Alþýðublaðið - 24.03.1959, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 24.03.1959, Blaðsíða 6
 CHARLES Newell í St. Joseph í Missouri hefur sótt um skilnað og byggir kröfu sína á eftirfarandi stað- reyndum, sem kona sín sé dag út og dag inn að japla á: ÍHvernig hann hengir upp handklæðin, eftir að hafa notað þau. Hvernig hann borð- ar. Hvernig hann greiðir sér. Vv Að hann skuli hafa rauðar kinnar. yV -A-ð hann skuli vera mótfallinn því, að kött- urinn fái að ganga á iborðinu, meðan verið er að eta. Að hann skuli vera á imóti því, að hún hafi köttinn með sér í rúmið. Enn fremur sagði Newell um konu sína: ,,Hún hefur oftar en einu sinni frætt mig á því, að hún hafi þekkt köttinn lengur en mig, og þess vegna hafi hann for- gangsrétt!“ ☆ . ☆ Leikur hlutverk sitt á þyzku ÞJÓÐVERJAR setja þýzkt tal í flestar erlendar mynd- ir, sem þár sýna, og ei- sagt, að það sé svo vel gert, að varla megi að finna. Danska leikkonan Hanne Smyrner (sjá mvnd) er sögð afbragðsgóð í tungumálum og hefur nú náð slíkri leikni í þýzku, að í næstu mynd sinr/ mun hún siálf tala inn á hina þýzku útgáfu af myndinni. Það er söngvamynd með CateAna Valente í aðalhlutverkinu. uiiiiiiiiiiiiiiiiivuiiiimiiiiiiHiiiiHMiiiiuiiiiuimiiiiifiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiuruiiiii Störf hús- inóður óborganleg ENGINN mundi hafa ráð á að eiga sér konu, ef hann ætti að borga fyrir alla þá vinnu, sem hún innir af hendi á heimilinu. Það væri þá helzt milljónamæringar, en þeir láta reyndar ekki konurnar sínar vinna heim ilisstörfin. Það er brezki hagfræðing urinn dr. Colin Clark við Oxford-háskólann, sem full yrðir þetta, og þar af leið- andi eru það brezkar hús- mæður, sem um er rætt. Dr. Clark hefur reiknað út, að samanlagt verðmæti matarlagningar, hreingern- inga, uppvasks og barna- gæzlu allra húsmæðra lands ins sé hvorki meira né minna en 280 milljarðar króna á ári, og er það þriðj ungur af þjóðartekjum Eng- lendinga. Dýrust er barna- gæzlan, sérstaklega meðan barnið er undir fimm ára aldri. Hún kostar 12 000 krónur á ári — fiyrir hvert barn. Barnagæzlan verður ódýrari með hverju ári eft- ir því sem barnið vex. Brezk fjölskylda þyrfti að borga húsmóðurinni 24 000 krónur á ári, ef hún heimt- aði kaup í peningum. Hús- mæður nú á dögum hafa að vísu fleiri hjálpartæki en húsmæður fyrr á tímum, en þær vinna lengur og hafa minni frítíma en þær. Þar of an á bætist, að húsmæður nú á dögum vinna gjarnan úti. Þegar dr. Clark lét þess- ar tölur sínar í Ijós, ætlaði eitt Lundúnablað að sannan, að þetta væri mjög ýkt hjá honum. Blaðið hafði upp á húsmóður með eitt barn og tlIlltlllllllIIIIIIIIIIIIIIIIIilIIUIIIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHillllllllllÍllllHIIIIII UlIIIIIIIIIIIIlimilIIIr II'(||IIIllll 111111111(11111111111111111 IIIIIIIIIIIII111IIIIÞ rEg gef hvorki lifað með henni eða án' 3KÖPUNARSAGAN í goðafræði Hindúa segir, að konan hafi ekki verið sköp- uð af rifbeini úr Adam, held ur hafi hún verið búin til úr hinni bogadregnu lögun mánans, bylgjandi hreyfingum slöngunnar, dögg grassins, léttleika blaðsins, hinu blíða augnaráði rádýrsins, glettni sólargeislans, angan blómanna, tárum þokunnar, óstöðugleika vindsins, hugleysi hérans, hégómagirni páfagauks- . ins, mýkt svanadúnsins, hörku demantsins, hita eldsins, grimmd tígrisdýrsins, kulda frostsins, blaðri hegrans og kurri dúfnanna. Af öllu þessu skóp guðinn Toraschtoj kouna og gaf hana manninum. En átta dögum seinna kom maður- inn til guðsins og sagði „Herra, þessi vera, sem þér gáfuð mér, eitrar líf mitt. Hún blaðrar sýknt og heil- agt, hún sóar tíma mínum, kvartar undan hinum minnstu smámunum og er þar að auki alltaf veik.“ — Þá tók guðinn konuna. Átta dögum síðar kom maðurinn aftur og sagði: „Herra, líf mitt er einmana legt, síðan þú tókst þessa veru frá mér. Hún var vön að syngja og dansa fyrir mig. Ég hugsa stöðugt um, hversu glettnislega hún leit til mín, lék sér við mig og þrýsti sér upp að mér.“ Hann fékk hana aftur, en þegar þremur dögum síðar var hann aftur kominn ,með hana og sagði við guðinn: „Herra, ég skil þetta ekki, en konan er mér meir til skapraunar en gleði. Ég get ekki lifað með henni.