Morgunblaðið - 20.12.2000, Page 6

Morgunblaðið - 20.12.2000, Page 6
6 E MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR Skáldskaparheimur Nínu Bjarkar BÆKUR Ljóðasafn BLÓMIÐ SEM ÞÚ GAFST MÉR Nína Björk Arnadóttir, JPV-forlag 2000,195 bls NÍU LJÓÐABÆKUR, tvær skáldsögur og fjölda leikrita hafði Nína Björk Arnadóttir sent frá sér þegar hún lést í apríl síðastliðnum. Ljóðasafnið sem hér er til umfjöll- unar hefur að geyma úrval úr ljóða- bókum hennar, auk nokkurra áður óbirtra ljóða og tveggja stuttra texta í frásagnarformi. Það er Jón Proppé sem hefur umsjón með út- gáfunni, velur ljóðin og skrifar stuttan eftirmála. Skáldskaparferill Nínu Bjarkar spannar 35 ár. A þeim tíma festi hún sig í sessi sem eitt athyglisverðasta skáld sinnar kynslóðar. I ljóðum hennar hljómar sterk, persónuleg rödd og yrkisefnin eru oft á tíðum afar tilfinningaleg og huglæg og endurtekin stef hljóma í ljóðunum og koma glögglega fram í því úrvali sem hér um ræðir. Jón Proppé hef- ur leitast við „að velja ljóðin með það í huga að sýna fjölbreytnina í skáldskap Nínu en leggja jafnframt áherslu á þau meginþemu sem skýt- ur upp aftur og aftur í verkum henn- ar“ (bls. 195). Mér virðist valið hafa tekist vel í flesta staði, safnið gefur góða heildannynd af Ijóðlist Nínu Bjarkar og hlýtur að vera ljóðaunn- endum kærkomið - ekki síst þeim sem ekki þekkja skáldskap hennar að ráði nú þegar. Ef reyna ætti að gera grein fyrir þeim þemum eða endurteknu stefj- um sem hljóma í ljóðum Nínu Bjarkar koma íyrst upp í hugann ei- lífðaryrkisefnin ástin, trúin og dauðinn. Ástaljóð Nínu eru mörg og tilfínningaþrungin og ófá þeirra hafa erótískara ívaf en sjá má í Ijóð- um flestra samtímaskálda hennar. Nína Björk var kaþólsk og trúin skipar veglegan sess í ljóðagerð hennar. Ein ljóðabóka hennar Fyrir börn og fullorðna (1975) er reyndar í formi trúarlegs ljóðabálks, en rit- stjóri hefur valið að sleppa þeim bálki í þessu safni. Hér er þó að finna nokkur ljóð trúarlegs eðlis, til að mynda „Bæn“ sem ort er til Maríu guðs- móður. Trúarljóðin tengast mörg hver dauðaþemanu og einn- ig því þema sem kannski er einna fyrir- ferðarmest í ljóðum Nínu Bjarkar þegar á heildina er litið, en það er óttinn sem oft teng- ist sálarlegri vanlíðan og örvæntingu. Nína Björk yrkir í fyrstu persónu og í orðastað annarra um óttann sem klýfur vitundina og herjar á líkamann í formi fugls sem „tekur manneskjuna í klærnar / og flýgur með hana langt / svo langt / frá gleðinni / en hann er líka lítill / þá flýgur hann inn í brjóstin / og veinar / og veinar þar“ (bls. 95). I ljóðabókinni Svartur hestur í myrkrinu (1982) yrkir Nína Björk um konur sem dvelja á sjúkrahúsum og berjast við hina innri ógn og ótt- ann í brjóstinu og Jón Proppé segir í eftirmála sínum: „Engu íslensku skáldi hefur tekist jafn vel og Nínu að túlka þennan veruleika, hispurs- laust og án fordóma, en ljóðin eru erfið lesning, spegill sem flestir veigra sér við að líta í“ (bls. 195). Mikið er til í þessari fullyrðingu Jóns, en kannski má benda á Engla alheimsins eftir Einar Má Guð- mundsson sem dæmi um skáldverk sem nær ekki síður að túlka þennan veruleika. Af öðru tagi eru ljóð Nínu Bjark- ar sem sækja efnivið til æskuslóða hennar í Húnavatnssýslu. Hér er ort af mikilli hlýju og söknuði um saklausa æsku og verndandi um- hverfi sveitarinnar sem oft er stillt upp sem andstæðu við líf hinna full- orðnu og þá sérstaklega í borginni. Þótt hér sé um að ræða alþekkt minni úr íslenskum bókmenntum er það ferskt í meðförum Nínu Bjarkar og verð- ur hvergi klisjukennt. Nína Björk yrkir einnig