Morgunblaðið - 17.11.2000, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 17.11.2000, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ / Jt FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000 C \ BIOBLAÐIÐ Bíóin í borginni Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir ÍSLENSK GAMANMYND, SEM ER MEINFYNDIN, HÆFILEGA ALVÖRU- LAUS EN ÞÓ MEÐ BÁÐA FÆTUR í ÍSLENSKA VERULEIKANUM, ER KOM- IN FRAM. ALVEG HREINT AFBRAGÐS GÓÐ MYND. LEIKSTJÓRI: ROBERT DOUGUS. AÐALLEIKENDUR: ÞÓRHALLUR SVERRISON, JÓN GNARR, HAFDÍS HULD. NÝJAR MYNDIR MANCHESTER UNITED Regnboginn: Föstudag kl. 4-6. Laugardag/ sunnudag kl. 2 - 4 - 6. Stjörnubíó: 8 - lOþ Aukasýnlng föstudag kl. 12. NURSE BETTY Bíóhöllin: Kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20. Auka- sýning föstudag kl. 12:30 Kringlubíó: Kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:20. Auka- sýning föstudag kl. 12:30. ART OF WAR Laugarásbíó: kl. 5:30 - 8 - 10:30. Aukasýning föstudag kl. 00:30 Regnboglnn: 5:40 - 8- 10:20. HUMAN TRAFFIC Bíóborgin: Kl. 6 - 8 - 10. Aukasýning föstudag kl. 12, Um helgina kl. 2. DEN ENESTE ENE Háskólabíó: Föstudag/laugardag/mánudag kl. 6-8-10. Sunnudag kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10. DROWNING MONA Laugarásbíó: Kl. 6- 8 . Aukasýn. um helgina kl. 4. DANCER IN THE DARK ★★★★ DRAMA Dönsk/Bresk. 2000 Leikstjúri: Lars Von Trier. Aöalhlutverk: Björk Guðmundsdóttir, Peter Stormare, Catherine Deneuve. Túlkun Bjarkar í nýjustu mynd danska leikstjórans Lars Von Triers er alveg einstök og heldur uppi brot- hættum söguþræði. Háskólabíó Föstudag og mánudag kl. 5:20 - 8. Laugardag /sunnudag kl. 2 - 5:20 - 8. ÍSLENSKI DRAUMURINN ★★★★ GAMAN íslensk. 2000 Leikstjóri: Robert Douglas. Aðal- leikendur: Þðrhallur Sverrison, Jón Gnarr, Hafdis Huld. íslensk gamanmynd, sem er mein- fyndin, hæfilega alvörulaus en þó með þáöa fætur í íslenska veruleik- anum, er komin fram. Alveg hreint afbragðs góð mynd. Bíóborgin: kl- 6 - 8 - 10. BUENA VISTA SOCIAL CLUB ★★★% TÓNLIST Þýskal/Bandar/Frakkl/Kúba. 1999. Leikstjórn og handrit: Wim Wenders. Ómótstæðileg tónlist ómótstæði- legra kúbanskra tónlistarmanna, fjörgamalla að árum en þess fjör- ugri. Þeir eru mennirnir á bak við myndina, ásamt Ry Cooder. Fylgst með þeim á æfingum f Havana og á tónlistarferðalagi til Amstersdam og New York. Ómissandi. Bíóborgin kl: 6 . Aukasýning um helgina kl. 4. THE EXORCIST ★★★% HROLLUR Bandarísk. 1973. Leikstjóri: William Friedkin. Handrit: William Peter Blatty. Aðalleikendur: Jas- on Miller, Ellen Burstyn, Linda Blair, Max Von Sydow. Aukin og endurbætt og aldrei skelfi- legri eöa djöfullegri. Ein besta hroll- vekja sföari ára og sígild fyrir löngu. Bíóhöllin: Kl. 8 - 10:15. Aukasýning föstudag kl. 12:45. Kringlubíó: Kl. 8 - 10:30. Aukasýning föstudag kl. 12:30 THE CELL ★★★HROLLUR Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Larsen Singh. Handrit: Mark Protosevich. Aðalleikendur: Jenni- fer Lopez, Vince Vaughn, Vincent DOnofrio. Einstaklega áhrifarík taka og tónlist og tjöldin minnisstæö í sinni súr- realísku fegurð. Kemur inná nýjar hliðar á fjöldamorðingjaklisjusúp- unni en annaö er upp og ofan. Laugarásbíó: Kl. 10. 