Alþýðublaðið - 20.03.1959, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 20.03.1959, Blaðsíða 1
<■ f 'v m(w< í Ulla Jacobson, sænska leik7 konan heimsfræga, gerði að- dáendum sínum þann óleik að giftast á laun í Vínarborg skömmu fyrir síðustu ára- niót, og hefur nú tekið sér búsetu þar. Hún er 29 árá. Sá heppni heitir Hans Vini- fred Roschmann og er banka- starfsmaður. Hann er 37 ára. * Hér hafið þið hjónin. 40. árg. — Föstudagur 20. marz — 1959 — 66. tbl, Snemma í gærmorgun kom Dakotaflugvélin Gunnfaxi sem laskaðist í ofviðri á 'Vestmannaeyjaflugvelli í sl. mánuði til Reykjavíkur með Mjs. Hv^ssaf^ll):.1 Vegna þeSs hvg flugvélin er fyrirferðarmikil og 'erfið í flutningi lagðist Hvassafell að Verbúðabryggju þar sem hún var sett á land og síðan ekið upp Granda og eftir Hringbraut að flugskýli Flugfélags íslands á ReýkjavíkurflugvellL Þáð tók rúmar tvær klukkustundir að fytja Gunnfaxa þessa leið vegna bess að umferðamerki og bílar, sem skildir höfðu verið eftir á Hringbrautinni, tálmuðu flutn- inginn. —TVIyndin er tekin í nánd við Elliheiinilið Grund við Hringbraut. — Ljósm.: Sveinn Sæmundsson. ■MMIWWWWWWtVWWWWWWmWWWWMiWWWWWWtWIWWIMWIIWIIHillW Fregn til Alþýðublaðsins. HVOLSVELLI £ gær. HÉRNA er alltaf hláka og mjög risjótt tíð. Undanfarið hefur rignt óskaplega. Undir Vestur-Eyjafjöllum er klakj að fara- úr jörð og tún farin að grænka þar, t.d. í Skálakrókn- um. Vegir eru sæmilegir um sýsl- una, en vegurinn suður í Þykkvabæ er mjög slæmur um- ferðar. Vitað er um állmargar jarð- ir til sölu í Rangárvallasýslu. T.d. hafa a.m.k. fimm jarðir í Fljótshlíð verið auglýstar. — Tvær jarðir að Stóra-Kollabæ og jörðin Litli-Kollabær, svo og ein á Torfastöðum og loks Fljót. Þá hafa jarðirnar Vallnatún undir Eyjafjöllum og Dufþaks- holt í Hvolhreppi verið aug- lýstar lausar til ábúðar, svo að eitthvað sé nefnt. — Þ.S. Kaiiöflum stolið ANNADHVORT sl. sunnu- dagskvöld eða á mánudaginn var stolið 6 til 8 kartöflupok- um í jarðhúsi að G-götu 24, Er það gatan við golfvöltinn í Kringlumýri. Hafi einhverjir orðið varir við þjófinn, eru þeir beðnir að hafa samband við rannsóknar- lögregluna. Tillsga Eggerts G. Þorsteinssonar um betri hagnýtingu ísl. kaupskipanna. Á SIÐASTLIÐNU ári voru yfirfærðar 28 milljónir króna í hörðum gjaldeyri fyrir leigu á erlendum kaupskipum, eri ■ þar að aúki voru allmiklar greiðslur vegna olíuflutninga til landsins. Eggert Þorsteins- IKF - IS 52:52 Á KÖRFUKNATTLEIKS- MÓTINU í gærkvöldi gerðu ÍKF og íþróttafélag stúdenta jafntefli í meistaraflokki karla "52:52 í geysispennandi og af- burðaskemmtilegum leik. ÍKF hafði þetta ca. 10 stig yfir mest allan leikinn, en í lokin sóttu stúdentarnir sig mjög vel og jöfnuðu við gífurleg fagnaðar- læti áhorfenda. í 2. flokki karla sigraði Ármann (b) lið ÍKF með 38 stigum gegn 21. Mótið heldur áfram á mánu- dagskvöldið kemur. son alþingismaður hefur nú flutt á alþingi tillögu þess efnis, að gerð verði í sam- vinnu við skipafélögin ná- kvæm rannsókn á hagnýtingu kaupskipaflotans í þeim til- gangi að nota, ef unnt reyn- ist, íslenzku skipin betur, en draga £ þess stað úr leigu er- lendra skipa. Eggert segir í greinargerð með tillögu sinni, að þessi miklu gjaldeyrisútgjöld verði enn meiri ráðgáta, þegar þess sé gætt, að íslenzku skipin sigli oft til ánnarra landa með lítinn eða jafnvel engan farm og grjót fyrir kjölfestu. Þeg- ar betur blæs og þau fá farma til útlanda, þurfa þau oft að sækja smáslatta af vörum á hverja höfn og koma á fjölda | hafna til að fá farm sinn. — Eggert segir, að varla geti slík meðferð hins glæsilega, íslenzka kaupskipaflota kall- azt góð nýting hans. Leiði þessi rannsókn í ljós, að bæta megi hagnýtingu kaupskipaflotans, vill Eggert fela ríkisstjórninni að koma á fastri skipan þeirra mála, enda beri skipafélögin kostn- að af slíkri starfsemi. Tillöpr hitaveifunefndar samþykktar. FYRIR bæjarstjórnarfundi, er haldinn var í gær, lá fund- argerð bæjarráðs frá 13. marz sl. Höfðu á þeim bæjarráðs- fundi verið lagðar fram tillög- ur hitaveitunefndar um stækk- un hitaveitunnar í Hlíðunum og nýtt hitaveitukerfi í hluta Laugarneshverfis. Samkvæmt tillögum hita- veitunefndar sltal Hlíðaveitan stækkuð til norðurs og austurs og gera skal áætlun um hita- veitukerfi í hluta Laugarnes- hverfis, næst dælustöð við Fúlu tjörn. Bæjarráð féllst á tillög- ur hitaveitunefndar. Á bæjarstjórnarfundinum í gær vóru tillögurnar samþýkkt ar samhljóða og án umræðna (Þórður Björnsson ekki mætt- ur). jiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiitiiiiiiin Landlega h|á Ungverjunum Fregn til Alþýðublaðsins. VESTM.EYJUM í gær. í ÐAG er afli tregur og leið- inda sjóveður. Ungversku sjó- mennirnir komu hingað í fyrra dag með mjólkurbátnum frá Þorlákshöfn. Bátur þeirra er hins vegar enn á strandstaðn- um. Tveir eða þrír menn af áhöfn „Gulltopps“ eru farnir á strand stað hans og auk þess fulltrúar frá Samábyrgðinni. Mun vera byrjað að ná honum lengra upp. Verður vafalaust hafizt handa um að ná „Gulltoppi" á flot strax og veður leyfir. Báturinn mun vera óbrotinn. — P.Þ. ÞAÐ er tvisvar búið ,að | kvikmynda nýju framhalds- | söguna, sem hefst á 11. síðu = blaðsins í dag. Nýja bíó hef- 1 ur sýnt hana oft og mörgum | sinnum og alltaf við mikla | aðsókn. Douglas Fairbanks 1 eldri lék Zorro í fyrri banda- | rísku bíó-útgáfunni af þess- | ari frægu bandarísku sögu, | og Tyrone Power í síðara | skiptið. Það getur þess vegna § vel verið, að þú hafir séð I myndina. En hafi þér fund- | ist myndin spennandi, þá | mun þér ekki síður finnast | það um söguna. Við spáum | ! því, að þú fylgist vel með — | 'iiiiiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiil

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.