mörg ljóð til nafngreindra vina sinna. Hér er oft um að ræða skemmtilegar persónulýsingar í knöppu formi, en stundum eru ljóðin háð því að lesandi þekki þann sem ort er um til þess að þau njóti sín til fidls. í síðasta hluta bók- arinnar sem nefnist „Söngurinn í Núpnum“ er að finna áður óbirt ljóð og tvo texta í frá- sagnarformi. í þessum Ijóðum hljóma stef sem eru kunnugleg úr eldri bókum Nínu Bjarkar í bland við nýja reynslu, ný sár og nýjar sögur. Af frásagnartextunum tveimur ber sá síðari af. Þetta er stutt og þankvís frásögn sem ber titilinn „Ég og Kristín Bjarnadótt- ir“ og er lýsingin á skáldkonunum tveimur, sem eru utanvið sig og villugjarnar alveg kostuleg í ein- faldleika sínum og húmor. Hin sag- an, „Alda“ er frekar rýr í roðinu og hefði að mínu mati mátt sleppa henni. Það er fengur að þessu ljóðasafni Nínu Bjarkar, ekki síst vegna þess að fyrri ljóðabækur hennar eru illfá- anlegar. Safnið gefur góða heildar- mynd af skáldskaparheimi Nínu og er henni verðugur minnisvarði. Kápa bókarinnar er haganlega hönnuð með fallegri mynd Alfreðs Flóka af skáldkonunni á forsíðu og afar góðri ljósmynd af henni á bak- síðu. Soffía Auður Birgisdóttir Nína Björk Árnadóttir Islandsferð 1809 BÆKUR F e r ð a b ó k FERÐ UM ÍSLAND 1809 eftir William Jackson Hooker.+ Arngrímur Thorlacius íslenskaði og annaðist útgáfuna. +Fóst- urmold, Reykjavík 2000. lv +260 bls., myndir. MIÐVIKUDAGINN 21. júní 1809 bar skip að landi í Reykjavík og reyndist vera enskt kaupskip, Margaret and Anne. Skipskoma þessi hefur orðið fræg í sögunni vegna þess að með skipinu kom sá frægi maður Jörgen Jörgensen, öðru nafni Jörundur hundadaga- kóngur, sem gerði byltingu á Is- landi þá um sumarið, og lýsti því yf- ir að allur danskur myndugleiki væri upphafinn í landinu. Er af þeim atburðum öllum mikil saga, sem ekki verður tíunduð hér. Meðal farþega á Margaret and Anne var ungur enskur vísindamað- ur, William Jackson Hooker, sem síðar átti eftir að verða einn þekkt- asti grasafræðingur í Bretlandi, og reyndar viðar. Hann notaði tímann sem skipið dvaldi hér við land til þess að ferðast um landið og fór um mikinn hluta Suðvesturlands, um Reykjanes, upp í Borgarfjörð og austur í sveitii-. Á ferðum sínum hér lagði Hooker sig einkum eftir því að kynna sér náttúru landsins, einkum gróður- far, og safnaði um það miklum upp- lýsingum. Svo óheppilega vildi hins vegar til, að er skip hans var komið skammt suður fyrir Reykjanes á heimleið varð eldur laus um borð og fórust þar dagbækur Hookers og flest önnur gögn. Við ritun ferðabókarinnar, sem nú er loks komin út á íslensku, varð hann því fyrst og fremst að styðjast við minni sitt auk gagna, sem hann fékk lánuð, m.a. dagbækur Sir Jos- eph Banks, sem hér var á ferð rúm- lega hálfum fjórða áratug á undan Hooker. Ýmsir þeirra erlendu gesta sem sóttu ísland heim á ofanverðri 18. öld og fyrri hluta 19. aldar rituðu ferðabækur eftir íslandsförina og lýsa þar landi og þjóð, eins og hún kom þeim fyrir sjónir. Margar þess- ara bóka - líkast til flestar - hafa verið þýddar á íslensku og gefnar út á síðustu áratugum. Allar hafa þær að geyma margvíslegan fróðleik og þar er þessi bók Hookers engin undantekning. Höfundur hennar var greinilega býsna glöggskyggn, en eins og vænta mátti hafði hann mestan áhuga á náttúru- og gróð- urfari og í þeim efnum hygg ég að mestur fengur sé að lýsingum hans. Frásagnir hans af fólkinu sem hann hitti og kynntist hér á landi eru keimlíkar því sem gefur að lesa í öðrum ferðabókum og kemur hér fátt nýtt fram í þeim efnum. Allt um það er bókin fróðleg aflestrar