101 REYKJAVÍK ★★★ GAMAN íslensk. 2000. Leikstjðm og handrit: Baltasar Kormákur. Aðalleikendur: Victoria Abril, Hilmir Snær Guðnason, Hanna María Karlsdóttir, Balt- asar Kormákur. Svört kynlífskómedía úr hjarta borg- arinnar, nútímaleg og hress sem skoðar samtímann í frísklegu og fersku Ijósi raunsæis og farsa. Vel leikin, einkum af hinni kynngimögn- uöu Almodóvar-leikkonu Victoriu Abril og er yfir höfuð besta afþrey- ing. Háskólabíó: Alla daga kl. 8. KJÚKLINGAFLOTTINN - CHICKEN RUN ★★★ FJÖLSKYLDUMYND Bresk/Bandarísk 2000. Leikstjóm og handrit: Peter Lord og Nick Park. Leikraddir: Phil Dan- iels, Lynn Ferguson og Mel Gibson. Leirþrúður fara með aðalhlutverkin í fjölskylduvænni endurvinnslu Flótt- ans mikla - með Watershio Down- ívafi. ÍSLENSKT TAL: Bíóhöllin: Föstudag Kl. 4 - 6. Um helgina kl. 2-4-6. Háskólabíó: Alla daga kl.. 6. Auka- sýning um helgina kl. 2-4. ENSKT TAL Bíóhöllin: Kl. 4-6. SNATCH ★★★GAMAN Bresk. 2000. Leikstjóm og handrit: Guy Ritchie. Aðalleikendur: Jason Statham, Rade Serbedzija, Brad Pitt, Dennis Farina Kolsvört glæþakómedía í anda Tar- antinos. Lágreistir smákrimmar með fíflaleg gróðaplön og hálir glæpakóngar Lundúna, sem spila með illþýöiö Stjörnubíó: Kl. 6 - 8 - 10. Aukasýningar um helgina kl. 2-4. U 571 ★★★ SPENNA Bandarísk. 2000. Handrit og leikstjórn Jona- than Mosrow. Aðalleikendur: Matthew McCon- aughey, Bill Paxton, Harvey Keitel. Bandarískur hetjuóður um snjalla hermenn sem ræna þýskym kafþáti í seinna stríði til að komast yfir hernaðarleyndarmál. Skemmtileg og spennandi della. Bíóhöllin: Kl. 10. Aukasýning föstudag kl. 12:15. WHAT LIES BENEATH ★★★ HROLLUR Leikstjórn og handrit: Robert Zemeckis. Aðal- lerikendur Harrison Ford, Michelle Pfeiffer, Ja- mes Remar. Kunnáttusamlega gerður spennu- tryllir og nútímadraugasaga í anda Hitchcock gamla. Pfeiffer og Ford- arinn í toppformi. Hrollvekjandi af- þreying. Regnboginn: Kl. 5:30 -8- 10:30. ÁSTRÍKUR OG STEINRÍKUR M/ÍSL TALI ★★% FJÖLSK. Frönsk. 1999. Leikstjóri Claude Zidi. Handrit Gérard Lauzier. Aðalhlutverk Christian Clavier, Gerard Depardieu, Roberto Benigni. Leikin mynd um gallharða Galla í Gaulverjabæ, sem eru í miklu uppá- haldi hjá smáfólki um víða veröld. Dugar pöbbum og mömmum líka. Talsetningin ágæt. Bíóhöllin: kl. 3:40 - 5:45. Aukasýning um helgi- na kl. 1:30. Kringiubío: Um helgina kl. 1:45. Stjörnubíó:. Um helgina kl. 1:50. BEDAZZLED ★★^ GAMAN Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Harold Ramis. Handrit: Peter Cook, ofl. AðaUeikendur; Brendan