Tíminn - 21.11.1965, Qupperneq 12
266. fW. — Sunnudagur 21. nóvember 1965 — 49. árg.
FJOLMENHUR STOFNFUND-
UR FRAMSÓKNARFÉLAGS
Miðvikmlaginn 17. nóv. sl. var
haldinn stofnfundur Framsóknar-
„HLUSTAD Á KVÚLDFRÉTTIRNAR"
GB-Reykjavík, laugardag.
Á mánudag kl. sex síðdegis verð
ur opnuð í Ameríska bókasafninu
við Hagatorg málverkasýningin
„Myndilist á stríðstimum,“ sem
sagt var frá í frétt hér í blaðinu
fyrir nokkru að væri væntanleg.
Allar myndirnar á þessari sýn-
Rangárvallasýsla
Aðalfundur Framsóknarfélags
Rangæinga verður haldinn á Hvols
velli í dag, sunnudag, klukkan
9 síðdegis. Dagskrá: Venjuleg að-
alfundarstörf og kjör fulltrúa á
kjördæmisþing.
OLAFUR KVARAN
LÁTINN
Ólafur Kvaran ritsímastjóri lézt
í Reykjavík í gær. Ólafur var.fædd-
ur á Breiðabólstað á Skógarströnd
5. marz 1897. Foreldrar hans voru
séra Jósef Hjörleifsson og kona
hans Lilja Meta Ólafsdóttir. Ólaf-
ur var alinn upp hjá Valgerði Ól-
afsdóttur móðursystur sinni í
Reykjavík, og manni hennar Karli
Nikulássyni. Hann tók gagnfræða-
próf á Akureyri árið 1914, og
lagði síðan stund á símritun þar
í bæ og varð símritari á Seyðis-
firði 1915 og stöðvarstjóri ritsíma-
stöðvarinnar á Borðeyri 1923. Rit-
símastjóri í Reykjavík varð hann
árið 1928 og gegndi því starfi til
dauðadags. Ólafur var kvæntur
Elísabetu Benediktsdóttur frá
Seyðisfirði, en hún lézt árið 1958.
Varð þeim þriggja barna auðið,
Jóns Kvaran símritara á Brú,
Karls Kvaran listmálara og Elísa-
betu Kvaran.
ingu urðu til á árum síðari heims-
styrjaldarinnar. Margar eru úr
listasafni vikublaðsins Life, sem
birti, mörg þessara verka litprent-
uð á sínum tíma. Aðrar myndir
j á þessari sýningu eru eftir amer-
! íska eða þýzka listamenn, og eru
I fyrirmyndir frá ýmsum löndum og
! heimsálfum. Myndirnar eru nærri
jfjörutíu, eftir 25 málara, og er
! ókunnugt um nafn eins þeirra.
Á hinn bóginn hafa sumir þess-
FUF, Vestm.eyjiim
Aðalfundur Félags ungra Fram
sóknarmanna í Vestmannaeyjum
verður haldinn að Strandvegi 42
uppi, klukkan 14 í dag, sunnu 21.
nóvember. 1965. Dagskrá: Venju-
leg aðalfundarstörf
Stjórmn
ara hermanna er byrjuðu að mála
í tómstundum sínum á þessum ár-
um, haldið áfram með góðum ár-
angri, fáeinir orðið frægir málar-
ar, og er þar helzt að nefna Jam-
es Brooks, sem hefur breytt all-
mikið um stíl frá þeirri mynd, er
þarna er á sýningunni, því að
hann er kominn í fremstu röð
abstraktmálara í Bandaríkjunum
og myndir eftir haiin í eigu lista-
safna um land allt. Eftir málarann
Floyd Davis eru þrjú málverk á
þessari sýningu, og þeirra á meðal
eitt er nefnist „Hlustað á BBC-
fréttir kl. 9“ og hér birtist myn
af.
Sýningin verður opnuð almenn
ingi á mánudag kl. 6 e.h. og þá
opin til kl. 9 En síðan verður hún
opin daglega kl. 1—9 síðdegis,
nema á laugardögum og sunnu-
dögum kl. 1—7 síðdegis.
INNBROTAALDA A AKUREYRI
KJ-Reykjavík, laugardag.
Nokkuð hefur borið á innbrot-
um og þjófnuðum á Akureyri að
undanförnu, og hefur komizt upp
um sex pilta á aldrinum 14
—16 ára sem valdir voru að þess-
um atburðum.
Var brotizt inn í Gosdrykkja-
verksmiðjuna Flóru og stolið það-
an 300 krónum úr peningakassa,
sælgæti var stolið úr útibúi Kaup-
félags Verkamanna við Helga-
margrastræti, og tóbaksvörum var
stolið úr Slippstöðinni. Þar var
einnig brotizt inn í þrjá báta í
Akureyrarhöfn, og nokkrar
skemmdir unnar á þeim er leitað
var eftir verðmætum. Stöðumæl-
ar urðu einnig fyrir barðinu á
þessum sex piltum, en þeir voru
ýmist tveir eða fleiri saman þeg-
ar þeir frömdu þessa óknytti.