“ Þá sagði guðinn: „En get- ur þú lifað án hennar?“ Maðurinn drúpti höfði sorgmæddur og sagði kjökr andi: „Ó, mig auman! Ég get livorki lifað með henni né án hennar." lét stúlkur á tímakaupi vinna hennar daglegu störf. Og það kom upp úr kafinu, að dr. Clark hafði síður en svo ýkt í r.eikningum sín- um. Þvert á móti var kostn aður við störf húsmóðurinn ar tvöfalt meiri en hann hafði reiknað. SÁMTININGUR -£■ ALICE MICHAULT hitti Fernando de Meglio á eyjunni Ischias og þau ákváðu með það sama að giftast. Síðan fór Alice til Parísar, en á með an varð skálkurinn hann Fernando skotinn í ann- arri og var einmitt að und- irbúa brúðkaup sitt og þessarar nýju, þegar Alice vesalingurinn kom aftur til hans. Alice varð svo mikið um tíðindin, að hún reyndi að fremja sjálfs- morð með því að kasta sér í vatnið. En henni var bjargað og af engum öðr- um en Fernando, — sem sagði: — Mér er sönn ánægja að bjarga þér, en gifzt þér get ég ekki með nokkru móti! ÞAÐ er erfitt fyrir þægilega Iygi að sigr- ast á óþægilegum sann- leika. ☆ Kfenpresla- tízka SÆNSKIR tízkufrömuðir hafa nú nýstárleg viðfangs- efni við að glíma. Svo er mál með vexti, að nýlega hefur verið í lög leitt þar í landi, að konur mættu taka prestvígslu. Nú hlaut sú spurning að vakna, hvernig klæðnaður sæmdi kven- prestunum. Erkibiskup hef- ur fengið uppkaststeikn- ingu, en hún er á þánn veg, að það skal vera einfaldur svartur kufl, með sjö hnöppum að framan og fell- ingu í bakið. Pilsfaldurinn Skal vera 30 cm frá gólfi. ★ Befra seinf en aldrei SELINA LINDSAY frá London varð ekkja 66 ára gömul. Hún hafiði ekki úr miklu að moða til þess að lifa af, og þess vegna krækti hún sér í dagblað, valdi fyrstu hjónabandsaug lýsinguna, sem hún rakst á, og sendi tilboð og mynd. Þegar hún sá tilvonandi eiginmann sinn, urðu held- ur en ekki fagnafundir. Þau höfðu nefnilega verið trú- lofuð, þegar þau voru ung, — en trúlofunin hafði far- ið út um þúfur vegna ein- hvers miáSkílnings. Betra seint en aldrei! FRÆGÐIN hefur stigið helztu stjónvarpsstjörnu Bretaveldis svo til höfuðs að til vandræða horfir. Þessi vandræðagepill er sjimpansapinn Congo, sem unnið hafði hjörtu allra sjón varpsáhorfenda með kúnst- um sínum. Hann hefur einn ig getið sér frábæran orðs- tí sem listmálari og hafa málverk hans vakið mikið umtal um heim allan. Á hápunkti frægðar sinn- ar var hann eftirlæti allra á sjónvarpsstöðinni, en nú grípur menn ótti, ef þeir aðeins heyra nafn hans nefnt. Það er eftir það, að hann beit rafmagnsmann hastarlega og hellti rauðri málningu yfir sjónvarps- gagnrýnanda. Eit1 hékk hann lengi í sj manni og einu sinn: hann að rífa buxu „rokk and ro!l“-s< En það var nú talið síðastnefnda afbrot einhverju leyti skiD En Congo var sa áður tvímælalaust með mikilmennskut og nú er búið að ld inni í alveg venjuh í Dýragarði Lundún ★ inn og St KAUPMABURIN inu hafði fengið ný anbúðarþjón beinti borginni. Dag nokk bóndakona í búðin; um sápu. BúðarJ ætlaði heldur en sýna hæfni sína mennsku og tó 111111111 lllllllllllllllllllllllltl IIIIIIIIIIII1111111111111111111111111IIIIIMIIIIIIIIMI || Hllll ||I||!!| tlil Keppni í vindlareykini MENN hafa oft furðar sig á v'lndlareykingum kvenna, en samkvæmt nýjustu heimildum virða: ar konur engu síður skæðar í vindlareykingum dönsku. Myndin hér að ofan er frá keppni í vin ingum, sem átti sér stað í Englandi. Leikregl þær, að engin aska mát9 falla af vindunum e endur máttu ekki blása reyk út úr sér, nema þe| arinn gaf merki. í keppni þessari voru þrjátíu endur, þar af átta konur. LEYNDARDÓMUB MONT EVERKíöi GRACE er ekki síður fegin að sjá hann en hann hana. „En hvers konar flík- ur ert þú kominn í, Frans?“ Frans veit varla hverju svara skuli, því honum veit ist örðugt að segja henni, hvílík örlög bíði hans. „Hefur þú nokkra hugmynd um hvar við erum spyr Grace. „Ég hl ir þér, þegar þú f< hellinn, en hvað sí ist, hef ég ekki um. Ég hef líklÉ meðvitund, en j 0 24. marz 1959 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.