim skemmdum af
regni og snjó. Þá vil ég einnig geta
þess að sjaldnar er þörf á að mála
eða bera á þá olíu, þar sem glugga-
hlerar hlífa gluggunum. Enn er einn
kostur ótalinn en það er að glugga-
hlerar geta verið til prýði fyrir hús-
ið.
Viðhald húsveggja
Einn er sá þáttur er skiptir miklu
máli í hörðum vetrarveðrum en það
er að vera iðinn við að mála og olíu-
bera veggjaklæðningu hússins að
utanverðu. Það er algengt að sumar-
hús hér á landi séu með timbur-
klæðningu sem regnkápu. Þau hús
er áríðandi að bera á olíu eða máln-
ingu á svo að klæðningin standist
betur tímans tönn og úrkomusama
veðráttu.
Viðarklæðning verður fljótt grá-
leit og gamalleg ef eigendur van-
rækja að bera á hana olíu og finnst
mér fallegast að blanda dálitlum lit í
olíuna, það lífgar og prýðir húsið. Og
ef fallega er leikið á litaspil með mál-
un glugga og dyra getur sumarhúsið
orðið fagurt á að líta, ef tónamir
falla vel saman.
Mér er ljóst að fyrir mörgum er
sumarlandið skemmtilegasti vinnu-
staður sem þeir sækja og þeir geta
unað þar margar langar vinnustund-
ir. Þess vegna eru mörg sumarlönd
svo fögur og aðlaðandi. Gróðurreitir
hlaðnir jurtum og fegurð er lýsir
natni og umhyggju.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Fulltrúar umhverfisnefndar sem sáu um tilnefningu til umhverfisverðlauna ásamt verðlaunahöfum og sveitar-
stjóra Hvolhrepps. Frá vinstri: Guðrún Birgisdóttir, Unnar Þór Böðvarsson, Guðjón Árnason, Guðbjörg Gunn-
laugsdóttir, Svanhvít Hreinsdóttir og Ágúst Ingi Ólafsson.
Umhverfisverðlaun Hvolhrepps árið 2000
Hvolsvelli - Hjónin Guðbjörg _ hrepps að þessu sinni. Hljóta þau Verðlaunin voru afhent að við-
Gunnlaugsdóttir og Guðjón Árna- verðlaunin fyrir einkar fallegan staddri hreppsnefnd og umhverf-
son í Króktúni 5 á Hvolsvelli og snyrtilegan garð við húseign isnefnd Hvolhrepps í Félags-
hlutu umhverfisverðlaun Hvol- sina. heimilinu Hvoli 16. október sl.