og áhugamönnum um grasafræði mun væntanlega þykja hún forvitnileg. Aldrei hef ég augum litið enska útgáfu þessarar bókar og kann því ekki að dæma um þýðingu Arn- gríms Thorlacius sem slíka. Hann virðist leggja áherslu á að halda í andblæ frumtextans og fyrir þá sök verður íslenski textinn eilítið stirð- legur á köflum. Að öðru leyti er fátt út á texta bókarinnar að setja, þótt nokkrir hnökrar séu að vísu á mál- fari á stöku stað. Sú regla þýðanda að viðhalda afbökuðum rithætti Hookers á íslenskum heitum þykir mér hins vegar sérkennileg, að ekki sé meira sagt. Dr. Sturla Friðriksson ritar fróð- legan inngang að bókinni og í bók- arlok er viðauki sem ber yfirskrift- ina „Skýrsla um íslensku bylt- inguna 1809“ og segir þar frá valdaráni Jörundar og endalokum þess. Er sú lesning býsna skemmti- leg, enda samtímalýsing og gott var alla tíð með þeim Jörundi og Hook- er. Jón Þ. Þór Ákvörðunar- staður myrkrið BÆKUB Skáldsaga BLÝNÓTT eftir Hans Henny Jahnn. Geir Sig- urðsson og Björn Þorsteinsson þýddu. Forlagið árið 2000 - 137 blaðsíður með eftirmála. SKÁLDSAGAN Blýnótt eftir Hans Henny Jahnn á sér afar eft- irtektarvert upphaf, því án nokk- urs fyrirvara er aðalpersónan Matthieu ávörpuð með eftirfarandi orðum: „Ég yfirgef þig núna. Þú verður að halda áfram einn þíns liðs. Þessa borg, sem þú þekkir ekki, átt þú að kanna.“ Hin yf- irskipaða rödd skilur við persónu sína í myrku borgarlandslagi og um leið er lesandanum svipt inn í sérkennilega atburðarás. Það er svört nótt og Matthieu er staddur á krossgötum við mikið breið- stræti. Þráðbeinir og gljáandi sporvagnsteinar koma langt að og hverfa út í buskann. Gulleitt Ijós frá hangandi luktum lýsir upp myndina sem við blasir. Hann gengur hægt af stað og furðar sig á því að mæta engri manneskju, engu ökutæki og heyra ekkert hljóð. Húsin þegja og loftið er kyrrt. Svo sér hann ljós í glugga. Hann finnur fyrir heimilislegri og notalegri tilfinningu og það vaknar hjá honum þrá, löngun í félags- skap. Eftir smá hik tekur hann um hurðarhúninn til að komast inn. Á sama andartaki myrkvast glugginn og ljósið á luktunum slokknar. Hans Henny Jahnn (1894-1959) er talinn til sérstæðari persónu- leika sem fram hafa komið í þýsk- um bókmenntum á 20. öld. Hann var afar trúaður í æsku og bar á sér guðsorð hvert sem hann fór en upp úr 1920 magnaðist andúð hans á kenningum kirkjunnar. Hann stofnaði dulhyggjusöfnuð, með rætur í austrænum hefðum sem stefndi að endurreisn vestrænnar menningar og frelsun tilfinning- anna. Jahnn var afkastamikið skáld en naut aldrei skilnings né samúðar samtíðar sinnar. Kyn- hneigðir hans voru aðrar en „normið“ sagði til um, ýmsar hneykslissögur um ævi hans kom- ust á kreik og á þeim grundvelli hafa verk hans að mestu verið skil- in og metin. Verðlaunaleikriti hans, Pastor Ephraim Magnus, frá árinu 1920, sem Bertolt Brecht tók þátt í að sviðsetja, var svo illa tek- ið að fljótlega var hætt að sýna það og leikhúsinu lokað af yfir- völdum. Gagnrýnendur fullyrtu að um væri að ræða „sadó-masókist- ískt verk hugsuðar sem héldi sig vera snilling" og að í því byggi „villtur, ógurlegur kraftur vitfirr- ings“. Blýnótt kom fyrst út á þýsku ár- ið 1956. Atburðarás sögunnar er fyrst og fremst knúin áfram af stefnulausri leit sundraðrar per- sónu að óljósu og ómeðvituðu tak- marki sínu. Matthieu er sendur þeirra erinda að kanna hina myrku borg sem hann ekki þekkir og hann fetar sig áfram skref fyrir skref uns það rennur upp fyrir honum ljós. Jafnframt því má líta svo á að leið hans liggi inn á bann- svæði mannlegra tilfinninga þar sem kynlífshvötin