Alþýðublaðið - 26.03.1959, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 26.03.1959, Blaðsíða 3
I fordyri hússins að Dyngjuvegi 4 er þessi cnski kirkjugluggi með Maríumynd. Ljósm. O. Ó. OKKAR Á MILLl SAGT ■ - _ •... ' INGI R. HELGASON lögfræðingur, sem er framkvæmda- stjóri Sósíalistaflokksins, er nýkominn til landsins úr rúmlega mánaðar dularfullu ferðalagi . . . Hann fór til Kaupmfannahafn- ar og þaðan vafalaust austur á bóginn . . . Er talið, að hann hafi verið að ganga frá ýmis konar aðstoð frlá húsbændunum austri, ekki sízt mað tilliti til væntanlegra kosninga. Framboðsundirbúningur er nú í fullum krafti hjá öllum flokkum . • . Staðfestar fregnir af slíku fást aldrei, fyrr en. framboðin eru birt, en fyrir þá, sem gaman hafa af vanga- véltum um; þessa hluti, eru hér nokkrir bitar: FRAMSÓKNARMEN N munu breyta allmiörgum framfooð- um . . . Af eldri þingmönnum þeirra er talið láklegt að Bernhard Stefánsson og Páll Zófoníasson verði áfram, en Steingrímur Steinlþórsson hætti, og komi þá Ólafur prófessor Jóhannesson í hans stað . . . Líklegt er, að framlbjóðandi flokksins á Snæfells- nesi verði Gunnar bóndi Alexander Stefánsson, kaupfélagsstjóri í Ólafsvík. KOMMÚNISTAR eru þegar búnir að ákveða eina stór- breytingu: að kasta Hannibal burt úr Reykjavík, og verður hann væntanlega í framjboði vestra á ný . . . Það verður harður komm'únisti, sem fær sæti hans í Reykjavík, sennilega Eðvarð Sigurðsson. Heimsökn til frú Unnar Ólafsdóttur VERK HENNAR PRÝÐA MARG- AR KIRKJUR LANDSINS SJÁLFSTÆÐISMENN erui byrjaðir að til'kynna framboð, og hafa tveir íhaldsprinsar, sem lengi hafa .búið sig undir að taka við kjördæmum, fen’gið útnefningu, þeir Ásgeir Pétursson. á Mýrum og Matthías Mathiesen í Hafnarfirði • . . Jón Árna- son, framkvsemdastj óri á Akranesi, hefur vaxandi möguleika á fram\boðinu í Borgarfirði, þótt ekki sé það fullráðið. M, lARGIR, sem leið eiga um Laugarásinn, velta því fyrir sér, hver muni eiga heima í húsinu númer fjögur við Dyngjuveg. Húsin barna á hæðinni eru að vísu mörg sérstæð, en þetta þó sérstak- lega vegna reykháfs úr ís- lenzkri hrafntinnu, kirkju- glugga með stórri Maríumynd og járnsleginnar útihurðar. — í þessu húsi búa hjónin Óli M. ísaksson og Unnur Ólafs- dóttir listakona, sem varið Altarisklæðið í Bessastaðakirkju. hefur ævistarfi sínu til að prýða fjölmörg guðshús í land inu. Þegar ég heimsótti hana í fyrradag í tilefni af mestu kirkjuhátíð ársins, bauð hún mér inn í stóra og bjarta stofu, og ég bar óðar upp er- indið. Hún kvaðst þessa dagana vinna að altarisklæði fyrir kirkju Óháða safnaðarins, er taka ætti í notkun við vígslu kirkjunnar á sumardaginn fyrsta. Auk altarisklæðisins væri hún að vinna að íslenzk- um hátíðabúningi fyrir Höllu Linker, skautbúningi,sem hún ætlaði að klæðast í banda- rísku sjónvarpi í sumar. Bún- ingurinn þyrfti að vera kom- inn vestur fyrir 17. júní. Frú Unnur Ólafsdóttir hóf fjórtán ára gömul að læra listsaum í Danmörku. Hún kveðst ávallt síðan hafa verið að læra. Hún hefur komið í hverja kirkju í Stokkhólmi og flestar í Höfn, og álítur að af því að skoða erlendar kirkj ur, megi meira læra en að sitja á skólabekk. Henni þvk- ir mikið koma til kirkjulistar- innar í Svíþjóð. Mest telur hún sig búa að því, sem hún lærði hiá systur Clementiu í Landakoti. Hún var mikil listakona. „Systurnar Ásdís og Iðunn Jakobsdætur, sem starfað hafa með mér um ára- bil, hafa þrisvar sinnum farið til náms í Licium, kirkjulist- arfvrirtækinu í Stokkhólmi. Forstöðukona Licium, frk. Hillbom, kom tvisvar hingað til lands og leiðbeindi stúlk- unum í mánaðartíma hvort skioti, en lézt rétt áður en him ætlaði að koma hingað í þriðia sinn.“ Fvrsta verk sitt fyrir ís- lenzka kirkiu vann frú Unn- ur Ivðveldishátíðarárið. Þá saumaði hún fyrir Harald Böðvarsson og konu hans alt- arisklæði og hökul, sem bau gáfu Akraneskirkju. 