Fraser, Elizabeth Hurley, Frances ÓConnor. Mynd sem kemur manni í gott skap og skilur við mann á sömu nótum, tekst þaö sem henni er ætlaö. Fras- er fer á kostum sem lúði sem lendir í sálnaveiöum Skrattans, sem er mjög frambærilegur í líkama Eliza- beth Hurley. Kringlubíó: Kl. 4-6-8. Regnboginn: Kl. 6-8- 10. Aukasýning laugar- dag/sunnudag kl. 2 - 4. BIG MOMMA’S HOUSE ★★% GAMAN Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Raja Gosnell. Handrit: Darryl Quarles. Aðalleikendur: Martin Lawrence, Nia Long, Paul Giamatti. Grínleikarinn Martin Lawrence bregður sér í gervi roskinnar og há- vaðasamrar ömmu í dálaglegu sum- argrtni fýrir alla fjölskylduna. Ágætis skemmtun og Martin fer stundum á kostum. Stjörnubíó: kl. 6. Aukasýningar um helgar kl. 2 - 4. LULU ON THE BRIDGE ★★% DRAMA Bandarísk. 1998. Leikstjórn og handrit: Paul Auster. Aðalleikendur: Harvey Keitel, Mira Sorv- ino, Willem Dafoe. Myrk og seiöandi ástarsaga úr smiðju Austers. Keitel og Sorvino leika ólíka elskendurog gera það með sóma. Háskólabíó: Kl. 10. SCARY MOVIE**% GAMANHROLLUR Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Keenan Ivory Wayans. Handrit; Shawn og Marlon Wayans. Að- alleikendur: Shawn og Marlon Wayans, Shannon Elizabeth, Carmen Electra. Fyndin og fríkuð mynd sem skýtur á hrollvekjur seinustu ára meö beitt- um og grófum humor. Regnboginn Föstudag kl 10. Um helgina kl. 2 - 8. Eftir helgi kl. 8. SPACE COWBOYS ★★% SPENNA Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Clint Weastewood. Handrit: Ken Kaufman og Howard Klausner. Að- alleikendur; Clint Eastwood, James Garmer, Tommy Lee Jones, Donald Sutherland. Kempum kvikmyndanna er skutlaö út í geiminn undir stjórn Eastwoods. Vandræðagangur á kempum í byrj- un, en síðari hluti betri en sá fýrri. Fínar tæknibrellur. Bíóhöllin; Kl. 8 - 10:15. Aukasýning föstudag kl. 12:30 Bíóborgin: kl. 8 - 10:30. TUMI TÍGUR - íslenskt tal ★★% TEIKNIMYND Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Jun Falkenstein. Handrit: A.A. Milne. Raddir: Laddi, Jóhann Sig- urðarson, Sigurður Sigurjónsson, ofl. Þokkaleg teiknimynd fýrir yngstu kynslóöina segir af ævintýrum Tuma og vinar hans.Góð talsetning. Bíóhöllin: Laugardag/sunnudag kl. 2. Kringlubíó: Laugardag/sunnudag kl.l:45. GOSSIP ★★ SPENNA Bandarísk. 2000. Leiksjóri: Steve Guggenheim. Handrit: Gregory Poirier. Aðalleikendur: James Marsden, Lena Headey, Norman Reedus. Nokkuð áhugaveröur samsæristryllir með óþörfum, óvæntum sögulok- um. Leikarar og kvikmyndageröar- menn lofa þó góðu í framtíöinni. Bíóhöllln: Alla daga kl. 8. THE KID ★★ FJÖLSK. Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Jon Turteltaub. Handrit: Audrey Wells . Aðalleikendur: Bruce Willis, . Mynd um fertugan framagosa sem hittir sjálfan sig 8 ára. Hugmyndin er stórgóö - en vantar spennu og húmor. Bíóhöllin: Kl. 3:50 - 5:55 - 8 - 10:00. Auka- sýning föstudag kl. 12:05. Um helgina kl. 1:45. Regnboglnn kl. 6 - 8 - 10. Aukasýningar um helgina kl. 2-4. Kringlubíó: Kl. 3:45 - 5:50 - 10. Aukasýning föstudag kl. 12:05. Um helgina kl. 2. NUTTY PROFESSOR II ★★ GAMAN Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Peter Segal. Hand- ritshöfundur: Steve Oedekerk og Barry W. Blau- stein. Aðalleikendur: Eddie Murphy og Janet Jackson. Murphy leikur alla Klump-fjölskyld- una með prýði en brandararnir sam- safn af prumpi og greddu. Héskólabíó: Kl. 5:45 - 8 - 10:15. Aukasýning laugardag/sunnudag kl. 3:30. Bíóhöllln: Kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:15. Auka- * sýningar föstudag kl. 12:20. Um helgina kl. 1:30. SHAFT ★★ SPENNA Bandarísk. 2000. Leikstjóri: John Singleton. Handrit: J.S og Ernest Tidyman. Aðalleikendur: Samuel L. Jackson, Vanessa Williams, Christian Bate'og Jeffrey Wright. Töffaramynd ársins er því miður óspennandi. Hún er ótrúleg, flöt, grunn. Wright og Bale eru flottir en Jackson í erfiðri stöðu. Laugarásbíó: Kl. 6-8-10- Aukasýning föstu- dag kl. 12. LOSER ★% GAMANDRAMA Bandarísk. 2000. Handrit og leikstjóm: Amy Heckerling. Aðalleikendur: Jason Biggs, Mena Suvari. Þokkalega framleidd en glórulaus » mynd um nemendur og hornrekur sem er gjörsamlega útilokað að fá samúð með. Regnboginn: Föstudag kl. 8. Laugardag/sunnu- dag kl. 4 - 10. Mánudag kl. 6. Ellen Burstyn þjáist enn af bakmeiöslum sem hún fékk meðan á tökum Særingamannsins stóö. Það gerðist í atriðinu þegar Linda Blair þeytir henni þvert yfir her- bergið sitt og hún skellur í gólf- ið. Hún var með band vafið um efri hluta líkamans og vír aftur úr bakinu ogtæknimaður skellti henni í gólfiö þegar merki var gefið. Eftir fyrstu tök- una kvartaöi hún við leikstjór- ann, William Friedkin, um aö aðfarir þessar væru of harka- legar og William sagði tækni- manninum að skella henni ekki svona harkalega í gófið en Burstyn segist hafa séð þegar leikstjórinn gaf tækni- manninum jafnharðan merki um að hafa skipunina að engu. Burstyn skali svo í góifið af engu minni hörku en áður og hefur verið bakveik síðan. ■ |^\ | g~\ I Cwinmvnii bandaríska oVipmynQ leikkonan Ellen Eftir flrnald Burstyn fer með Indriðason eítt aðaihlut- verkið í bíó- myndum kvikmyndahúsanna í Reykjavík eins og hún gerði fyrir heilum 27 árum; hún leikur móður Lindu Blair í Særingamanninum frá 1973 og gerir það firnavel. Á þeim tíma var Burstyn í hópi fremstu leikkvenna í Hollywood eftir að hafa leikið í nokkrum þýð- ingarmiklum myndum tímabilsins. Eftir langa þögn, en við höfum varla séð hana á tjaldinu svo árum skiptir, er eins og hún sé núna að snúa hægt aftur á hvíta tjaldið. Hún leikur í tveimur bíómynd- um sem frumsýndar verða í Bandaríkjunum fyrir jólin. Önnur er The Yards þar sem hún leikur á móti tveimur öðrum leikurum er voru upp