og dauðahvötin persónugerast í hórunni Elvíru og unglingnum holsærða Anders. Matthieu er leiksoppur örlaga sinna því þrátt fyrir að hann finni til er honum aldrei ljóst að hverju hann leitar fyrr en um seinan. I einu af samtölum hans við Elvíru er að finna þetta meginstef sög- unnar: „í þessari borg finnið þér tæplega þann veruleika sem yður er svo tamur; - kannski í mynd kynlegrar, illa útleikinnar undan- tekningar - eða alls ekki. Þér verðið blekktir um hríð; síðan verður yður greitt höggið sem lamar yður. Það er þetta andar- tak.“ I fróðlegum eftirmála íslensku útgáfunnar segir annar þýðandi sögunnar, Geir Sigurðsson, að Blý- nótt sé langstysta skáldsaga Jahnns en ekki endilega sú að- gengilegasta. Aðalástæðan fyrir því fullyrðir hann að liggi í stíl sögunnar „sem almennt einkennist af knöppum og oft illskiljanlegum setningum, gerir lesandanum ekki auðvelt fyrir og í Blýnótt nær hann hugsanlega hámarki - eða háþróun.“ Geir telur hins vegar að sagan sé vel til þess fallin að kynna verk höfundarins fyrir ís- lenskum lesendum. Undir það get- ur gagnrýnandi tekið af heilum hug því auk þess að vera stutt og hnitmiðuð frásögn vekur sagan með lesandanum sterk viðbrögð undrunar og hrifningar, kveikir með honum vægan hroll og leiðir hann inn í framandlegan heim dul- inna afla, hvata og þrár. Margar leiðir liggja að túlkun þessarar sögu og þótt athyglinni sé hér einkum beint að hvatalífí mannsins er ekki þar með sagt að aðrar leið- ir séu síðri. Áhrif expressjónisma og táknsæis eru ríkjandi í per- sónusköpun og umhverfi sögunnar og í eftirmála sínum bendir Geir meðal annars á þá túlkun sem snýr að tilvistarkenndri sýn á manneskjuna í guðlausum og merkingarlausum heimi. Þegar á heildina er litið er þýð- ing verksins vönduð. Gagnrýnandi veltir þó vöngum yfir útfærslu orðalags og nákvæmni á nokkrum stöðum í textanum sem þó kann að eiga sér skýringar í flóknum stíl höfundar. íslensk útgáfa þessarar bókar á sérstakt hrós skilið. Fyrir utan það að hér er um alvöru bók- menntaverk að ræða er umbrot verksins afar smekklegt og hönn- un kápunnar listilega af hendi leyst. Jón Özur Snorrason Nýjar bækur • ÚT er komin bókin Flateyjar- dalsheiði. Höfundur handrits er Páll G. Jónsson bóndi og land- póstur frá Garði í Fnjóskadal. Handritið skrifaði Páll 1944, en hann lést 1948. Eins og nafn bókarinnar gefur til kynna fjallar efni hennar um Flateyjardalsheiði sem liggur í framhaldi af Fnjóskadal og norður til sjávar gegnt Flatey á Skjálf- anda. í bókinni eru mannlífslýsingar og frásagnir af fólki er síðast bjó á Heiðinni og lýsing á landgæðum og landslagi. Þá eru nákvæmar frásagnir af göngum og réttum og mat á beitarþoli þessa grósku- mikla afréttarlands. Loks er í bókinni örnefnaskrá af svæðinu auk örnefnaskráa nokk- urra bæja er liggja að Heiðinni. Aftast er mannanafnaskrá. I umsögn dr. Valgarðs Egils- sonar um höfundinn segir m.a. „Það fór vel á svo fagurri heiði að þar færi um hinn næmi náttúru- lýriker sem Páll í Garði var. Öll er frásögn Páls með þeim einkennum sem honum voru eðlileg, næmi gagnvart landi, sögu, dýrum, virð- ing fyrir fólki, kurteisi hins menntaða Möðruvellings. Rit þetta má verða kennsluefni komandi áratugi í því hve vel má tala um samferðamenn. í ritinu birtist lífs- viðhorf á fagurfræðilegan streng." í bókinni sem er 180 bls. eru á milli 80 og 90 litmyndir og yíir 20 svarthvítar myndir. Utgefandi er Páll G. Björnsson, Hellu, Rangár- völlum. Ljósmynd á bókarkápu: Ai-nar Þór Guðmundsson. Prent- un: Svartlist ehf. á Hellu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.