Morgunblaðið - 17.11.2000, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 17.11.2000, Qupperneq 5
4 C FÖSTUDAGUR17. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ BÍÓBLAÐIÐ Eina ástríðan I LIFINU Sumir halda því fram aö kaflaskil hafi oröiö í norrænni kvik- myndagerð meö fyrstu dönsku dogmamyndinni ogtala um fyrir og eftir Festen. Sú mynd breytti aö minnsta kosti miklu fyrir leikstjórann Thomas Vinterberg, kvikmyndatökumanninn Anth- ony Dod Mantle og klipparann - Valdísi Óskarsdóttur. Eftir Festen hefurValdís varla áttfrídagí vinnunni, henni bjóöast fleiri verkefni en hún getur annað og víöar en á Norðurlöndun- um. Um þessar mundir er eftirvinnslu að Ijúka á nýjustu mynd bandaríska leikstjórans Gus Van Sandt, Finding Forrester, sem Valdís klippti og skartar Sean Connery í aöalhlutverkinu. Valdís var nýlega stödd hér heima til aö hafa yfirumsjón meö loka- klippingu næstu myndar Zik Zak-fyrirtækisins, Villiljós, og þá hitti Páll Kristinn Pálsson hana einn eftirmiödagspart. IRAUNINNI er þetta alltaf sama vinnan,“ segir Valdís hugsi og treður Bourbon Blend í pípuna sína þegar ég nefni ofangreinda skoðun um lífíð íyrir og eftir Festen. „Það breytist ekki að maður er fyrst og fremst að klippa saman efni og gera úr því sögu. Auðvitað eru leik- stjórarnir og handritin mismunandi og það hvernig myndimar eru teknar, en það skiptir ekki máli hvort um er að ræða hundrað króna eða þúsund króna mynd. Aðalatriðið er að koma sögunni saman. Og það er alltaf jafnmikil vinna Þetta vil ág gera... Valdís kveðst snemma á h'fsleiðinni hafa langað að fara í kvikmyndagerð. Hún starfaði sem ljósmyndari, skrifaði barnabækur og gerði útvarpsþætti. ,Af einhverjum ástæðum var mér svo hugstætt að læra að klippa, en þegar ég talaði um það við fólk hváði það og sagði: „Klippa hvað?“ Það var eins og þetta væri ekki sérstakt fag, það væru leikstjóramir, tökumennimir eða jafn- vel framleiðendumir sem klipptu. Eg sótti árið 1974 um að komast á leik- stjóralínuna við Dramatiska Institutet í Stokkhólmi, en fékk ekki inngöngu. Á þeim tíma var ég ein með bam og það var ekkert sjálfsagt mál að skella sér bara til útlanda og taka sénsinn. Eg ákvað því að halda áfram í því sem ég var að gera þangað til eitthvað annað gerðist. Og þetta „þangað til“ varð tíu ár, þá sótti ég um að að komast á tveggja mánaða fílmunámskeið við sama skóla, D.I. í Stokkhólmi. Ég var þá búin að eignast yngri strákinn minn, Davíð, hann var eins árs og þegar stað- festing bai-st um að ég kæmist á kúrs- inn pakkaði ég honum niður og flaug út, en skildi Kalla eldri son minn eftir heima. Aðalbjörg systir mín bjó í Upp- sölum og bauðst til að passa fyrir mig á meðan ég var á námskeiðinu. Þetta var mjög skemmtilegur tími. Við mættum snemma á morgnana og vorum að fram á kvöld, skrifuðum handrit, tókum og lékum sjálf; þetta gekk mjög hratt fyr- ir sig og þegar ég byijaði að klippa fannst mér það svo tryllingslega skemmtilegt að ég hugsaði með mér: Þetta vil ég gera það sem eftir er æv- innar.