Alþýðublaðið - 17.01.1921, Page 3
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
finnmlsilar og hælar beztir og iðýrastir hji ^vannbergsbræðrun.
Kosningaskrifstofa
D-ligtans (Pórðanna) er í Bárunni. Opin alla
daga frá 101/* f. h. til 9 e. h. Kjörskrá liggur frammi.
Verkamannafélap „Hlíf'
1 Hafnarfirði heldur aðalfund miðvikudaginn 19.
þ. m. í Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði kl. 8 síðd.
Um daginn 09 vegiso.
Hvaða flokbar? Bjarni frá Vogi
upplýsti á Alþýðuflokksfundinum,
að .flokkurinn" sem D(odda)lista-
mennirnir tilheyrðu, væri Sjálf-
stæðisflokkurmn, en ekki Tíma-
flokkurinn. Hvað segir ritstjóri
Tímans um það?
Á sama fundi sagði Magnús
(sem er efstur á íslandsbankalist-
anum) að það stæði Jlohkur á bak
við sig. Hann var spurður að því
hvaða flokkur það væri, og svar-
aði því að lokum, eftir að spurn
ingin hafði verið margendurtekin,
að það væri ekki búið að gefa
flokknum nafn.
Það virðist nú ekki ástæða til
þess að þeir séu í vandræðum með
nafnið. Flestum mun flnnast, að
sjálfvalið nafn á þennan flokk sem
þeir eru að reyna að stofna sé:
íslandsbankaflokkurinn.
Fyrirbrigði. 3. síðan afMorg-
unblaðinu í gær er kölluð ,aug-
lýsing" frá D listanum, en er auð-
vitað hreinasta kosningagrein.
„Konur og menn sem fylgja list-
anum, fylgja hónum vegna þeirra
manna sem í boði eru." Þessi
makalausa játning stendur í „aug-
lýsingunni". Vegna mannanna,
ekki vegna málejnanna, er listinn
studdur af „fleiri fylgismönnum en
margir ætla"ll Finst mönnum þá
ekki ennþá nóg kómið af þeim
skrípaleik, sem leikinn hefír verið
hér á landi um langt skeið, að
líta aðeins á mennina, en ekki á
máleínin. i.
Hæztaréttardömar er fallinn í
Leómálinu, og var dómur Elíasar
hækkaður um hálft ár, dómur Geirs
lækkaður um hálft ár og dómur
Hallgríms stóð óhaggaður.
Bak tíö tjöldin. Það er sagt
um óþæg börn, að þau feli sig í
pilsum móður sinnar, þegar þau
skammast sín, eða vita upp á sig
einhverja skömm. Peningalistinn
(A listinn) hélt í gær annan fund
sinn fyrir luktum dyrum, og var
( þetta sina boðið ýmsum konum
hér í bæ. Kirlmannleg getur hún
varla talist, þessi aðferð peninga-
listans, og eigi ólfklegt, að ástæða
sé til að fara í felur með „skoð-
aniruar". Það mun ekki svo hreint
mjölið í pokahorni þeirra, að það
þoli gagnrýningu andstæðinganna.
Ekki heflr heyrst hvern árangur
bíósýningin hefir haft, en senni-
Iega hafa margar konurnar skemt
sér sæmilega, en meira gaman
hefði þó verið að ærlegri Chap-
linmynd. K.
Nesnám. Þórður Sveinsson af
Kleppi hafði í gær haldið eins.
konar þingmálafund suður á Grims-
staðaholti. Kom hann þangað suð
ureftir og safnaði fólki saman í
Hólabrekku. Allmargir komu, en
ekki hefir heyrst um árangur þessa
nýtízku „spekúlantstúrs" D. I. (sbr.
U. 2).
Frásögn frá Alþýðuflokksfund-
inum f fyrrakvöld verður að bfða
næsta blaðs.
Af tTeimur gagnstæðnm á-
stæðnm. Bjarni frá Vogi segist
fylgja Þórði af Kleppi vegna þess,
að hann hafl fallist á innilokunar-
stefnu sína, en skrifstofustjóri sama
Þórðar af Kleppi er að sögn fylgj-
andi honum vegna þess, að hann
er opingáttarmaður! Hvorum á
að trúa?
€rlenð simskeyil
Khöfn, 15. jan.
Verklýðssamband nppleyst.
Sfmað er frá Parfs, að yfir-
rétturinn hafi leyst upp franska
verklýðssambandið. [Syndicat Gen-
érai du Travailj.
Of miklar kolabirgðir.
Sfmað er frá Londou, að kola-
framleiðslan sé altof mikil, og
útflutningssamkepni gefin frjáls.
Menn búast við verðfalli.
Konstantin viðurkendnr.
Rómafregn hermir, að Ítalíu-
konungur hafi veitt móttöku
sendiherra Grikklands, og með
því viðurkent Konstantin konung.
Ný fréttastofa í Berlín.
Berlinske Tidende hefir ásamt
norskum, sænskum og finskum
blöðum, stofnað nýja fréttastofu
við Unter den Linden í Berlin,
sem verður samkomustaður Skan-
dinavfa.
Stór stofa
(innlagt gas og vatn) með sér-
inngangi, er til Ieigu nú þegar
handa tveimur reglusömum piltum.
Uppl. f síma -(22.