Alþýðublaðið - 14.03.1959, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 14.03.1959, Blaðsíða 3
 sfjérafélaptts VERKSTJÓRAFÉLAG Reykja- víkur hélt aðalfund sinn þann 3. marz s. 1. í skýrslu stjórnar- innar segir að um tuttugu verk- stjórar hafi gengið í félagið á árinu, og að ýmsum félagsmál- um hafi verið komið í betra horf Skrifstofa félagsins hefur verið höfð opin fyrir félagsmenn á hverju mánudagskvöldi og verð ur ])að framvegis. Aðalfundurinn var með sér- stökum hátíðarbrag í tilefni þess að félagið varð fjörutíu ára gam alt þennan dag, en þess hafði verið minnst með hófi á Hótel Borg, laugardaginn 28. febrúar. í stjórn Verkstjórafélagsins fyrir næsta ár voru kosnir Svein björn Hannesson, form., Adolf Petersen, ritari. Guðlaugur Stef ánsson, gjaldk., Guðjón V. Þor- steinsson, varaform., og Gunnar Sigurjónssono, varagjaldkeri. Macmillan og Adenauer lysa yfir ,algjörri samstöðu" um afstöðu til Berlínar- og Þýzkalandsmála Ósamkomulag um takmörkun fierja Bonn, 13. marz. (Reuter). MACMILLAN, forsætisráð- herar Breta, lauk heimsókn sinni til Bonn í dag í „algjörri samstöðu“ með Adenauer, kanzl ara, um afstöðu vesturveldanna til Berlínarmálsins og samein- ingar Þýzkalands. Macmillan flaug heim til London eftir að gefin hafði verið út tilkynning um, að við umræðurnar hefði ekki komið fram „neinn skoð- anamunur" milli landanna við- víkjandi væntanlegum samninga viðræðum við Sovétríkin. Þrátt fyrir tilkynninguna, — sögðu diplómatar, er vel fylgjast með, að ósamkomulag virtist vera undir niðri að því er varð- ar hugmynd Breta um að tak- marka heri og vopn í Evrópu, eins og hún kom fram í tilkynn- laráttan stendur á Eisenfvower f orseti leggur f ram f rum- varp sitt um efnahagsaöstoö (NTB-Reuter). EFNAHAGSAÐSTOÐ Banda- ríkjanna við útlönd heufr feng- ið ómetanlega þýðingu fyrir ut- ríkjanna við útlönd hefur feng- sagði Eisenhower, forseti, er hann í dag lagði fyrir þingið frumvarp að aðstoð fyrir 1959— 1960, er gerir ráð fyrir fjórum milljörðum dollara í útgjöld. — Lagði forsetinn áherzlu á, að hinn frjálsi heimur stæði frammi fyrir voldugum, komm- únistiskum her og væri barizt um einn milljarð manna í lítt þróuðu löndunum. „Ef komm- únistar vinna þessa baráttu, mun frelsið og lýðræðið tapast, án þess að nokkru skoti sé hleypt af“, sagði Eisenhower. Af þessum tæplega fjórum milljörðum dollara hefur for- setinn stungið upp á, að 8,25 milljarðar fari til að styrkja út- gjöld til hermála í and-kommún istískum löndum, er ekki hafa efni til að standa ein undir nauð synlegum útgjöldum til þeirra. En þar fyrir utan á aðstoðin við útlönd að fara til uppbygging- ar á atvinnulífinu og til skóla- og heil’brigðismála í hinum ýmsu löndum. Málfundur FUJ MÁLFUNDUR Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík verður n. k. mánudagskvöld kl. 8,30 e. h. í Ingólfskaffi, uppi, inn- gangur frá Ingólfsstræti. Fundarefni: VARNAR- MÁLIN. Framsögumáður: Karl Þorkelsson. FUJ-félagar eru hvattir til að fjölmenna stundvís- lega. ingunni um viðræður Macmill- ans í Moskvu. F.yrr í þessari viku bentu fréttir frá París til þess, að hug- myndir Macmillans um takmörk un hefðu ekki hlotið stuðning franskra ráðamanna við viðræð urnar þar fyrr í vikunni. Vegna þessara undirtekta í París og Bonn fá viðræður Mac- millans í Washington í næstu viku á sig enn meira mikilvægi. FÚSIR TIL VIÐRÆÐNA EF . . . Von Eckhart, talsmaður vest- urnþýzku stjórnarinnar, sagði í dag, að Vestur-Þjóðverjar væru fúsir til viðræðna um takmörk- un, ef ekki væri um neina mis- munun að ræða. Gerði hann það ljóst, að þeir mundu vilja, að slíkt svæði næði einnig til a. m. k. hluta af Rússlandi og mundu ekki fallast á, að það væri að- eins tákmarkað við Mið-Evrópu — en það þýddi, að það næði aðallega til þýzks lands. Þá hefðu Vestur-Þjóðverjar aðal- lega í huga svæði, þar sem hald ið væri uppi eftirliti með herj- um, fremur en svæði, þar sem væri takmarkað herlið, svipað þeim tillögum, er vesturveldin báru fram við afvopnunarum- ræðurnar í London 1957. ÖNNUR MÁL RÆDD. Auk takmörkunarinnar ræddu ráðherrarnir um mörg önnur mál, svo sem