“ Danski kvikmyndaskólinn Eftir námskeiðið gekk Valdís á milli kvikmyndagerðarmanna hér heima, en það var engin verkefni að hafa, og hún hélt áfram að vinna sem Ijósmyndari og þáttagerðarkona í útvarpi. Henni buðust svo smám saman verkefni sem aðstoðarklippari við íslenskar bíó- myndir: Löggulíf eftir Þráin Bertels- son, Eins og skepnan deyr eftir Hilmar Oddsson, Stella í orlofi eftir Guðnýju Halldórsdóttur og Þórhildi Þorleifs- dóttur og Skyttumar eftir Friðrik Þór Friðriksson. Aðalklippari við þá síð- astnefndu var hinn dansk-íslenski Tómas Gíslason og hann hvatti Valdísi til að sækja um inngöngu í Danska kvikmyndaskólann. „Tómas sagði að þá gæti ég leikið mér í fjögur ár,“ segir Valdís og brosir út í annað. „Ég sótti um og komst inn 1987. Mér fínnst skólinn reyndar gera meiri kröfur til útlendinga en inn- fæddra, eins og þeir þurfi helst að vera útlærðir til að komast inn. En þarna var ég næstu fjögur árin og fannst það harla lítill leikur. Okkur var sagt að þegar við kæmum út í bransann mynd- um við sífellt reka okkur á veggi og þess vegna gekk kennslan út, á að láta okkur endalaust ganga á veggi. Einnig var mórallinn slæmur meðal nemenda, mikil afbrýðisemi og samstöðuleysi. Kjartan Kjartansson hljóðmeistari var í sama árgangi svo við gátum kvartað við hvort annað og tveimur áium seinna bættist Sigurður Hr. Sigui'ðs- son hljóðmeistari í hópinn. Eini ljósi punkturinn, fyrir utan jóla- og sumar- frí, eru samböndin sem maður kemst í og geta þýtt vinnu seinna þegar leik- stjórarnir fara að gera sínar eigin myndir." Gleði og raunir klipparans Valdís vann útskriftarmynd sína með leikstjóranum Annette K. Olesen. „Hún heitir 10.32 Kærlighedshistorie, frekar óhefðbundin saga að formi til og klippingin eftir því óvenjuleg. Þessi mynd hefur farið víða og unnið til verð- launa á skólahátíðum. Eg man eftir því að í útskriftarveislunni kom leikstjór- inn Jesper W. Nielsen aftur og aftur til mín og sagði: „Rosalega var þetta góð mynd hjá þér, Valdís." Og þegar hann kom í fimmta skiptið sagði ég: „Ef þig vantar einhvern tíma aðstoðarklipp- ara, Jesper, þá hringirðu bara í mig.“ Þá sagði hann: „Eg myndi aldrei hringja í þig og biðja þig um að vera að- stoðarklippari. Ég myndi bara hringja í þig og biðja þig um að vera aðalklipp- ari.“ En þess má geta að Jesper hafði á sínum tíma útskrifast sem klippari frá Danska kvikmyndaskólanum." Eftir námið ætlaði Valdís að vera áfram í Danmörku og freista gæfunn- ar. „En þegar Ásdís Thoroddsen leik- stjóri hringdi og bauð mér að klippa Inguló, pakkaði ég öllu niður og fór til Islands. í kjölfar hennar kom Sódóma Reykjavík eftir Óskar Jónasson, en svo var ekkert að hafa. Á meðan ég var í námi hafði ég alltaf komið heim á sumrin og klippt fréttir hjá Sjónvarp- inu, svo ég fór aftur í það. Góð klippiæf- ing, en mikið álag. Lítið sem ekkert að gera allan daginn, svo myndaðist bið- röð fréttamanna um sexleytið, það var hraðspólað í gegnum efnið, skotin val- in, klippt og döbbað. Klukkan átta var heilinn í mér ónýtur og þá voru ellefu- fréttiniar eftir. Samt var gaman, og fólkið sem ég vann með gott og skemmtdegt. Svo komu þrjár stutt- myndir: Óskir Skara eftir Ásdísi Thor- oddsen, Hlaupársdagur eftir Önnu Th. Rögnvaldsdóttur og Farvel í'aivel eftir Klaus Kjeldsen. Næsta bíómynd varð svo Skýjahöllin eftir Þorstein Jónsson, Nordisk film var meðframleiðandi og lagði til eftirvinnsluna, sendi til íslands klippitölvu og Nikolaj aðstoðarmann. Hann sat með mér þijá vetrarmánuði í myrkri og skítakulda, kenndi mér á tölvuna og þegar ég fluttist aftur til Danmerkur var hann aðstoðarmaður minn við fyrstu myndirnar. Einn dag- inn hringdi svo fyrrnefndur Jesper W. Nielsen, þetta var þremur árum eftir útskriftarpartíið, og bauð mér að klippa mynd hans sem heitii' Síðasti víkingurinn. Ég fór út haustið 1994 og um það bil sem við vorum að klára í febrúar 1995 bauðst mér að klippa aðra mynd í Danmörku um sumaiið. Ég fór heim og klippti Draumadísir eftir Ás- dísi Thoroddsen, pakkaði niður í frí- stundunum og flutti aftur út.