á sitt besta á öndverðum áttunda áratugnum, Faye Dunaway og James Caan. Hin myndin er Requiem for að Dream og er eftir Aronovsky, þann sem gerði Pí. ÆM Bg Ellen Burstyn er fædd árið 1932 og hét Edna Rae Gillooly áður en hún fluttist til Hollywood frá Detr- oit. Hún lærði leiklist undir hand- leiðslu Lees Strasbergs í New York og lék bæði á sviði og í sjón- varpi á sjötta og öndverðum sjöunda áratugnum auk þess sem hún fór með lítil hlutverk í heldur ómerkilegum bíómyndum á sjö- unda áratugnum. Það var svo árið 1971 sem hún hreppti bitastætt hlutverk í mynd Peters Bogdanovich, Síðasta bíó- inu eða The Last Picture Show. Hún fór frábærlega með hlutverk frjálslyndrar konu í smábæ í Texas sem var að Jeggjast í eyði og var útnefnd til Óskarsins fyrir bestan leik í aukahlutverki (Cloris Leach- man hreppti Óskarinn fyrir leik sinn í sömu mynd). Burstyn var komin á fertugsaldurinn þegar hún varð stjarna í Hollywood og komst í þá eftirsóttu stöðu að kvikmynda- handrit voru skrifuð sérstaklega með hana í huga. Eitt af þeim var Særingarmað- urinn en það er ekki síst leik Burstyn að þakka að hún er þunga- vigtarmynd enn í dag - aftur var leikkonan útnefnd til Óskarsins en fékk ekki. Annað handrit var að Alice Doesn’t Live Here Anymore, en það var verkefni sem hún sjálf þróaði og seldi til Warner Bros. Myndin fjallaði um lífsbaráttu ein- stæðrar móður og loksins vann Burstyn Óskarinn fyrir bestan leik í aðalhlutverki. Aðrar af betri myndum leikkon- unnar eru The King of Marvin Gardens og Harry and Tonto þar sem hún lék dóttur Art Carneys auk þess sem hún lék í Á sama tíma að ári árið 1978 en þá hafði hún slegið í gegn í leikritinu á sviði í New York. Þegar komið var fram á níunda áratuginn fór hlutverkunum að fækka og Burstyn leitaði að bita- stæðari rullum í amerísku sjón- varpi og gerði oft gott úr þeim. Þegar hún var spurð að því nýlega «. í tímaritsviðtali hvort hún haldi að það sé erfiðara fyrir leikkonur en karlleikara að eldast í Hollywood, svarar hún: „Já. Þegar þú tekur mið af leikurum eins og Sean Connery og Paul Newman. Því hvíthærðari og hrukkóttari sem þeir verða, þeim mun myndarlegri verða þeir. Við erum ekki svo heppnar. En ég hef leikið núna í 43 ár og ég hef alltaf vitað að þú get- ur dottið inn og þú getur dottið út og það mun alltaf vera þannig.“ Hún er líka spurð að því hvort hún hafi hafnað hlutverkum í ® myndum sem síðar urðu mikilvæg- ar og hún segir að hún hafi ekki getað tekið að sér hlutverkið sem Louise Fletcher fékk í Gaukhreiðr- inu á móti Jack Nicholson. „Eigin- maður minn var veikur á þeim tíma og ég gat ekki skuldbundið mig,“ segir hún. „Það var erfítt, sérstaklega þegar fólk fór að -*• spyrja mig hvort ég hafí ekki verið í Gaukshreiðrinu? Það ruglaði okk- ur alltaf saman, Fletcher og mér.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.