utanríkisráðherra- fund, fund æðstu manna og sam einingu Þýzkalands. Grivas falinn fara m helgina Nicosia, 13. marz (Reuter). VOPN, grafin upp úr hundr- um felustaða lirúguðust upp und ir sólheitum himni hér í dag, er Kýpurbúar bjuggust til að ljúka við síðasta kaflann í sögu fjög- urra, blóðugra ára. Undir vernd ákvæðanna um sakarupgjöf — komu meðlimir EOKA-hreyfing ,Köld eru kvenna- réð’ sýnl á Akranesi UMF Afturelding í Mosfells- sveit hefur að undanförnu sýnt gamanleikinn „Köld eru kvenna ráð“ í Mosfellssveit og nágrenni Leikurinn verður sýndur á Akra nesi í kvöld kl. 9 og á sunnu- dag í Borgarnesi kl. 4 og kl. 9. Leikstjóri er Klemenz Jóns- son en Jóhann Pálsson leikari úr Reykjavík fer með aðalhlut- verkið. Fylgislap hjá kommúnistum í Hreyfli STJÓRNARKJÖRI er lokið í sj álfseignarmannadeild bifreiða stjórafélagsins Hreyfils. Atkv. hafa verið talin og úrslit voru þau, að A-Iistinn, sem var listi andistæðinga kommúnista fékk 228 atkvæði. B-listi kommún- ista fékk 120 atkvæði. Munurinn á atkvæðafjölda nú var 108 atkvæði, en í fyrra mun aði 90 atkvæðum á lista lýðræð- isisnna og kommúnista. Sýnir þessi kosning eins og margar nú að undanförnu, að kommúnistar eru hvarvetna á undanhaldi í verkalýðsfélögun- um. arinnar til söfnunarstöðva Breta og afhentu byssur, sprengjur og skotfæri. Verða vopn þessi vopnabúr lýðveldisins á Kýpur, er það verður stofnað innan árs. Meðlimir neðanjarðarhreyfing- arinnar voru þögulir og í sum- um tilfellum tortryggnir, er þeir afehntu vopn sín Bretum, sem þeir hafa barizt gegn. Stöðugur straumur vörubif- reiða var til söfnunarstöðvanna frá felustöðvum EOKA, sem brezkir hermenn leituðu sem á- kafast eftir fyrir nokkrum mán- uðum. Segja yfirvöldin, að það hefði sennilega tekið Breta mörg ár að safna sarnan þeim vopnum, sem EOKA-menn hafa af fúsum vilja afhent á minna en einum degi. Uppruni vopnanna var eins margvíslegur og gerðir þeirra. í ljós kom, að amerísk byssa, sem afhent var í dag, var úr send- ingu, sem Bandaríkjamenn seldu Filipseyingum árið 1917. 15 ÁRA TELPA. Umsjón með einni sending- unni, er afhent var í Kykko- klaustrinu hjá Nicosia, hafði bráðung stúlka, er virtist ekki eldri en 15 ára. Hún svaraði ekki spurningum um nafn sitt og bar vandlega saman hin af- hentu vopn við lista sinn. Síðan tók hún við kvittun frá lögregl- unni. — Breitt var yfir númer sumra bílanna, er fluttu vopnin til stöðvanna. Búizt er við, að sprengiefni, er EOKA hefur afhent eða vísað á, verði sprengt á morgun. Grískir aðilar segja, að Griv as, ofursti, sem boðið hefur ver- ið sakarupgjöf gegn því, að hann fari til Grikklands, muni fresta brottför sinni, þar til öll vopn liafa verið afhent. irak á að verða kognmúniiíísk árásarmiS- sföð Damaskus, 13. marz (Reuter). ABDEL GAMAL NASSER sakaði hinn alþjóðlega kommún- isma í dag um að hafa í hyggju að gera írak að aðalstöð fyrir ídeólógíska herferð gegn Araba ustu ræðu sinni á þrem dögum sagði forseti Arabíska sambands lýðveldisins 500.000 fagnandi á- heyrendum, að kommúnistar væru til að svikja land sitt. — Hann sagði, að egypzki komm- MYNDIN var tekin á Kýp urráðstefnunni í London fyrir nokkru, er fullt sam- komulag náðist í Kýpur- deilunni. unum frá kommúnistaflokki Ir- aks, og íranskur kommúnisti færi eftir skipunum erlendis frá. Nasser, sem götulýður í Bag- dad kallaði eiturlyfjaneytanda f dag, sagðist hafa beðið fjórum sinnum um fund með Kassem, forsætisráðherra íraks, en slík- um fundi hefði verið neitað. Ræðu sína hélt Nasser við jarðárför íransks liðsforingja, er dó í Damaskus í gær af sár- um, er hann hlaut í uppreisn- inni í Mosul gegn Kassem. 3 MALDIVEYJAR LÝSA YFIR SJÁLFSTÆÐI Colombo, 13. marz (NTB- Reuter). — ÍBÚAR þriggja cyja á brezka verndarsvæðinu Maldiveyjum, þar sem Bretar eru að byggja flugbækistöð, hafa gert uppreisn gegn hinni repúblíkönsku stjórn eyríkis- ins og stofnað eigin ríki, að því er ráðið verður af fréítum, sem borizt hafa til Colombo. Marg- ar byggingar á eyjunum Bodu, Ruvadu og Fua Mulaku hafa verið brenndar af uppreisnar- mönnum. Alþýðublaðið — 14. marz 1959 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.