“ Sumarmyndin heitir Tpsepiger, leik- stjórinn Vibeke Gade, og Valdís fékk Elísabetu Rónaldsdóttur með sér sem aðstoðarklippara. „Sú vinna snerist upp í hreina martröð. Vibeke kom úr sjónvarpinu og þetta var hennar fyrsta bíómynd. Hún hafði aldrei séð klippi- borð og fór einfaldlega á taugum. Sat úti í horni allan daginn og gagnrýndi allt sem ég gerði. Ekki hvemig ég klippti, því það vai' í fínu lagi, heldur hvernig ég stóð og sat og talaði eða tal- aði ekki. Hún var ótrúleg. Taugastríð okkar stóð yfir í nokkra mánuði, og endaði með því að henni var bannað að koma inn í herbergið til mín, en við El- ísabet kláruðum að klippa. Eftir það fékk Vibeke klippara á eftirlaunum frá sjónvarpinu til að fara með sér í gegn- um myndina, hún hafði hótað að taka nafnið sitt burtu og það gengur ekki að hafa mynd án leikstjóra eins og gefur að skilja. Við Elísabet sáum svo mynd- ina og létum fjarlægja nöfn okkar af kreditlistanum. Ekki af því að konan hefði breytt neinu að ráði, heldur bara svona af prinsípástæðum. Það var líka allt í lagi, ekkert mál að vera með bíó- mynd sem enginn heíur klippt!“ Næstu verkefni voru öll ánægjuleg: stuttmyndin Fridas forste gang eftir Charlotte S. Bostrup; endurklipping á Blomsterfangen eftir Jens Arendtsen; lokaspretturinn á fyi'stu bíómynd Thomasar Vinterbergs, De sterste helte; Forbudt for born eftir Jesper W. Nielsen - og svo fékk Valdís upphring- ingu frá einum frægasta kíippara Dana, Janus Billeskov-Jensen, hvort hún vildi verða meðklippari hans við Vesalingana, stórmynd Bille August eftir sögu Viktors Hugo. „Sú mynd vai' tekin í Prag, við vorum þar á meðan og kláruðum svo að klippa í Kaupmanna- höfn. Meðklippari þýðh' að maður klippi til jafns við aðalklipparann, en einhverra hluta vegna mátti ég ekki tala við Bille August og ekki sýna hon- um senumar sem ég klippti, það gerði Janus himself. Einhver sagði að Janus væri svo hræddm- um að Bille fyndi annan klippara sem væri betri en hann og þess vegna héldi hann öllum klipp- uium frá honum. Ef ég hefði ekki gengið í gegnum vesenið með Vibeke Gade er ég ekki viss um að ég hefði meikað Janus Billeskov. Það var allt ómögulegt sem ég gerði. Eitt skipti lét hann mig fá senu sem hann sjálfúr var búinn að klippa, en sagðist ekki kunna nógu vel við hana, hvort ég vildi ekki taka hana í gegn. Ég breytti tveimur skotum í byrjuninni, en hróflaði ekki við restinni, hugsaði að hann hefði klippt þetta sjálfur og hlyti að vilja hafa þetta svona. Janus horfði á senuna og sagði: „En fyndið, þú notar alveg sömu tökur og ég!“ - en svo kom: Þetta er ómögulegt og þetta er ómögulegt og... Þetta var út í hött. Þarna sat maðurinn og tætti niður sína eigin klippingu. Ég velti fyrir mér hvort ég ætti að benda honum á að hann hefði klippt þetta drasl sjálfur, en ákvað að sleppa því. En þetta bjargaði lífi mínu, því ég gerði mér grein fyrir að þó ég kæmi inn með eitthvað sem Dede Allen eða Thelma Schoenmaker hefðu klippt þá myndi hann segja alveg það sama. Éftir þetta hélt ég mig mest í hljóðinu svo það eru bara nokkrar senur í Vesalingunum sem hægt er að segja að ég hafi klippt. Alltaf síðan þegar ég hitti Janus er hann voða næs, en hann er auðvitað ekki uppáhaldsklippparinn minn!