Ellefu ára drengur hefur orðið
uppvís að því á Akureyri að stela
11 þúsund krónum í peningum úr
Framsóknarkonur
Félag Framsóknarkvenna held
ur fund í Tjarnargötu 26 miðviku
daginn 24. þ.m. kl. 8.30. Alþingis
mennirnir Einar Ágústsson og
Þórarinn Þórarinsson flytja ræð-
ur. Sigríður Thorlacius les úr
bók sinnj um Maríu Markan, söng
konu.
húsi nokkru á Akureyri, og auk
þess ávísanahefti. Seldi hann þrjár
ávísanir úr heftinu, með litlum
upphæðum.
Öll þessi mál eru i rannsókn
hjá Akureyrarlögreglunni, og má
vera að fleira komi í Ijós við frek-
ari yfirheyrslur.
félags Garða- og Bessastaðahrepps,
að samkomuliúsinu á Garðaholti.
Arnaldur Þór erindrcki kjördæm-
issambandsins setti fundinn og
Iýsti tiidrögum að stofnun félags-
ins.
Fundarstjóri var kosinn Björn
Konráðsson Vífilsstöðum og fund-
arritari Ármann Pétursson. Síðan
var gengið til dagskrár og lagt
fram frumvarp að lögum fyrir fé-
lagið. Frumvarpið var síðan bor-
ið undir atkvæði og samþykkt
samhljóða. Þá var gengið til kosp-
ingá. Formaður var kjörinn Ólaf-
ur Vilhjálmsson, Ármann Péturs-
son gjaldkeri og Gunnsteinn Karls'
son gjaldkeri, meðstjórnendur
þeir Sigurlinni Sigurlinnason og
Björn Jónsson. Varamenn: Þórar-
inn Sigurðsson, Sveinn Ellertsson
og Guðlaugur Eyjólfsson, endur-
Reyk ja n esk j.d æmi
skoðendur Björn Konráðsson og
Helgi Valdimarsson.
Ólafur Vilhjálmsson, hinn ný-
kjörni formaður, tók þá til máls,
þakkaði það traust, sem sér væri
sýnt og hét á félagsmenn að duga
vel og standa saman og efla hið
nýja félag.
Á stofnfundinum gerðust rösk-
lega fimmtíu manns félagar, en
þar, sem vitað var um marga sem
ekki gátu komið á stofnfundinn
var ákveðið að gefa þeim kost á
að gerast stofnfélagar eigi að síð-
ur og geta þeir, sem þess óska,
snúið sér til einhvers úr stjórn
eða varastjóm.
Þá flutti Jón Skaftason alþm.
ávarp og bauð hið nýja félag vel-
komið í raðir Framsóknarmanna,
og árnaði stjórn og félagsmönn-
um öllum heilla. Þá hófust almenn
ar stjórnmálaumræður, sérstaklega
var mönnum ofarlega í huga hið
• amnrV a olaðsíðu 22
Kjördæmisþing
Framsóknar-
manna í Reykja-
neskjördæmi
verður haldið að
Stapa í Njarðvik
um í dag, sunnu-
Eysteinn. dag kl. 9,30 f. h.
Á þinginu mætir formaðui
framsóknarfloksins Eysteinn Jóns
son og ræðir stjórnmálaviðhorfið.
Kristniboðsvika
FB-Reykjavík, laugardag.
Kristniboðssambandið mun efna
til kristniboðsviku til kynningar
á starfinu í Konsó. Hefst kristni-
bóðsvikan á morgun, sunnudag,
og verða samkomurnar á húsi
KFIJM og K við Amtmannsstíg.
Aðalræðumaður vikunnar verða
P. A. Bredvei kristniboði frá Nor-
Framhald a bls. 22.
Mótinu lýkur í dag
FB-Reykjavík, laugardag.
Á fimmtudaginn hófst hér í
Reykjavík mót Votta Jehóva. Nefn
ist mótið Orð sannleikans, og
hafa mót sams konar verið haldin
síða um heim, og hafa hundruð
þúsunda Votta Jehóva sótt þau.
Mótinu, sem hér er haldið, lýk-
ur á morgun sunnudag, með op-
inberum fyrirlestri, sem Lauritz
Framhald á bls- 22.
Rithöfund-
urinn á 20
ára fresti
GB-Reykjavík, laugardag.
Gamanleikurinn Enda-
sprettur eftir Peter Ustinov
verður frumsýndur í Þjóð-
Ieikhúsinu n. k. föstudag
undir stjórn Benedikts
Árnasonar, en aðalhlutverk-
ið leikur Þorsteinn Ö.
Stephensen.
Hann fer með hlutverk
rithöfundarins fræga, sem
um áttrætt horfir um öxl
og rifjast þá upp sitt af
hverju frá liðnum árum.
Þrír leikarar aðrir koma
fram í hlutverki skáldsins á
ýmsum skeiðum ævinnar, og
hér birtist mynd af þeim
öllum, þ. e. skáldið á tuttugu
ára fresti, talið frá vinstri
Tvítugur (Gísli Alfreðsson)
fertugur (Róbert Arnfinns
son), sextugur (Rúrik Har
aldsson) og áttræður (Þor-
steinn Ö. Stephensen). Kven
fólk kemur allmikið við
sögu í ævi rithöfundarins,
og kvenhlutverkin leika
Herdís Þorvaldsdóttir, Guð-
björg Þorbjarnardóttir,
Anna Herskind og Bryndís