'Síðan hefur hún saumað altaris- klæði í Akureyrarkirkiu, báð- ar kirkjurnar í Hafnarfirði, kirkiurnar á Siglufirði og í Keflavík, í Fríkirkjuna í Revkiavík og hökul í Dóm- kirkiuna, svo og altarisskrúða í nokkrar kirkjur úti á landi. Er bess skemmst að minnast, að Bíldudalskirkja fékk að giöf á fimmtíu ára afmæli sínu forkunnarfagurt altaris- klæði og hökul. Auk íslenzku kirknanna er altarisklæði frá frúnni í Sct. Jörgensbjergkirkju í Hróars- keldu, gefið af kirkjunum í Ólafsvík, Ingjaldshóli og á Brimilsvöllum:' Eitt hið merkilegasta verk frú Unnar Ólafsdóttur mun vera altarisklæði það, sem hún saumaði fyrir Svein heit- inn Björnsson forseta og konu hans, en þau gáfu Bessastaða kirkju. Er ég spyr nánar um það verk, tekur hún fram myndir af klæðinu og býður mér að skoða, á meðan hún skreppiniðurfvinnustof u augna blik. Þegar ég hafði skoðað myndirnar, leit ég í kringum mig. Fólk hlýtur að undrast hve unnt er að gera heimilis- legt með svona mörgum göml um listmunum, sem hérna virðast saman komnir. Á vegg í innri stofu gefur að líta veggteppi gert eftir Valþjófs- staðahurðinni í fullri stærð. í húsinu eru gamlir gluggar með blýgreyptum rúðum. Það er augljóst, að húsið hef- ur verið teiknað utan um það, sem inni í því er, utan um gamlar hurðir og gamla glugga. Húsateiknaranum, í>ór iSandiholt, virðist hafa tekizt prýðilega að sameina gamalt og nýtt. Út um glugga blasir við hið fegursta útsýni, Keilir lengst til vinstri, mið- bærinn og út á Faxaflóa og í vestri sér allt til Snæfells- nessjökuls. Mér datt í hug hvers vegna frúin héldi ekki sýningu á verkum sínum í þessu umhverfi. Ég gekk um gólf þegar frúin kom aftur inn. — Hefur yður ekki dottið í hug að halda sýningu hérna heima? spurði ég. — Hingað koma margir og biðja leyfis að fá að líta inn og sýna húsið útlending- um, segir hún, en þetta er þó aðeins heimili okkar. Aðspurð kveðst frúin hafa haldið þrjár sýningar í kap- ellu Háskólans, einu sinni sýnt í Sjómannaskólanum og einu sinni í Bogasal Þjóð- minjasafnsins. Síðast sýndi hún fyrir þremur árum. Ágóði af sýningunni fór til styrktar blindum, Fyrir peningana var keypt hljóðfæri í hús Blindra- vinafélagsins. Það er nú kom- ið til landsins og verður vígt einhvern næstu daga. — Hve langan tíma tekur að gera altarisklæði? Ásdís og Iðunn Jakobsdætur vinna aö útsaumi altarisbríkur í Licium í Stokkbólmi. Sibylla Svíaprinsessa skoðar liand- bragð þeirra. — Það er mikil vinna, —• margra mánaða verk að gera eitt altarisklæði, segir hún. Myndin er ákveðin í samráði við þá, sem láta gera klæðið, síðan þarf að teikna og það tekur oft langan tíma. Engin tvö kirkjuklæði eru eins. — Hvaðan fáið þér alla list- munina, sem prýða heimilið? spurði ég? — Við hjónin höfum eign- azt einn og einn grip í einu og fengið þá úr ýmsum áttum. Það var hægara um að eignast slíka hluti hér áður fyrr. Fyrsta hlutinn fékk ég fyrir fyrra stríð. Þá keypti ég gaml an útskorinn kirkjubekk í Danmörku fyrir 68 íslenzkar krónur. Það þótti dýrt þá. Bekkurinn er allur útskorinn. Oft hef ég orðið af eigulegum listmunum vegna auraleysis. Einna mest fann ég til þess í Kaupmannahöfn í fyrrasum- ar. Ég hafði fyrir mörgum árum komið á heimili prófess- ors Utzon Frank, myndhöggv- ara, og sá hjá honum marga fagra muni. Nú kom ég í fyrrasumar á listaverkaupp- boð í Höfn, og sé þá að verið er að selia listmuni prófess- orsins. Þar fékkst margur góður gripur, en — því mið- ur — és náði ekki í neitt. — Mig Iangaði til að mega segja frá altarisklæðinu í BessastaðakirJnu? — Þegar Bessastaðakirkja var endurvígð árið 1948, gáfu forsetahiónin báverandi, kirkj unni altarisklæði, sem var einvörðungu búið til úr ís- lenzknm hör. sem forsetinn ræktaði siálfur á Bessastöð- iim, Dúkurinn var ofinn úr líninu og í hann saumað með, dekkri hör. Klæðjð skintist í rúmlega 60 reiti og í hvern haírra eru saumaðir stafirnir IMS. Sömiuleiðis gerðnm1 við, hökul úr íslenzku vaðmáli, hann var rauður með svlltum krossi. allur saumaður með Bessastaðahör með inngreypt-; um steuir frá Gleiíhallavíik. — Hafíð bér notað glerhalla í önnur klæði? , — Ég hef mikið notað steina í útsaum og skartarini. Þeirj ern grevotir í smáumgjörð og. síðan saumaðir niður. Gler- hallarnir eru óslípaðir, enda Framliald á 11. síðu. Alþýðublaðið — 26. marz 1959 3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.