“ Festen Og þá er komið að Festen, haustið 1997: „Thomas Vinterberg hafði boðið mér að klippa Festen og sent mér handritið niður til Prag. Þegar ég kom til starfa var ég með það á hreinu að ég væri versti klippari í heimi. Thomasi fannst allt gott sem ég gerði og ég var viss um að það væri eitthvað að honum, því mér fannst ekkert nógu gott. Við vorum með 56 klukkutíma efni, tekið á handheldar starfrænar vídeókamerui'. Ég uppgötvaði fljótlega hvað það var Þegar ég klippti Festen var ég viss um að ég væri versti klippari í heimi Ef þú smellir aftur með fingrunum, Sören, þá bít ég þig í fótinn! Mér er sagt að ég hafi ekki stíl en ég get séð það sjálf. Ég klippi bara svona eins og ég klippi mikill kraftur í tökunum, sem voru líka þess eðlis að það mátti gera nánast hvað sem var við þær. Klippingin varð því að skemmtilegum leik þar sem allar reglur voru brotnar og smátt og smátt fékk ég sjálfstraustið aftur. Við áttum að vera búin að klippa í desember, sem vai' allt of knappt og enduðum í rosa- legri töm þar sem Thomas sat með heyrnartól og horfði á vídeó og valdi tökur, en ég sat við tölvuna og klippti jafnóðum það sem hann lét mig fá. Við náðum að koma saman fyrsta klippi, sem var þrír tímar, í byrjun desember og tókst að koma myndinni í nokkuð gott horf fyrir jólafríið. Eftir áramótin var ég búin að lofa mér í Dansinn hans Ágústs Guðmundssonar, ásamt Elísa- betu Rónalds, en hún vai'ð að byija án mín. Lokaspretturinn við klippingu Festen varð önnur hrikaleg törn, þar sem unnið var minnst 12 tíma á dag, líka um helgar. Myndin var alltof löng, það þurfti að henda miklu út, og svo hafði hún fimm ef ekki sex endi. Það var vel liðið á febrúar er við kláruðum og þá hafði myndin breyst mjög mikið í MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR17. NÓVEMBER 2000 C 5 BÍÓBLAÐIÐ Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson ------------------- , ------------1 allri uppbyggingu. Við vorum að sjálf- sögðu kát, en hins vegar óraði engan fyrir að hún ætti eftir að slá svona hressilega í gegn. Menn héldu að hún myndi malla eitthvað í nokkrum bíó- húsum í Danmörku og búið spil. Svo var hún valin í aðalkeppnina í Cannes og það varð rosafögnuður; liðið óð nið- ureftir og var eins og útlendingar á leið í útilegu um hávetur á Islandi, vantaði allan útbúnað og enginn vissi neitt í sinn haus. Ég fór með og það vai' æðislegt. Festen fékk Gullna pálmann og gekk síðan einstaklega vel í Danmörku, en samt kom mér á óvart að hún skyldi síðan fara svona víða og hafa þau áhrif á kvikmynda- gerðarfólk sem raun ber vitni. Ég er enn að hitta fólk sem talar fram og aftur um Festen. Thomas er hampað sem nýjum snillingi í norrænni kvik- myndagerð og það má vel unna hon- um þess. Hann er ákaflega hug- myndaríkur og góður í samstarfi. Hann er aldrei negldur niður við handritið, lætur reyndar klippa allar senur og raða þeim niður eftir hand- ritinu, því hann vill gefa öllum senum séns. En þegar kemur að því að henda út og breyta er hann mjög opinn og hlustar á skoðanir annarra, og úr því verður frjótt samspil. Svo er hann mikill ljúflingur.“ Lars og Soren Eftir Festen fékk Valdís sérkenni- legt verkefni. „Lars von Trier hafði sett upp einkar fhimlega sýningu í Kunstforeningen í Kaupmannahöfn. Spunaverkefni þar sem leikurum var komið fyrir í fjórtán herbergjum, þeir fengu einhverjar grunnlínur frá leik- stjóranum sem gengu út á að túlka mismunandi tilfinningar eftir því sem litur ljóssins í herbergjunum breytt- ist. En það sem réð litaskiptunum voiu hreyfingar maura í Mexíkó! Þegar þeir fóru yfir ákveðna punkta skipti ljósið í herbergjunum fjórtán í Kaupmannahöfn um lit og þar með hvaða tilfinningar leikararnir áttu að tjá - sambandið var í gegnum gei'vi- hnött eða eitthvað svoleiðis. Jesper Jargil filmaði þetta allt saman mjög nákvæmlega, 86 klukkutíma, og úr þessu átti að búa til bíómynd. Eg man ekki titilinn, en undirtitillinn var: Þetta er ekki mynd. Það var náttúr- lega enginn vitrænn stiúktúr í þessu, en margar fyndnar senur og skemmtilegir karakterar. Ég átti lengi í basli með að finna eitthvert form fyrir þetta efni og á endanum ákvað ég að úr því þetta væri ekki bíó- mynd gæti ég klippt í samræmi við það. Jesper var á haus í heimildar- mynd um Lars von Trier og hafði engan tíma til að sinna ekki-bíómynd- inni. Eftir dúk og disk mætti hann loksins í klippiherbergið og var ekki par hrifinn af því sem'hann sá. Hann útlistaði fjálglega hvernig hann vildi hafa myndina, en það var bara þrem- ur mánuðum of seint og skyndilega fékk ég nóg. Ég vildi ekki klippa leng- ur. Ég vildi ekki sjá óklippta bíómynd það sem eftir lifði ævinnar. Ég fór heim, lagðist upp í sófa og kveikti á sjónvarpinu. Velti fyrir mér hvað ann- að mig langaði að gera og komst að þeirri niðurstöðu - mér til mikillar ar- mæðu - að eina ástríðan sem ég hef er að klippa bíómyndir, ég gæti ekki lif- að án þess. En nú væri þessi blessaða ekki-mynd að ræna mig ástríðunni og ég mætti ekki láta það viðgangast. Svo ég sendi Jesper uppsagnarbréf og fór í tveggja daga frí til Skagen. Ég mætti síðan aftur í klippiher- bergið til að vinna Mifúnes sidste sang, dogmamynd eftir Soren Kragh- Jprgensen. Hún var allt öðruvísi en Festen, tekin á filmu og kameran hrist sem minnst. Við klipptum hana á sextán vikum, unnum skipulega frá níu til fimm alla virka daga og þetta er eina myndin sem ég hef klippt á venjulegum vinnutíma. Ég hafði aldrei unnið með Spren áður en það gekk mjög vel, hann er svo léttur og skemmtilegur náungi. En oft þegar ég var að klippa sat hann fyrir aftan mig, fylgdist með og ef honum fannst komið að klippi og ég ekki búin að framkvæma það, smellti hann fingr- um og sagði: „Klipp!“ Eftir nokkum tíma var ég alveg að fiíka út, sneri mér við og sagði: „Ef þú smellir aftur með fingrunum, Sören, þá bít ég þig í fótinn!" Það kom smáþögn, en svo sagði hann: „Lofarðu því?“ „Já,“ sagði ég, „ef þú ert í hreinum buxum!“ „Jæja,“ sagði hann, vafði teipi um finguma og brosti: „Sjáðu Valdís, nú get ég ekki smellt lengur.“ Ég man að fréttamennimir gerðu þetta stundum uppi í Sjónvarpi og manni leið eins og hundi. Smellt: „Sestu!“ Smellt: “Leggstu!" Smellt: „Veltu þér!“ Smellt: „Góður vofsi, nú færðu kex!“ Undarlegur andskoti." Gus van Sandt Mifunes sidste sang fékk mjög góð- ar viðtökur og verðlaun á ýmsum kvikmyndahátíðum. Valdís klippti næst bandaríska dogmamynd, Julian Donkeyboy, eftir Harmony Korine og sex þátta seríu fyiir sænska sjón- varpið, Labyrinten, gerða eftir sögu krimmahöfundarins Hennings Mank- ells í leikstjórn Daniels Bergmans (sonar Ingmars). Þegar Valdís vann við Julian Donkeyboy kom leikstjór- inn Gus Van Sandt (My Private Id- aho, Dragstore Cowboy, To Die For) einn daginn inn í klippiherbergið. „Þar hitti ég Gus fyrst,“ segii' Val- dís. „Harmony hafði skrifað handrit að þremur stuttmyndum sem átti að skeyta saman í eina mynd og Gus átti að leikstýra einni þeirra, Harmony annarri og þeir vildu fá Thomas Vint- erberg í þá þriðju, en hann afþakkaði. Það átti að vera sami tökumaður á þeim öllum, Anthony Dod Mantle, og sami klipparinn, ég. Einamyndin sem hefur verið gerð er sú sem Gus leik- stýrir og kallast Easter. Við klipptum hana í nóvember og desember í fyrra í Portlandi í Oregon. Ég bjó á hóteli í herbergi 207 og klippitölvan var í her- bergi 202, svo það var bara yfir gang- inn og aftur til baka allan tímann. Það var lítið um útivera, sem var svo sem í lagi því það hellirigndi alla daga. Með- an á þessu stóð fékk Gus sent hand- ritið að Finding Forrester og ég heyrði hann tala um að Sean Connery vildi taka að sér annað aðalhlutverkið. Það var þó ekkert orðað við mig að vinna við þá mynd og ég fór heim til Kaupmannahafnar og klippti D-dag eftir dogmabræðuma Thomas Vint- erberg, Lars voh Trier, Spren Kragh- Jacobsen og Christian Levring. Myndin var tekin upp á gamlárs- kvöld. Hver um sig hafði einn leikara, nema Soren hafði tvo, einn tökumann og einn hljóðmann. Sögupersónurnar bytjuðu hver á sínum stað í Kaup- mannahöfn rúmlega elleíú og rétt fyr- ir miðnætti hittust þær allar til að fremja bankarán. Eftir ránið skiljast svo leiðir þeirra. Hver mynd var 70 mínútur og á nýársdag var myndun- um sjónvarpað á fjóram sjónvarps- stöðvum og áhorfendur þurftu að sappa á milli þeirra til að fylgjast með öllum sögunum, en á einni stöðinni vora leikstjóramir sýndir þai' sem þeir stýrðu leikuranum í gegnum tal- stöð. Danska þjóðin var ekki par hrif- in af þessari uppákomu og fannst að dogmabræðumir ættu bara að leika sér heima hjá sér. Ég var síðan fengin til að klippa þessar fjórar myndir saman í eina og dundaði mér við það í janúar og febrúar - leikstjóralaus. Pródúsentinn sagði vonlaust að hafa fjóra leikstjóra saman í einu klippi- herbergi, strákamir vildu bara að ég klippti þetta saman og svo fengju þeir að sjá útkomuna. Um miðjan febrúar fékk ég upp- hringingu frá pródúsenti Gus og til- boð um að klippa Finding Forrester. Myndin er framleidd af Columbia Pictures í Hollywood, stúdíótökurnar vora í Toronto í Kanada, útitökumar í New York. Við fylgdum tökuliðinu og klipptum meðfram tökum, og svo restina í Berkeley, rétt fyrir utan San Franscisco. Klippivinnan tók sex mánuði og þetta hefur verið afspymu fróðlegt. I fyrsta lagi era samningar við svona risafyrirtæki mjög flóknir, svo ég er komin með umboðsmann í Bandaríkjunum til að annast þau mál. Það þarf bókstaflega að tilgreina allt í samningnum: hve marga tíma maður vinnur, hvernig maður býr, á hvaða farrými maður flýgur, stærð bókstaf- anna á nafni manns á kreditlistanum og svo framvegis. Þetta era endalaus smáatriði og þýðir ekkert að ætla sér að breyta einhveiju eftir á. I öðra lagi er batteríið svo miklu stærra en mað- ur á að venjast, aðstoðarmennimir era með aðstoðarmenn sem hafa líka aðstoðarmenn ... Og vinnan var mjög stíf, klippt allan daginn og á kvöldin vora tökur gærdagsins skoðaðar, það er að segja meðan á tökum stóð. Þeg- ar þeim lauk styttist vinnudagurinn þó ekkert, maður vann bara lengur við að klippa. Þetta var eins og á ver- tíð. Vinna. Éta. Sofa. Vinnustaðurinn og verbúðin samt ögn snyrtilegri þama úti og launin líklegast skárri en þó ekkert til að hrópa húrra fyrir mið- að við álagið. Gus er mjög geðþekkur maður. Meðan myndin vai' í tökum kom hann tvisvar inn í klippiherbergið, horfði á nokkrar senur, sagði: „Great“ og fór svo út. Eftir að tökum lauk var hann í klippiherberginu allan daginn. Hann sat þar bara, gutlaði á gítar, fór á net- ið eða talaði í símann og ef ég þurfti að spyrja einhvers svaraði hann, en lét mig annai's afskiptalausa. I þau örfáu skipti sem hann kom með athuga- semdir, ræskti hann sig eins og hann væri að biðjast afsökunar á ónæðinu og sagði: „Veistu hvað ég held að þú gætii' ef til vill gert núna ..." En svo gátum við setið lengi og rætt um myndina og persónurnar og hvemig sagan skilaði sér ... eða bara kjaftað um ýmislegt annað sem kom mynd- inni ekkert við. Við urðum á undan áætlun með klippinguna, sama gerð- ist með hljóðvinnsluna og mér sldlst að framleiðendumir séu bara vel hressir með útkomuna. Gus kallar Finding Forrester systurmynd Good Will Hunting, sem ætti þá að gefa fólki vísbendingu um hvers konar mynd þetta er. Hún er mjög sérstök fyrir Sean Connery, hann fékk þama bitastæðara karakterhlutverk en oft- ast áður. Mér þykir hann skila því mjög vel og hinir leikaramir era ekk- ert síðri. Sagan er um sextán ára svertingjastrák í Bronx sem er mjög góður í körfubolta og ekkert óvenju- legt við það. En strákur hefur einnig mikla rithöfundarhæfileika og það er óvenjulegt fyrir ungan fátækan svert- ingja. Sean Connery leikur dularfull- an mann sem hjálpar honum við skriftimar og kjami myndarinnar er vinátta þeirra.“ Rok og rigning... Eftir Finding Forrester er Valdís að vonast til að geta tekið sér lang- þráð frí. „Mér er illa við langtíma- plön,“ segir hún. „Þess vegna hef ég neitað öllum tilboðum sem borist hafa meðan ég vann við FF. Reyndar er Thomas Vinterberg að fara af stað í maí með næstu mynd sína og ég mun klippa hana. Ég segi náttúrlega ekki orð um innihald hennar, en fólk getur rétt ímyndað sér hvaða væntingar era í gangi. Danir era svo skrítnir að engum má ganga of vel, þá er farið að salla viðkomandi niður. Þess vegna fékk Lars von Trier svona viðtökui' við Dancer in the Dark, honum var farið að ganga of vel.“ Valdis kannast ekki við að hafa til- einkað sér einhvern tiltekinn klippi- stíl. „Mér er sagt að ég hafi stíl en ég get ekki séð það sjálf. Ég klippi bara svona eins og ég klippi. En Danir full- yrða að mitt skaplyndi sé öðravísi en þeirra og að það komi fram i því hvemig ég klippi: rok og rigning, skafrenningur, blindbylur og sjó- gangur giska ég á ...Eg get heldur ekki sagt að ég eigi mér einhverja uppáhaldsmynd af þeim sem ég hef klippt. Mér þykir vænt um þær all- ar.“ En hvað finnst henni um íslenskar kvikmyndir eftir alla reynsluna í út- löndum? „Ég get lítið sagt um þær, ég hef séð svo fáar þeirra í seinni tíð. Því miður. Mér tókst að sjá Engla al- heimsins og 101 Reykjavík í bíói og þótti gaman. En mér finnst ég ekki opna íslenskt blað öðravísi en að lesa um bíómyndir í undirbúningi, fram- leiðslu eða sýningu, svo ég get ekki annað séð en að gróskan sé allsráð- andi. Aftur á móti er afleitt hversu illa er staðið að íslenskri kvikmyndagerð, það að alltaf skuli þurfa að leita til út- landa eftir fjármagni er til háborinnar skammai', en fúrðulegast af öllu er kannski að útlendingar vilji setja pen- inga í myndir sem þeir skilja ekki bofs í. En á meðan þeir gera það tökum við því sem að okkur er rétt og vonum að einn góðan veðurdag uppgötvi pen- ingamenn á Islandi að kvikmynda- gerð er iðnaður og útflutningsvara og miklu betri landkynning en hesturinn eða víkingar á siglingu upp Hudson- ána“ FULLKOMIÐ LEITARTORG torgis

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.